Morgunblaðið - 04.11.1994, Síða 38

Morgunblaðið - 04.11.1994, Síða 38
38 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1994 MIIMIMINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, ÞURÍÐUR PÁLSDÓTTIR, áður til heimilis á Sólvallagötu 5, Reykjavík, andaðist 3. nóvember á Elli- og hjúkrun- arheimilinu Grund. Halldóra Elíasdóttir, Jón Dan Jónsson, Ingibjörg Elíasdóttir, Gunnar Runólfsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR frá Bergi, Grindavfk. Kristján Sigurðsson, börn og tengdabörn. t Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar og tengdamóð- ur, SVANFRI'ÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Hrafnistu, Reykjavík. Sérstakar þakkir til séra Árna Bergs Sigurbjörnssonar og starfsfólks Hrafn- istu, Reykjavík. Börn, tengdabörn og aðrir aðstandendur. + Innilegar þakkir fyrir vinarhug og hlut- tekningu vegna andláts og útfarar móð- ur okkar, tengdamóður ömmu og langömmu, CAMILLU ALVHILDE SANDHOLT. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki í Seljahlíð fyrir frábæra umönnun. Guð blessi ykkur öll. Katrm Þ. Guðlaugsdóttir, Gísli Arnkelsson, Hildur Björg Guðlaugsdóttir, Þórður Ólafur Búason, Jenný St. Guðlaugsdóttir Gröttem, Nils-Johan Gröttem, Pétur Guðlaugsson, Patricia Ann Guðlaugsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGURJÓNS RIST vatnamælingamanns. Marfa Sigurðardóttir, Rannveig Rist, Jón Heiöar Rikharðsson, Bergljót Rist, Guðbjörg Rist Jónsdóttir, Mari'a Rist Jónsdóttir. + Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður, AÐALSTEINS EGILSSONAR, málarameistara, Hringbraut 17, Hafnarfirði. Sigurlaug Jónsdóttir, Jón Aðalsteinsson, Guðbjörg Jóna Eyjólfsdóttir, Björg Aðalsteinsdóttir, Ómar Ólafsson, Kristm Jóhanna Aðalsteinsdöttir, Björn Ágústsson, Stefani'a Eygló Aðalsteinsdóttir, Bergsveinn Halldórsson. GARÐAR ÞORFINNSSON + Garðar Þor- finnsson var fæddur í Reykjavík 8. júlí 1925. Hann lést á Borgarspítal- anum 30. október síðastliðinn. For- eldrar hans voru Kristín Þórlaug Guðmundsdóttir og Þorfinnur Gunnar Guðmundsson. Nokkurra mánaða gamall var hann tekinn í fóstur af Gunnjónu Einars- dóttur og Kristjáni Sigurðssyni sem bjuggu á Norðureyri við Súgandafjörð. Systkini hans voru Sveinn og Guðmundur (látinn) Gíslasynir og Kristjana, Kolfinna og Páll (látinn) Þorfinnsbörn. Garðar var bæði bóndi og sjómaður en síðustu 17 árin vélgæslu- maður hjá Aburðarverksmiðju ríkisins. Garðar giftist Sigurl- ín Sigurðar en þau slitu sam- vistum. Börn þeirra eru Pálína Kristín, f. 1. ágúst 1963, og Sigurður Kristján, f. 25. nóv- ember 1961. Pálína á þrjú börn, Oskar, Steinunni og Arn- ar. Síðustu 15 árin bjó Garðar hjá Lilý Karlsdóttur. Útför Garðars fer fram frá Foss- vogskirkju í dag. band okkar var mjög gott og reyndist hann mér eins og besti fað- ir, enda leit hann á mig eins og dóttur sína. Gjafir hans til mín voru eingöngu frá honum, hann gaf mér ekki gjafir með mömmu. Mamma og Garðar áttu margar góðar stundir saman enda áttu þau mörg sám- eiginleg áhugamál, t.d. dansinn, þar sem þau kynntust, og ferðalög. Þeim fannst mjög gaman á gömlu dönsunum og fóru stund- um oftar en einu sinni um helgar að dansa. Þá fékk ég lánaðan bíl- inn og_ byijaði á því að keyra þau upp í Ártún eða annað. Garðar var mjög heimakær, hann vildi helst vera heima við í rólegheitum. Hann vann vaktavinnu hjá Áburðarverk- smiðju ríkisins, þar til fyrir tveimur árum og því svaf hann á hinum ýmsu tímum sólarhringsins. Mamma var sú sem dreif þau hing- að og þangað. Þau ferðuðust mikið innanlands, bæði á sínum bíl og í skipulögðum ferðum með ferðafé- lögum. Nú síðustu árin voru þau líka farin að ferðast fyrir utan iitlu eyjuna okkar, t.d. til Búlgaríu, Spánar og Skotlands og höfðu mjög gaman af. Garðar átti tvö börn, Pálínu og Sigurð, sem nú þurfa að kveðja föður sinn. Oft var langur vegur á milli þeirra, en alltaf var Garðar tilbúinn að hjálpa þeim og styðja þegar þau þörfnuðust þess. Elsku mamma, Pála og Siggi, þótt við vissum hvert stefndi er söknuðurinn alltaf sár. Ég bið þess að Guð hjálpi okkur öllum og veiti okkur styrk í sorg okkar. Guð blessi minningu Garðars Þorfinnssonar. Margrét. í dag kveðjum við góðan vin, Garðar Þorfinnsson. Engum hefði dottið í hug að svona stutt væri hjá honum í ferðina miklu sem við förum öll að lokum. Hann kvaddi þennan heim jafn hljóðlega og hann kom inn í fjölskylduna okkar fyrir 15 árum, þegar hann og Lily fóru að búa saman. Það virðist stuttur tími, en 15 ár geyma margar minningar