Morgunblaðið - 06.01.1995, Síða 1
Innsæi
eða rökhyggja
SKYLDI skýringin á iðnveldi Jap-
ana vera sú að þeir hika ekki við
að taka ákvarðanir samkvæmt eigin
innsæi? Japanir lentu í fyrsta sæti
í nýlegri rannsókn á innsæi hjá
1.300 stjórnendum í iðnaðar- og
þjónustufyrirtækjum í níu löndum.
Fjallað er um niðurstöðurnar í Dag-
legu lífi og rætt 'við tvo íslenska
'forstjóra um þátt innsæis í rekstri
fyrirtækja þeirra. _
■ Innsæi/2c
Leiguflug til Marokkð
í íyrsta skipti
MJÖG góðar undirtektir hafa ver-
ið við tveimur ferðum til Marokkó
á vegum ferðaskrifstofunnar Ur-
val-Utsýn í samvinnu við Visa til
Agadir í Marokkó og voru í gær,
fimmtudag, seld yfir 250 sæti af
þeim 306 sem bjóðast.
Farið verður til Marokkó 29.
janúar og 5. febrúar og verður
Boing 737-vél Flugleiða notuð til
ferðanna.
Goði Sveinsson hjá Úr-
val/Útsýn sagði að ákveðið hefði
verið að prófa að setja þessar tvær
ferðir inn, því veður í Agadir sem
er helsta báðstrandarborg lands-
ins, væri mjög þægilegt á þessum
árstíma. Einnig eru nokkrar
mjög áhugaverðar skoðunarferðir,
m.a. upp í Atlasfjöll sem eru svip-
mikil og hrikaleg. Dagsferð er líka
í boði til til Marrakech og efnt
verður til svokatlaðs Berbakvölds
þar sem verður marokkanskur
matur og danssýning. Er þetta
haldið í ævagörnlu Berbavirki um
60 km frá Agadir. Þá væri verðið
hagstætt, eða 46.940 kr. og mörg-
um þætti gott að komast nokkra
daga í sól og blíðu.
I Marokkó er konungsstjórn og
hefur Hassan II þótt sýna stjórn-
kænsku í samskiptum við ' aðra
Arabaleiðtoga og friðsamlegra
hefur verið í Marokkó en ýmsum
öðrum Arabalöndum og hefur ekki
bólað á að öfgatrúarmenn næðu
þar fótfestu. ■
Námsbraut fyrir
heyrnarlausa og heyrnar-
skerta í Menntaskólanum við Hamrahlíð
í MENNTASKÓLANUM við Hamrahlíð
er verið að setja á stofn sérstaka náms-
braut fyrir heymarlausa og heyrnar-
skerta. Innritun fer fram eftir helgi og
kennsla hefst síðar í þessum mánuði.
Til að byija með verður boðið upp á
íslenskt táknmál, íslensku fyrir heyrn-
arlausa og ensku.
Um tíma hefur íslenskt táknmál ver-
ið kennt í dagskólanum og að undan-
förnu hefur staðið yfir þróunarverkefni
í íslensku- og enskunámi fyrir heyrnar-
lausa. Ágústa U. Gunnarsdóttir náms-
ráðgjafi hefur ásamt Berglindi Gunn-
arsdóttur táknmálskennara og Sverri
Einarssyni konrektor farið til Svíþjóðar
til að kynna sér kennsluaðferðir fýrir
heyrnarlausa og heyrnarskerta. Þá hef-
ur Ágústa einnig farið til Bandaríkj-
anna í sama tilgangi.
Núna fékkst fjármagn til stofnunar
þessarar námsbrautar og Ágústa segir
að þau hafi verið tilbúin til að takast á
við þetta spennandi verkefni. Hún segir
mikinn áhuga innan skólans á þessari
námsbraut, bæði hjá stjórnendum,
kennurum og nemendum, því fram til
þessa hefur þessum hópi ekki staðið til
boða framhaldsmenntun sem tekur mið
af þeirra þörfum.
Hópur kennara hefur ásamt stjórn-
endum skólans verið á táknmálsnám-
skeiði og stendur til að halda fleiri slík
námskeið á næstunni.
Vegna þrengsla í skólanum verður
kennt eftir dagskóla eða frá klukkan
16 á daginn og kynningarfundur verður
haldinn hjá Félagi heyrnarlausa 10. jan-
úar næstkomandi klukkan 20.
...........'-•••• '•■.■-■■■ •
MENNTASKÓLINN við Hamrahlíð
Á ári umburðarlyndis
skal tekið á misrétti og fordómum
Á 50 ÁRA afmælisári sínu hafa
Sameinuðu þjóðirnar lýst árið
1995 „Ár umburðarlyndis". Af
því tilefni og sér í lagi vegna svo-
kallaðrar Vínaryfirlýsingar, sem
samþykkt var á leiðtogafundi Evr-
ópuráðsins á haustdögum 1993,
hefur menntamálaráðherra skipað
landsnefnd um misrétti og mis-
munun sem í eiga sæti níu fulltrú-
ar. Starf hennar mun aðallega
beinast að öflun gagna um að-
stæður og afstöðu nýbúa hér á
landi sem og afstöðu íslendinga í
þeirra garð.
