Morgunblaðið - 04.11.1994, Blaðsíða 46
•46 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
r
Barnaföt
Rýmum fyrir nýjum vörum. Afsláttur frá
4 FigTiltft
Barnafataverslunin Bláskjár
Viö erum á Suðurlandsbraut 52, í bláu húsunum við Fákafen,
vestan við Mac Donalds. Sími. 37 600.
blabib
- kjarni málsins!
Sjábu hlutina í víbara samhengi!
Veljum forystukonu
í fremstu röð
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi 5. nóv.
Sigriiir Anna Þiriardáttir
alMsnaiiir
er vel menntuð kona með mikla reynslu af sveitar-
stjórnarmálum. Hún hefur reynst dugandi og traustur
þingmaður og einarður málsvari sjálfstæðisstefnunnar. Hú
er dugnaðarforkur - hún er heiðarleg og samviskusöm.
Tryggjum henni glæsilega kosningu í prófkjörinu
á laugardaginn með því að velja hana
í éitt af efstu sætunum
Stuðningsfólk
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
TAPAÐ/FUIMDIÐ
Símboði tapaðist
SÍMBOÐI tapaðist á
Reykjavíkursvæðinu sl.
þriðjudag. Finnandi vin-
samlega hringi í síma
50300.
Derhúfa tapaðist
RAUÐ drengjaderhúfa
merkt Chicago Bulls tap-
aðist á fímmsýningu í
Regnboganum sl. sunnu-
dag. Finnandi vinsamlega
hringi í síma 37005.
Eyrnalokkur
tapaðist
GULLEYRNALOKKUR
með perlu tapaðist
fimmtudagskvöldið 27.
október sl. á leiðinni frá
Hjarðarhaga, út í Skjól og
aftur til baka. Finnandi
vinsamlega hrin'gi í síma
19259.
Spelka tapaðist
SPELKA fyrir hné tapaðist
í sturtuklefa í Sundhöll
Reykjavíkur sl. laugardag.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 76373.
Gleraugu fundust
á deklgaverkstæði
BRÚN gleraugu fundust á
bílaplani við hjólbarða-
verkstæðið Höfðadekk,
Tangarhöfða 15, sl. mánu-
dag. Spurt var eftir gler-
augunum en þá voru þau
ekki komin í leitirnar. Upp-
lýsingar í síma 875810 eða
á staðnum.
Leöurjakki týndist
SVARTUR frekar síður
leðurjakki með tölum að
framan tapaðist í ágústlok.
Viti einhver um jakkann
er hann beðinn að hringja
í síma 21428.
GÆLUDYR
Rósa er týnd
ÞESSI þrílita, tólf ára
gamla kisa heitir Rósa og
hvarf frá heimili sínu við
Hjallaveg í Reykjavík 14.
október sl. Hún fer sjaldan
út og er ekki vön að vera
úti um nætur. Fólk í ná-
grenninu er beðið um að
aðgæta í geymslur sínar
og kjallara og geti einhver
gefið upplýsingar, góðar
eða slæmar, um ferðir
hennar er hann vinsam-
lega beðinn að hafa sam-
band í síma 39869.
Naggrís
ÓSKA eftir naggrís. Upp-
lýsingar í síma 98-21898.
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
A r n a r s o n
SUÐUR þarf að finna bestu
leiðina til að samnýta
möguleikana í tígli og laufí.
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♦ 762
V G4
♦ ÁG9874
4 65
Vestur
♦ KG83
V 108532
♦ 53
♦ 83
Austur
4 D105
V D97
♦ D62
4 K1097
Suður
4 Á94
V ÁK6
♦ K10
4 ÁDG42
Vestur Norður Austur Suður
- - - 2 grönd
Pass Pass 3 grönd Pass Pass
Útspil: hjartaþristur.
Sagnhafí reynir gosann
í blindum, en drepur síðan
drottningu austurs strax
með ás. Hvert er besta
framhaldið?
Einn möguleiki er að
toppa tígulinn, taka kóng
og ás, og fara svo í laufíð
ef tíguldrottningin fellur
ekki. En þar sem aðeins er
hægt að svína laufi einu
sinni, verður liturinn annað
hvort að falla 3-3 eða
kóngurinn að koma annar
í austur. Sagnhafí ræður
ekki við kónginn fjórða í
austur.
