Morgunblaðið - 15.11.1994, Page 1

Morgunblaðið - 15.11.1994, Page 1
56 SÍÐUR/B 261. TBL. 82.ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Serbar gera harða hríð að Bihac-borg Reynt að jafna ágreining í NATO um stefnuna í málefnum Bosníu Sar^jevo, Noordwyk. Reuter. SVEITIR Bosníu-Serba hafa endurheimt mest af því svæði, sem músl- imar tóku af þeim við Bihac í norðvesturhluta Bosníu í síðasta mánuði, og ráða nú hæðunum fyrir ofan Bihac-borg, sem er eitt af griðasvæð- um múslima. Friðargæsiulið Sameinuðu þjóðanna mun ekki hafa nein afskipti af átökunum. Willy Claes, framkvæmdastjóri Atlantshafsbanda- lagsins, NATO, mun síðar í vikunni reyna að jafna ágreininginn, sem er með Bandaríkjastjórn og ríkisstjórnum Evrópuríkjanna um stefnuna í Bosníumálum. Bosníu-Serbar hafa tekið aftur um 80% af því landi, sem bosníski stjórnarherinn náði í skyndisókn við Bihac í síðasta mán- uði, og hefur sprengjunum rignt yfir sjálfa borgina. Hafa Serbar frá Krajina-héraði í Króatíu tekið þátt í sókninni gegn múslimum og með- al annars gert loftárásir á Bihac-borg frá króatískri lofthelgi. Reuter LIÐSFORINGJAR í herliði Bosníu-Serba um sex kilómetra suð-austur af múslimaborginni Bihac athuga kort sín í gær. Að sögn talsmanna Sameinuðu þjóðanna hafa Serbar náð aftur á sitt vald megninu af þeim svæðum sem þeir misstu í grennd við Bihac fyrir nokkru eftir skyndisókn múslima. Haris Silajdzic, forsætisráðherra Bosníu, skoraði í gær á NATO-ríkin að stöðva sókn Serba með loftárás- um en áður hafði Yasushi Akashi, sérlegur fulltrúi SÞ í gömlu Júgó- slavíu, sagt, að friðargæslulið sam- takanna gæti lítið aðhafst. Eftirlit úr lofti Haft er eftir heimildum í Brussel, að innan NATÖ hafí menn miklar áhyggjur af sókn Serba gegn Bihac og afdrifum fólksins, sem þar býr, en þar eru einnig um 1.300 friðar- gæsluliðar frá Bangladesh. Þá er einnig vilji fyrir því innan NATO, að haft verði eftirlit úr lofti með 20 km breiðri landræmu á landamærum Króatíu og Bosníu til að koma í veg fyrir árásir Serba í Krajina á músl- ima í Bosníu. Willy Claes, framkvæmdastjóri NATO, mun eiga viðræður við hátt- setta, bandaríska embættismenn í Washington síðar í vikunni og verð- ur umræðuefnið ágreiningurinn, sem kominn er upp innan NATO eftir að Bandaríkjastjórn ákvað að verða við kröfu þingsins og hætta að fram- fylgja vopnasölubanni á Bosníu. Er mikil óánægja með ákvörðunina í Evrópu, einkum í þeim ríkjum, sem eru með gæsluliða í Bosníu. Ottast margir, að trúverðugleika NATO í ríkjum gömlu Júgóslavíu hafi verið fórnað á altari bandarískra innanrík- ismála. ------» ♦ «------ Berlusconi hélt velli Róm. Reuter. RÍKISSTJÓRN Silvios Berlusconis á Ítalíu hélt velli í atkvæðagreiðslu um vantraust í gærkvöldi í neðri deild þingsins. Með vantrausti voru 134 en 321 studdi stjórnina, fjöldi stjórnarand- stöðuþingmanna hundsaði fundinn. Hart hefur verið tekist á um tillögur stjórnarinnar um niðurskurð á ríkis- útgjöldum og á laugardag tók um milljón manna þátt í mótmælafund- um gegn tiliögunum. Opinberar skuldir eru að sliga rík- ið, einkum eru eftirlaun og ýmiss konar bætur þu'ngur baggi. Viðbrögð í Noregi við þj óðaratkvæðagr eiðslunni í Svíþjóð Ný könnun sýnir aukið fylgi við aðild að ESB BJ0RN Tore Godal, utanríkisráðherra Noregs, sagði í gær stjórnvöld gera ráð fyrir að þingið myndi virða