Vínaryfirlýsingin fjallar m.a.
um vernd minnihlutahópa og sam-
búð fólks af mismunandi kynþátt-
um. Yfirlýsinguna undirritaði
Davíð Oddsson, forsætisráðherra,
fyrir íslands hönd. Þar er kveðið
á um að Evrópuráðinu verði falið
að beita sér fyrir aðgerðum til að
spoma gegn kynþáttafordómum,
útlendingaótta, gyðingahatri og
almennu skilningsleysi í garð ann-
arra kynþátta.
Ákveðið var að efna til sérstakr-
ar framkvæmdaáætlunar, sem
einkum á að beinast að ungu fólki
og ráðhermm æskulýðsmála var
falið að fylgja eftir. Evrópska
átakinu var formlega hrint úr vör
10. des. sl. í Finnlandi. Á sama
tíma var send út sjónvarpsdagskrá
um sambúð fólks af ólíku bergi
brotnu og náði hún til fjölda Evr-
ópuráðsríkja. Verkefninu verður
stjórnað af Evrópuráðinu en unnið
í náinni samvinnu við æskulýðs-
samtök.
Þá hafa landsnefndir tekið til
starfa og skulu þær setja fram
tillögur um forgangsverkefni sem
miðast við aðstæður og vandamál
í hveiju landi. Verkefninu er eink-
um ætlað að opna augu Evrópubúa
fyrir auknu kynþáttahatri, óvild í
garð ókunnugra og auka um-
burðarlyndi til að minnka líkur á
togstreitu milli hópa af ólíkum
uppruna.
Guðmundur Árnason, deildar-
stjóri í forsætisráðuneytinu og for-
maður íslensku landsnefndarinn-
ar, segir að þessa dagana sé verið
að leggja drög að því í
hveiju starf nefndar-
innar hér á landi muni
felast á ári umburðar-
lyndis. Hann telur þó
fullvíst að hún muni
beita sér fyrir því að
kanna hagi nýbúa hér
og afstöðu þeirra til nýs
samfélags þar sem af-
skaplega lítið sé til af
áreiðanlegum upplýs-
ingum um þetta efni.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
VERKEFNINU er ætlað að sporna
gegn kynþáttahatri og óvild í garð
ókunnugra sem og að boða umburðar-
lyndari þjóðfélög.
Við Iítum
á það sem fyrsta skref að skjóta
traustari stoðum þekkingar undir
umræðu um málefni nýbúa og vilj-
um að umræður verði skýrar og
upplýsandi en á það hefur skort.
Nýbúar verða einnig spurðir álits
á ýmsum þáttum, sem varða þá
með beinum hætti.“
Að sögn Guðmundar ráðast
önnur verkefni að sjálfsögðu af
fjárhag nefndarinnar. Þar eð tjár-
magni hefur ekki enn verið veitt
til verkefnisins, vildi hann engu
spá um frekari aðgerðir. Hann
sagði þó að íslendingar mundu
taka þátt í sameiginlegri norrænni
dagskrá, sem kynnt yrði í Reykja-
vík í tengslum við þing Norður-
landaráðs í marsmánuði. Einnig
væri freistandi að stofna til verk-
efnasjóðs sem æskulýðssamtök og
aðrir gætu sótt í vegna verkefna
sem gætu stuðlað að því að ná
markmiðum yfírlýsingarinnar. Þá
er fyrirhuguð æskulýðsvika í
Strassborg í júlímánuði sem verð-
ur hápunktur átaksins. Kannað
verður hvort íslensk æskulýðs- og
félagasamtök hafi hug á þátttöku
með einhveijum hætti.
álran maka-
afsláttar á
Saoa farrými
FLUGLEIÐIR hafa tekið upp á ný
tilboð um 90% afslátt til maka far-
þega sem borgar fullt fargjald á
SAGA farrými. Tilboðið gildir í flugi
til Evrópu og Bandaríkjanna og
gildir til 15. mars.
Margrét Hauksdóttir hjá upplýs-
ingadeild Flugleiða sagði að þetta
fyrirkomulag
hefði mælst
mjög vel fyr-
ir. Til að gefa
hugmynd um
hvað slík ferð
kostar má
nefna að fullt
verð til London á Saga farrými er
89.990 og mundi maki þá greiða
8.990 kr.eða hjón samtals 98.890
kr.
Sams konar fargjald til New
York kostar 117.200 og maki
greiddi 11.720 kr.þ.e. 128.920 kr.
fyrir hjón. Tekið skal fram að inni
í verðinu eru ekki flugvallarskattar.