Morgunblaðið - 04.11.1994, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1994
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
JT • > -I
j £>. - it.
ÍVC,v' “í r.£
>- j>í . ;
m
Orgelperlur
Gjöf Errós til Reykjavíkurborgar sýnd á Kjarvalsstöðum
Frá æsku-
Nýjar bækur
Viðtalsbók við
Gunnar Dal
Gunnar Dal.
Hans K. Árnason.
ÚT er komin bókin Að
elska er að lifa. Hans
Kristján Árnason ræðir
við Gunnar Dal.
Að elska er að lifa skipt-
ist í 200 stutta og sjálf-
stæða kafla. Þar ræðir
Gunnar Dal við Hans
Kristján meðal annars um
hamingjuna, sérstöðu ís-
lendinga, fólk, fæðingu og
dauða, menningu, heim-
speki, dulspeki, tungumál,
tímann, trúmál, stjómmál,
siðfræði, ástina og framtíðina.
í bókinni bregður Gunnar Dal upp
heimsmynd sinni og heimspeki. Eftir
hann liggja 48 bækur á jafnmörgum
árum.
„Að elska er að lifa er eiguleg og
aðgengileg bók sem eykur skilning
lesandans á mörgu því sem mönnum
hættir til að horfa á blindum aug-
um,“ segir í kynningu. Bókin er 480
blaðsíður og kostar 3.420 krónur.
Dreifmg, íslensk bókadreifmg hf.
Saga daganna fær
viðurkenningu
ÁRNI Bjömsson þjóðháttafræðingur
fer nú um helgina til Svíþjóðar til
að veita viðtöku verðlaunum frá
Hinni konunglegu sænsku þjóð-
fræðaakademíu Gustavs Adolfs. Við-
urkenningin nemur 20.000 sænskum
krónum og er veitt fyrir fræðistörf
Árna um íslenskar hátíðir og merki-
daga, einkum stórvirki hans „Sögu
daganna" sem út kom í fyrrahaust
hjá Máli og menningu. Verðlaunin
verða veitt við hátíðlega athöfn
sunnudaginn 6. nóvember kl. 17 í
Vasa-salnum í Uppsalahöll.
„Kungliga Gustav Adolfs Aka-
demien för svensk fo!kkultur“ var
stofnuð 1932, og er kennd við þjóð-
hetju Svía frá 17. öld, stríðskónginn
Gústaf 2. Adolf, sem einnig var
áhugamaður um sögu og þjóðfræði.
Um 190 fræðimenn og heiðursfélag-
ar sitja í akademíunni, sem hefur
staðið fyrir ýmsum merkum rann-
sóknarverkefnum í Svíþjóð og gefur
auk árbókar út þijú virt tímarit á
sviði sænskrar og norrænnar sagn-
fræði og þjóðfræði. Vemdari aka-
demíunnar er Karl Gústaf Svíakon-
ungur.
„Saga daganna“ var tilnefnd til
íslensku bókmenntaverðlaunanna
1993 í flokki fræðibóka og Félag
íslenskra bókasafnsfræðinga veitti
henni viðurkenningu. Þá hefur heim-
spekideild Háskóla íslands samþykkt
að taka „Sögu daganna" til doktors-
varnar 7. janúar, á Eldbjargarmessu.
------------» ♦ »-----
Hala-leikhóp-
urinn sýnir tvo
einþáttunga
U.M þessar mundir standa yfir sýn-
ingar Hala-Ieikhópsins á einþáttung-
unum Á Rúmsjó og Jóðlíf.
Næstu sýningar eru í kvöld kl. 20
og á sunnudag kl. 15. Sýnt er í
Halanum, Hátúni 12, og er miðaverð
800 krónur.
Morgunblaoiö/bvemr
ERRÓ ásamt Guðrúnu Jónsdóttur formanni menningarmála-
nefndar borgarinnar, þýðanda Erróbókar, Sigurði Pálssyni og
forráðamanni Odda, Þorgeiri Baldurssyni
við Reykjavíkurhöfn um aðstöðu fyr-
ir Listasafn Reykjavíkur, þar með
talið Errósafn, í Hafnarhúsi. Hús-
næði Listasafns Reykjavíkur á Kjarv-
alsstöðum er löngu orðið of lítið. f
, Hafnarhúsinu er sýningarsvæðið
5.800 fermetrar.
