Morgunblaðið - 21.12.1994, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ
16 MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1994
LANDIÐ
makita.
JOLATILBOViÐ
HPfSOO
Góð aðsókn hjá Leikfélagi Fljótsdalshéraðs
Hættir sýn-
ingum fyrir
fullu húsi
550 WATTA IÐNAÐARMÓTOR, STIGLAUS ROFI,
VINSTRI-HÆGRISNÚNINGUR, 13 MM PATRÓNA.
HF
Armúla 11 - S(ml SB1BOO
/y/Wð’ÖC'S'/WÆ A/A/ TVAS7 sA / /L A
f >
Egilsstöðum - Leikfélag Fljóts-
dalshéraðs hefur hætt sýningum
söngskemmtunarinnar Hér stóð
bær. Sýningar voru átta og allar
fyrir fullu húsi. Um 1.000 manns
sáu sýninguna og er það mun
meiri aðsókn en búist var við.
Skemmtunin var byggð í kring-
um vinsæl lög sem Haukur
Morthens flutti á sínum tima og
einnig eru leikþættir eftir Arn-
dísi Þorvaldsdóttur fléttaðir í
kringum lögin, svo úr varð mik-
ill gleðileikur, fullur af fjöri og
skemmtun. __
Dagbók Onnu Frank er næsta
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
SIGURBORG Kr. Hannesdóttir flutti lagið Til eru fræ.
verkefni félagsins og er undir-
búningsstarf þegar hafið. Leik-
sljóri er Guðjón Sigvaldson og
æfingar byija strax uppúr ára-
mótum. Fyrirhugað er að frum-
sýna verkið um páska.
Skólaslit Framhaldsskólans í Eyjum
Stúdentar gáfu
ferðasjóðinn
Gengur til hjálpar-
starfs og krabba-
meinssjúks barns
Vestmannaeyjum - Nýstúdentar
sem brautskráðust frá Framhalds-
skólanum í Vestmannaeyjum til-
kynntu á skólaslitunum að þeir
hefðu ákveðið að gefa þá peninga
sem þeir hefðu safnað í sjóð fyrir
útskriftarferð til góðgerðarmála.
annarri sölustarfsemi. Sighvatur
sagði að þar sem óvenju margir
hefðu útskrifast frá skólanum nú,
23 stúdentar, hefði verið erfitt að
finna ferð og tíma sem hentað gat
öllum. Sú hugmynd hefi því kvikn-
að innan hópsins, þegar söfnun
Hjálparstofnunarinnar fór fram á
Bylgjunni fyrir skömmu, að gefa
sjóðinn til góðgerðarmála.
Styrkur til beinmergsskipta
krabbameinssjúks barns
Gáfu 150 þúsund krónur til
góðgerðarmála
150 þúsund voru í sjóðnum sem
skiptist milli tveggja aðila,
Hjálparstofnunar kirkjunnar sem
fékk 50.000 og foreldra krabba-
meinssjúks barns í Eyjum, sem er
að fara í beinmergsskipti erlendis,
100 þúsund.
Nýstúdentinn Sighvatur Jóns-
son tilkynnti þessa ákvörðun stúd-
entanna í ávarpi sem hann flutti á
skólaslitunum. Sighvatur sagði í
samtali við Morgunblaðið að venja
væri fyrir því innan skólans að
stúdentsefni notuðu síðustu önnina
til að safna fé í ferðasjóð, til að
fjármagna utanlandsferð að út-
skrift lokinni. Að þessu sinni höfðu
safnast 150 þúsund krónur í ferða-
sjóðinn, mest með rekstri sjoppu í
skólanum en einnig með ýmiskonar
Strax var ákveðið að gefa 50
þúsund krónur í söfnun Hjálpar-
stofnunarinnar en síðan var áhugi
á að gefa það sem eftir væri til
styrktar krabbameinssjúkum börn-
um. Sighvatur sagði að þau hefðu
haft spurnir af því að krabbameins-
sjúkt barn í Vestmannaeyjum væri
að fara í beinmergsskipti til Sví-
þjóðar eftir áramótin. Tvíburasyst-
ir ætlaði að leggja til merg handa
bróður sínum og þyrfti fjölskyldan
að dvelja í Svíþjóð í þijá mánuði
vegna þessa. Þau hefði því ákvaðið
að styrkja þessa fjölskyldu með
því að gefa henni þær 100 þúsund
krónur sem eftir voru af ferða-
sjóðnum. „Það var full samstaða
um það innan hópsins hætta við
útskriftarferðina og við erum
ánægð með að nýta ferðasjóð okk-
ar í að leggja þessum málum lið,“
sagði Sighvatur.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
AÐVEITUSTÖÐ Hitaveitu
Suðumesja við Iðndal.
Aðveitu-
stöð tekin
í notkun
Vogum - Hitaveita Suðurnesja hefur
tekið í notkun nýja aðveitustöð fyrir
rafmagn við Iðndal í Vogum. Að-
veitustöðin er steinsteypt með ál-
klæðningu á þaki og þakbrúnum.
Stærð hússins er um 135 fermetrar.
Húsið er teiknað af Haraldi Val-
bergssyni hjá Teiknistofunni Örk,
aðalverktaki var Hjalti Guðmunds-
son, húsasmíðameistari í Keflavík.
Heildarkostnaður við aðveitustöðina
með öllum búnaði er 28-29 milljón-
ir króna sem er mun lægra en fyrstu
áætlanir gerðu ráð fyrir.
Hitaveita Suðumesja hefur einnig
lagt þrjá 36 kv jarðstrengi í jörðu
frá aðveitustöðinni á Fitjum að nýju
aðveitustöðinni við Iðndal. Með þess-
um stengjalögnum er komin öflug
tenging við aðveitustöðina á Fitjum
sem er tengd landskerfinu og einnig
tengd orkuverinu í Svartsengi. Eftir
þessa framkvæmd stóreykst afhend-
ingaröryggi rafmagns í Vatnsleysu-
strandarhreppi. Kostnaður við
strengjalögnina er um 40 milljónir.
*
€
Búum komandi kynslóðym betri og
bjartari framtíb á Islandi
Vinningsnúmer bæklings - Er þér sama um Island?:
Jólatrésnúmer 14.12 ‘94
4562 6410 11475 12044 18437 18593 22085 40857
42347 65086 66778 72097 76221 80416 82015
82695 83284 88188 92789 99140
Vinningur: Jólatré kr. 3.000 frá Landgræðslusjóði.
^ Stöndum saman
Stofnum fræbanka Landgræðslusjóbs
lÓLAKVEÐlA
BÚNAÐARBANKI
W ÍSLANDS
Hlustiö á
morgunþátt
Rásar 2
NDI OG ÞJOÐ'
Fjárgæsluaðili er Búnaðarbanki íslands.
Reikningsnúmer 4030.
Gíróseðlar með reikningsnúmeri liggja frammi í
útibúum Búnaðarbankans um land allt.
Geislaplatan YRKJUM ISLAND, ásamt hvatningarkorti og
-merki, er hugljúf og viðeigandi jólakveðja til stuðnings
stofnunar fræbanka Landgræðslusjóðs á 50 ára afmæli
hans og Lýðveldisins.
Fæst á bensínstöðvum OLÍS og útsölustöðum Pósts og Síma.
Geislaplatan fæst í hljómplötu-
verslunum og kortin í helstu
bóka- og blómaverslunum. rósturogsImi
Geislapl. Yrkjum ísland Hvatningarkort
kr. 990. kr. 195.
Hvatningarmerki
kr. 25.