Morgunblaðið - 12.11.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1994 13
ÍBA 50 ára
Vegleg af-
mælis-
dagskrá
ALMENNINGI er boðið að taka þátt
í fjölbreyttri afmælisdagskrá í tilefni
af 50 ára afmæli íþróttabandalags
Akureyrar í íþróttahöllinni um helg-
ina.
f aðalsalnum verður Fimleikaráð
Akureyrar með kynningu kl. 13,
íþróttafélagið Akur kl. 14, Tennis-
og badmintonfélag Akureyrar kl. 15,
blakdeild KA kl. 16 og knattspyrnu-
deild KA/KRA kl. 17 á laugardag. Á
sama stað verður körfuboltadeild Þórs
með kynningu kl. 12, handboltadeild
Þórs/HRA kl. 13 og Ungmennafélag
Akureyrar kl. 15 á sunnudag.
Boccia-maraþon
Boccia-maraþon á vegum íþrótta-
félagsins Eikar hefst í hliðarsal kl.
13 á laugardag. Valdimar Sigurðs-
son, sem er með ættgengan band-
vefssjúkdóm, ætlar að leika boccia í
24 klukkustundir og safna áheitum
til styrktar rannsóknum á sjúkdómi
sínum. Lyftingafélag Akureyrar
verður með kynningu í lyftingasal
kl. 14 og á sama tíma hefst laugar-
dagsganga Félags hjartasjúklinga.
Afmælishlaup ÍBA í umsjón Ung-
mennafélags Akureyrar hefst kl. 12
á sunnudag.
Sögusýning verður í anddyri og
veitingastofu. í tengslum við sýning-
arbás ÍBA verður viðamikil dagskrá
um almenningsíþróttir.
-----»-»-♦.—...
Tvennir
tónleikar
KAMMERHLJÓMSVEIT Tónlistar-
skólans á Akureyri heldur tónleika í
bóknámshúsi Fjölbrautarskólans á
Sauðárkróki kl. 16 á laugardag og í
Akureyrarkirkju kl. 20.30 á mánu-
dag.
Á efnisskrá hljómsveitarinnar verð-
ur Hátíðargöngulag eftir Áma
Bjömsson. Ámi samdi verkið í tilefni
af stofnun lýðveldis á íslandi 17. júní
árið 1944. Önnur verk á tónleikunum
verða eftir Gabriel Fauré, Johannes
Brahms, Jean Sibelius, Maurice Ravel
og Modest Mussorgskí. Flest þeirra
eiga eftir að láta kunnuglega í eyrum
tónleikagesta.
Stjórnandi sveitarinnar er Guð-
mundur Óli Gunnarsson skólastjóri
Tónlistarskólans.
----■■■♦■■■»■■■»-
Myndin Blár
í Borgarbíói
KVIKMYNDAKLÚBBUR Akureyrar
(KVAK) sýnir kvikmyndina Blár
(BLEU) í Borgarbíói kl. 18 á sunnu-
dag og 19. á mánudag. Kvikmyndin
hlaut fyrstu verðlaun á kvikmynda- 1
hátíðinni í Feneyjum í fyrra.
Blár er eftir Kryzysztof Kicslowski
sem einnig gerði myndina Tvöfalt líf
Veróniku og sjónvarpsþáttaröðina
Boðorðin tíu. Kvikmyndin segir frá
ekkju tónskálds sem er nýlátið í bíl-
slysi ásamt dóttur hjónanna. Eigin-
maðurinn hefur skilið eftir sig allt
að því fullklárað tónverk er aðstoðar-
maður hans vill ljúka.
-----» »■♦-------
Síðasta sýn-
ingarhelgi
SÝNINGU 40 starfandi myndlistar-
manna undir yfirskriftinni Salon ’94
í Deiglunni lýkur um hélgina.
Sýningin var fyrst sett upp í
Reykjavík en opnuð, aukin og endur-
bætt, í Deiglunni 22. október. Sýn-
ingin stendur til 13. nóvember og
er opin alla daga frá kl. 14 tit 18.
