Morgunblaðið - 04.11.1994, Síða 46

Morgunblaðið - 04.11.1994, Síða 46
•46 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ r Barnaföt Rýmum fyrir nýjum vörum. Afsláttur frá 4 FigTiltft Barnafataverslunin Bláskjár Viö erum á Suðurlandsbraut 52, í bláu húsunum við Fákafen, vestan við Mac Donalds. Sími. 37 600. blabib - kjarni málsins! Sjábu hlutina í víbara samhengi! Veljum forystukonu í fremstu röð Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi 5. nóv. Sigriiir Anna Þiriardáttir alMsnaiiir er vel menntuð kona með mikla reynslu af sveitar- stjórnarmálum. Hún hefur reynst dugandi og traustur þingmaður og einarður málsvari sjálfstæðisstefnunnar. Hú er dugnaðarforkur - hún er heiðarleg og samviskusöm. Tryggjum henni glæsilega kosningu í prófkjörinu á laugardaginn með því að velja hana í éitt af efstu sætunum Stuðningsfólk ÍDAG VELVAKANDI Svarað í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags TAPAÐ/FUIMDIÐ Símboði tapaðist SÍMBOÐI tapaðist á Reykjavíkursvæðinu sl. þriðjudag. Finnandi vin- samlega hringi í síma 50300. Derhúfa tapaðist RAUÐ drengjaderhúfa merkt Chicago Bulls tap- aðist á fímmsýningu í Regnboganum sl. sunnu- dag. Finnandi vinsamlega hringi í síma 37005. Eyrnalokkur tapaðist GULLEYRNALOKKUR með perlu tapaðist fimmtudagskvöldið 27. október sl. á leiðinni frá Hjarðarhaga, út í Skjól og aftur til baka. Finnandi vinsamlega hrin'gi í síma 19259. Spelka tapaðist SPELKA fyrir hné tapaðist í sturtuklefa í Sundhöll Reykjavíkur sl. laugardag. Finnandi vinsamlega hringi í síma 76373. Gleraugu fundust á deklgaverkstæði BRÚN gleraugu fundust á bílaplani við hjólbarða- verkstæðið Höfðadekk, Tangarhöfða 15, sl. mánu- dag. Spurt var eftir gler- augunum en þá voru þau ekki komin í leitirnar. Upp- lýsingar í síma 875810 eða á staðnum. Leöurjakki týndist SVARTUR frekar síður leðurjakki með tölum að framan tapaðist í ágústlok. Viti einhver um jakkann er hann beðinn að hringja í síma 21428. GÆLUDYR Rósa er týnd ÞESSI þrílita, tólf ára gamla kisa heitir Rósa og hvarf frá heimili sínu við Hjallaveg í Reykjavík 14. október sl. Hún fer sjaldan út og er ekki vön að vera úti um nætur. Fólk í ná- grenninu er beðið um að aðgæta í geymslur sínar og kjallara og geti einhver gefið upplýsingar, góðar eða slæmar, um ferðir hennar er hann vinsam- lega beðinn að hafa sam- band í síma 39869. Naggrís ÓSKA eftir naggrís. Upp- lýsingar í síma 98-21898. BRIDS Umsjón Guðm. Páll A r n a r s o n SUÐUR þarf að finna bestu leiðina til að samnýta möguleikana í tígli og laufí. Suður gefur; allir á hættu. Norður ♦ 762 V G4 ♦ ÁG9874 4 65 Vestur ♦ KG83 V 108532 ♦ 53 ♦ 83 Austur 4 D105 V D97 ♦ D62 4 K1097 Suður 4 Á94 V ÁK6 ♦ K10 4 ÁDG42 Vestur Norður Austur Suður - - - 2 grönd Pass Pass 3 grönd Pass Pass Útspil: hjartaþristur. Sagnhafí reynir gosann í blindum, en drepur síðan drottningu austurs strax með ás. Hvert er besta framhaldið? Einn möguleiki er að toppa tígulinn, taka kóng og ás, og fara svo í laufíð ef tíguldrottningin fellur ekki. En þar sem aðeins er hægt að svína laufi einu sinni, verður liturinn annað hvort að falla 3-3 eða kóngurinn að koma annar í austur. Sagnhafí ræður ekki við kónginn fjórða í austur. Þess vegna er betra að tryggja sér tvær innkomur á tígul með því