Morgunblaðið - 21.12.1994, Side 23

Morgunblaðið - 21.12.1994, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1994 23 ERLENT Ashkenazij Konunglega fílharmónían í London Ashkenazíj* hættir vegna ágreinings um eftirmann London. Rcutor. VLADÍMÍR Ashkenazíj, tón- listarstjóri Konunglegu fíl- harmóníunriar, lét af störfum í gær vegna ágreinings um eftir- mann hans. Að sögn umboðs- manns hans var Ashkenazíj til- kynnt í síðustu viku að ítalanum Daniele Gatti hefði verið boðið að taka við starfinu. Sagði As- hkenazíj upp í gær og tók upp- sögnin þegar gildi. „Ég var furðu lostinn og í uppnámi eftir að framkvæmda- stjóri Fílharmóníunnar talaði við mig,“ sagði Ashkenazíj í samtali við dagblaðið Independent. „Ég ætlaði að gefa mér tíma til að átta mig á þessu í einrúmi. Dag- inn eftir gerði ég mér grein fyr- ir því að þetta var algerlega óviðunandi.“ Talsmaður hljómsveitarinnar segir hljóðfæraleikarana hafa unnið með Gatti og vera ánægða með hann. Viðræður við Ashke- nazíj haldi áfram. Brottför frestað Vladímír Ashkenazíj hefur verið tónlistarstjóri Fílharmón- íunnar frá árinu 1987 en hann tók við af Andre Previn. Hann er einnig aðalstjórnandi Sinfó- níuhljómsveitar útvarpsins í Berlín. Er Ashkenazíj var ráðinn til Fílharmóníunnar var hlutverk hans að auka listræn gæði hljóm- sveitarinnar. Árið 1991 þótti ljóst að það hefði ekki tekist og kvaðst Áshkenazíj vilja hætta. Að samkomulagi varð að hann léti smám saman af störfum á tímabilinu 1993-1994. Er Peter Findlay tók við starfí framkvæmdastjóra árið 1992 voru lögð drög að sjö heimsferð- um hljómsveitarinnar á tímabil- inu frá júní 1995 og fram í maí 1997, að sögn Independent. Seg- ir blaðið Ashkenazíj hafa átt að stjórna Fílharmóníunni og að starfslokum hans hafí verið frestað. John le Carré um Kákususþjóðirnar Gagnrýnir Vestur- lönd fyrir hræsni New York. The Daily Telegraph. BRESKI rithöfundurinn John le Carré, sem þekktastur er fyrir spennusögur sínar um kalda stríðið og njósnarann George Smiley, gagnrýnir harðlega stefnu Vestur- landa gagnvart Rússlandi í grein í dagblaðinu New York Times. Fordæmir hann þá tillitssemi sem Vesturlönd hafa sýnt Rússum vegna framferðis þeirra í Tsjetsníu og nágrannalýðveldinu Ingúsetíu. Vaxandi gagnrýni hefur gætt í Bandaríkjunum á undanförnum dögum á afstöðu Bandaríkjastjórn- ar í deilunni. í greininni, sem ber fyrirsögnina „Skömm Vesturlanda“ rekur le Carré hina blóði drifnu sögu þessa afkima rússneska veldisins og hvetur til þess að þjóðum þar verði veitt frelsi. Kemst hann að þeirri niðurstöðu að það séu fyrst og fremst vest- rænir fjölmiðlar, sem eigi sök á ástandinu. Næsta skáldsaga le Carré gerist í norðurhluta Kákasus og ber heit- ið Okkar leikur (Our game). Eftir að Berlínarmúrinn töldu flestir að njósnasagnahöfundar á borð við le Carré myndu heyra sögunni til. Le Carré bendir hins vegar á að meðan allir