Morgunblaðið - 08.01.1995, Blaðsíða 1
MINNI OG BETUR ÚTBÚNIR BÍLAR - DODGE RAM PALLBÍLAR -
SAAB í JEPPAFRAMLEIