Morgunblaðið - 04.11.1994, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 04.11.1994, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1994 33 Fulltrúar Reykjavíkurhafnar, Lög- reglunnar í Reykjavík og SVFÍ héldu fund 14. apríl ’93 þar sem rætt var um kaup á stórum björgunarbáti með tveimur vélum. Hálfdan sat fundinn fyrir hönd SVFÍ og lýsti því þar yfir að félagið hefði ekki áhuga á sam- starfi um slíkan bát. Þetta gerði hann án samþykkis og vitundar stjórnar og framkvæmdastjóra SVFÍ. Það er óásættanlegt að starfsmaður taki jafn stefnumarkandi ákvörðun sem þessa án samráðs við stjóm og framkvæmdastjóra. í skýrslu fyrr- greindra aðila um málið, dags. 16. sept. ’93, segir orðrétt: „Slysavarna- félagið hefur ekki tekið þátt í þess- ari vinnu af einhveijum orsökum.“ Framkvæmdastjóri SVFÍ og félagar úr Björgunarsveitinni Ingólfi hafa síðan leiðrétt þennan misskilning. Nýlega bárust út villandi upplýs- ingar um kostnað af námskeiðahaldi og fræðslustarfsemi félagsins sem virðast hafa verið gefnar út í þeim tilgangi að grafa undan Björgunar- skóla Landsbjargar og SVFÍ. Vitað er að þær komu frá Hálfdani. Þetta skapaði óþarfa misskilning og óánægju meðal björgunarsveita- manna um allt land en gjaldskrá björgunarskólans var birt um miðjan september. í fundargerð fram- kvæmdaráðs 20. sept. sl. segir: „Björgunarskólinn: Framkvæmdaráð ieggur áherslu á aðgjaldskrá skólans verði í lágmarki, en til að létta und- ir með björgunarsveitum verður frek- ar greitt úr sjóðum félagsins.“ Á björgunarráðsfundi 10. október sl., sem Hálfdan sat, var verðlagning rædd ennfrekar og framkvæmd nið- urgreiðslu SVFÍ til björgunarsveita. Hálfdan fékk allar fundargerðir framkvæmdaráðsins og hefði því auðveldlega getað skýrt björgunar- sveitarmönnum frá hinu sanna í málinu. Esther Guðmundsdóttir gerði at- hugasemd við málflutning Hálfdans vegna þessa máls en hann brást illa við henni, sagðist hafa sínar skoðan- ir á hlutunum og þeim yrði ekki breytt. Mörg önnur mál mætti upp telja, sem er þó með öllu óþarft á þessu stigi. Dæmin hér að ofan und- irstrika að á undanförnum árum hef- ur Hálfdan átt í stöðugum eijum og útistöðum við stjórn og fram- kvæmdastjóra SVFÍ og neitað að fara eftir fyrirmælum þrátt fyrir marg ítrekaðar aðfínnslur einstakra stjórnarmanna og framkvæmda- stjóra. Umfang starfsemi SVFÍ hefur margfaldast á undanförnum árum eins og landsmönnum er öllum ljóst. Undanfarna tvo áratugi hafa áhersl- ur SVFÍ verið að breytast hægt og sígandi. Lengst af var megináhersla lögð á húsbyggingar og tækjakaup fyrir björgunarsveitirnar, en minni tími fór þá eðlilega í fræðslumál og æfingar. Þetta hefur breyst. Nú er vaxandi þungi lagður á slysavama- þáttinn og fræðslumál björgunar- sveitamanna og slysavarnafólks. í því sambandi nægir að nefna helstu verkefni eins og Vörn fyrir böm, Komum heil heim, Öryggi á sund- stöðum, Slysavarnir í landbúnaði og Öryggi hafna. Aukin áhersia er lögð á samstarf við aðra aðila í þjóðfélag- inu sem vinna að sömu markmiðum og má þar nefna Landsbjörgu, Rauða kross Islands, samtök sjómanna og útgerðarmanna, bændasamtökin, sveitarstjórnir o.m.fl. Hálfdan lét berast til bjórgunar- sveita félagsins að stöðugt væri ver- ið að minnka framlög til björgunar- mála og sveita SVFI vegna vaxandi vægis slysavarnamála. Stjórn Slysa- varnafélagsins varð oftar en einu sinni að leiðrétta þessar rangfærslur við björgunarsveitarmenn og benda þeim á hið rétta í málinu, sem er að framlög til björgunardeilda hafa farið stighækkandi undanfarin ár, eða úr 10,6 millj. kr. 1990 í 15,6 m.kr. 1993. Á sama tíma hækkuðu framlög til slysavarnadeilda úr engu 1990 í 9,5 m.kr. 1993. Framlög til deilda og björgunarsveita félagsins hækkuðu úr 3 m.kr. 1990 í 13,7 m.kr. 1993. Þetta eru staðreyndir sem bera vitni utn öfluga uppbygg- ingu. Rekstur SVFÍ er tvíþættur, annars vegar er um að ræða þjónustu við sjálfboðaliða félagsins og hins vegar þjónustuverkefni fyrir ríki og sveitar- félög. Þessi rekstur er umfangsmik- ill og þess vegna hefur stjórn SVFÍ ekki leyfi til að starfa að málum eft- ir duttlungum einstakra starfsmanna sem ekki vilja fara að samþykktum og vinna jákvætt að þeim málum sem ber að sinna hverju sinni. Hjá SVFÍ er jafnan róinn lífróður, bæði í fyrir- byggjandi starfi og til að bjarga mannslífum, og verða starfsmenn allir sem einn að leggjast jafnt á árarnar, sama á hveiju gengur. Þeg- ar mannslíf eru í húfi er ekki hægt að leyfa einstökum starfsmönnum að róa með sínu lagi. Því miður var ekki lengur hægt að umbera einleik Hálfdans Henrýs- sonar og skort hans á samstarfsvilja. Á fundi Einars Siguijónssonar, for- seta SVFÍ, og Estherar Guðmunds- dóttur, framkvæmdastjóra, 20. októ- ber sl. var Hálfdani boðið að segja sjálfur upp störfum ellegar yrði starfssamningi hans sagt upp af fé- lagsins hálfu. Hálfdan valdi síðari kostinn. Fleira er ekki um málið að segja. Best hefði verið að ekkert hefði ver- ið sagt. í ljósi þess að Hálfdan Henr- ýsson kaus að fara með málið í fjöl- miðla, taldi SVFÍ nú nauðsynlegt að ieiðrétta villandi og rangar uppiýs- ingar sem birst hafa og skaðað hafa áralangt trúnaðarsamband Slysa- varnafélagsins við landsmenn alla. Með þökk fyrir birtinguna. Fyrir hönd stjórnar SVFÍ, Gunnar Tómasson, 1. varafor- seti og formaður björgunar- ráðs SVFÍ.“ HYunoni Sonata fyllti ákveðið tómarúm á íslenska bílamarkaðinum og höfðaði strax til þeirra sem vildu eignast bíl sem bæri merki glæsibifreiðar í útliti og aksturseiginleikum - án þess að verðið þyrfti að endurspegla það. • 5 gíra • 2000 cc - 139 hestöfl • Vökva- og veltistýri • Rafdrifnar rúður og speglar • Samlæsing • Styrktarbitar í hurðum • Útvarp, segulband og 4 hátalarar á mun betra verði en sambærilegir bílar HYUI1DHI ...til framtíÖar Verðfrá 1.598.000,- kr. á götuna! ÁRMÚLR 13 • SÍMl: 68 12 00 • BEINN StHl: 3 12 36 Hafið samband við sölumenn okkar eða umboðsmenn um land allt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.