Morgunblaðið - 21.12.1994, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
STÆRSTA
TJALDIÐ MEÐ
Jólamynd 1994
GÓÐUR GÆI
frá leikstjóra Driving Miss
Daisy, Bruce Beresford.
Frábær grínmynd um
nakta, níræða drottn-
ingarfrænku, mislukk-
aðan, drykkjusjúkan
kvennabósa og spillta
stjórnmálamenn. Valinn
maður í hverri stöðu:
Sean Connery (James
Bond, Hunt for Red
October), John Lithgow
(Raising Cain), Joanne
Whalley Kilmer
(Scandal), Louis Gossett
Jr. (Guardian), Diana
Rigg (Witness for the
Prosecution) og Colin
Friels.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Diana
Louis __
m GOSSEITJR RIGG
l _., .. Joanne
L VVHAL1JE\'-KILMER COXNERY
★★★ó.T. Rás2
★ ★★ G.S.E. Morgun-
pósturinn
★★★ D.V. H.K
msm
Komdú og sjáðu THE MASK, skemmti legustu,
stórkostlegustu, sjúklegustu, brjáluðustu,
bestu, brengluðustu, fyndnustu, fáránlegustu,
ferskustu, mergjuðustu, mögnuðustu og eina
mestu stórmynd allra tíma!
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.l.16ára.
(Frá sömu aðilum og gerðu „Nightmare on Elmstreet 1.")
Ljúfar minningar
TONLIST
III j 6 m |> I a l a
MINNINGAR 3
Söngur: María Björk, Guðrún
Gunnarsdóttir, Erna Gunnars-
dóttír, Egill Ólafsson, Björg-
vin Halldórsson og Eyjólfur
Kristjánsson. Bakraddir: Mar-
ía Björk, Eyjólfur Kristjáns-
son, Ema Guimarsdóttír og
Pétur Hjaltested. Píanó,
h(jómborð, strengir og
hyóðritun: Pétur Ifjalt-
ested. Trommur og
ásláttarh(jóðfæri:
Gunnlaugur Briem.
Bassi: Jóhaim Ás-
mundsson. Gítar. Þor-
steinn Magnússon.
Pedalgítar: Kristinn
Sigmarsson. Klassísk-
ur gítar: Tryggvi
Hiibner. Saxofónn og
flauta: Sigurður Flosa-
son. Útsetning á
strengjum í Vinuiinn
og Áðuroft ... :Ólaf-
ur Gaukur. Aðrar út-
setningar, h(jóðblönd-
un og stjóm upptöku:
Pétur Iljiiltested. Hug-
mynd og efnisval: Mar-
ía Björk. Hönnun um-
slags: Sjöundi himinn.
Útgefandi: IRjódsmiðj-
an. Dreifing: Japis hf.
41.31 mín. verð 1.999
kr.
EINS OG nafnið bendir
þá er hér um að ræða þriðju
plötuna í samnefndri röð.
Færð eru upp á geisladisk
tíu gömul og gróin dægurlög
og tvö ný. Bláu augun þín,
sjálft upphafsstef bítlaaldar
á íslandi, er fyrsta lag plöt-
unnar og henni lýkur með
!_s_ nýlegu lýðveldishátíðarlagi
Valgeirs Skagfjörð, Þetta
fagra land. Flytjendur eru í
fremstu röð íslenskra dægur-
lagasöngvara og tónlistar-
manna. Pétur Hjaltested hef-
ur borið veg og vanda af
gerð þessara platna og sækir
í sig veðrið með hverri nýrri.
Hugmynd og efnisval er
eignað Maríu Björk sem auk
þess syngur fimm lög, ýmist
ein eða í félagi við aðra.
Þessi plata höfðar tví-
mælalaust til þeirra sem eiga
minningar tengdar dægur-
lögum frá undanförnum
þremur til fjórum áratug-
um. Töffarar og skvísur
þessara ára eru nú á virðu-
legum aldri og farin að ró-
ast. Búningur laganna tek-
ur mið af því og er bæði
smekklegur og áferðarfal-
legur, án þess að vera væm-
inn. Mörg lögin bera suðræn-
an keim, með klassískum gít-
arhljóm og ásláttarhljóðfær-
um í bland við kröftugan
blástur Sigurðar Flosasonar.
Þótt lögin komi úr ýmsum
áttum þá hefur tekist að gera
plötuna þannig að hún ber
heildstæðan svip.
Eftirminnilegast þykir
undirrituðum lagið Áður oft
ég hef, sem Erna Gunnars-
dóttir syngur. Þar fer
saman skemmtileg út-
setning þeirra Péturs
og Ólafs Gauks og frá-
bær flutningur söngv-
ara og undirleikara.
Það þarf töluvert
áræði til að endur-
vinna lög sem sungist
hafa inn í hug og
hjörtu heilla kynslóða
og tengjast uppruna-
legum flytjendum að
því er manni fínnst
óijúfanlegum bönd-
um. Minningar 3 bera
þess vott að þetta er
hægt að gera kinn-
roðalaust. Þessi plata
vekur ýmsar minning-
ar. Meðal annars
mundi ég eftir manni
sem þoldi ekki bítlalög
í upprunalegri gerð en
lagði við hlustir þegar
„þýskir listamenn“
fluttu lög eftir þá fé-
laga Lennon og McCartney
á gömlu gufunni. Mér flaug
svona í hug hvort Pétur
Hjaltested væri sestur á bekk
með James Last, Klaus
Wunderlich og öðrum slíkum,
sem endurvinna uppáhalds-
lög afmarkaðra hópa þannig
að þau hugnist fjöldanum.
Guðni Einarsson
MARGIR helstu dægurlagasöngvarar
landsins hefja upp raust sína á Minn-
ingum 3. Söngvararnir eru María
Björk, Egill Ólafsson, Erna Gunnars-
dóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Björgvin
Halldórsson og Eyjólfur Kristjánsson.
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1994 57
BURTON hjá aðalsöguhetjum myndarmnar.
Hrekkjavaka um jólin
TIM Burton fékk hugmynd
að brúðumyndinni „The
Nightmare before Christm-
as“ fyrir tólf árum, þegar
hann var teiknari hjá Walt
Disney-kvikmyndaverinu.
Hann var óánægður með
„hreina og klára“ stefnu
Disney og vildi stofna sína
eigin skrítnu og skemmtilegu
veröld, þar sem myrkur og
hrekkjabrögð réðu ríkjum.
„Það sem kveikti þessa
hugmynd hjá mér var sú
staðreynd að ég elska hátíð-
ir, þá sérstaklega jólin og
hrekkjavökuna. Því ekki að
slá þessu saman í eitt?“ segir
Burton. „Ég kynnti sjón-
varpsstöðvum hugmyndina,
en enginn sýndi henni áhuga
svo ég lagði hana á hilluna
í rúmlega áratug.“
Burton sneri sér að því að
leikstýra, en þessi skuggalegi
og skrítni heimur var aldrei
langt undan, eins og sést á
myndum hans: Leðurblöku-
manninum eða „Batman“.
„Edward Scissorhands“ og
„Beetlejuice". Það var ekki
fyrr en hann var orðinn mik-
ilsvirt nafn í Hollywood að
honum tókst að koma mynd-
inni að hjá Touchstone-kvik-
myndaverinu.