Morgunblaðið - 21.12.1994, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Lögregla beitti tára
gasi við handtöku
Morgunblaðið/RAX
Eitt neyöarsímanúmer fyrir lok næsta árs
Kostnaður áætl-
aður 50 millj-
ónir króna á ári
ÞRÍR menn, 30-36 ára, voru hand-
teknir við Glæsibæ í gærmorgun eft-
ir að bíl, sem þeir voru á, hafði ver-
ið ekið á lögreglumann sem ætlaði
að hafa tal af ökumanninum. Þegar
handtaka átti ökumanninn eftir eftir-
för réðust tveir farþegar hans síðan
að lögreglumönnum sem þurftu að
grípa til táragass til að hrinda atlögu
þeirra. Mennirnir voru allir taldir ölv-
aðir.
Laust eftir klukkan fímm um
morguninn stöðvaði lögreglubíll för
mannanna í Ártúnsbrekku þar sem
þeir voru á óskoðuðum bíl sem virt-
ist í slæmu ástandi, að sögn lög-
reglu, auk þess sem ökulag bílsins
virtfet skrykkjött.
Þegar lögreglumaður var að ræða
við ökumanninn rak hann bílinn í
bakkgír og bakkaði á talsverðri ferð
á lögreglubílinn og ók siðan á brott.
Lögreglumaðurinn varð þá fyrir bíln-
um, kastaðist yfir vélarhlíf hans og
í götuna.
Bílnum var veitt eftirför sem lauk
við Glæsibæ í Álfheimum. Þar ætluðu
tveir lögreglumenn að handtaka öku-
manninn, en að sögn lögreglunnar
barðist hann á móti og eggjaði far-
þega sína að hjálpa sér að komast
undan. Farþegarnir hafi þá ráðist
að lögreglumönnunum með hnefa-
höggum og hafí lögreglan þurft að
beita táragasi til að yfirbuga þá.
Mennirnir, sem allir voru áberandi
ölvaðir, að sögn, voru síðan allir
handjárnaðir og færðir á lögreglu-
stöð og í fangaklefa. í bílnum fund-
ust tvær áfengisflöskur. Þá yar bíll-
inn óskoðaður og í lélegu ásigkomu-
lagi, að sögn lögreglu sem tók núm-
eraplötur af bílnum. Mennimir voru
yfírheyrðir hjá lögreglunni í gær
vegna gruns um ölvunarakstur, árás
á opinbera starfsmenn og hindrun
við starf þeirra.
Lögreglumaðurinn sem ekið var á
tognaði á hné og hlaut skrámur.
Skatan vel
sterk í ár
SKATAN er almennt vel sterk í
ár, að sögn Jóns Ægis Péturssonar
í Fiskbúðinni Hafrúnu í Skipholti.
Alltaf selst mikið af skötu fyrir
Þorláksmessu og var mikið að
gera í fiskbúðum í gær. Reyndar
höfðu margir skötu um helgina,
„til þess að geta loftað út fyrir
jólin“, segir Ægir sem er til hægri
á myndinni og bregður á leik með
Garðari Einarssyni og ónefndri
skötu.
UPPSTILLINGARNEFND Samtaka
um kvennalista í Reykjavík kom sam-
an í gær til að endurtelja atkvæði í
forvali um skipan efstu sæta á fram-
boðslistanum í Reykjavík. Að sögn
Guðrúnar Agnarsdóttur, sem sæti á
í nefndinni, var engin sérstök ástæða
fyrir því að atkvæðin voru talin á
ný önnur en að nefndin hafí viljað
að enginn vafí léki á niðurstöðunni,
en hún verður ekki gerð opinber fyrr
en á félagsfundi í janúar.
Niðurstaða forvalsins er ekki bind-
andi þar sem ekki reyndist næg þátt-
taka en miðað var við að 60% kvenna-
listakvenna greiddu atkvæði um röð-
un þeirra 16 kvenna sem gáfu kost
á sér á listann.
„Við þurfum að huga betur að
þessu, væntanlega að tala við kon-
umar og skipa öllum á lista og síðan
GERT er ráð fyrir að eitt neyðar-
símanúmer fyrir allt landið verði
tekið í notkun fyrir lok næsta árs.
Dómsmálaráðherra kynnti frum-
varp þessa efnis í ríkisstjórn í gær
og verður það nú sent þingflokkun-
um, en gert er ráð fyrir að fmm-
varpið verði að lögum fyrir þinglok
í vor. Kostnaður samfara einu neyð-
arsímanúmeri er áætlaður um 50
milljónir króna á ári.