Á blaðamannafundi í tilefni sýn-
ingarinnar og útkomu bókarinnar
sagði Erró að það skipti ekki máli
fyrir sig hvar safnið yrði. Hann sagð-
ist að mestu búinn að ljúka sínu
verki. Hann nefndi að hann ætti verk
í fjósi í París, fjósið hýsti nú Vísinda-
safnið. Einfaldur stíll hæfði málverk-
um vel.
Bókin
Erró kvaðst sáttur við bókina sem
nú er að koma út. Þetta er glæsilegt
verk" sem segja má að standi sér í
íslenskri bókaútgáfu. Hann lauk lofs-
orði á forráðamenn Odda sem sáu
um prentun og prentvinnslu bókar-
innar. Hún er á þremur tungumálum,
íslensku, ensku og frönsku. Höfund-
urinn er franskur þjóðfræðingur,
Marc Auge, og sagði íslenski þýðand-
inn, Sigurður Pálsson, að hann væri
samkvæmur franskri hefð, þar sem
skáldskapur og hugarflug nyti sín.
Erró sagði að litir væru ferskir
og skærir í bókinni, en ekki eins og
þeir hefðu verið þvegnir með sterkri
sápu eins og títt væri um prentun
erlendis, til dæmis á Ítalíu. Bókin
kemur opinberlega út í París 1. des-
ember og opnar Erró þar á sama
tíma sýningu á nýjum vatnslitamynd-
um, en við vatnsliti hefur hann feng-
ist mikið að undanförnu.
Errósýningin verður opin daglega
til 4. desember kl. 10-18., Sýningin
í Kringlunni verður einnig opin til
4. desember á opnunartíma Kringl-
unnar.
TONLIST
I) ó III k i r k j a n
ORGELTÓNLEIKAR
Marteinn H. Friðriksson, orgel: Verk
eftir Jón Nordal, Hjálmar H. Ragn-
arsson, Buxteliude, Eben og J.S.
Bach. Þriðjudagur 1. nóvember.
ANNAR atburðurinn af sex á yfir-
standandi Tónlistardögum Dóm-
kirkjunnar (30.10.-6.11.) rann upp
á þriðjudagskvöldið var með orgel-
tónleikum dómorganistans, Marteins
H. Friðrikssonar. Aðsókn var í
dræmara lagi, og var það mikil synd,
því þó að prógrammið væri ekki
ýkja langt, var það bæði fjölbreytt
og skemmtilegt. Hvort sem tónleika-
gestir settu versnandi færð fyrir sig
þetta kvöld eða eitthvað annað, hef-
ur oft sézt betri aðsókn að verri tón-
leikum, því flutningur Marteins var
mjög góður og viðfangsefnin hin
áhugaverðustu.
Sálmforleikur Jóns Nordals um
„sálm sem aldrei var sunginn" virð-
ist ætla að verða sígildur í íslenzkum
orgelbókmenntum; honum er farið
að bregða fyrir það víða. Marteinn
lék verkið skörulega, og sömuleiðis
Tokkötu Hjálmars Helga Ragnars-
sonar, er var samin fyrir Tónlistar-
dagana í fyrra. Tokkatan hefst á
krassandi ómstríðum hljómum. Síð-
an tekur við þrástefjaleikur á hand-
spilin í mínimölskum anda, er verður
að heljarlöngu crescendói; loks er
endað come prima, eins og hófst,
með alla stokka úti.
Eftir Dietrich Buxtehude, „Dan-
ann mikla“ sem Bach gekk um þvert
Þýzkaland á sínum tíma til að hlusta
á í Maríukirkjunni í Lúbeck, lék
Marteinn „Forleik, fúgu og sjakonnu
í C-dúr“ af miklum þrótti og sýndi
glögg fyrir hvers konar snilling Bach
eyddi skósólum sínum. Litríkt,
rapsódískt verk og furðu unglegt
miðað við ofanverða 17. öld.
