Morgunblaðið - 04.11.1994, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1994 43
ARNI M. MATHIESEN
FRÉTTIR
■ SKÓLAKEPPNI Tónabæjar
lýkur í kvöld, föstudaginn 4. nóvem-
ber, með dansleik þar sem Páll
Óskar og MUjónamæringarnir
leika fyrir dansi. Sigurvegarar
skólakeppninnar verða krýndir og
verðlaunaafhending fer fram í þeim
greinum sem keppt var í: Fótbolta,
félagsvist og spurningakeppni.
■ NÁMSKEIÐ í sjálfrækt sem
byggir á vinnu með heild persónu-
leikans hefst laugardaginn 5. nóv-
ember nk. Gerðar eru skriflegar
æfingar til að gera upp bernskuna
og úrelt hegðunarmynstur. Kennd-
ar eru aðferðir til að byggja upp
sjálfsvirðingu og laga til í samskipt-
um. Fjallað er um líkamsrækt og
hollt mataræði. Sérstök áhersla er
lögð á aðferðir til að byggja upp
jákvæða hugsun og setja sér skýr
markmið. Þátttakendur læra önd-
unar- og slökunaræfingar og
grunnreglur í sambandi við hug-
leiðslu. Einnig er fjallað um orsakir
og leiðir til að sigrast á vandamál-
um og byggja upp lífsstíl vel-
gengni. Námið fer fram í formi
fyrirlestra, umræðna og skriflegra
æfinga. Hámarksfjöldi þátttakenda
er 12. Kennslubók fylgir og auk
þess er 14 daga stuðningsáætlun í
sambandi við hugleiðslu, mataræði
og líkamsrækt. Leiðbeinandi er
Gunnlaugur Guðmundsson hjá
Stjörnuspekimiðstöðinni, Kjörgarði,
Laugavegi 59.
■ STJÓRNARFUNDUR hjá
Lögreglufélagi Kópavogs haldinn
1. nóvember ályktar: Stjórn Lög-
reglufélags Kóp'avogs harmar þann
neikvæða fréttaflutning sem verið
hefur undanfarið í ijölmiðlum um
lögreglumenn í Kópavogi. Meðal
annars hefur verið vitnað til skýrslu
sem dómsmálaráðuneytið hefur lát-
ið vinna um lögregluna í Kópavogi.
Fjölmiðlar hafa nokkrum sinnum
vitnað í skýrsluna sem átti að vera
trúnaðarmál og á ekki að hafa ver-
ið birt. Þar hefur verið fullyrt að
hún væri til vansæmdar fyrir lög-
reglumenn í Kópavogi án þess að
heimildarmanna sé getið. Er það
von okkar að þessum neikvæða
fréttaflutningi linni, sem óhjá-
kvæmilega skaðar lögreglu al-
mennt.
■ KYNNINGARFUNDUR fyrir
unglinga sem hafa áhuga á borg-
aralegri fermingu 1995 og að-
standendur þeirra verður haldinn
laugardaginn 5. nóvember kl.
11-12.30 í Kvennaskólanum, Frí-
kirkjuvegi 9, nýbyggingu, 1.
hæð, stofum 2, 3 og 4.
■ I LA UGARDAGSKAFFI
Kvennalistans 5. nóvember er yfir-
skriftin Undir stjórn kvenna. Þar
flytur Hansína B. Einarsdóttir
erindi um stöðu kvenna á vinnu-
markaði framtíðar og konur sem
stjórnendur. Kaffið er á Laugavegi
17, 2. hæð og hefst kl. 11.
Basar Hringsins um helgina
KVENFÉLAGIÐ Hringurinn
heldur sinn árlega handavinnu-
og kökubasar sunnudaignn 6.
nóvember kl. 14 í Fóstbræðra-
heimilinu við Langholtsveg.
Margir fallegir handunnir
munir til jólagjafa og góðar kök-
ur verða þar til sölu. Basarmunir
verða til sýnis fram að basardegi
í glugga verslunarinnar Dö-
munnar, Laugavegi 32.
Ennfremur verðatil sölu nýju
jólakortin sem í ár eru með mynd
eftir Karólínu Lárusdóttur sem
hún gerði sérstaklega fyrir fé-
lagið. Allur ágóði rennur til
Barnaspítalasjóðs Hringsins.
Hringskonur hafa af miklum
dugnaði unnið að mannúðarmál-
um í marga áratugi. Sérstaka
rækt hafa þær lagt við Barnaspít-
ala Hringsins og allan búnað
hans.
Nú er fyrirhuguð bygging sér-
hannaðs barnaspítala. Hrings-
konur hafa lofað 100 milljónum
króna til byggingaframkvæmd-
anna.
Langur
laugardagur
LANGUR laugardagur verður á
morgun, 5. nóvember. Kaupmenn
við Laugaveg og Bankastræti standa
fyrir Löngum laugardögum fyrsta
laugardag hvers mánaðar.
Þennan Langa laugardag er fyr-
irhugað að Flugbjörgunarsveitin í
Reykjavík komi í heimsókn og verði
með styrktardag ásamt því að sýna
búnað sinn og vera með fjallbjörg-
unarsýningu á Laugavegi. Tveir fall-
hlífastökkvarar frá flugbjörgun-
arsveitinni lenda í Hljómskálagarð-
inum kl. 13.
