Morgunblaðið - 30.11.1994, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1994 43
FRÉTTIR
Stjórnmála-
fundur á Höfn
TÆPAST hefur það farið framhjá
mönnum að umræða um utanríkis-
mál sem tengd er alþjóðlegum
samningum hef-
ur verið fyrir-
ferðarmikil nú
um sinn enda
mikilvægir at-
burðir að gerast
í þeim efnum.
ísland á hér mik-
illa hagsmuna að
gæta og því afar
mikilvægt að af- Björn
staða stjórn- ■ Bjarnason
málaflokkanna
liggi sem skýr-
ust fyrir, segir í
frétt frá Sjálf-
stæðisfélagi
Austur-Skaft-
fellinga.
Af þessari
ástæðu meðal
annars verður
haldinn fundur í
Sjálfstæðishús-
inu á Höfn i
Hornafirði á full-
veldisdaginn 1.
desember kl.
20.30.
Fundarefni er
ísland og al-
þjóðasamskipti
auk þess sem
eðlilegt þykir að Arnbjörg
flalla einnig um Sveinsdóttir
stjórnmálavið-
horfið á kosningavetri. Alþingis-
mennimir Björn Bjarnason og Egill
Jónsson og Arnbjörg Sveinsdóttir
sem nú skipar annað sætið á fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins í
Austurlandskjördæmi, mæta á
fundinum.
Þessi fundur er öllum opinn.
Egill Jónsson
íslenska liðið hlaut
gull og brons
Lúxemborg, Morgunblaðið.
ÍSLENSKA landsliðið í matreiðslu
hlaut bronsverðlaun í seinni hluta
alþjóðlegu matreiðslukeppninnar
„Culinary World Cup“ sem haldin
var í Lúxemborg í vikunni.
Verðlaunin voru fyrir kalt borð,
en það var hlaðborð er sýndi for-
rétti, aðalrétti, eftirrétti, smárétti,
og þriggja og sjö rétta matseðla.
Var keppt í samsetningu matseðla,
útliti, frágangi sem og frumleika í
samsetningu réttanna. Á miðju ís-
lenska borðsins stóð svo skreytingin,
eldfiall, sem Kara Jóhannesdóttir
hannaði og útbjó.
íslenska liðið náði góðum árangri
í keppni þessari því þeir hlutu verð-
laun í báðum flokkunum sem keppt
var í, guil fyrir heita rétti og brons
fýrir kalda rétta.
Landsliðið skipa: Úlfar Finn-
björnsson, fyrirliði, Baldur Öxdal,
Friðrik Sigurðsson, Þorvarður Ósk-
arsson og Snæbjörn H. Kristjánsson.
Varamenn: Bjarki Hilmarsson, Ás-
björn Pálsson og Jón Árelíusson.
Framkvæmdastjóri er Örn Garðars-
son og til aðstoðar Sigurður Hall og
Þórarinn Guðlaugsson sem jafn-
framt er þjálfari liðsins.
Allt hráefni sem notað var kom
frá íslandi.
ÍSLENSKU matreiðslumeistararnir. Fremri röð, f.v.: Þorvarður
Óskarsson, Úlfar Finnbjörnsson, Örn Garðarsson og Baldur
Öxdal. Aftari röð, f.v.: Jón Árelíusson, Friðrik Sigurðsson, Þórar-
inn Guðlaugsson, Snæbjörn H. Kristjánsson, Asbjörn Pálsson
og Bjarki Hilmarsson.
Matreiðslukeppnin „Culinary World Cup“
Doktorsritgerð
í dýralífeðlis-
fræði
SIGHVATUR Sævar Árnason varði
doktorsritgerð (PhD) sína við Dýra-
lífeðlisfræðideild August Krogh-
stofnunar Kaup-
mannahafnarhá-
skóla 5. nóvem-
ber á síðasta ári.
Ritgerðin ber
heitið „Endocr-
ine regulation of
salt and water
homeostasis in a
granivorous bird,
Gallus gallus,
with special re-
ference to the
lower intestine, colon and coprode-
Dr. Sighvatur
Sævar Arnason
um“.
Leiðbeinandi var prófessor Erik
Skadhauge, dr. med., við Lífefna-
og lífeðlisfræðistofnun Hins konung-
lega Dýralækna- og landbúnaðarhá-
skóla í Kaupmannahöfn, og meðleið-
beinandi var lektor Per Rosenkilde,
Mag.Scient., við lífeðlisfræðideild
Panum-stofnunarinnar við lækna-
deild Kaupmannahafnarháskóla.
Ritgerðin fjallar um þátt fjögurra
hormóna (vasótócíns, prólaktíns,
corticósteróns og aldósteróns) í við-
haldi seltu- og vökvajafnvægis
hænsnfugla við erfiðar umhverfisað-
stæður.
Sighvatur lauk BS-gráðu í líf-
fræði frá Háskóla íslands 1976 og
DEA-gráðu í hormónafræðum frá
Vísinda- og tækniháskólanum í
Montpellier í Frakklandi árið 1980.
Hann hefur starfað sem sérfræðing-
ur og stundakennari við Rannsókn-
arstofu í lífeðlisfræði við Háskóla
íslands. Síðan 1988 hefur hann
gegnt lektorstöðu í lífeðlisfræði við
læknadeild Háskólans.