Frumvarpið er lagt fram í fram-
haldi af áliti nefndar sem dóms-
málaráðherra skipaði og skilaði áliti
í vor. Nefndin lagði til að komið
yrði á samræmdu neyðarsímanúm-
eri, 112, fyrir landið allt, til að taka
allan sólarhringinn við beiðnum um
neyðaraðstoð lögreglu, slökkviliðs,
sjúkraflutningamanna, lækna og
björgunarsveita í stað þeirra um
150 símanúmera sem nú þarf að
hringja í um landið allt eftir slíkri
þjónustu. í skýrslu nefndarinnar er
gert ráð fyrir einni vaktstöð á höf-
uðborgarsvæðinu með sólarhrings-
vöktun fyrir landið allt en að eftir
því sem aðstæður og fiárhagur leyfi
verði byggðar upp vaktstöðvar í
einstökum landshlutum.
verður haldinn fundur snemma í jan-
úar þar sem listinn verður kynntur,“
segir Guðrún.
Þrýst á Kristínu
Halldórsdóttur
Samskonar staða er uppi á
Reykjanesi en þar urðu niðurstöður
skoðanakönnunar sem efnt var til
ekki bindandi vegna ónógrar þátt-
töku og er uppstillingarnefnd enn
að störfum við að fara yfir röðunina
á listann. Að sögn Önnu Ólafsdóttur
Björnsson, sem sæti á í nefndinni,
voru skráðar Kvennalistákonur beðn-
ar um að senda inn tilnefningar og
var svo efnt til forvals um röðun
þeirrá kvenna sem gáfu kost á sér
í tíu efstu sætin. Þótt niðurstöður
forvalsins lægju fyrir voru þær ekki
kynntar á félagsfundi sem haldinn
Þorsteinn Pálsson, dómsmálaráð-
herra, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að annað hvort myndu stjórn-
völd koma upp nauðsynlegum bún-
aði vegna þessarar miðstöðvar og
sjá um rekstur hennar eða samið
yrði við aðila sem kæmu nálægt
björgunar- og slysavarnarmálum
eða hugsanlega einkaaðila á þessu
sviði sem ynnu að öryggismálum.
Hefði viljað
sameina krafta
„Ég hefði viljað sameina krafta
allra þessara aðila í einni miðstöð
utan um þetta verkefni. Það verður
kannað til þrautar hvort slík sam-
staða getur tekist en ella verður
ríkið að axla þá ábyrgð að gera
þetta,“ sagði Þorsteinn.
Hann sagði að áætlað væri að
árlegur kostnaður vegna miðstöðv-
arinnar yrði um 50 milljónir króna.
Á móti myndu sveitarfélög spara
mikla fjármuni við þessa breytingu,
auk þess sem þjónustan yrði betri.
Þá væri hugsanlegt að kostnaður-
inn yrði eitthvað minni ef víðtækt
samstarf tækist um svona miðstöð.
var fyrir tæpum tveimur vikum, skv.
upplýsingum Morgunblaðsins, og
voru nokkrar Kvennalistakonur ekki
sáttar við þetta. Hafa þær að undan-
förnu safnað undirskriftum með
áskorun á Kristínu Halldórsdóttur
fyrrv. þingkonu, að gefa kost á sér
í efsta sæti framboðslistans, en hún
hafði áður hafnað því.
Anna sagði að beðið yrði eftir því
hvort Kristín breytti afstöðu sinni
áður en gengið yrði endanlega frá
þessum málum og kvaðst hún ekki
gera ráð fyrir að framboðslisti lægi
fyrir fyrr en í janúar.
Kristín sagðist í samtali við Morg-
unblaðið í gær hafa tekið þá ákvörð-
un í haust að gefa ekki kost á sér
og hún hefði ekki breytt um afstöðu.
Hún sagðist skoða málin í rólegheit-
um ef hún fengi áskoranir í hendur.
Vetrarsólstöður í nótt
VETRARSÓLSTÖÐUR er það
kallað þegar sólargangur er
stystur. Sólin verður lægst á lofti
næstu nótt, klukkan nákvæm-
lega 2,23. Sólaris á morgun verð-
ur klukkan 11,22 og sólarlag
klukkan 15,31. Upp úr þessu fer
daginn að lenngja og aðfangar-
dagur yerður einni mínútu lengri
en morgundagurinn. Hæst verð-
ur sólin á lofti- 21. júní og er það
nefnt sumarsólstöður. í Islensk-
um þjóðháttum Jónasar Jónas-
sonar frá Hrafnagili segir að það
sé gömul trú að veðurfar, það
sem eftir lifir vetrar, ráðist af
tíðarfari fýrstu þijá dagana fyrir
og eftir vetrarsólstöður.
Niðurstöður í forvali Kvenna-
listans kynntar í janúar
Uppnám á þingfundi við upphaf umræðu um fjáraukalög ríkisstjórnarinnar
Þingmenn mótmæltu
áliti fjárlaganefndar
TVEIR þingmenn Sjálfstæðisflokks
mótmæltu atriðum í nefndaráliti
meirihluta fjárlaganefndar við upp-
haf umræðu um frumvarp til
ijáraukalaga á Alþingi í gær. Eftir
talsverðar deilur í þingsalnum var
umræðu um málið frestað þar til
samkomulag tókst í stjórnar-
flokkunum um að breyta nefndar-
álitinu.