Heiðursgestur Tónlistardaganna í
ár er tékkneska tónskáldið Petr
Eben (1929), prófessor við Tónlistar-
háskólann í Prag. Á þessum tónleik-
um kom á eftir Buxtehude verk eft-
ir Eben, „Hommage á Dietrich
Buxtehude", þar sem tónskáldið
notar steijaefni úr fyrrleikna verkinu
frá því þremur öidum áður. Verk
Ebens er eins konar fantasíu-svíta
og hið hressilegasta, enda hressilega
flutt af dómorganistanum. Kenndi
margra grasa, m.a. brá fyrir fúguk-
afla í latneskum rúmbu-rytma, þrá-
steQum í fótspili, scherzo-kenndum
kafla er minnti lauslega á stað í
Rhapsody in Blue hans Gershwins,
og húmorinn Var sjaldan langt und-
an. Tónmálið var útvíkkaður
dúr/moll, stundum mjög, stundum
minna, minnst þó í lokin, þar sem
DÚR bar sigur af hólmi, svo ekki
varð um villzt. í einu orði sagt bráð-
skemmtilegt verk.
Kóróna tónleikanna var hin fræga
Prelúdía og fúga J.S. Baehs í Es-dúr
(BMW 552), er enskumæltir kenna
við „heilaga Önnu“; að sönnu
„mónúmentalt" orgelverk og trúlega
með því rismesta sem fyrr og síðar
hefur verið skrifað fyrir hljóðfærið.
Hugmyndaflug, andagift og lífs-
þróttur þessa stórbrotna verks eru
engu lík og kalla undantekningar-
laust fram gæsahúð hjá hverjum
hlustanda, að ekki sé talað um þeg-
ar fimmradda þrístefja fúgan hefst
og nær hámarki. Þessari upphöfnu
tilfinningu kom dómorganistinn vel
til skila með skýrum og kraftmiklum
leik, þrátt- fyrir nokkra fingraþreytu
undir lokin, og þrátt fyrir marflatan
hálfrar sekúndu ómtíma Dómkirkj-
unnar, sem að öllu jöfnu gerir sitt
til að kæfa og kefla jafnvel drama-
tískustu tilþrif. Að yfirstíga slíkan
hjalla á sannfærandi hátt er ekki
lítið afrek.
Ríkarður Örn Pálsson
myndum
til nýrra
mynda
YFIRLITSSÝNING á verkum Errós
verður opnuð á Kjarvalsstöðum á
morgun undir heitinu GJÖFIN. Sama
dag verður einnig opnuð sýning í
Kringlunni á átta stórum verkum
eftir Erró frá árunum 1955-57 og
eru þær einnig hluti gjafarinnar. Til
stendur að sýna hluta myndanna á
Akureyri. Um þetta leyti er líka að
kom út stór listaverkabók með verk-
um Errós og texta um hann.
Haustið 1989 færði Erró Reykja-
víkurborg að gjöf safn eigin lista-
verka og hefur síðan verið að bæta
við hana, svo að verkin eru nú um
2.700 talsins. Gjöfín spannar nánast
allan feril Errós, frá æskumyndum
til nýrra mynda. Stór hiuti gjafarinn-
ar verður á sýningunni. Auk lista-
verkanna hefur Erró gefið Reykja-
víkurborg frumgerðir kvikmynda
sinna, ljósmyndir, veggspjöld,
dagbækur, bréf, listaverkabækur,
sýningarskrár og listaverk eftir aðra
listamenn.
Errósafn í Hafnarhúsi
Menningarmálanefnd Reykjavíkur
hefur lagt til við borgarráð að kanna
hvort hægt sé að ná samkomulagi
Einleikstón-
leikar í
Gerðubergi
PÍANÓLEIKAR-
INN Krystyna
Cortes kemur
fram á Einleiks-
tónleikum Gerðu-
bergs laugardag-
inn 5. nóvember
kl. 17. Á tónleik-
unum flytur
Krystyna prelúd-
íur og fúgur úr
Dák Wohltemperierte Klavier 1 nr. 8
í es-mo!l og nr. 15 í G-dúr eftir Bach.
Einnig leikur hún ljóð án orða op.
38 nr. 18 og Variations serieuses op.
54 eftir Mendelssohn, en hið síðar-
nefnda er eitt helsta tilbrigðaverk
tónskáldsins og eitt af heldri til-
brigðaverkum 18. aldar. Einnig flyt-
ur hún Næturljóð í c-moll op. 48 nr.
1 og Sónötu í h-moll op. 58 eftir
Chopin. Krystyna hefur komið fram
á einleikstónleikum bæði hér og er-
lendis. Hún hefur verið búsett á ís-
landi í tuttugu og þrjú ár og starfað
sem píanóleikari og kennari.
Krystyna Cortes.