Morgunblaðið - 04.11.1994, Side 44
44 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Tommi og Jenni
Ferdinand
Smáfólk
50RRY I CALLEP YOU 50
LATE LA5T NIGHT, CHUCK..
I 6UESS I TALKEC? VOUR
HEAP OFF, HUH ?
Fyrirgefðu að ég skuli hafa hringt
svona seint til þín í gærkvöldi,
Kalli. Ég hef víst þreytt þig, ha?
50METIME5 I CAN'T SLEEP, ANP I NEEP TO TALK..I LOVETOTALK.. í 50METIME5 I JU5T NEEO 50ME0NE TO TALKTO.. _ "J
S
fflp"--|k l ID I
U.
-------- - ------- I - - -Ul-
ÍÉÍBMBMMÍMMHflÍ 0
Stundum get ég ekki sofið, og ég Stundum þarf ég bara einhvern
hef þörf fyrir að tala ... mér þyk- til að tala við ...
ir svo gaman að tala ...
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Áhugi á jafnari
skiptum vinnunnar
Frá Steingrími Steingrímssyni:
HUGMYNDIN er að stofna þrýsti-
hóp sem vinnur með þeim stjórn-
málaflokki (-flokkum) sem hann á
helst samleið með þar sem aðal-
markmiðið er að lögum verði breytt
þannig að „allir“ fái vinnu og því
verði náð með stjórnvaldsaðgerð-
um svo sem að stytta vinnudaginn
og jafnvel vinnuvikuna ef á þarf
að halda.
Stuðli að því að fólk sem er at-
vinnulaust, hefur verið það eða
óttast að verða atvinnulaust eða
hefur bara áhuga á að afnema
þessa þjóðfélagsmeinsemd hittist
og beiti sér sameiginlega með því
að skipuleggja aðgerðir eins og
undirskriftalista, fundi og vinni
markvisst saman að því að afnema
atvinnuleysi með öllum finnanleg-
um ráðum.
Hálfnað verk þá hafið er
Áður en fólk gefur sig í svoleið-
is þarf það að hafa á tilfinning-
unni að það verði einhver árangur
af því sem það er að fara út í sem
þýðir að ef hæft og áhugasamt
fólk fæst til að beita sér og almenn-
ur áhugi kviknar, þá er hálfur sig-
ur unninn.
Fyrsta skrefið gæti verið að
menn og konur sem hafa áhuga á
að beita sér til þess að gripið verði
til raunhæfra aðgerða gegn at-
vinnuleysi hittist og leggi niður
lausleg drög og komi með vinnu-
plan um stofnun samtaka og aug-
lýsi síðan stofnfund.
Upplýsingaöflun er eitt af mark-
miðum hins nýja félags til að eiga
auðveldara með að koma með
raunhæfar hugmyndir að aðgerð-
um til að „koma í veg fyrir“ at-
vinnuleysi.
Það þarf að skipuleggja upplýs-
ingaöflunina áður en henni er
hrundið af stað þannig að réttu
upplýsingarnar berist með hliðsjón
af væntanlegu markmiði félagsins.
Hvaða aðgerða hefur verið grip-
ið til og hvaða aðgerðir eru fyrir-
hugaðar í t.a.m. Danmörku,
Þýskalandi, Japan og öðrum vest-
rænum samfélögum til að uppræta
atvinnuleysi og eru til einhver sam-
tök atvinnulauss fólks sem betjast
fyrir því að afnema atvinnuleysi,
sem hlýtur að vera aðal hagsmuna-
mál atvinnulausra.
Kostir og gallar
Hveijir eru helstu pólitísku kost-
ir og ókostir atvinnuleysis, hveijir
hagnast á atvinnuleysi og hveijar
eru afleiðingamar fýrir einstakling-
inn og samfélagið og hverjar gætu
orðið hugsanlegar afleiðingar?
Hveijir eru rriögulegir andstæðing-
ar lagabreytinga? Þetta era þættir
sem styðja tilurð félagsins og þess
markmiðs sem það ætlar að ná.
Fólk á ekki að þurfa að sætta
sig við að vera ýtt til hliðar og sett
í einhvern þriðja flokk í þjóðfélag-
inu vegna ástæðna eins og þeirra
að það sé of gamalt, of ungt, það
sé ekki allra besti umsækjandinn
eða það hafi ekki útlitið með sér
o.s.frv. eða hvert stefnir svoleiðis
þjóðfélag?
STEINGRÍMUR STEINGRÍMSSON,
Fannafold 217a, Reykjavík.
Per sónuafsláttur
Friðriks Sophussonar
Frá Oddi Einarssyni:
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð-
herra tók við áskorun frá Félagi
einstæðra foreldra samkvæmt
frétt Mbl. á þriðjudaginn. Áskor-
unin var þess efnis að heimilt yrði
að nýta persónuafslátt fullorðinna
barna.
Ráðherrann sýndi málinu skiln-
ing samkvæmt fréttinni, en minnti
síðan áskorenduma á að „ef ein-
hvers staðar töpuðust tekjur yrði
að taka þær af annars staðar.“
(Leturbr. mín.)
Mikill er hroki þess manns sem
leyfir sér að tala svona við þá
þegna þessa lands sem líklega eiga
almennt erfiðast að framfleyta sér
og sínum, og eiga þó margir erfitt
í dag. Mikil er sú dæmalausa
ósvífni og hroki þess manns sem
talar þannig við fólk sem í mörgum
tilfellum hefur engin ráð til að
komast sómasamlega af þrátt fyr-
ir óheyrilegt vinnuálag. Hvað hef-
ur þetta fólk sagt við þig og þína
líka þegar þið aukið jafnt og þétt
skattaálögur þess? Hvernig hefur
það brugðist við? Ekki getur það
tekið annars staðar þær tekjur sem
það tapar til þín þegar þú lækkar
persónuafsláttinn eða hækkar
skattprósentuna. Hversu stutt er
minni þitt, Friðrik? Það er ekki
langt síðan þú varst almennur
þingmaður og það birtust myndir
af þér hjólandi í vinnuna kvart-
andi yfir því að þú hefðir ekki
nógu há Iaun eða nógu mörg auka-
störf til að geta framfleytt þér og
þínum. Nei Friðrik, talaðu ekki
niður til þeirra sem búa við aum
kjör, því þess aumu kjör eru að
kenna því óréttlæti sem er inn-
byggt í það kerfi sem þú og þínir
líkar hafa komið á. Láttu ekki eins
og þú vitir ekki hversu mikið rugl
þessi svokallaði persónuafsláttur
er, sjáðu sóma þinn í að lagfæra
óréttlætið. Ef sú lagfæring kostar
minnkaðar tekjur, þá skalt þú fara
að eins og hinir einstæðu foreldr-
ar, þú skalt spara.
ODDUR EINARSSON,
fjölskyldufaðir og fyrrverandi
bæjarstjóri.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, cf ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.