Morgunblaðið - 21.12.1994, Qupperneq 44
44 MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1994
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Alúðarþakkir faerum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför
BIRGIS EINARSONAR
fyrrverandi apótekara,
og heiðruðu minningu hans.
Anna Einarson,
Magnús B. Einarson, Dóra Þórhallsdóttir,
Unnur Einarson Kawadry, Eric Kawadry,
Ingibjörg Ásta Hafstein, Pétur Kr. Hafstein
og barnabörn.
innilegustu þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur hlýju, samúð og vinarhug
vegna fráfalls okkar heittelskaða
GUÐMUNDAR TÓMASAR
ÁRNASONAR.
Fyrir hönd annarra ættingja og
aðstandenda,
Selma Guðmundsdóttir, Árni Tómas Ragnarsson,
Ólöf Sigriður Valsdóttir,
Ragnar Tómas Árnason, Sigríður Freyja Ingimarsdóttir,
Kristján Tómas Arnason,
Selma Lára Árnadóttir,
Guðmundur Árnason, Salóme Gunnlaugsdóttir,
Jónína Vigdís Schram,
Sigríöur Ólafsdóttir.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur vinarhug við andlát og
útför móður okkar og tengdamóður,
GUÐRÚNAR JÓNÍNU
ÞORFINNSDÓTTUR
frá Hnjúkum
við Blönduós.
Jón K. Björnsson, Guðrún V. Gfsladóttir,
Geir A. Björnsson, Arnheiður L. Guðmundsdóttir,
Garðar Björnsson, Elin Björnsdóttir,
Helga Svana Björnsdóttir, Vagn Kristjánsson,
Ari B. Björnsson, Hildigard Björnsson,
Ingólfur G. Björnsson, Ingibjörg Jónsdóttir,
Hjördís H. Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
INGIBJÖRG KRIST-
INSDÓTTIR
+ Ingibjörg K. Kristinsdóttir
fæddist á Skarði á Skarðs-
strönd 7. desember 1924. Hún
lést á heimili sínu á Skarði 29.
október síðastliðinn og fór út-
för hennar fram frá Skarðs-
kirkju 5. nóvember.
ÉG MINNIST vinkonu minnar Ingi-
bjargar Kristinsdóttur.
Fyrstu kynni okkar Ingu urðu
fyrir um 40 árum er ég kom til að
vinna við hárgreiðslu í Stykkis-
hólmi. Þá voru ekki hárgreiðslustof-
ur á stöðunum úti á landi. Inga var
ein af þeim sem komu til mín á
stofuna. Hún sá að mikið var að
gera og bauðst því til að aðstoða
mig. Ég þáði það og frá þeim tíma
hefur alltaf verið mikil vinátta á
milli okkar, því Inga var trölltrygg.
Foreldrar Ingu, Kristinn Indriða-
son og Elínborg Mogensen, voru
merk hjón sem áttu fáa sína líka.
Gaman var að sjá hvað þau gömlu
hjón voru alltaf hamingjusöm og
hjartahlý, enda var alltaf margt
fólk í kringum þau. Þeir sem ekki
áttu sér samastað fengu bara að
dvelja hjá þeim til æviloka. í svona
anda ólst Inga upp.
Ég átti margar samverustundir
með Ingu og Jóni þegar þau
skruppu í kaupstaðinn til að sinna
ýmsum málum fyrir búskapinn.
Hugur hennar var þó alltaf heima
á Skarði hvar sem hún var stödd.
Þegar Inga kom heim úr kaupstað-
arferðunum tók Boga systir hennar
ævinlega á móti henni og Jóni með
opnum örmum og sagði: „Elsku
hjartans Inga mín, mikið er ég glöð
að þú sért komin heim aftur.“ Það
var svo mikill hjartans kærleikur á
milli fjölskyldunnar.
Inga var stórbrotin kona. Hún
fékk í vöggugjöf hagleikshendur.
Það var sama hvað hún tók sér
fyrir hendur, málaði, saumaði,
pijónaði, spilaði á píanó eða harm-
oniku, allt var gert af mikilli list.
Inga hafði líka mikla söngrödd sem
hljómaði víða um land á dansleikj-
um ásamt harmonikunni. Inga lærði
á orgel hjá Páli ísólfssyni þegar hún
var ung.
Inga fylgdist vel með þjóðmálum
og oft mátti heyra rödd hennar í
þjóðarsálinni og víðar þar sem hún
ræddi sín mál og var þá ávallt
hressilega tekið til orða.
Þegar frúin frá ættaróðalinu
+
Innilegar þakkir til þeirra, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför
GEORGS FELIX GÍSLASONAR,
Gnoðarvogi 52,
Reykjavík.
Ingibjörg Eiríksdóttir,
Anna María Georgsdóttir, Óli Pétur Olsen,
Ingibergur Jón Georgsson, Sigrfður Kr. Gunnarsdóttir,
Eiríkur Oddur Georgsson, Ragnhildur Sveinsdóttir,
Georg Kristjánsson, Dóróthea Gunnarsdóttir
og barnabörn.
RADA UGL YSINGAR
skrapp í kaupstaðinn var það föst
hefð að fara á Hressingarskálann
og fá sér kaffi og ijómatertu. Það
var nú svo að Inga var svo hrædd
við drukkna menn. í bæjarferðum
okkar í miðbænum þurftu endilega
að verða á vegi okkar menn sem
hölluðu á hlið. Þá sagði Inga: „Sjáðu
karlinn þama, hann er fullur, við
skulum flýta okkur burt.“ Hún
reyndi að fela sig á bak við mig
sem reyndist ekki mjög vel því Inga
var stór kona en ég lítil.