vissu um kalda stríðið hafi fáir kynnt sér staði á borð við Tsjetsníu sem sögusvið fyrir bækur. Gagnrýnir hann sigurvegara kalda stríðsins harðlega fyrir hræsni. Krafa kúgaðra þjóða um sjálfstjórn hafi verið hornsteinn andkommúnismans. „í hálfa öld héldum við því fram að er lýðræði tæki við af harðstjórn myndi fórn- arlambið öðlast hærri sess en kúg- arinn og smáþjóðir öðlast frelsi til að ákvarða örlög sín. Fráleitt," segir hann í blaðagreininni. ...a. - .... í sambandi vib neytendur frá morgni til kvölds! - kjarni málsins! JÓLAGJAFIR í SPÖRTU SPORTVÖRUVERSLUNIN PumaGoretex gönguskór á jólatilboði. Vatnsheldir, anda. Nr. 34 til 39. Verð 6.860. Nr. 40 til 47. Verð 7.990. 5% staðgreiðsluafsláttur SPARTA Barnaúlpa Nr. 4-14. Verð 4.990. Úlpa fyrir miðju sið 100% vatns- og vindheld, nr. 6 til 14. Verð 5.990. Nr. S til XXL. Verð 7.990. Úlpa til hægri mittisúlpa 100% vatns- og vindheld. Nr. 6 tit 14. Verð 5.490. Nr. S til XXL. Verð 7.490. Snjóbuxur. Nr. 6 til 14. Verð 3.990. NR. XS til XXL. Verð 4.990. Le caf íþróttagallar Tvöfaldir gallar úr bómull og polyester með bómullarfóðri, barnastærðir verð frá 4.490. Dömu- og herrastærðir verð 5.490. Dömu- og herragailar úr hinu þægilega mjúka og létta micro fiber efni. Verðfrá 7.990. Gallinn fyrir pabba og mömmu. Fótboltabúningar Brasilía Ítalía AC Milan m/Romario m/Bagglo Nr. 116 til 179 Verð 3.990 settið m/sokkum. M.Utd., Liverpool, Newcastle. Nr. 128 til 176 Verð 2.990 settið m/sokkum. Markmannsvörur Öll nr. Buxur 2.990, treyjur 2.890. Hanskar frá 1.890. Skíða- og kuldagallar Teg. 720.100% vatns- og vindheldir. Litir sjá mynd. Stærð 6 til 14. Verð aðeins 6.990 (6.640 stgr.) Stærðir XS til XXL. Verð aðeins 9.990 (9.490 stgr.). Skíða- og kuldagaliar Til vinstri teg. 804. Vatns- og vindheldir. Litir: Sjá mynd og rautt. Nr. S til XXL. Verð 12.900. Til hægri teg. Micro, galli úr micro fiber efni sem er einstaklega mjúkt og létt efni sem andar. Litir: Sjá mynd og rautt. Stærðir XS til XXL. Verð 17.900. Skautar. Hvítir og svartir, leður/vínill. Nr. 29-34. Verð 4.620. Nr. 35-42. Verð 5.390. Nr. 43-45. Verð 5.800. Körfuboltasett. Buxur/treyja Bandaríska draumaliðið Litir svart, blátt og hvítt. Merking að aftan, Jordan eða Shaq O Neill. Stærðir 140-176 og S-XL. Verð 4.990 kr. settið. Bómullarfatnaður Champion Renndar og heilar hettupeysur, buxur. Litir: Grátt og grænt. Ódýr bómullarfatnaður frá Jerzees Buxur 1.790, hettupeysur 1.990, renndar hettupeysur 2.990. Litir: Grátt og blátt. Stærðir S til XXL. Körtuboltabúningar Buxur og treyja sem snúa má við. Stærðir 6 til 16. Verð aðeins 2.890. Chicago, Orlando, Phoenix. [þróttaskór. Nike, Reebok, Puma, Patrick, Lotto, Brooks, Forza. Körfuboltavörur í úrvali. T-bolir m/mynd. Verð frá 1490. Húfur 4 teg. 8 lið. Könnur, sokkar, töskur, pennar, innikörfur, ruslafötur o.fl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.