Morgunblaðið - 04.11.1994, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Atakið „tryggjum atvinnui ■-
verslum hGimð1 ÍMor9U"blaðinu
næstu föstudaga.
KUNIGUND
Skólavöróustig 6, s. 91-13469.
Ryðfritt stál með tvöföldum botni
Skaftpottar frá 11. og pottar upp í 151.
heima
DÖMUKULDASKÓR
| Teg. 34 St. 36-41 Litur: Svartur.
4.795
ORR-skór, Kringlunni, Rvík.
OSkór og skart, Laugavegi 16, Rvík.
OSkómarkaður RR, Skemmuvegi 32,
Kópavogi.
OSkóhöllin, Bæjarhrauni, Hafnarfirði.
% Skóbúðin, Hafnargötu 35,
Keflavík
% M.H. Lyngdal, Hafnarstræti 103,
Akurwri.
% Axel 0., skóverslun,
Vestmannabraut 23,Vestmannaeyjurii.
% Skóbúð Selfoss, Austurvegi 13-15, Selfossi.
Sérsmíðum úr
stáli og járni
HF.OFNASMIflJAN
áteigsvegi 7,
s. 21220, fax 623121
LISTIR
„Kaffi og
með því“
DAGNÝ Kristjánsdóttir dósent held-
ur fyrirlestur á vegum Félags áhuga-
manna um bókmenntir á morgun,
laugardag, og fjallar hún um þekkt-
asta verk Guðrúnar frá Lundi, Dala-
líf. Fyrirlestur Dagnýar heitir „Kaffí
og með því: Dalalíf Guðrúnar frá
Lundi“ og verður haldinn í stofu 101
í Odda, húsi Félagsvísindadeildar
Háskóla Islands.
Guðrún frá Lundi er einn vinsæl-
asti rithöfundur þjóðarinnar fyrr og
síðar, þó fræðimenn hafi ekki gefið
verkum hennar gaum í samræmi við
það. Raunar má segja að hún hafi
verið afskrifuð sem marktækur höf-
undur allt fram á þennan dag. Dagný
fjallar meðal annars um þær viðtökur
sem verk Guðrúnar hlutu, en fyrir-
lestur hennar er til marks við vax-
andi áhuga á þessum sérstæða höf-
undi sem sameinaði breiðar samfé-
lagsiýsingar raunsæisskáidsögunnar
alþýðlegri lífssýn.
Eftir fyrirlesturinn verða almenn-
ar umræður sem Soffía Auður Birgis-
dóttir stýrir.
NONAME
CX)SMETICS
mmiig
ídag
fráíd- 14-18
Snyrti- og gjafavöruverslun,
Háaieitisbraut 58-60, s. 813525. Opið laugardqgct fct. 10-16.
Stærðir 36-41
Litur: Brúnir/svartir
teg. 99
Kr. 5.995
tcg. 127
Kr. 3.995
Fjölbreytt
úrval fyrir
sérverslanir
og almennar
verslanir
DOMUKULDASKOR
Málverka-
uppboð á
Hótel Sögu
GALLERÍ Borg heldur mál-
verkauppboð á Hótel Sögu
sunnudaginn 6. nóvember kl.
20.30.
Boðin verða um 80 verk, flest
eftir gömlu meistarana. Þar
má nefna myndir eftir Jóhannes
S. Kjarval, Asgrím Jónsson, Jón
Stefánsson, Mugg, Kristínu
Jónsdóttur, Júlíönu Sveinsdótt-
ur, Jón Engilberts, Nínu
Tryggvadóttur, Þorvald Skúla-
son, Svavar Guðnason, Karl
Kvaran, Valtý Pétursson, Krist-
ján Davíðsson og Erró.
Uppboðsverkin verða sýnd í
Gallerí Borg við Austurvöil í
dag, á morgun og á sunnudag
frá ki. 12-18. Uppboðshaldari
verður Haraldur Blöndal.
Sýning á verk-
um Kristins
Péturssonar
OPNUÐ hefur verið sýning á
verkum Kristins Péturssonar í
sýningarsalnum Önnur hæð,
Laugavegi 37. Á sýningunni eru
málverk á striga merkt 1979
og eru þau því í hópi síðustu
verka listamannsins og hafa
fæst þeirra verið til sýnis áður.
