Morgunblaðið - 08.01.1995, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 8. JANÚAR1995 B 21
Fulltrúi í
slysavarnadeild
Slysavarnafélag íslands vill ráða fulltrúa í
slysavarnadeild. Tilgangur starfsins er vinna
að samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og
SVFÍ undir kjörorðinu „BETRI BORG FYRIR
BÖRN“.
Starfssvið fulltrúans er m.a.:
1. Stjórnun og skipulag átaksins.
2. Stjórnun fræðslu um slysavarnir til starfs-
fólks stofnana borgarinnar, almennings
og annarra þeirra er að átakinu koma.
3. Samstarf við aðra aðila er vinna að for-
vörnum.
4. Starfsáætlun, skýrslugerð og gerð
fræðsluefnis.
Ráðningartími eru tvö ár. Starfið er laust nú
þegar og umsóknarfrestur er til 17. janúar nk.
Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir.
Skrifleg umsókn þarf að berast Ráðningar-
þjónustu Hagvangs hf. ásamt ítarlegum
upplýsingum um nám og fyrri störf. Með
allar umsóknir verður farið sem trúnaðarmál
og þær endursendar.
Hagva neurhf
Skeifunni 19 Reykjavík 1 Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
+
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
Starfsmaður á
Vesturlandi
Rauði kross íslands óskar að ráða starfs-
mann á Vesturland sem hluta af stuðningi
RKÍ við deildirnar á svæðinu.
Um heildagsstarf er að ræða. Áætlað er að
helmingur tímans sé viðverutími á skrifstofu.
Hinn hlutinn fer í fundi, námskeiðahald og
fræðslu utan fasts viðverutíma.
Helstu verkefni
• Auka tengsl milli skrifstofu RKÍ og deilda
á Vesturlandi.
• Er framkvæmdastjóri fyrir svæðisnefnd
og sinnir sameiginlegum verkefnum
deilda og stuðningi við þær á svæðinu.
Aðstoðar deildir við að koma upp nýjum
verkefnum.
• Rauða kross fræðsla á svæðinu. Aðstoð
við námskeiðahald, kynningarmál og út-
gáfustarf (fréttabréf o.fl.).
• Stuðningur við barna- og ungmennastarf
RKÍ.
• Fylgja eftir skipulagi neyðarvarna RKÍ.
• Verkefni fyrir RKÍ sem tengjast deildar-
starfi annars staðar á landinu.
Kröfurtil umsækjenda
• Verður að vera lifandi í starfi, vinnusamur
og hafa frumkvæði.
• Hafa bíl til umráða og geta farið um svæðið.
• Reynsla af störfum með félagasamtökum.
• Góð ensku- og tölvukunnátta æskileg.
• Gert er ráð fyrir að viðkomandi sé/verði
búsettur á Vesturlandi.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon
hjá Ráðgarði frá kl. 9-12.
Vinamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs merktar: „RKÍ - Vesturland" fyrir
21. janúar nk.
RÁÐGARÐUR hf.
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17105 REYKJAVÍK SIMI616688
AUGL YSINGAR
Atvinnurekendur!
Forsvarsmenn fyrlrtækja, ríkisstofnana og
sveitarfélaga vinsamlegast athugið, hjá
okkur eru 2500 umsækjendur á skrá.
Leitið frekari upplýsinga.
EGÍLL G U Ð N I J Ó N S S 0 N
RÁÐNINGARÞJÖNUSTA OG RÁÐGJÖF
Skipholt 50c ■ 105 Reykjavík • Símar 5616661 & 562 8488 ■ Fax 552 8058
Hlutastarf
Starfsfólk óskast í móttökustarf eftir kl. 16.00
á daginn og um helgar.
Upplýsingar á staðnum.
AGUSTU OG HRAFNS
SKEIFAN 7 1 08 REYKJAVlK S. 68 98 68
LANDSPITALINN
.../ þágu mannúöar og vísinda...
BARNA- OG UNGLINGAGEÐDEILD
DALBRAUT12
Hjúkrunarfræðingur
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa sem
deildarstjóri á Dagdeild Barna- og unglinga-
geðdeildar nú þegar. Um er að ræða fullt
starf á dagvöktum. Á deildinni er unnin grein-
ingar- og meðferðarvinna með börn á aldrin-
um 3ja til 10 ára ásamt fjölskyldum þeirra.