Hagkaup Kjörgarði býður upp á
harmonikuleik og glímusýningu og
skyr verður selt á gamla mátan úr
trogi eftir hádegi. Hljómsveitin
Lipstick Lovers skemmtir vegfar-
endum milli kl. 14 og 16 fyrir utan
veitingahúsið Tvo vini. Bangsaleik-
urinn verður í gangi og í verðlaun
verða fimm vinningar frá versluninni
Herrahúsinu Adam, Laugavegi 47.
Verslanir og veitingahús verða
með tilboð í tiiefni dagsins. Á Löng-
um laugardögum eru verslanir opnar
frá kl. 10-17.
Námstefna um líf
og dauða
BIBLÍU SKÓLINN við Holtaveg
heldur námstefnu laugardaginn 12.
nóvember kl. 12.45-18 sem ber
heitið Upp á líf og dauða. Leitað
verður svara við siðfræðilegum
spurningum sem varða upphaf og
lok lífsins. Pallborðsumræður og fyr-
irspurnir verða í lokin.
Gunnar J. Gunnarsson, iektor við
KHÍ, fjallar um lífið og dauðann út
frá kristnum skilningi, Vilhjálmur
Árnason dósent í heimspeki við HÍ
fjallar um siðfræði lífs og dauða,
Leifur Þorsteinsson, líffræðingur,
fjallar um tæknifijógvun, fósturvísa-
rannsóknir og möguleika framtíðar-
innar á því sviði og Haraldur Jó-
hannsson, læknir, fjallar um tækni-
lega möguleika á framlengingu lífs
og líffæraflutninga.
Námskeiðsgjald er 800 kr. og
stendur innritun yfir. Námstefnan
er öllum opin.
Basar og kaffsala
í Sunnuhlíð
JÓLABASAR verður haldinn í Dag-
dvöl Sunnuhlíðar í Kópavogi laugar-
daginn 5. nóvember kl. 14.
Verða þar seldir ýmsir handunnir
mundir, unnir af eldra fólki, meðal
annars margt skemmtiiegra jóla-
gjafa. Kaffisala verður í matsal þjón-
ustukjarna Sunnuhlíðar og verður
þar á boðstólum kaffi og gott með-
læti.
Allur ágóði rennur til styrktar
starfsemi Dagdvalar fyrir aldraða í
Kópavogi, þar sem fólk nýtur ýmiss
konar þjónustu og stuðnings til að
geta búið sem lengst heima.
Ný umferðarljós á
Hringbraut
KVEIKT verður á nýjum umferðar-
ljósum laugardaginn 5. nóvember
kl. 14 á mótum Hringbrautar og
Bræðraborgarstígs.
Ennfremur verður sama dag
kveikt á hnappastýrðum gönguljós-
um á Hringbraut við Birkimel/Ljós-
vallagötu.
Til að áminna ökumenn um hin
væntanlegu umferðarljós verða þau
látin blikka gulu Ijósi í nokkra daga
áður en þau verða tekin í nptkun.
Rætt um næringu
á matvæladegi
ÁRLEGUR matvæladagur Matvæla-
og næringarfræðingafélags Islands
(MNÍ) verður haldinn 5. nóvember
nk. að Borgartúni 6 kl. 9-13.
Yfirskrift dagsins í ár er: Mat-
vælaiðnaður og manneldi. Flutt
verðut inngangserindi um æskilega
næringu og áhrif matvælafram-
leiðslu á hollustu.
Vinn
ltm
ngstöíur
■
——■
miövikudaginn: 2.11.1994
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ A HVERN VINNING
a ••<• 41.419.000
C% 5 af 6 CÆ+bónus 0 2.209.606
E1 5af6 4 151.137
ES 4af6 349 1.697
01 38,6 Ca+bónus 1.279 198
MVinningur: fór til Danmerkur og Noregs
UPPtÝSINGAR, SIMSVARI 81- 88 15 11
L.UKKUUHAB9 1000-TEKTAVARP451
3IRT MED FYRIRVABA UM PRENTYILLUR
1 í EITT A F ÞREMUR EFSTU ]
STUÐNINGSMANNASKRIFSTQFA DALSHRAUNI 1 1 • QPIÐ
ALLA DAGA FRÁ KL.1 D-2 2 • SÍMAR: 65 43 B9 /65 43 92
GunnarÁ. Beinteinsson,
viðskiptafræðingur:
„Ég kynntistÁnui í íþróttnnum.
Hann kann að ná árangri og veit að
til þess þarf vinnu og aftur vinnu.
Hann er maðurframtíðarinnar,
/>ess vegna kýs ég luxnn. “
Gunnar I. Birgisson, verkfræðingur:
„Ámi veit livað þarftil að efla
atvinnulífið í ReykjaneskjöriUemi.
Hann hugsartilframtíðar. Pannig
mann styð ég. “
Marín Magnúsdóttir,
kvikmyndagerðarkona:
„Ég kýsÁma vegna þess að ég treysti
honum jyrir skattjfeningunum
m ínum og veit að hann misnotar ekki
aðstöðu sína. “
Sigurbjörn Bárðarson,
íþróttamaður ársins 1993:
„Ámi er nutður sem
ég treysti. “
Aöaitölur:
8YílYl2:
;14)(22)(32
BÓNUSTÖLUR
Heildarupphæð þessa viku
127.916.649
áist: 3.659.649