Morgunblaðið - 06.12.1994, Page 28
YDDA F45.1 4/SlA
28 ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1994
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Vicslihneíur
hakkaðor
vnöndhir
HcsUHncíur
Vjókosmjöl
,112?®r AJ
tnondlur
'hakkaOar
fcf
döðlur
föcjur
ojHnetukjamor
Bráðum koma
blessuð jólin...
BÖKMENNTIR
Barnabók
DEKURDRENGURÁ
DREIFBÝLISBOMSUM
eftir Hildi Einarsdóttur. Fróði,
1994- llOsíður.
EITT algengasta minnið í íslensk-
um barnabókum var lengi vel að
óþekkir kaupstaðastrákar sem ekk-
ert réðst við á mölinni voru sendir
upp í sveit þar sem þeir breyttust í
engla á stuttum tíma og sneru heim
nærri því frelsaðir. Þessum sögum
hefur fækkað enda hefur mikilvægi
sveitarinnar fengið eðlilegri sess í
hugum fólks en áður var og borgin
er ekki endilega tákn um siðspillingu.
Hér er þó þetta sígilda minni rifjað
upp og snúið upp á nútímann. Tindur
og félagar hans eru uppátektarsamir
eins og það er kallað. Þeir skemmta
sér við að renna sér á hjólabrettum
niður Laugaveginn og gera fólki
hverft við, þeir spila körfubolta og
helsta skemmtunin er að safna körfu-
boltamyndum. En þegar allt um þrýt-
ur ákveða þeir að stríða rækilega
TONIIST
Hallgrímskirkja
AVENTUTÓNLEIKAR
Flutt verk eftir G. Gabrieli, Palestr-
ina og Samuel Scheidt. Stjómandi
Hörður Áskelsson.
Sunnudagur 4. desember.
SÍÐARI hluti 16. aidar og nokkuð
fram á þá 17. er tímabil sem nefnt
hefur verið gullöld kórtónlistar og
markar sá tími einnig upphaf hljóð-
færatónlistar, með óperuna sem
þungamiðju nýunga í tónsmíði. Gio-
vanni Gabrieli stóð báðum megin
skilanna, kenndi manni eins og
Schiitz kórlistina og varð fýrstur til
að semja hljómsveitarverk. Tónleik-
amir hófust með glæsilegu verki eft-
ir þenna snilling, á mótettunni Jubil-
ate Deo omnis terra, en með kómum
lék homasveit, Qórir trompettar og
jafnmargar básúnur. Undirieikurinn
fylgir raddskipan kórsins og var
flutningur beggja stórglæsilegur und-
ir stjóm Harðar Áskelssonar.
Sagnfræðingum ber saman um
að glæsileg hljóman kirkjutónlistar
á þessum tíma hafi verið kirkjugest-
um hrein opinberun og að vandfund-
in verði áhrifameiri trúarathöfn en
sem birtist í gullnum hljómi lúðra
og fögrum kórsöng.
Kórverk eftir Palestrina búa yfír
sérkennilegum hátíðleik og í flóknum
rithætti nær hann að varðveita „hinn
hreina hljóm“ en byggja um leið upp
glæsilegan tónbálk. Palestrina átti
engan þátt að þróun hljóðfæratón-
listar og hjá honum blómstrar kór-
tónlist 16. aldar.
Mótettukórinn söng tvær mótettur
eftir Palestrina, Canite tuba, fyrir 5
raddir og 0 magnum mysterium fyr-
ir 6 raddir, en á milli þeiira flutti
kórinn meistaraverkið Missa papae
Marcelli. Flutningur verkanna var í
gömlum úrillum karli og
tekst það svo vel að
pabbi Tinds tekur þá
ákvörðun að senda hann
í sveit. Á mömmu hans
er ekki minnst í því sam-
bandi.
Tindur verður að laga
sig að lífsháttum í sveit-
inni. Á heimilinu eru
aðeins tvær manneskj-
ur. Sveini, hrossabóndi
sem hefur sitt lífsviður-
væri af hrossarækt, ög
Signý, sem er titluð bú-
fræðingur en gerir allt
frá því að elda mat í að
moka mykju á tún. Sig-
rún er engin tepra og hún laðar fram
það besta í stráksa. Hann er ólatur
að vinna og virðist falla inn í sveita-
lífið áreynslulaust. Margt ber til sum-
arið sem Tindur er á Undirfelli. Helst
er þó að forláta hestur sem Sveini á
fótbrotnar og viðbrögðin við því slysi
eru mjög sannfærandi og lýsing öll
á viðburðum vel gerð. Sveini er mik-
ill dýravinur og telur ekkert eftir sér
til þess að láta Væng sínum líða sem
best. Einnig er sagt frá hestamanna-
einu orði sagt glæsilegur og náði
hámarki í niðurlagi Credo-kaflans,
einhveijum fegursta „amen-þætti“
kirkjutónlistarsögunnar.