Eiginkona Sighvats er Þórhalla
Arnljótsdóttir, kerfisfræðingur,_ og
eiga þau tvö börn, Hrafnkel og Ástu
Guðrúnu. Foreldrar Sighvats eru
Árni Sighvatsson, söngkennari, og
Guðrún Jónsdóttir, húsmóðir.
♦ ♦ ♦
Námskeið hjá
Kolaportinu
KOLAPORTIÐ hélt nýlega nám-
skeið þar sem kynntar voru ýmsar
árangursríkar leiðir til tekjuöflunar
á markaðstorginu. Færri komust að
en vildu og því hefur verið ákveðið
að halda annað námskeið fímmtu-
dagskvöldið 1. desember kl. 20.
Kynntar verða ýmsar árangurs-
ríkar leiðir til tekjuöflunar á mark-
aðstorginu. Námskeiðið eru ókeypis
og getur hentað bæði þeim sem
hafa prófað að selja í Kolaportinu
og vilja bæta árangurinn og þeim
sem hafa áhuga á að nota þennan
vettvang til tekjuöflunar í framtíð-
inni. Farið verður yfir mismunandi
leiðir til að þéna á markaðstorginu,
allt frá því að koma með eigið
kompudót til fulls fyrirtækjarekst-
urs í þessu umhverfi, bent á árang-
ursríkar aðferðir við söluna og víti
til að varast.
í TAKT VIÐ TÍMANN
QARÐAR ÓLAFSSON ÚRSMIÐUR
Lækjartorgú sími. 10081.
í þessari viku sýnum við það nýjasta í vasaúrum og úrum í húlsfesti
Vasaúrin eru fáanleg í 18k gulli, silfri
og með 18k gullhúð, með og án loks.
Verðmæt tímamótagjöf.
Ur í hálsfestí eru mjög vinsæl.
Emailérað bak með 18k gullrós, einnig með 18k
gullhúð, með og án loks. Fallegur skartgripur.
Fulltrúi gesta á Sjúkrahóteli
Rauða krossins færir Guðríði
Halldórsdóttur, hótelstjóra,
blómakörfu á afmælinu.
Stækkun sjúkra-
hótels bætir úr
brýnni þörf
UM ÁRAMÓTIN verður rúmum á
sjúkrahóteli Rauða krossins í Reykja-
vík fjölgað um meira en helming, eða
úr 28 í 59. Þessi stækkun verður
yfir vetrarmánuðina, frá október til
maí, og bætir úr brýnni þörf enda
er hótelið fyrir löngu orðið of lítið.
Um miðjan nóvembermánuð var
þess minnst að tuttugu ár eru liðin
frá því að Sjúkrahótel Rauða kross-
ins tók til starfa í Reykjavík. I sam-
sæti, sem gestum og starfsfólki var
haldið á afmælisdaginn, voru nokkrir
sjálfboðaiiðar og starfsmenn heiðrað-
ir fyrir framlag sitt til starfseminn-
ar. Margir hafa lagt hönd á plóginn
á síðustu tuttugu árum, ekki síst
félagar í Kvennadeild Reykjavíkur-
deildar RKÍ, sem m.a. hafa annast
bókasafnsþjónustu við sjúkrahótelið
frá upphafi.
Þörfín fyrir stækkun hótelsins er
afar brýn, eins og sést best á því að
á síðasta ári var nýting sjúkrahótels-
ins 104%. Að auki er vonast til að
stækkuninni fylgi aukin hagkvæmni
í rekstri, en undanfarin ár hefur ver-
ið töluverður rekstrarhalli á sjúkra-
hótelinu sem ekki hefur fengist bætt-
ur, þar sem halladaggjöld hafa verið
felld niður, segir í fréttatilkynningu.
Jafnframt er þessa dagana unnið að
endurskoðun reglna um innlagnir á
hótelið.
Hótelstjóri Sjúkrahótels Rauða
kross íslands er Guðríður Halldórs-
dóttir.
-------♦..♦ -»-----
Erindi um hrók-
endur á íslandi
DR. ÓLAFUR K. Nielsen, fugla-
fræðingur, flytur erindi sem hann
nefnir Hrókendur á íslandi, í kvöld,
miðvikudaginn 30. nóvember, kl.
20.30.
Hróköndin er amerísk andategund
sem flutt var til Bretlandseyja um
1950 og hefur verið að breiðast út
um Evrópu síðustu tvo áratugi. Þar
hafa menn áhyggjur af því að hrók-
öndin muni útrýma eiröndinni, sem
er sjaldgæfur varpfugl í Suður-Evr-
ópu og Mið-Asíu. Ólafur fjallar um
hrókendur á íslandi og Evrópu og
hvað verið er að gera til að stemma
stigu við útbreiðslu hennar á Bret-
landseyjum, Spáni og víðar.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
stofu 101 í Odda, húsi Hugvísinda-
deildar háskólans, og er öllum heim-
ill aðgangur.
TEIKNING af hrókönd.
kjami málsiiu!
Uppskriftir, heimsóknir, jólasiðir,
konfektgerð, fóndur, jólagjafir, pakkar og
margt fleira er í 64 síðna hlaðauka sem
fylgir Morgunblaðinu nk. fhnmtudag,
1. desember.