niðurstöðu þjóðaratkvæðisins um aðild landsins að Evrópusambandinu, ESB, en andstæðingar hafa hótað að fella samninginn, þótt hann fái meirihlutafylgi. Aukinn meirihluta, 75%, þarf til að staðfesta samninginn á þingi. Ný skoðanakönnun Gallup í Noregi, sem birt var í gærkvöldi, þykir sýna að samþykkt Svía á sunnu- dag hafi þegar haft áhrif, nú styðja 37% Norðmanna aðild, 45% eru á móti en 18% óákveðnir. Fyrir tæpri viku voru hlutföllin 31%, 44% og 25%. Reuter Undir Ermarsund STJÓRNANDI Eurostar-járn- brautarlestarinnar stingur höfð- inu út um glugga, skömmu áður en fyrsta reglubundna ferðin með farþega undir Ermarsundið frá Waterloo-stöðinni i London til Parísar hófst í gærmorgun. Um 800 manns voru uin borð í lest- inni. Fulitrúi Eurostar tjáði Morgunblaðinu að ferðin tæki þrjár stundir, þar af hálftími í jarðgöngunum, hvergi væri stans- að á leiðinni. Ódýrasta fargjaldið væri um 10.200 krónur báðar leið- ir en þá þyrfti aðpanta með 14 daga fyrirvara. Á fyrsta farrými kostaði ferðin um 21.000 krónur og væri máltiö þá innifalin. Síðar verður Iiægt að nýta sér Le Shuttle-lestirnar sein munu flytja bíla milli endastöðva í borgunum Folkestone og Calais. Þúsundir manna komu saman á útifundum í Tromso í gær og var ákaft deilt um aðild Noregs svo að lá við handalögmálum. Sumir vilja að Norður-Noregur segi sig úr lög- um við ríkið, verði aðildin sam- þykkt. Haustþing Norðurlandaráðs hefst í Tromso í dag. Aukin harka Gro Harlem Brundtland for- sætisráðherra Noregs, sagði niður- stöðuna í Svíþjóð gleðilega og sögu- legan sigur fyrir þá og Norðurlönd- in öll. Talsmenn andstöðunnar við aðild Noregs segja hins vegar að niðurstaða Svía muni engu breyta og þeir vorkenni Svíum. Er gert ráð fyrir að mikil harka muni hlaupa í baráttuna í Noregi en þjóð- aratkvæðið verður 28. nóvember. Ingvar Carlsson, forsætisráð- herra Svíþjóðar, fagnaði ákaft nið- urstöðu kjósenda á sunnudag, sagði að Svíar hefðu látið baráttuna „gegn atvinnuleysi og fyrir friði og lýðræði" ráða úrslitum. 52,2% Svía samþykktu aðild, 46,9% voru á móti en 0,9% skiluðu auðu. And- staðan var mest í norðurhéruðun- um en segja má að stuðningsmenn hafi eingöngu verið í meirihluta í stærstu borgunum. Frammámenn í Finnlandi töldu að nú væri' enginn vafi lengur á því að þingmenn myndu staðfesta aðild. Danskir ráðamenn voru einn- ig kampakátir en Danir hafa veríð eina norræna þjóðin í sambandinu síðan 1973. Jacques Delors, forseti fram- kvæmdastjórnar ESB, bauð Svía Ingvar Gro Harlem Carlsson Brundtland velkomna í sambandið og hið sama gerðu leiðtogar helstu ESB-ríkja, þ.á m. Helmut Kohl Þýskalands- kanslari, er sagðist vona að Norð- menn fylgdu fordæmi Svía. Meirihluti í Sviss Leiðtogar Austurríkis, sem sam- þykkt hefur aðild, fögnuðu niður- stöðu Svía. Ný könnun í Sviss sýn- ir að 57% kjósenda vilja ganga í ESB fái landsmenn sömu kjör og Austurríkismenn. Umtalsverð hækkun varð á verð- bréfum á sænskum mörkuðum í gær i kjölfar þjóðaratkvæðisins en fjármálasérfræðingar töldu ekki líklegt að hún yrði viðvarandi, gríðarlegur fjárlagahalli og önnur efnahagsóáran í landinu myndu fljótt draga úr áhuga kaupenda. Norsk verðbréf hækkuðu einnig nokkuð. ■ Viðbrögð á íslandi/10 ■ Barátta gegn atvinnuleysi/18 ■ Leiðari/24 ■ Öryggi þjóðarheiinilisins/25

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.