Morgunblaðið - 07.01.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 07.01.1995, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA Franc Booker til Svíþjóðar? FRANC Booker, leikmaður Grindavíkur, æfði með sænska liðinu Sotna Vikings frá Stokkhólmi í jólafriinu. Hann heimsótti kunningja í Svíþjóð sem leikur með liðinu og fór á æfingar með honum. Að sögn Bookers hefur þjálf- ari Solna Vikings hug á að fá hann til liðsins næsta ár en óvíst er með samninga hans við Grindvíkinga. Nú leika tveir erlendir leikmenn yfir tveir metrar með sænska liðinu, sem má tefla fram tveimur útleningum. Solna vantar aftur á móti bakvörð. Leeds býður í Anthony Yeboah LEEDS hefur náð samkomulagi við Frankfurt um félagaskipti Anthony Yeboah, landsliðsmið- herja Ghana. Yeboah var settur á sölulista tyá þýska félaginu á dögunum. Hann verður annað hvort setdur til Leeds fyrir 395 milljónir króna eða þá leigður í eitt ár fyrir 100 millj. kr. Yebo- ah hefur síðasta orðið og verður að svara í síð- asta lagi á mánudag hvort hann taki titboði Leeds. Þorvaldur á Wemb- ley? ÞORVALDUR Örlygs- son, landsliðsmaður í knattspyrnu hjá Stoke, á möguleika að leika á Wembley í maí — úrslita- leik ensk/ítölsku bikar- keppninnar. Sigurvegarinn í viðureign Stoke og Notts County mætir Ascoli á Wembley 1. maí. Vikulaun Cantona 1,4 millj. kr. FRANSKI landsliðsmaðurinn Eric Cantona mun á næstu dögum skrifa undir samning við Manchester United, sem gildir til aldamóta. Cantona mun væntanlega fá 1,4 millj. ísl. kr. Dalglish aftur í slaginn KENNY Dalglish, fram- kvæmdastjóri Black- burn, mun stjórna liði sínu í bikarleik gegn Newcastle á St. James Park á morgun. Dalglish hefur verið frá í tvær vikur — var skorinn upp fyrir botlangabólgu. Romario á förum frá Barcelona? BLÖÐ á Spáni sögðu frá því í gær að Brasilíu- maðurinn Romario væri á förum frá Barcelona eins fUótt og hægt væri og hann myndi ganga til liðs við Flamengo í Ríó. Sagt var að kappinn væri óhamingjusamur á Spáni og væri með heim- þrá. Þá var sagt að Romario væri metinn á 1,53 miHjarð ísl. kr., en brasilíska félagið gæti aðeins greitt 266 miHj. fyrir hann. Kleber Leite, formað- ur Flamengo, ræddi við forráðamenn Barcelona í gær. Samningur Romario við Barcelona, renn- ur út í júní 1996. Fjórir þjálfarar í Noregi FJÓRIR íslenskir knattspyrnuþjálfarar eru nú í Noregi — á þjálfaranámskeiði norska knatt- spyrnusambandsins. Það eru Gústaf Björnsson, aðstoðariandsliðsþjálfari, Kristinn Björnsson, kvennalandsliðsþjálfari, Logi Ólafsson, þjálfari ÍA og Vanda Sigurgeirsdóttir, þjálfari kvenna- liðs Breiðabliks. 1995 LAUGARDAGUR 7. JANUAR BLAD Sjötti sigur Tomba Reuter ALBERTO Tomba hafði mikla yfirbuði í fyrri umferð stórsvigsins sem fram fór í Slóveníu í gær og lagði þar grunninn að 39. sigri sínum í helmsbikarnum. Tileinka strídshvjáð- um í Bosníu sigurinn - sagði skíðakappinn Alberto Tomba, sem er óstöðvandi í brekkum Alpanna Alberto Tomba, skíðakappinn snjalli frá Ítalíu, hóf nýja árið eins og hann lauk því gamla — með sigri. Hann vann sjötta sigur sinn á keppnistímabilinu í Kranjska Gora í Slóveníu í gær er hann náði besta tímanum í stórsvigi. Hann var tæplega sekúndu á undan heimamannin- um Mitja Kunc og Haraid Strand-Nilsen frá Noregi, sem voru jafnir í öðru sæti. Austurríkismaðurinn Christian Mayer, sem var með næst besta tímann í fyrri umferð, sleppti siðasta hliðinu í síðari umferð og var því úr leik. Sigur Tomba í gær var 39. sigur hans í heimsbikarmóti og sá 13. í stórsvigi. Hann hefur nú tekið afgerandi forskot í samanlagðri stigakeppni, eftir að helsti keppinautur hans, Kjetil Andre Aamodt frá Noregi, keyrði út úr brautinni í fyrri umferð. Tomba hefur rúmlega 300 stiga forskot á Von Gruningen í stigakeppninni. Tomba var með slagorðið „Stop the war“ eða „Stöðvið stríðið“ á rásnúmerinu sínu eins og hinir keppendumir. „Ég til- einka sigurinn þeim sem hafa þurft að þjást vegna þessa heimskulega stríðs sem er svö nálægt okkur hér í Slóveníu." Hann sagðist ætla að gera allt sem hann gæti til að skíðamenn frá Bosníu gætu tekið þátt í heimsmeistaramótinu í Nevada á Spáni sem hefst í lok mánaðarins. ■ Úrslit / D4 SKIÐI / HEIMSBIKARINN HAIMDKNATTLEIKUR: LANDSLEIKIR GEGN ÞJOÐVERJUM / D4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.