Þess vegna er betra að
tryggja sér tvær innkomur
á tígul með því að spila
tíunni strax og yfírdrepa
með gosa. Drepi austur,
skilar liturinn fimm slögum,
svo austur neyðist til að
dúkka. Þá svínar sagnhafí
fyrir laufkóng, yfirdrepur
síðan tígulkónginn og svín-
ar aftur í laufínu. Gefur svo
einn slag á lauf og leggur
upp.
Farsi
Víkverji skrifar...
TÖLUVERÐ umræða hefur
verið um það upp á síðkastið
í Húnaþingi að hin nýja brú á Seyð-
isá fengi nafn, en frá þessari brú
var sagt hér í blaðinu fyrir
skömmu. Nafnið sem um ræðir er
Jamm og já og virðist við fyrstu
sýn út í hött fyrir þá sem ekki
þekkja til. Líklegt má telja að um
þessa nafngift náist seint samstaða
á meðal Húnvetninga sjálfra, en
baráttumenn fyrir nafngiftinni eru
ekkert á því að örvænta.
Ástæða þessarar nafngiftar er
vísa lífslistamannsins Valgarðs
Ásgeirssonar á Blönduósi, en hann
orti fyrir margt löngu vísuna:
Fögur er hún Seyðisá
séð af brúnni.
Hvaða brú er það nú þá?
Það er brúin Jamm og já.
Þegar Valgarð orti þessa vísu
hvarflaði ekki að nokkrum manni
að Seyðisá yrði nokkurn tíma brú-
uð auk þess sem heldur þótti og
þykir sumum enn þessi vísa í ódýr-
ari kantinum. En öðrum þykir vís-
an dýr, sprottinn úr fijóum huga
sem ekki er fjötraður í fastmótaðar
hugmyndir um ljóðagerð eða fram-
tíðina almennt. Það er þeirra von
að þessi hugmynd um nafn á
brúnni nái fram að ganga og vísa
eiginkonu Valgarðs, Önnu Árna-
dóttur:
Ferðalangur fagna má
færð í bönd var Seyðisá.
Nú þarf brúin nafn að fá;
- nægir ekki Jamm og já?
er gott innlegg í þá umræðu.
xxx
HIN nýja brú er gífurlega stór
áfangi hvað varðar aðgengi
almennings að hálendi landsins.
Nú þurfa menn ekki lengur að eiga
dýra jeppa til að kynnast töfrum
landsins á milli Hofsjökuls og
Langjökuls. Þetta aukna aðgengi
þýðir án nokkurs vafa fleiri ferða-
menn og aukið álag á þetta svæði.
Það hafa heyrst raddir að þessi
brú sé af hinu vonda einmitt af
þeim sökum sem að framan grein-
ir. Það er ljóst að þeir sem þannig
hugsa yrkja ekki vísur eins og
Valgarð Ásgeirsson, því þar skort-
ir á fijóa hugsun. Við auknum
ferðamannastraum á viðkvæm
svæði þarf að bregðast við með
góðu skipulagi og samstarfi heima-
manna. Sá er þessar línur ritar er
þess fullviss að þegar nafnskilti,
hvar á stendur „Jamm og já“, verð-
ur sett niður við brúarstæðið á
Seyðisá á Kili þá er hugur þeirra
sem málið varðar fijór og opinn
og líklegur til afreka.
xxx
IMORGUNBLAÐINU í gær birt-
ist frétt um fyrirlestur á vegum
Aðgerðarannsóknarfélagis ís-
lands. Hér á eftir birtist til gamans
kafli úr fréttatilkynningu félagsins
um þennan fund:
„Fyrirlesturinn fjallar um al-
grími framsækinnar baktrygging-
ar (Progressive Hedging Algo-
rithm) beitt við rekstrarbestun
varmageymslutanks. Aðferðin er
notuð við bestun slembivandamála
þar sem slembileikanum er lýst
með atburðarásgreiningu (scenario
analysis). Hún var sett fram af
Rockefeller og Wets árið 1991.
Aðferðinni hefur meðal annars
verið beitt af Þorkatli Helgasyni
(í samvinnu við Stein Wallace) á
slembið fiskveiðistjórnunarvanda-
mái.
í fyrirlestrinum verður algrímið
skýrt með einföldum dæmum og
einnig verður sýnt hvernig hægt
er að beita því við rekstrarbestun
varmageymslutanks sem tengdur
er kolakyntu orkuveri."
Þeir eru varla margir sem skilja
þetta?(!)