Morgunblaðið - 03.01.1995, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
B
1995
ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR
BLAD
HANDKNATTLEIKUR
Sigurður hóf sitt
nítjánda landsliðsár
með stórleik
SIGURÐUR Sveinsson hóf að Ieika sitt
nítjánda keppnisár með landsliðinu gegn
Dönum í Jönköping á norræna hand-
knattleiksmótinu í gærkvöldi. Sigurður,
sem lék sinn fyrsta landsleik gegn í
Vestmannaeyjum 1976, þá einnig gegn
Dönum, hefur leikið 220 landsleiki —
hann hefur verið lengur á ferðinni með
landsliði en nokkur annar handknatt-
leiksmaður í heiminum. Sigurður lék vel
og skoraði níu mörk og þá átti hann
nokkrar línusendingar, sem gáfu mörk.
Tveir sterkir
Geir Svelnsson og Jón Kristjánsson, félagar úr Val, stóðu sig mjög vel
gegn Dönum. Geir stjórnaði varnarleiknum sem herforingi, að vanda.
Ragnar Þór tekur
við Valsliðinu
RAGNAR Þór Jónsson, körfuknattleiksmaður í
Val, hefur verið ráðinn þjálfari úrvalsdeildarliðs
félagsins, en Ingvar Jónsson lét af störfum sem
slíkur skömmu fyrir áramótin. „Ragnar hefur
verið ráðinn til að klára þetta tímabil með liðið
og hann á að lemja dálitla stemmningu í það,
en ég held að hana hafi vantað," sagði Rögnvald-
ur Hreiðarsson formaður körfuknattleiksdeild-
ar Vals við Morgunblaðið í gær. Valsmenn taka
á móti Grindvíkingum að Hlíðarenda á fimmtu-
daginn, en þá hefst keppnin í úrvalsdeildinni
eftir jólafrí. „Ég held að leiðin hjá okkur hljóti
að liggja upp á við núna,“ sagði Rögnvaldur.
Kristófer líklega til
Frölunda
MIKLAR iklar líkur eru á því að Kristófer Sigur-
geirsson, landsliðsmaður úr Breiðabiiki, leiki
með sænska úrvalsdeildarliðinu Vastra Frö-
lunda á komandi keppnistímabili. Kristófer æfði
hjá félaginu fyrir áramótin og hafa Frölunda
og Breiðablik átt í samningaviðræðum undan-
farna daga. Sveinn Ingvarsson, formaður knatt-
spyrnudeildar Breiðabliks, sagði við Morgun-
blaðið í gær að ekki væri endanlega búið að
ganga frá þessum málum og því væri ekki hægt
að segja hvort Kristófer yrði áfram hjá félaginu
eða ekki. „Hins vegar eru miklar líkur á að
hann sé á förum frá okkur, en það er rétt að
slá engu engu föstu fyrr en allt er orðið klárt,“
sagði Sveinn.
Fullt með Haukun-
um til Portúgals
ÞAÐ er allt orðið fullt," sagði Þórir Jónsson
hjá Urval/Utsýn þegar hann var inntur eftir
hvernig gengi að bóka í ferð með handknatt-
leiksdeild Hauka til Portúgals, en þar leikur lið
félagsins í Evrópukeppni borgarliða um miðjan
mánuðinn. Haukar ákváðu að athuga hvort
grundvöllur væri fyrir leiguflugi til Portúgals
vegna leiksins gegn Braga þann 14. janúar.
Undirtektir urðu svo góðar að búið er að selja
í sætin 153 sem í boði voru. „Við reyndum að
fá stærri vél en það gekk ekki,“ sagði Þórir.
„Nú erum við að atliuga með möguleika á ann-
arri vél því 30 til 40 manns eru á biðlista og
er betra fyrir þá sem vilja fara að staðfesta
pantanir tímanlega." Fyrri leikurinn verður í
Braga laugardaginn 14. janúar og mun hópurinn
halda utan á föstudagsmorgun og koma heim
aðfaranótt mánudagsins.
Svíar í basli með
Norðmenn
SVIAR voru í nokkru basli með Norðmenn, en
sigrðu 27:24 eftir að staðan í hálfleik hafði ver-
ið 13:11 fyrir heimamenn. Staffan Olsson var
bestur Svía, gerði 9 mörk. Norðmenn byijuðu
betur og komust í 4:6 en Svíar tóku þá við sér
og náðu að jafna 8:8 og náðu síðan yfirhönd-
unni og héldu henni eftir það. Norðmenn voru
þó aldrei langt undan og munaði oftast tveimur
mörkum í síðari hálfleik.
Norðmenn eru með töluvert breytt lið frá því
sem var á Reykjavíkurmótinu í nóvember. Þeir
hafa kallað inn kömlu „refina" eins og Roger
Kendalan, Oysten Havang og Rune Erland.
Markahæstir Norðmanna voru Eivind Wingst-
ernaes og Ole Gustav Gjekstad með 6 mörk og
Erland og Kjendalen gerðu fjögur mörk hvor.
ífótsporfeðranna
JASON Ólafsson úr Aftureldingu klædd-
ist landsliðspeysunni í gær, þó svo að
hann hafi ekki fengið að spreyta sig
gegn Dönum, er leikurinn skráður sem
landsleikur. Jason er sonur Ólafs Jóns-
sonar, fyrrum landsliðsfyrirliða úr Vík-
ingi. Þrír aðrir feðgar hafa klæðst lands-
liðspeysunni — Rúnar Guðmannsson og
Jón Árni úr Fram, Gunnsteinn Skúlason,
Val, og Skúli, Stjörnunni og Kristján
Stefánsson og Stefán, FH.
„Eg er mjög ánægður"
-^sagði GeirSveinsson, fyrirliði íslenska liðsins, eftirsigurá Dönum
Eg er mjög ánægður með leik-
inn,“ sagði Geir Sveinsson,
fyrirliði. „Ég var hræddur um
að ferðin hingað og nýárið sæti
í mönnum en það var ekki að
sjá. Það var helst vörnin og mark-
varsian sem var ekki nægilega
góð í fyrri hálfleik, en þetta sa-
mall vel saman í seinni hálfleik.
Við lékum góðan sóknarleik og
greinilegt að þau sóknarkerfi
sem við höfum verið að æfa síð-
ustu daga gengu upp og færðu
okkur mörg mörk.
Nú er bara að vinna Norðmenn
svo við komumst í hreinan úr-
slitaleik gegn Svíum eins og að
var stefnt."
Sigurður Sveinsson átti mjög
góðan leik og mataði bæði Geir
og Bjarka vel. „Þetta var ekki
léttur leikur en hann var
skemmtilegur. Bjarki er greini-
lega að koma til eftir kamelreið-
ina í Karíó (lék með heimsliðinu
þar í desember). Við lékum mjög
agað og mjög fáar sóknir enduðu
með vitleysu. Þetta var mjög ják-
vætt, sérstaklega fyrir þá stráka
sem eru að koma inní liðið.“
■ Leikurinn /B4
AMERÍSKIFÓTBOLTINN: KANSAS ÚR LEIK OG MONTANA ÍHUGAR AÐ HÆTTA / B3