Eftir Samuel Scheidt voru flutt
þijú verk, fyrst Canzon fyrir fjóra
trompetta, sem var glæsilega leikin
af Ásgeiri H. Steingrímssyni, Einari
Jónssyni, Lárusi Sveinssyni og Sveini
Birgissyni. Þar eftir voru mótettum-
ar Nun komm, der Heiden Heiiand
og In dulci jubilo, glæsileg tónlist,
sem var mjög vel flutt.
Kansóna fyrir fyrir tvo blásara-
kóra eftir G. Gabrieli var frábærlega
vel leikin, en með áðumefndum trop-
ettleikurum léku á básúnur þeir Odd-
ur Bjömsson, Edward Frederiksen,
Ingibjörg Guðjónsdóttir og Bjöm R.
Einarsson. Tónleikunum lauk með
Hodie Christus natus est, tíu radda
mótettu eftir Gabrieli. Þar áttu hlut
að, auk Mótettukórsins, blásarasveit-
in, einsöngvararnir Guðrún Edda
Gunnarsdóttir (alt), Magnús Gíslason
(tenór) og Benedikt Ingólfsson (barí-
ton) en orgelleikari var Douglas A.
Brotchie. Þetta rismikla verk var
ótrúlega vel flutt og enduðu þessir
frábæm tónleikar með rismiklum
hallelúja-þætti.
Nútímamaðurinn, sem býr yfir
margþættri hljóðreynslu, getur trú-
lega ekki gert sér grein fyrir áhrifum
helgitónlistar, eins og þeirri sem flutt
var í Hallgrímskirkju sl. sunndudag,
á kirkjugesti 16. og 17 aldarinnar.
Þó er það nú svo, að enn ber þessi
tónlist í sér hástemmda tignun, sem
nútímamaðurinn fínnur æ betur að
hann á erindi við og því er þessi tón-
list í trúarlegu tilliti enn jafn fersk
og fyrrum. Þegar svo bætist við, að
flutningurinn er eins glæsilegur og
hjá Mótettukómum og samflytjend-
um, fær aðventan nýtt og sterkt inn-
tak, samofið trúarlegri helgi og tón-
rænni, guðlegri fegurð.
Jón Ásgeirsson
móti þar sem Tindi
tekst að bjarga kunn-
ingja sínum úr heldur
óskemmtilegri klípu.
Krakkarnir í sveit-
inni sem Tindur hittir
eru allir skynsamir og
hafa allt önnur viðmið
í lífinu en kunningjar
úc Reykjavík en þau
taka honum vel og
hann á þarna góða
daga. Strákurinn lærir
að sitja hest og með
því tekst honum enn
betur að komast inn í
hóp jafnaldra sinna.
Dekurdrengur á
dreifbýlisbomsum er léttilega skrifuð
saga. Hún er sögð í fyrstu persónu
og söguhetjan tekur sig ekki alitof
alvarlega. Samtölin eru tilgerðarlaus
og orðanotkun eðliieg miðað við ald-
ur sögupersónanna þótt málfarsmun-
ur sé talsverður milli borgar og sveit-
ar. Við skiljum við Tind áður en
hann snýr aftur heim og höfum það
á tilfínningunni að sumardvölin hafi
gert honum gott og þroskað hann.
Sigrún Klara Hannesdóttir.
Við rúm-
stokkinn
BÖKMENNTIR
Myndabók
LÍSA DÓRA SÚPER-
STERKA
eftir Þorfinn Sigurgeirsson
Prentverk: Singapore
Slqaldborg hf. 1929 - 24 síður
BIÐ EFTIR jólum getur ung-
um orðið erfið, jafnvel það að
falla í svefn og bíða ævintýra
næsta dags. Þetta veit höf-
undur af eigin reynslu, því
aftan á kápu segir, að hann
hafi gert söguna fyrir unga
dóttur.
Vel hefir þeirri stuttu fallið,
því hér er öðrum foreldrum
rétt sagan í hendur. Raun-
veruleiki daganna og ævintýri
ímyndunarinnar eru tvinnuð
saman, svo ég trúi því vel að
lítil börn kunni að meta, vilji
því heyra aftur og aftur.
Lísa Dóra er lífleg stelpa,
bangsinn hennar og kisinn,
Dóri Nóri, taka þátt í atburða-
rásinni með henni. Það tjá
myndirnar í raun betur en
textinn, þær eru fyndnar og
vel gerðar, leyfa jafnvel snjó-
karli að taka þátt í sögunni
líka.
