Morgunblaðið - 05.01.1995, Page 1

Morgunblaðið - 05.01.1995, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1995 FIMMTUDAGUR 5. JANUAR BLAD Elskar að synda Morgunblaðið/Bjöm Blöndal EYDÍS Konráðsdóttir úr Keflavík setti sex ÍS' landsmet 1994 Rússneskur blak- maðurtil KA RÚSSNESKUR blakmaður er væntanlegur í herbúðir KA-manna á Akureyri innan tíðar, og Ieysir þar með af hólmi Bandaríkjamanninn Mike Whitcomb sem kvaddi hvorki kóng né prest áður en hann hvarf frá Akureyrarfélag- inu á haustdögum. Rússinn, Alexandr Korneev, 25 ára íþróttakennari, kemur frá Murmansk. Akureyri og Murmansk hafa nýverið tekið upp vinabæjatengsl og í framhaldi af því var það eitt fyrsta verk borgarstjóra þessa nýja vina- bæjar höfuðstaðar norðurlands þar ytra, að útvega KA-mönnum góðan leikmann. Þess má geta að Jakob Björnsson, bæjarstjóri á Akur- eyri, kom einnig nálægt málinu — var í sam- bandi við starfsbróður sinn fyrir KA-menn. Alexandr Korneev er sóknarmaður, 1,90 metr- ar á hæð og 82 kíló. Aðsóknarmet í háskólafótbolta YFIR 36 milljónir áhorfenda mættu á leiki í háskólakeppninni í ameríska fótboltanum, sem er nýtt met. Alls komu 36.495.896 áhorfendur til að sjá leiki hinna 568 skólaliða. Flestir áhorf- endur komu á leiki The University of Michig- an, eða 106.217 áhorfandi að meðaltali á leik, sem met í 21 árs sögu skólaliðsins. Næstur kom Penn State með 96.289 áhorfendur að meðal- tali á leik. Þess má geta til gamans að 56.837 áhorfendur komuá 90 leiki í 1. deildarkeppni knattspyrnunni á íslandi sl. keppnistímabil, sem er 631 áhorfandi að meðaltali á leik. Peter Shilton leyst- ur frá störfum PETER Shilton, fyrrum landsliðsmarkvörður Englands, sem á landsleikjamet í heiminum — 125 landsleikir, var leystur frá störfum sem framkvæmdasljóri 2. deildarliðsins Plymouth í gær, eða þar til hann getur gert grein fyrir ógreiddum sköttum af 50.000 pundum. Shilton fær frest fram á miðvikudag til koma sínum málum í lag. Sigurður og Wis- lander bestir SIGURÐUR Sveinsson, aldursforseti norrana mótsins og Magnus Wislander, leikstjórnandi og fyrirliði Evrópumeistara Svía, voru útnefnd- ir bestu menn leiksins í gærkvöldi. VIÐURKENNING HANDKNATTLEIKUR - æfirfimm tíma á dag og syndir um 12 km EYDÍS Konráðsdóttir, 16 ára stúlka úr Keflavík hefur verið útnefnd íþróttamaður Suðurnesja árið 1994 í árlegu kjöri sem íþróttasamtök á svæðinu standa að. Hún hefur náð einstaklega glæsilegum árangri í sundi og á síðasta ári setti hún sex ný Islandsmet í sínum greinum sem eru bak- og flugsund. Eydís, sem er nemandi á náttúrufræðibraut í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, hefur æft og keppt í sundi í níu ár. Hún sagðist í samtali við Morgunblaðið æfa í um fimm tíma og synda um 12 km á venjulegum æfingadegi - og að hún elskaði að synda. HANDKNATTLEIKUR Þjódveijar lögðu Egypta Llandslið Þjóðvetja, sem ieikur tvo landsleiki gegn ísiendingum um helgina hér á. landi, lögðu Egypta að velli, 30:21, í æfmgaleik í Fulda í Þýskalandi í gærkvöldi. Þjóðvetjar gerðu út um ieikinn í seinni hálfleik ér þeir skoruðu hvert markið á fætur öðru úr hraðaupphlaup- um. Stefan Kretzschmar, félagi Júiíusar Jónassonar hjá Gum- mersbach, 21 árs og eitt mesta efni í þýska handknattleiknum, skoraði 9 mörk. Leikurinn þótti ekki góður. Fyrirliðinn hávaxni Volker Zerbe, Lemgo, sem hefur leikið 140 lands- leiki, lék ekki með þar sem hann er meiddur á olnboga og mun hann ekki koma til ísland. Hornamaðurinn Kay Rothenpieler hjá Dusseldorf er einnig meiddur. Landsiiðsþjálfarinn Amo Ehret ákvað að kalla á Martin Schwalb, Wallau/Massenheim, aftur til liðs við laridsliðið, en hann hefur ekki leikið lengi með liðinu. Schwalb, sem hefur leikið 141 landsleik, lék vel og skoraði fimm mörk. Eg vildi hafa Sig urð í mínu liði - sagði Bengt Johansson, þjálfari Svía Sigurður Sveinsson, sem verðu 36 ára í mars, sýndi það og sann- aðrenn einu sinni á norræna mótinu í Svíþjóð að hann er ein besta skytta í heimi. Hann var markahæsti leik- maður mótsins með 26 mörk, tveimur mörkum meira en Svíinn Staffan Ols- son. Þetta var reyndar annað mótið í röð sem hann fær markakóngstitil- inn þvi hann var einnig markahæstur á Reykjavíkurmótinu í nóvember, skoraði þá 28 mörk. Þjálfari Svía, Bengt Johansson, sagði eftir leikinn að Sigurður væri í heimsklassa. „Hann var erfiður fyr- ir okkur í þessum leik, ótrúlega góð- ur leikmaður. Þó svo að hann hafi ekki alla kosti alhliða handknatt- leiksmanns eru plúsarnir miklu fleiri en mínusarnir því það eru fáar betri skyttur enn hann. Ég hefði gjarnan vilja hafa hann í mínu liði. Það er ótrúlegt að hann skuli vera 36 ára gamall. Ykkur íslendinga vantar kanski fleiri Sigurða í liðið,“ sagði Johansson. Sigurður var mjög öruggur í víta- köstunum og skoraði úr 14 vítum í röð, en klúðraði því fimmtánda og síðasta gegn Svlum. „Boltinn var fastur í hendinni á mér og því fór hann þtjá metra framhjá. Það var alla vega ekkert varið frá mér,“ sagði Sigurður um vítið og brosti. Sigurður Sveinsson. KÖRFUKNATTLEIKUR: ÚRVALSDEILDIN ÍTÖLUM / D2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.