Morgunblaðið - 03.01.1995, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1995 55
BRÉF TIL BLAÐSINS
YFIRLÆKNIR stærsta sjúkrahússins hélt fyrirlestur fyrir nýútskrif-
aða lækna og hjúkrunarfræðinga frá Háskóla íslands. Lengst til vinstri
á myndinni er Páll Matthíasson, sem var í forystu læknahópsins.
Utskriftarferð lækna
1994 til Thailands
Frá Páli Matthíassyni:
ÚTSKRIFTARHÓPURINN úr lækn-
isfræði frá Háskóla íslands 1994
getur tvímælalaust mælt með ferð
þeirri sem farin var til Thailands í
júní 1994 á vegum Heimsklúbbs Ing-
ólfs. Við fengum mjög persónulega,
„klæðskerasaumaða" þjónustu hjá
Ingólfi Guðbrandssyni sjálfum. Það
var ekki um neinn pakka að ræða,
heldur voru málin rædd, við bárum
hugmyndir okkar undir Ingólf, feng-
um góð ráð og gátum treyst því að
hann gerði hvað hann gæti til að
láta draumana rætast - sem tókst
nær alltaf.
Fyrirfram voru ýmsir í hópnum
tvístígandi og heldu að það hlyti að
vera mjög dýrt að eiga viðskipti við
Heimsklúbbinn. Þegar upp var staðið
var reyndin önnur. Við fundum það
frá upphafi að Ingólfur lagði sig í
framkróka við að ná sem bestu verði
fyrir hópinn. Það var samt ekki gert
á kostnað gæða. Alia ferðina gistum
við á hótelum sem tóku öllu því fram
sem við hefðum getað látið okkur
dreyma um. Við fundum það að sem
hópur á vegum Heimsklúbbsins nut-
um við sérstakrar þjónustu; móttöku-
nefnd á hveiju hóteli við komu, blóm
og ávextir á herbergjum, bestu her-
bergi á hveiju hóteli o.s.frv. Þrátt
fyrir að við hefðum ekki haft leið-
sögumann með okkur frá íslandi til
að ná verði ferðarinnar niður, var
innlendur, enskumælandi leiðsögu-
maður okkur innan handar allan tím-
ann. Sá fór með hópnum í skoðunar-
ferðir, gaf ráð varðandi innkaup,
skemmtistaði og áhugaverða staði
og var á allan hátt mikil hjálpar-
hella. Þessi fararstjóri kom hins veg-
ar hvergi fram í verði ferðarinnar.
Aukinheldur tók Ingólfur á móti okk-
ur við komuna til Bankok, öllum að
óvörum, og sá um að við kæmumst
heilu að höldnu á fyrsta hótelið. Þetta
er lýsandi fyrir þá þjónustu sem við
fengum hjá Heimsklúbbnum. Ekkert
var of gott fyrir hópinn og eftir
stendur ánægjuleg ferð sem mun lifa
í minningunni.
PÁLL MATTHÍASSON,
læknir.
SÖmGSMIÐJAI\l AUGLÝSIR:
unqir sem aldnir,
ungir:
laglausir sem lagvísir.
Innritun er hafin.
Kennsla hefst mánudaqinn
16. janúar 1995.
Hópnámskeið
□ Byrjendanámskeið
□ Framhaldsnámskeið
□ Söngleikjahópar (byrjendur, framhald)
□ Barna- og unglingahópar
□ Söngkennsla/raddþjálfun (4 í hóp)
Möguleiki á að Ijúka l-lll stigi í söng.
Kórhópur sem syngur „gospel"
ásamt tónlist af ýmsum toga.
linsönqsnáin (kiasstskt og siinqkikjð)
Klassískt nám, en einnig er boðið upp á
kennslu fyrir þá sem ætla að leggja fyrir
sig aðrar tegundir tónlistar.
Upplýsingar og innritun í síma: 612455 Fax: 612456 eða á skrifstofu
skólans, Skipholti 25, Reykjavik, alla virka daga frá kl. 10 - 18.
SOIUGSMIÐJAN Skipholti 25
■
'Léttar
um tvo, þrjá eða fjóra rétti.
Að auki fá gestir lítinn smakkrétt og Sorbet
í boði hússins.
Forréttir
Indónesisk skelfisksúpa með karrý og hvítum
baunum.
Koníaksristuð anda- og gœsalifur með Pecan
hnetum.
Ristaðir kartöfluteningar með kantarellum
og truffluolíu.
Jurtabakaður Roquefort með lambasalatí.
Aðalréttir
Kampavínssoðin fiskur dagsins á
tómatconcasse.
Glóðarsteikt smálúða með eggaldin ogfersku
basil.
Grillað grœnmetis Shaslik með linsubauna-
buffi og villisveppasoði.
Pasta Linguini með grilluðum humri og
pesto.
Fylltur lambavöðvi með sólpurrkuðum
tómötum og blaðlauk.
Hunangsgljáð andalœri með rósmarin-
krydduðu grœnmeti.
Eftirréttir
Cappucino Brulé.
Fersk ber með Sabyone.
Súkkulaði mousse með mangó og kókósrjóma.
Bananalýðveldið.
Verð:
2 rétta máltíð kr. 1.690-
3 rétta kr. 1.990- og 4 rétta kr. 2.290
Borðapantanir í síma 552 2321
U9lB uol