Morgunblaðið - 27.11.1994, Page 1

Morgunblaðið - 27.11.1994, Page 1
104 SÍÐUR B/C/D 272. TBL. 82. ÁRG. SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Jafn lokasprettur fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Evrópusambandið í Noregi Andstæðing- ar aðildar sigurvissir Ósló. Morgunbiaðið. ANDSTÆÐINGAR aðildar Noregs að Evrópusambandinu voru sigur- vissir tveimur sólarhringum áður en þjóðaratkvæðagreiðslan um aðild átti að hefjast. Niðurstöður skoðanakannana, sem birtar voru í gær, laugardag, sýna litla breytingu. Stuðningsmenn aðildar bæta lítið eitt við sig og eru rúmlega 47% þeirra, sem gert hafa upp hug sinn, þegar tekið er meðaltal þriggja kannana. Andstæðingarnir eru tæplega 53%. Munurinn er þó innan skekkju- marka og í raun ómögulegt að spá hvorir hafa betur. Samkvæmt könnunum, sem gerðar voru meðal áhorfenda eftir sjónvarpskapp- ræður flokksleiðtoga á föstudags- kvöld, kom Gro Harlem Brundt- land forsætisráðherra bezt út úr umræðunum og meirihluti svar- enda taldi stuðningsmenn aðildar hafa komið boðskap sínum betur á framfæri. Hins vegar höfðu umræðurnar ekki afgerandi áhrif á hóp óákveðinna. Engar tryggingar fyrir EES Norska ríkissjónvarpið hafði á föstudag eftir Jóni Baldvin Hanni- balssyni utanríkisráðherra að ís- lendingar hefðu fengið tryggingar fyrir því frá ESB að innihaldi EES-samningsins yrði ekki breytt, jafnvel þótt ísland og Noregur yrðu ein eftir í Fríverzlunarsam- tökum Evrópu, EFTA. í gær bar Henning Christopher- sen, varaforseti framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins, þetta til baka. Hann segir að eng- ar tryggingar hafi verið gefnar, og að Hans van den Broek, sem fer með utanríkismál í fram- kvæmdastjórninni, sé sér sammála í því efni. Christophersen telur að samningurinn muni hafa takmark- aða þýðingu fyrir ísland og Noreg eftir að hin EFTA-löndin verða komin inn í ESB. ■ Gróa gömul sár?/12 Daglegir bæna- fundir gegn ESB Ósló. Morgunblaðið. FRAMTÍÐ Noregs ræðst ekki af Evrópusambandinu (ESB), heldur blessun guðs, að sögn prests í óháðum söfnuði í Staf- angri sem hefur staðið fyrir bænasamkomum gegn ESB á hveijum morgni síðustu vikur. Aðild Norðmanna að Evrópu- sambandinu færir Norðmenn frá blessun guðs, að mati prestsins, Arnfmns Clementsens. „Kristið fólk kýs að heyja slíka baráttu með bænum og bænir okkar beinast ekki fyrst og fremst gegn Evrópusambandinu, he(d- ur biðjum við einkum fyrir Nor- egi. Þetta er ekki spurning um flokkapólitík, en við verðum að benda á það sem gengur í ber- högg við orð Drottins,“ segir presturinn. Ekki þörf á aflausn Clementsen telur aðild að Evrópusambandinu brjóta í bága við boðskap biblíunnar um sjálfstæði og frelsi. Hann segir hins vegar að þótt einhver úr söfnuðinum greiði atkvæði með aðildinni í þjóðaratkvæðinu á morgun þurfi hann ekki að óska eftir syndaaflausn hjá sér. Reuter Innan skekkjumarka KOMIÐ hefur verið upp mæli í Ósló sem sýnir stöðuna í skoðanakönnunum vegna þjóðaratkvæðis- ins um aðild Norðmanna að Evrópusambandinu á morgun, mánudag. Eins og sjá má á myndinni voru andstæðingar ESB 55% samkvæmt könnun í einu dagblaðanna, en þegar tekið var meðaltal kannana í gær voru þeir tæp 53% og stuðningsmennirnir 47%. Munurinn var þó innan skekkjumarka. Bandarískir hermenn sendir til Adríahafs Washington, Sar^jevo. Reuter. BANDARÍKJASTJÓRN ákvað í gær að senda 2.000 hermenn á þremur herskipum til Adríahafs vegna harðra bardaga í Bosníu. Serbneskar hersveitir, sem hafa sótt að Bihac-borg í norðvestur- hluta landsins, hættu árásum sín- um í gær og veittu stjórnarher- mönnum, sem veija borgina, frest til að gefast upp. Talsmaður bandaríska varnar- málaráðuneytisins lýsti ákvörðun- inni um að senda hermenn til Adríahafs sem „varúðarráðstöfun eingöngu“. Hermennirnir hefðu ekki fengið fyrirmæli um að fara Serbar veita múslimum frest til að gefast upp til Bosníu eftir að þeir koma til Adríahafs á næstu dögum. Líklegt þykir að Bandaríkjastjórn vilji hafa hermennina til taks ef bjarga þyrfti friðargæsluliðum Samein- uðu þjóðanna eða áhöfnum her- þotna Atlantshafsbandalagsins (NATO). Serbnesku hersveitirnar í grennd við Bihac-borg áttu í gær yfir höfði sér loftárásir af hálfu NATO eftir að flugskeyti hafði verið skotið að herþotum banda- lagsins sem leituðu skotmarka í grennd við borgina á föstudag. Manojlo Milovanovic hershöfð- ingi, yfirmaður serbneska árásar- liðsins, krafðist þess að stjórnar- hermennirnir gæfust upp fyrir klukkan 19.00 í gær og hann lof- aði að ábyrgjast öryggi allra þeirra sem legðu niður vopn. Hann gaf til kynna að Serbar væru reiðu- búnir að elta stjórnarhermennina inn í Bihac-borg, þrátt fýrir að Sameinuðu þjóðirnar hafi markað „griðasvæði“ umhverfis hana. HUGUR FYLGIR HENDI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.