LAIMDIÐ
Morgunblaðið/Aðalheiður H. Högnadóttir
SR. HALLDÓR Gunnarsson í Holti tók fyrstu skóflustunguna
að hinni nýju safnkirkju sem rísa mun í Skógum á næstu tveim
árum. Við hæfi þótti að nota til verksins gamla kirkjureku frá
Dyrhólakirkju í Mýrdal.
Safnkirkja rís
í Skógum
Hellu - Fyrsta skóflustugan að
safnkirkju sem rísa mun við
byggðasafnið í Skógum undir
Eyjafjöllum var tekin sl. laugar-
dag. Þórður Tómasson safnvörður
hefur haft veg og vanda af að
hrinda verki þessu í framkvæmd
en meðal aðstandenda byggða-
safnsins og heimamanna er ein-
hugur um að fá þessa viðbót við
safnið. Að byggingu kirkjunnar
standa sóknarnefnd Eyvindarhóla-
kirkju, skólanefnd Skógaskóla og
stjóm byggðasafnsins í Skógum.
Fjöldi gesta var við athöfnina sl.
laugardag m.a. dóms- og kirkju-
málaráðherra Þorsteinn Pálsson.
Kirkja úr afgöngum
Að sögn Þórðar safnvarðar hef-
ur það lengi verið draumur hans
að fá kirkju við safnið í Skógum.
„Minjasafn endurspeglar mannlíf
fyrri tíma, fólkið og menningu
þess, en kirkjan hefur alltaf verið
stór þáttur í daglegu lífi fólks hér
á landi. Mér finnst að kirkja við
safnið muni fulkomna þá mynd
horfinna tíma Sem við blasir hér
á staðnum." Samið var við Hjör-
leif Stefánsson arkitekt um teikn-
ingu kirkjunnar sem unnin er út
frá hugmyndum Þórðar. „Við eig-
um alla kirkjubekkina úr Kálf-
holtskirkju frá 1879, prédikunar-
stól frá Hábæjarkirkju, skreyting-
ar úr kórdyraboga úr Eyvindar-
hólakirkju og glugga úr Grafar-
kirkju í Skaftártungu. Ennfremur
eigum við grátur, altari, klukkur,
ljóshjálma, hurðir og ýmislegt
fleira frá mörgum stöðum. Þetta
eru hlutir hver úr sinni áttinni, en
ætlunin er að þeir myndi sam-
ræmda heild og að útkoman verði
sveitakirkja úr timbri, turnlaus
með klukknaporti, frá seinni hluta
19. aldar.“
Forn kirkjustaður
Skógar eru einn af hinum fomu
kirkjustöðum landsins, en þar stóð
kirkja allt frá fyrstu kristni til
ársins 1890. Nýja kirkjan mun
verða í svipaðri stærð og sú kirkja
sem síðast stóð í Skógum en það
var timburkirkja byggð 1845.
Margar gjafir og styrkir hafa þeg-
ar borist kirkjunni í Skógum, m.a.
úr Jöfnunarsjóði sókna, sóknar-
nefnd Eyvindarhólakirkju og frá
fjölmörgum einstaklingum.
„Ég vil leggja áherslu á það að
við lítum ekki á þessa kirkju sem
geyinslu fyrir gamla muni. Hún
verður lifandi og nýtt á margvís-
legan hátt, t.d. af nemendum
Skógaskóla, heimamönnum og
gestum byggðasafnsins,“ sagði
Þórður Tómasson að lokum.
ykktir bestu þakkir
dyggan stuöning í
próflýörinu 5. nóv. sl.
tek viö trausti ykkar í
og mun leggja mig
fram um aö reynast þess
verö í störfum mínum á
Alþingi.
Fylkjum liðí til framtíðar
undir merki
Sjálfstæðisflokksins.
alþingismaður.
ÞUSPARARKR. 1.050.000!
Aöeins eitt raðhús við Af lagranda
★ Nýtt hús - glæsileg eign í góðu hverfi.
★ Tilbúið undir tréverk - þú innréttar eftir eigin höfði.
★ Nóg plóss - 207 fm, stækkanlegt í yfir 230 fm.
★ Fjölbreyttir möguleikar - opið rými og mikil lofthæð.