að spila tíunni strax og yfírdrepa með gosa. Drepi austur, skilar liturinn fimm slögum, svo austur neyðist til að dúkka. Þá svínar sagnhafí fyrir laufkóng, yfirdrepur síðan tígulkónginn og svín- ar aftur í laufínu. Gefur svo einn slag á lauf og leggur upp. Farsi Víkverji skrifar... TÖLUVERÐ umræða hefur verið um það upp á síðkastið í Húnaþingi að hin nýja brú á Seyð- isá fengi nafn, en frá þessari brú var sagt hér í blaðinu fyrir skömmu. Nafnið sem um ræðir er Jamm og já og virðist við fyrstu sýn út í hött fyrir þá sem ekki þekkja til. Líklegt má telja að um þessa nafngift náist seint samstaða á meðal Húnvetninga sjálfra, en baráttumenn fyrir nafngiftinni eru ekkert á því að örvænta. Ástæða þessarar nafngiftar er vísa lífslistamannsins Valgarðs Ásgeirssonar á Blönduósi, en hann orti fyrir margt löngu vísuna: Fögur er hún Seyðisá séð af brúnni. Hvaða brú er það nú þá? Það er brúin Jamm og já. Þegar Valgarð orti þessa vísu hvarflaði ekki að nokkrum manni að Seyðisá yrði nokkurn tíma brú- uð auk þess sem heldur þótti og þykir sumum enn þessi vísa í ódýr- ari kantinum. En öðrum þykir vís- an dýr, sprottinn úr fijóum huga sem ekki er fjötraður í fastmótaðar hugmyndir um ljóðagerð eða fram- tíðina almennt. Það er þeirra von að þessi hugmynd um nafn á brúnni nái fram að ganga og vísa eiginkonu Valgarðs, Önnu Árna- dóttur: Ferðalangur fagna má færð í bönd var Seyðisá. Nú þarf brúin nafn að fá; - nægir ekki Jamm og já? er gott innlegg í þá umræðu. xxx HIN nýja brú er gífurlega stór áfangi hvað varðar aðgengi almennings að hálendi landsins. Nú þurfa menn ekki lengur að eiga dýra jeppa til að kynnast töfrum landsins á milli Hofsjökuls og Langjökuls. Þetta aukna aðgengi þýðir án nokkurs vafa fleiri ferða- menn og aukið álag á þetta svæði. Það hafa heyrst raddir að þessi brú sé af hinu vonda einmitt af þeim sökum sem að framan grein- ir. Það er ljóst að þeir sem þannig hugsa yrkja ekki vísur eins og Valgarð Ásgeirsson, því þar skort- ir á fijóa hugsun. Við auknum ferðamannastraum á viðkvæm svæði þarf að bregðast við með góðu skipulagi og samstarfi heima- manna. Sá er þessar línur ritar er þess fullviss að þegar nafnskilti, hvar á stendur „Jamm og já“, verð- ur sett niður við brúarstæðið á Seyðisá á Kili þá er hugur þeirra sem málið varðar fijór og opinn og líklegur til afreka. xxx IMORGUNBLAÐINU í gær birt- ist frétt um fyrirlestur á vegum Aðgerðarannsóknarfélagis ís- lands. Hér á eftir birtist til gamans kafli úr fréttatilkynningu félagsins um þennan fund: „Fyrirlesturinn fjallar um al- grími framsækinnar baktrygging- ar (Progressive Hedging Algo- rithm) beitt við rekstrarbestun varmageymslutanks. Aðferðin er notuð við bestun slembivandamála þar sem slembileikanum er lýst með atburðarásgreiningu (scenario analysis). Hún var sett fram af Rockefeller og Wets árið 1991. Aðferðinni hefur meðal annars verið beitt af Þorkatli Helgasyni (í samvinnu við Stein Wallace) á slembið fiskveiðistjórnunarvanda- mái. í fyrirlestrinum verður algrímið skýrt með einföldum dæmum og einnig verður sýnt hvernig hægt er að beita því við rekstrarbestun varmageymslutanks sem tengdur er kolakyntu orkuveri." Þeir eru varla margir sem skilja þetta?(!)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.