Morgunblaðið - 21.12.1994, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1994 11
FRÉTTIR
Tæplega 30 milljarðar til
vegamála næstu fjögur ár
Kirkjugarð-
urinn í
Gufunesi
rafvæddur
KROSSAR með rafljósi eru komnir
á um 400 leiði í Gufuneskirkju-
garði. Rafþjónustan Ljós hefur gert
samning við Kirkjugarða Reykja-
víkur um að leggja rafkerfi í garð-
inn og reka það. Fyrirtækið hefur
gert sams konar samning um raf-
kerfi í Fossvogskirkjugarð og verð-
ur byijað á því á næsta ári.
Lárus A. Jónsson, framkvæmda-
stjóri Ljóss, segir að fyrirtækið, sem
hann rekur ásamt Kristjáni Jó-
hannssyni, hafi sent þeim, sem séu
skráðir fyrir leiðunum, bréf og boð-
ið upp á þjónustuna. Viðtökurnar
hafi verið góðar og virðist fólk vera
mjög ánægt með hana. Rafþjónust-
an sér um að hafa kveikt á krossun-
um frá byijun jólaföstu og fram á
þrettándann gegn föstu gjaldi.
Vinna fyrir verndaða
vinnustaði
Fyrirhuguð
vinnsla út-
hafskarfa
TVO fiskvinnslufyrirtæki í
Grundarfirði eru að undirbúa
stóraukna vinnslu úthafskarfa.
Keyptar verða nýjar vélar til
vinnslunnar og húsnæði verður
breytt. Heimatogarar munu ann-
ast veiðarnar að hluta til en auk
þess er verið að semja við inn-
lenda og erlenda aðila um hráefn-
isöflun.
Með því að hefja vinnslu á út-
hafskarfa eru fyrirtækin Hrað-
frystihús Grundarfjarðar og Sæ-
fang að bregðast við minnkandi
kvóta hefðbundinna fiskveiða, því
úthafskarfi er utan kvóta. Stefnt
er að því að vinna fiskinn á vökt-
um. Næg atvinna hefur verið í
Grundarfirði undanfarið og er
talsverður uppgangur í þorpinu.
Þegar vinnsla úthafskarfans hefst
mun eftirspurn eftir vinnuafli
væntanlega stóraukast.
ÆTLUNIN er að veita tæplega 30
milljarða króna til vegamála á næst-
um fjórum árum samkvæmt vega-
áætlun fyrir árin 1995-1998 sem
lögð hefur verið fram á Alþingi.
Tæpir 26 milljarðar koma frá mörk-
uðum tekjum á þessu árabili, en
að auki eru veittir 3,5 milljarðar á
þessu tímabili vegna sérstaks fram-
kvæmdaátaks.
Fjárveitingar skiptast þannig eft-
ir árum að á næsta ári verður fjár-
veitingin samtals 7.425 milljónir, á
árinu 1996 kr. 7.440 milljónir,
7.320 milljónir á árinu 1997 og
7.170 millljónir á árinu 1998. Sér-
stakt framkvæmdaátak í vegamál-
um er inni í þessum tölum, en hlut-
fallslega stærri fjárveitingar eru til
þess tvö fyrri árin en tvö þau síð-
ari. 1.250 milljónir eru veittar á
næsta ári vegna framkvæmda-
átaksins, einn milljarður árið 1996,
750 milljónum á árinu 1997 og 500
milljónum 1998. Skipting þessa fjár
milli kjördæma fer eftir íbúatölu
og litið er á höfuðborgarsvæðið sem
eitt svæði þó, það sé í tveimur kjör-
dæmum.
Bætt eftirlit með þungaskatti
skilar 100 milljónum
Tekna vegna átaksins er þannig
aflað á i.æsta ári að frá mörkuðum
tekjustofnunum koma 310 milljónir,
framlag úr ríkissjóði er 350 milljón-
ir og og lánsfé er 590 milljónir.
Vegna þessa hefur bensíngjald þeg-
ar verið hækkað um 5,67% og er
gert ráð fyrir að þungaskattur
hækki um 4% um áramót, en þá
Þungaskattur
hækkar um 4% um
áramót
hefur hann og bensíngjaldið hækk-
að eins og hækkun byggingarvísi-
tölu leyfir. Samtals er ætlunin að
afla 1.750 milljóna króna af 3,5
milljörðunum með hækkunum
markaðra tekjustofna og til að það
mark náist er jafnframt gert ráð
fyrir að þungaskatturinn hækki um
0,8% á árinu 1996.
í heild er gert ráð fyrir að á
næsta ári skili bensíngjald 4.615
milljónum króna, feílómetragjald
þungaskatts 1.550 milljónum króna
og árgjald þungaskatts 595 milljón-
um króna.
Þá kemur fram að gert er ráð
fyrir að bætt innheimta þunga-
skatts gefi af sér 100 milljónir
króna árlega næstu fjögur árin, en
Vegagerðin tók í ársbyijun 1994
við eftirliti með þungaskatti. Bráða-
birgðatölur úr Ríkisbókhaldi sýni
að aukið eftirlit hafi þegar skilað
árangri.
Hjartans þakkir fœri ég öllum þeim, sem glöddu
mig meö blómum, gjöfum, skeytum og nœrveru
sinni í tilefni af áttrceÖis afmœli mínu.
Guð gefi ykkur öllum gleÖilég jól.
Þorsteina K. Jónsdóttir,
Hanhóli, Bolungarvík.
Góð úlpa
er hlýjólagjöf
Mikið úrval af úlpum
með og án hettu. Stærðir 34-50
Póstsendum
Laugavegi 21, s. 25580
Lárus segir að nú sé búið að
rafvæða um þriðjung Gufunes-
kirkjugarðs og feostnaður sé orðinn
milli 7 og 8 milljónir króna. Stefnt
sé að því að klára garðinn á næsta
ári. Þá verði ráðist í að rafvæða
Fossvogskirkjugarð og ljúka því
verki á tveimur til þremur árum.
Krossarnir eru framleiddir á
Bjargi á Akureyri, sem er verndað-
ur vinnustaður, og hefur Rafþjón-
ustan Ljós þegar pantað 2.000
krossa þar. Ljósastæði og snúrur
eru síðan framleidd á vinnustofunni
Asi í Reykjavík í samvinnu við Ör-
yrkjabandalagið.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
C0recision
movements
- nákvæmni -
RAYMONDWEIL
y y
unfinished novels
er tuímælalaust einhv/er metnadarfyllsta
plata sern íslenshir poppamr hafa smídad.”
, , !
ottarr proppé, Mor<ninpósfmum 5.1 a.94
nÝ íslensk plaía
”ef einhv/er plata lremur d óvart á jiessari jólavertíd hlrtur
jiad ad vera plata birthrnarh, unfinisheil novels. innihaldid
1 er afshaplega ólrht ödru efni sem í bodi er á marhadnum.”
sigurdur i>ór salvarsson, ov 15.12.94
Birthmark
"untmshed nóvels er líkari plöíu hljómsveitar sem er ad
senda frá sér sína fimmtu eda sjöttu plötu; hljómsveitar
sem hefur fávad omótad tónmál sitt út í æsar.”
GENEVE
Árni Motrhíasson, Morgunbladinu 10.12.94
NEST JAPISS