★ Sérstaklega vandaður frógangur að innan sem utan.
★ Fróbær staðsetning - við KR, Vesturbæjarlaugina og Grandaskóla.
★ Múrhúðað að utan, fínpússað að innan, steyptir stigar.
★ Fullfrógengin lóð - hellulögð bílastæði með hitalögn.
★ Verð aðeins 13,9 milljónir.
★ Verðlækkun um eina milljón og fimmtíu þúsund ó þessu eina húsi.
★ Lóttu drauminn rætast - fyrstur kemur, fyrstur fær.
__ _ Birgir R. Gunnarsson hf.,
byggingarfyrirtæki,
Stigahlíð 64, s. 32233.
21150-21370
LARUS P. VALDIMARSSON, framkvæmoastjori
KRISTJAN KRISTJANSS0N, loggiltur fasteigmasali
Til sýnis og sölu m.a. athyglisverðra eigna:
Á vinsælum stöðum í Vesturborginni
4ra herb. íb. tæpir 100fm skammt frá Sundlaug Vesturbæjar. Gott lán.
3ja herb. íb. rúmir 85 fm skammt frá Háskólanum. Góð sameign.
Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga.
Skammtfrá Menntaskólanum við Sund
mjög gott steinh. ein hæð 165 fm auk bílsk. 23,3 fm. Vinsæll staður.
Eignaskipti möguleg.
Óvenju hagstæð eignaskipti
( Seljahverfi óskast 4ra-5 herb. íb., má þarfn. endurbóta., í skiptum
fyrir 2ja herb. úrvalsíb. m. bílsk. i' sama hverfi.
Hveragerði - Reykjavfk - eignaskipti
Einbhús - gott timburhús um 120 fm auk bílsk. Hagst. eignaskipti á
minni eign í borginni.
Sumarhús - vinnupláss - frábært verð
á vinsælum stað á Vatnsleysuströnd nýl. timburh. hæð m. portbyggðu
risi. Grunnfl. 6x6 fm. Gott vinnuhúsn. fylgir 8x6 fm m. 3 m vegghæð.
Eignarland 6000 fm. Útsýnisstaður í góðu vegasambandi. Aðstaða
fyrir bát í fjöru. Verð aðeins kr. 2,3 millj.
Á söluskrá óskast m.a.
Einbhús i Árbæjarhverfi, Austurbæ Kópavogs eða Garðabæ.
Raðhús m. stórum bflsk. helst í Árbæjarhverfi, Selási eða efra Breiðholti.
íbúðir, sérhæðir eða einb. í gamla bænum. Mega þarfn. endurbóta.
í Vesturborginni óskast eignir af flestum stærðum og gerðum. Góðar
greiðslur fyrir rétta eign. s.
• • •
Opið ídag kl. 10-14.
Fjöldi fjársterkra kaupenda.
Almenna fasteignasalan sf.
var stof nuö 12. júlí 1944.
AIMENNA
FASTEIGNASAIAN
LÁÖGwÉGmsÍM^n&PzíaTÖ
FÖNIX RAFTÆKJAKYNNING
ASKO ÞVOTTAVÉLAR, , ji ÞURRKARAR OG » - UPPÞVOTTAVÉLAR. * Al FSLÁTTUR
QlMAf KÆLISKÁPAR, . |i FRYSTISKÁPAR OG X « FRYSTIKISTUR. f Al FSLÁTTUR
NILFISK FÖNIX KYNNIR NÝJU W J (§)« [| GM-RYKSUGURNAR. f AFSLÁTTUR
INNBYGGINGAR- . [1 OFNAROG þ « HELLUBORÐ. # Al FSLÁTTUR
Oturbo ELDHÚSVIFTUR: L J@a2(§)% 15GERÐIROGLITIR.f AFSLÁnuR
EMIDE (j'lifi'iiíiii^) euRhs idelins LITLU TÆKIN Á k J LÁGA VERÐINU. f A <MrJ% FSIATTUR
VELKOMIN í FÖNIX, SÉRVERSLUN MEÐ VÖNDUÐ RAFTÆKI /FOnix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420