Ekkert bókmenntaafrek,
sjálfsagt heldur ekki hugsað
þannig, en mjög snotur hvatn-
ing til foreldra um að setjast
á rúmstokk hjá barni sínu,
þylja því sögu.
Sig. Haukur Guðjónsson
Nýjar bækur
• NÝLEGA komu út tvær bækur
í nýjum flokki sem hlotið hefur
nafnið Bráð er barns lundin.
Bækurnar heita Þegar ég erreið-
ur og Þegar ég er afbrýðisöm
og fjalla um tilfínningasveiflur
ungra bama. í bókunum eru upplýs-
ingar fyrir foreldra og kennara sem
vilja hjálpa ungum bömum að ná
valdi á tilfinningum sínum.
Útgefandi er Mál og menning.
Bækurnar eru þýddar af Sigrúnu
Árnadóttur og prentaðar á Italíu.
Hvor bók er 32 bls. ogkostar 790
krónur.
é UNGLINGABÓKIN Hættuspil
er komin út. Höfundurinn Crystine
Brouilleter kanadísk og fékk hún
verðlaun fyrir þessa spennusögu í
heimalandi sínu. Tassa er 15 ára
gömul þegar hún strýkur að heiman
til að vekja á sér athtygli. En at-
burðir taka óvænta stefnu og hún
flækist í neti morðingja og eitur-
lyijasala.
Utgefandi er Mál og menning. Guð-
laug Guðmundsdóttir þýddi bókina
sem er 112bls. Halla Sólveiggerði
kápumynd. Prentsmiðjan Oddihf.
prentaði. Verð bókarinnar er 1.590
krónur.
é ÚT er komin Þýtur ílaufi þröst-
ur syngur eftir Astrid Lindgren.
Hér er um að ræða fjórar sögur
um börn sem leita lausnar á fá-
tækt, og einstæðingsskap með því
að leita á vit ævintýra. Bókina send-
ir Astrid Lindgren frá sér árið 1959
en hún kemur nú í fyrsta skipti út
á íslensku í þýðingu Gunnlaugs
R. Jónssonar.
Útgefandi erMál og menning. Bók-
in er 99 bls. myndskreytt afllon
Wikland og prentuð íprentsmiðj-
unni Odda hf. Hún kostar 1.290
krónur.
é SKUGGARNIR lengjast í
rökkrinu eftir Henning Mankell
er nýlega komin út í þýðingu Gunn-
ars Stefánssonar. Bókin er sjálf-
stætt framhald verðlaunabókarinn-
ar Hundurinn sem hljóp upp til
stjörnu, sem nýlega kom út fyrir
tveimur ámm. Bækurnar segja frá
11 ára gömlum dreng og uppvexti
hans í sænsku þorpi. Hann er hug-
myndaríkur og ýmislegt spennandi
drífur á daga hans þrátt fyrir ró-
legt yfirbragð á umhverfinu.
Útgefandi er Mál og menning. Bók-
in er 178 bls. ogprentuð í G.
Ben/Eddu prentstofu hf. Hún kost-
ar 1.590 krónur.
é STRÁKAR og stelpur eftir Ein-
ar Snorra Einarsson og Eið
Snorra Eysteinsson er Ijósmynda-
bók tveggja ungra ljósmyndara. í
kynningu segir: „Þótt þeir félagar
Einar Snorri og Eiður Snorri séu
ekki nema rúmlega tvítugir hafa
þeir lengi fengist við ljósmyndun
og myndir þeirra vakið mikla at-
hygli. Viðfangsefni þeirra í bókinni
er fyrst og fremst andlit fólks og
mannslíkaminn."
Stuttur texti er í bókinni um ljós-
myndarana og viðfangsefni þeirra.
Hallgrímur Helgason skrifar um
Einar Snorra og Sjón skrifar um
Eið Snorra.
Útgefandi er Fróði. Strákar og
stelpur er prentunnin hjá Prent-
smiðjunni Odda. Bókin er 104 bls.
Verð kr. 2.980 m/vsk.
Sveitin læknar allt
Hildur
Einarsdóttir
Fegnrð o g trú
Frá og með 1. desember breytist símanúmer Iðnlánasjóðs
NÝTlfZf; !;lt£ f$Jt
simanumer: V._V__ T.
Nýtt faxnúmer: 588 6420
Nœstu tvo mánuði verður þó hœgt að ná sambandi við okkur
um gamla símanúmerið með sjálfvirkum símtalsflutningi.
* IÐNLÁNASJÓÐUR
AFGREIÐSLUTÍMI: MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA FRÁ KL. 9.00 - 16.30
VELJUM (SLENSKT!
QllO