Morgunblaðið - 04.11.1994, Qupperneq 52
52 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
aa&axD
ÞAÐ GÆTI HENT ÞIG
Já, það gæti hent þig, því þessi ótrúlega gamanmynd er byggð á raunverulegum
atburðum. Lögga á ekki fyrir þjórfé en lofar gengilbeinunni að koma með það daginn
eftir eða þá að skipta með henni lottóvinningnum sínum... ef svo ólíklega færi að hann
fengi vinning. En viti menn, hann vinnur og það enga smáaura, heldur fjórar milljónir
dala!
Aðalhiutverk: Nicolas Cage, Bridget Fonda, Rosie Perez og Stanley Tucci.
Leikstjóri: Andrew Bergman („The Freshman", „Honeymoon In Vegas").
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
GETRAUN
Það gæti hent þig að vinna helgarferð með Flugleiðum til New York með gistingu á hinu
stórglæsilega Plaza-hóteli. Það eina, sem þú þarft að gera, er að svara tveimur laufléttum
spurningum og skila þeim í afgreiðslu Stjörnubíós fyrir 13. nóvember. Þá kemst þú í vinn-
ingspott sem dregið verður úr á Bylgjunni í beinni útsendingu þann 15. nóvember 1994.
Svarseðilinn færðu þegar þú kaupir miða á myndina.
Svarseðilinn færðu þegar þú
kaupir miða á myndina.
STJÖRNUBÍÓLÍNAN SÍMI 991065
Taktu þátt i spennandi kvikmyndagetraun.
Verðlaun: Boðsmiðar á myndir í Stjörnubíói
og „It could happen to you" filofax.
Verð kr. 39,90 mtnútan.
Sýnd kl. 5.
KR. 800,- F. FULLORÐNA
KR. 500,- F. BÖRN
Sýnd kl. 9 og 11.05.
Bönnuð innan 16 ára.
ULFUR
N ICHOLSON
PFEIFFFR
WOLF
Sýnd kl. 6.45.
atökur
Barnamy
frá kr.
4930,- íi
ir Laugavegi 24, 2,h., sími 20624
FOLK
Nýir strandverðir
►FRAMLEIÐENDUR fram-
haldsþáttana vinsælu um Strand-
verðina, eða „Baywatch", hafa
tekið tvo nýja leikara um borð.
Það eru Yasmine Bleeth og Jaas-
on Simmons. Þau eiga að dreifa
athygii fjölmiðla, en kastljós
þeirra hefur að mestu beinst að
David Charvet og Pamelu Ander-
son. Yasmine tekur við af Nicole
Eggert sem hætti eftir síðasta
vetur.
Þegar myndir af þessum tveimur
rísandi sljörnum eru grannt skoð-
aðar má gjörla sjá ástæður fyrir
vali þeirra. Bæði eru þau gjörvi-
lega vaxin og bera af í fegurð.
YASMINE og Jaason taka það skýrt fram að þau muni aldrei
standa í ástarsambandi fyrir utan þættina.
Vitaskuld eru þau í sjöunda himni
með að hafa komist að í þáttun-
um, en þau voru valin úr hópi
mörg hundruð umsækjenda. „Ég
fæ að vinna með fólki á fallegri
strönd allan liðlangan daginn,“
segir Yasmine. „Hvað getur verið
eftirsóknarverðara?"
hll fll
Minr i EYFÓpu
i Lágmúla 4 á rnorgun
Á morgun, laugardag kynnum við skíðaferðir til bestu
skíðasvæða í Evrópu. Austurrísku-, ítölsku- og
frönsku Alparnir - betra er ekki hægt að hugsa sér
það. Auk þess sýnum við allt það nýjasta í skíðabúnaði
frá versluninni Útilíf og skíðakennari gefur góð ráð.
Rennciu þér niður í Lágmúla á morgun og leggðu drög
að skíðaferð drauma þinna.
aras®®-
ÚTILÍFtf
OUKSIBJK ■ SlMI 812022
Í#rílV«L-ÍTSÝK
trygging lyrir gærlum
Opið kl. 11 -14.
oixjxrs^ (g) psg
Lágmúla 4: sítni 699 300,
Hafnarfirði: sírni 65 23 66, Keflavík: sími 11353,
Selfossi: sími 21666, Akureyri: sími 2 50 00
• og bjá umboðsmömium um land alll.
Nýtt í kvikmyndahúsunum
ATRIÐI úr þrfleik pólska leikstjórans Kieslowski, Þrír litir: Hvítur.
Háskólabíó frumsýnir
Þrír litir: Hvítur
HÁSKÓLABÍÓ hefur hafið sýning-
ar á kvikmyndini Þrír litir: Hvítur
en hún er önnur myndin í þríleik
pólska leikstjórans Krysztofs
Kieslowskis. Hann sækir heiti
myndanna í litina þijá í franska
fánanum, bláan, hvítan og rauðan
en litimir eru tákn hugsjóna
frönsku byltingarinnar; frelsi, jafn-
rétti, bræðralag.
Hvítur táknar jafnrétti og í mynd-
inni kynnumst við Karol sem er
pólskur hárgreiðslumeistari sem
giftur er hinni gullfaliegu frönsku
Dominique sem Julie Delpy leikur.
Þau búa í París en Karol hefur aldr-
ei náð að festa rætur þar og sálarlíf-
ið er svo aumt að hann er ófær um
að gagnast eiginkonunni. Hún fjar-
lægist hann og heimtar skilnað sök-
um þess að hann geti ekki fullkomn-
að hjónaband þeirra. í dómsalnum
finnur Karol mjög til vanmáttar síns
þar sem franskan er honum ekki töm
og vörn hans verður klén.
Karol flýr til Póllands þar sem
mafíustarfsemi og svartamarkaðs-
brask er allsráðandi. Hann nær þar
á kostulegan hátt að byggja upp
viðskiptaveldi en undir niðri krauma
sárindi gagnvart eiginkonunni og
hann hyggur á hefndir. Vígstöðvarn-
ar velur hann sjálfur sem og vopnin
en spurningin er hvort hefnd leiðir
til jafnréttis.
Þrír litir: Hvítur þykir sýna nýja
og gamansama hlið á Kieslowski þar
sem hann leikur sér á kómískan
hátt að þeim frumstæða kapítalisma
sem ríkir í austantjaldslöndunum þar
sem skrýtnustu fuglar verða stór-
kapítalistar á skjótum tíma. En eins
og alltaf hjá Kieslowski er rómantík-
in aldrei langt undan, segir í frétta-
tilkynningu frá bíóinu.
Þríleikur Kieslowskis hefur verið
margverðlaunaður á kvikmyndahá-
tíðum, Blár sigraði í Feneyjum og
Hvítur í Berlín. í nóvembermánuði
býður Háskólabíó upp á sýningar á
fyrri verkum Kieslowskis á vegum
Hreyfímyndafélagsins og ber þar
hæst sýningar á myndaflokknum um
boðorðin tíu. Um jólin verður svo síð-
asta myndin í röðinni Þrír litir:, Rauð-
ur, tekin til sýninga í Háskólabíói.