Það var um haust að við sátum
við stofugluggann og drukkum
kaffi. Veðrið var fagurt og sólin
var að síga bak við fjöllin. Eg segi
við Ingu: „Finnst þér ekki útsýnið
og íjöllin falleg?" Þá segir vinan:
„Uss, uss, kallarðu þetta fjöll?"
Þetta voru ekki háu fy'öllin hennar
vinu minnar.
Inga og Jón voru mjög samhent
og miklir vinir. Þau voru alltaf tilbú-
in að liðsinna hvort öðru, enda átti
hún mjög góðan og duglegan mann.
Sonur minn var hjá Ingu og Jóni á
Skarði í mörg sumur og á hann
mjög góðar æskuminningar þaðan.
Þá voru Elínborg og Kristinn á lífí
og margt fólk í heimili.
Það er ekki mjög langt síðan frú-
in á Skarði kom í bæinn með svo
mikla handavinnu sem hún var búin
að prjóna, sauma og mála. Hún
dreif sig með þetta í kolaportið og
seldi. Svona var Inga, hún afkast-
aði svo miklu að ég skildi aldrei
hvemig hún fór að því að vinna
þetta allt saman.
Inga átti ótal vini enda var hún
vinur vina sinna.
Fyrir ofan Skarð var hvammur.
Þar átti vinan hvílustað þar sem
hún fór með teppi og sofnaði. Þeg-
ar hún vaknaði eldhress reis hún
upp á hólnum og horfði yfír Breiða-
fjörðinn í fersku fjallaloftinu.
Nú er Inga okkar horfin, svip-
mikil kona með mikla reisn frá
ættaróðalinu á Skarði, en eftir eru
ótal minningar sem ekki mega
gleymast.
Jón minn og aðrir aðstandendur,
ég votta ykkur mína innilegustu
samúð. Guð blessi Ingu og ykkur
öli.
Hólmfríður Bjarnadóttir.
ATVINNAÍBOÐI
LANDSPÍTALINN
.../' þágu mannúðar og vísinda...
ENDURHÆFINGAR-OG
HÆFINGARDEILD
LANDSPÍTALANS í KÓPAVOGI
Þroskaþjálfar - hjúkrunarfræðingar
Við óskum eftir að ráða þroskaþjálfa eða
hjúkrunarfræðing í 70% starf sem yfirnætur-
vakt við deildir stofnunarinnar frá 1. janúar
1995. Um er að ræða 12 tíma vaktir og er
vinnutími frá 20.00 til 8.00, fimm daga í senn,
með tíu daga fríi á milli vakta.
Starfið felur í sér faglegan stuðning við
starfsfólk og eftirlit með starfseminni.
Góð aðlögun er í boði.
Nánari upplýsingar veita Hulda Harðardóttir,
yfirþroskaþjálfi, og Ásta B. Þorsteinsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 602700
daglega.
Hörgshlíð 12
Bœnastund í kvöld kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bibllulestur fellur niður í kvöld.
Skiptil sölu
Til sölu er mb. Erling KE 140, sem er 278
brúttólestir að stærð með 839 kw Caterpillar
aðalvél frá 1985. Skipið hefur ekki veiðileyfi
í íslenskri fiskveiðilögsögu.
Upplýsingar í síma 92-68090.
Fiskiskip
Vantar 20-30 metra stálskip, ekki eldri en
1980, til útflutnings.
Vantar 30-60 tonna eikar- eða stálbáta fyrir
góða kaupendur.
Vantar þorskkvóta, bæði leigu og
varanlegt.
Skipasalan Bátar og búnaður,
sími 622554,
bréfsími 91-26726.
JT^Söluturn - biðskýli
I 11 rvXli ■ /m» nXli i4i irn t Hi 1/iM ■ O \
LAUFAS
FASTEIGNASALA
SlÐUMÚLA 17
mm
Til sölu er söluturn í biðskýli SVR.
Góð tæki og búnaður. Gott tæki-
færi til að skapa sér sjálfstæðan
^atvinnurekstur.
Upplýsingar aðeins á skrifstofu, ekki í síma.
Frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
Upphaf vorannar 1995
4. og 5. janúar, miðvikudagur og fimmtudagur:
Innritun í kvöldskóla kl. 16.30-19.30.
5. janúar, fimmtudagur:
Töfluafhending og nýnemakynning kl. 9.00.
Töflur eldri nemenda afhentar kl. 10.00-12.00.
7. janúar, laugardagur:
Innritun í kvöldskóla kl. 10.30-13.30.
9. janúar, mánudagur:
Kennarafundur kl. 9.00.
Deildafundir.
Kennsla hefst kl. 13.15 skv. stundaskrám.
Skólameistari.
Veiðileyfi sumarið 1995
Urriðasvæðið í Laxá í Þing. Allar pantanir
séu skriflegar og sendist fyrir 15. jan. ’95 til:
Áskels Jónassonar,
Þverá, Laxárdal, 641 Húsavík
og Hólmfríðar Jónsdóttur,
Arnarvatni 1, Mývatnssveit,
660 Reykjahlíð.