Meirihluti fjárlaganefndar lagði
til, fyrir 3. umræðu um fjáraukalög,
að Byggðastofnun fái 20 milljóna
króna framlag til að ráðstafa í styrki
og lán til eigenda smábáta. í nefnd-
arálitinu segir síðan að Byggða-
stofnun sé ætlað að gera fjárlaga-
nefnd sérstaklega grein fyrir ráð-
stöfun þessara fjármuna.
Þessu mótmælti Matthías Bjarna-
son formaður sjávarútvegsnefndar
og stjórnarformaður Byggðastofn-
unar. „Af hveiju tekur fjárlaga-
nefndin þá ekki ákvörðun um að
ráðstafa þessu fjármagni? Ég vil
ekki taka neitt slíkt yfir á hendur
Byggðastofnunar að hafa íjárlaga-
nefnd yfirboðara þeirrar fjárúthlut-
unar. Stofnunin heyrir undir forsæt-
isráðuneytið og hefur þingkjörna
stjórn. Er fjárlaganefnd þá orðin
yfir þessu öllu, bæði því sem Al-
þingi kýs og forsætisráðuneytinu?"
sagði Matthías.
Markleysa
Fjárlaganefnd lagði einnig til 40
milljóna framlag samkvæmt jarð-
ræktarlögum, vegna haughúsa og
vatnsveitna sem byggð voru á árun-
um 1992 og 1993. Fram kemur í
nefndarálitinu að þetta sé gert í
samráði við ijármálaráðherra og
landbúnaðarráðherra, en þessir aðil-
ar taki skýrt fram að ekki verði um
frekari ljárveitingar að ræða til
framkvæmda samkvæmt jarðrækt-
arlögum. Þessu mótmælti Egill
Jónsson formaður landbúnaðar-
nefndar og sagði yfirlýsinguna
markleysu.
Fram kom að nefndarálit meiri-
hluta fjárlaganefndar hafði ekki
yerið kynnt í þingflokki Sjálfstæðis-
flokks, eða fyrir minnihluta
nefndarinnar, áður en því var dreift
á Alþingi í gær. Þingmenn stjórnar-
andstöðunnar kröfðust fundarhlés
og Matthías tók undir það og sagði
siðlaust að halda umræðunni áfram
án þess að ræða málið í þingflokkum
stjórnarliðsins.
Eftir þingflokksfundi í stjómar-
flokkunum var málið tekið af dag-
skrá þingfundar í bili. Samkomulag
náðist svo um að breyta nefndar-
áliti fjárlaganefndar þannig að setn-
ingin um Byggðastofnun yrði tekin
út en setningin um jarðræktarfram-
lögin stóð áfram, enda var þar um
sérstakt samkomulag stjórnarflokk-
anna að ræða.
Sturla Böðvarsson varaformaður
íjárlaganefndar sagði að nefndin
hefði talið eðlilegt að fjárlaganefnd
’gæti séð með hvaða hætti Byggða-
stofnun úthlutaði ijármunum til
smábátaeigenda þannig að hægt
væri að taka tillit til þess ef frekari
aðgerðir kæmu til vegna vanda
þessarar stéttar. Sturla sagði að í
heimildargreinum fjárlaga, þar sem
veittar væru heimildir til viðkvæmra
aðgerða, væri yfirleitt áskilið, að
haft væri samráð við fjárlaganefnd.
„En þetta var okkur ekki fast í
hendi,“ sagði Sturla.
Deilur stjórnarflokka
Áætlanir um þingstörf hafa farið
veruiega úr skorðum síðustu daga.
Fyrir helgina var stefnt að þing-
frestun í dag, en nú er talið mjög
vafasamt að takist að ljúka þing-
störfum fyrir jól og því verði að
halda þingfundi milli jóla og nýárs.
ítrekað hefur komið fram, og
m.a. verið staðfest úr ræðustól af
Ijármálaráðherra, að tafirnar stafa
ekki af því að stjórnarandstaðan
þvælist fyrir málum, heldur hefur
gengið hægt hjá stjórnarflokkunum
að afgreiða ýmis mál tengd fjárlög-
unum. Frumvörp um ráðstafanir i
ríkisfjármálum og breytingar á
skattalögum komu seint fram og
hafa annir í efnahags- og viðskipta-
nefnd verið miklar síðustu daga
vegna þess. Þingfundir hafa því
verið stuttir til að gefa nefndinni
tíma til að starfa.
Stjórnarandstæðingar hafa gagn-
rýnt vinnubrögð stjórnarmeirihlut-
ans harðlega. Olafur Ragnar Gríms-
son formaður Alþýðubandalags
sagði að þingmenn stjórnarandstöð-
unnar hefðu undanfarið orðið að
sitja aðgerðarlausir á meðan þing-
menn stjórnarflokkanna deildu sín
á milli í þingnefndum. „Ég hef nóg
annað við tímann að gera en að sitja
og bíða eftir því að stjórnarflokkarn-
ir leysi ágreiningsmál sin,“ sagði
Ólafur á Alþingi í gær.