Æskilegt er að umsækjandi hafi geðhjúkrun-
ar- og/eða stjórnunarnnenntun.
Upplýsingar veitir Anna Ásmundsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 602500.
VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR
- ENDURSKOÐUN
FYRIRTÆK.BÐ er sérhæft þjónustufyrir-
tæki í Reykjavík.
VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR mun sinna
sérhæfðum störfum á sviði reikningshalds
og endurskoðunar í tengslum við þá þjón-
ustu er fyrirtækið veitir. Jafnframt mun
hann annast eftirlitsvitjanir og vettvangs-
kannanir hjá fyrirtækjum auk ánnarra hefð-
bundinna starfa.
HÆFNISKRÖFUR eru að umsækjendur
hafi viðskiptafræðimenntun af endurskoð-
unarkjörsviði og/eða séu löggiltir endur-
skoðendur. Sambærileg menntun frá
erlendum háskólum áhugaverð.
Áhersla er lögð á nákvæm og skipulögð
vinnubrögð auk góðra samskiptahæfileika.
Tungumálakunnátta nauðsynleg.
UMSÓKNARFRESTUR er til og með
18. janúar nk. Ráðning verður fljótlega. í
boði eru áhugaverð laun, fjölbreytt starfs-
svið og mjög góð vinnuaðstaða.
Umsóknareyðublöð fyrirliggjandi á
skrifstofunni, sem opin er frá kl.
10-16, viðtalstímar eru f rá kl. 10-13.
1
ST
f. Starfsrádningar hf
I Suðurlandsbraut 30 ■ 5. hæð ■ 108 Reykjavík
Sími: 88 30 31 Fax: 88 30 10
Gudný Harðardóttir
Sauðárkrókskaupstaður
Leikskólastjóri
Sauðárkrókskaupstaður óskar eftir að ráða
leikskólastjóra til afleysinga í 1 ár á leikskól-
ann Furukot.
Um er að ræða fullt starf frá 1. febrúar nk.
Nánari upplýsingar veitir félagsmálastjóri í
síma 95-36174.
Umsóknir berist á Félagsmálastofnun Sauð-
árkróks, Stjórnsýslushúsinu, Skagfirðinga-
braut 21, 550 Sauðárkókur.
Skoðunarstofa
Innan skamms munum við opna nýja skoðun-
arstofu fyrir allar gerðir af ökutækjum. Þess
vegna leitum við að fólki sem er tilbúið til
samstarfs við uppbyggingu á nýju fyrirtæki
og mikla vinnu. Við leitum að
bifvélavirkjum og
starfsfólki í móttöku
Áhugasamir leggi inn umsóknir fyrir
10. janúar 1995.
Bifreiða- og tækjaskoðun hf.,
Klettagörðum 11, 104 Reykjavík.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Óskum að ráða leikskólakennara eða annað
uppeldismenntað starfsfólk í störf við neðan-
greinda leikskóla:
Arnarborg v/Maríubakka, s. 73090
Austurborg v/Háaleitisbraut, s. 38545
Brekkuborg v/Hlfðarhús, s. 679380
Drafnarborg v/Drafnarstíg, s. 23727
Fálkaborg v/Fálkabakka, s. 78230
Foldakot v/Logafold, s. 873077
Funaborg v/Funafold, s. 879160
Hlíðaborg v/Eskihlíð, s. 20096
Leikgarð v/Eggertsgötu, s. 19619
Nóaborg v/Stangarholt, s. 629595
Nánari uppiýsingar gefa viðkomandi leik-
skólastjórar.
Matartæknir óskast í leikskólann Arnarborg.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma
73090.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
eru reyklausir vinnustaðir.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
Grafískur hönnuður
Auglýsingastofan KRAFTAVERK leitar að
grafískum hönnuði í sérverkefni, meðal annars í
nýmiðlun. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi
gottvald á Quark, Free Hand, Photoshop.
Þekking á gagnvirkri miðlun væri líka plús.
[auglýsingastofa
Mngholtsstræti 6 • sími 5 6! 92 61