Kristinn Pétursson fæddist
1896. Hann stundaði fyrst nám
hjá Þórarni Þoriákssyni og síðar
í Osló,_ París og Kaupmanna-
höfn. Árið 1943 flutti hann inn
í eigin vinnustofu og heimili í
Hveragerði, „Seyðtún". Árið
1954 hélt hann í Seyðtúni sína
síðustu opinberu listsýningu og
vann næstu áratugi í kyrrþey.
Kristinn lést árið 1981 og árið
eftir var haldin yfirlitssýning á
verkum hans í Listasafni ASI,
en verkin sem til sýnis eru nú
eru fengin að láni þaðan. Sýn-
iligin er opin á miðvikudögum
frá kl. 14-18.
Samsýning í
Hafnarborg
SAMSÝNING sjö myndlistar-
manna verður opnuð í Hafnar-
borg, menningar- og listastofn-
un Hafnarfjarðar, á morgun kl.
14 en á sýninguni eru málverk,
skúlptúr og grafík.
Þeir sem sýna eru; Bjarni
Daníelsson, Björgvin Sigurgeir
Haraldsson, Edda Óskarsdóttir,
Gunnlaugur Stefán Gíslason,
Helga Júlíusdóttir, Lísa K. Guð-
jónsdóttir og Pétur Bjarnason,
en myndlistarmennirnir hafa
um árabil verið samstarfsmenn
við Myndlista- og handíðaskóla
íslands.
Sýningin stendur til 21. nóv.
og er opin alla daga frá kl.
12-18, en lokuð á þriðjudögum.
Antonio Hervás
sýnir í Portinu
SPÆNSKI málarinn Antonio
Hervás Amescua opnar sýning-
una „Straumar-Corriente" í
Portinu, Strandgötu 50, Hafn-
arfirði, á morgun, laugardag
kl. 14.
Antonio er fullnuminn sem
listkennari og hefur haldið
margar einkasýningar í heima-
landi sínu, Bandaríkjunum og
ísrael. Síðastliðið sumar dvaldi
hann á íslandi í boði spænsku
ræðismannsskrifstofunnar. Nú
í sumar fékk hann annað tæki-
færi til að koma til landsins,
að þessu sinni í boði Listamið-
stöðvar Hafnarfjarðar í
Straumi.
Sýningin stendur til 20. nóv-
ember og er opin daglega frá
kl. 14-18 nema þriðjudaga.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Reykjanesi
5. nóvember 1994
Tryggjum
Ama Ragnari Amasyni
góða kosningu
Jóna G. Hermannsdóttir, varahreppsnftr., Bessastaðahr.
Gústaf A. Jónsson, forstöðumaður, Garðabæ
Guðrún Hrönn Kristinsdóttir, húsmóðir, Garðabæ
Jóhanna Björnsdóttir, kennari, Garðabæ
Ásgeir Þórðarson, rennismiður, Garðabæ
Andrés B. Sigurðsson, framkvæmdasfjóri, Garðabæ
Björn Antonsson, flugvirki, Garðabæ
Elísabet Guðjohnsen, framkvæmdastjóri, Garðabæ
Birgir Friðriksson, fulltrúi, Garðabæ
Magni Sigurhansson, framkvæmdastjóri, Garðabæ
Pálmar Ólason, arkitekt, Garðabæ
Guðmundur Gunnarsson, oddviti, Bessastaðahr.
Sigurveig Sæmundsdóttir, yfirkennari, Garðabæ
Guðmundur Hallgrímsson, lyfjafræðingur, Garðabæ
Helga Jakobs, skrifstofumaður, Garðabæ
Eysteinn Haraldsson, verkfræðingur, Garðabæ
Jóhann Jóhannsson, skrifstofustjóri, Bessastaðahr.
Herbert H. Agústsson, hljómlistarmaður, Garðabæ
Þorsteinn Fr. Sigurðsson, framkvæmdastjóri, Garðabæ
Tryggvi Eyvindsson, kerfisfræðingur, Garðabæ