þegar hugurinn reikar til baka. Við gleymum ekki brosinu hans og hlýju viðmóti né sögunum af sjón- um og af litlu trillunni hans, en hugur hans var oft bundinn við sjóinn, sem var hans yndi, eins og 30. OKTÓBER er mér minnisstæð- ur dagur. Fyrir þrem árum var þetta gleðidagur í fjölskyldunni þegar við hjónin eignuðumst okkar fyrsta barn, en í ár var þetta sorg- ardagur því þá kvaddi Garðar; góður vinur minn, þennan heim. I ágúst sl. greindist Garðar með krabbamein og stóð það stríð ekki lengi yfir. Síðustu vikur fór honum mjög hrakandi og allir vissu hvert stefndi. Ég kynntist Garðari fyrir 15 árum þegar hann fór að bjóða móður minni á gömlu dansana og koma í heimsókn til hennar. Of oft að mér fannst, því ég var búin að eiga mömmu og passa vel upp á hana í sjö ár eða frá því að pabbi dó. Ég átti þessa mömmu og hana skyldi enginn taka frá mér. En Garðar var þolinmóður og sýndi mér aldrei annað en hlýhug og elskulegheit þó að ekki færi mikið fyrir því hjá mér. Sem betur fer áttaði ég mig á því fljótlega að við gátum bæði átt mömmu að, hún gat sinnt okkur báðum. Eftir það vorum við miklir vinir. Auðvitað vorum við ekki alltaf sammála, enda verða allir að hafa sínar skoð- anir á hlutunum. Garðar var ávallt boðinn og búinn til að hjálpa mér og styðja við bakið á mér. Sam- ISAKÞORIR VIGGÓSSON + ísak Þórir Viggósson fædd- * ist á Haukalandi við Öskju- hlíð í Reykjavík 31. desember 1935. Hann lést á heimili sínu í Kópavogi 26. október síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Digraneskirkju 3. nóvem- ber. í DAG kveðjum við vin og félaga ísak Viggósson. Slæm þótti mér sú fregn að Isak vinur minn væri látinn, en fundum okkar bar síðast saman tveimur dögum fyrir andlát hans. Þá kenndi hann lasleika, sem trúlega varð honum að aldurtila. ísak skilur eftir stórt skarð i þeim hópi, sem hann best þekkti. Nú þegar hann er látinn hrannast upp í hugann allar þær minningar um allt það, sem gerði hann alveg einstakan félaga. Eg kynntist ísak fyrir u.þ.b. 30 árum er ég óreynd- ur sótti ráð til hans á verkstæði hans í Fífuhvamminum, en hæfi- leikar hans og snilli við að leysa vandamál í sambandi við störf hans voru með eindæmum. Síðan lágu leiðir okkar nær samfellt sam- an í gegnum vinnu og félagsstörf, en ísak var félagi í Björgunarsveit Ingólfs frá 1950 til 1985. Störf hans í þágu Björgunarsveitar Ing- ólfs og Slysavarnafélags íslands voru einstök. í stuttri minninga- grein er ógjörningur að gera grein fyrir öllu því, sem ísak áorkaði fyrir Björgunarsveit Ingólfs, það væri frekar efni í heila bók, slík voru verkin og ævintýrin, sem við félagar hans minnumst er við rifj- um upp störf hans í Ingólfi. Alltaf var Tsak með þeim fyrstu sem mættu í útkall og fór iðulega síð- astur heim, eftir að hafa lagfært það sem til þurfti svo tæki og tól væru tilbúin í næsta útkall. Alltaf var ísak glaður i lund og lét ekki vandamálin vefjast fyrir sér, sama hvort starf eða skemmt- un átti í hlut. Með sérlega góðri frásagnarlist hafði hann þann eiginleika að gera flesta hluti skemmtilega. Ég mun minnast ísaks á einn sérstakan hátt fyrir það að þegar ég var nýlega fluttur í Mosfellsbæ kom hann með tvö lerkitré, sem nú eru vaxin upp fyrir hús, en þau + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför bróður okkar, mágs og frænda, BJÖRNS BJARNASONAR. VIGUR, Sigurður Bjarnason, Baldur Bjarnason, Þorbjörg Bjarnadóttir, Þórunn Bjarnadóttir, Sigurlaug Bjarnadóttir, Þorsteinn Thorarensen og systkinabörn. Ólöf Pálsdóttir, Sigríður Salvarsdóttir, + Hugheilar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vinarhug og hjálp við andlát og útför EIRÍKS EINARSSONAR, Skjólgarði, Höfn, Hornafirði. Kærar þakkir fyrir blóm og allar aðrar minningargjafir. Guð blessi ykkur öll. Fyrir okkar hönd og annarra aðstandenda, Rannveig Sigurðardóttir, Guðrún Eiríksdóttir og fjölskylda. Frágangur afmælis- og minning- argreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit afmælis- og minn- ingargreina séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé hand- rit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameð- ferð og kemur í veg fyrir tví- verknað. Auðveldust er móttaka svo- kallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS- textaskrár. Þá eru ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. Það eru vinsamleg tilmæli blaðsins að lengd greinanna fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Greinarhöf- undar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.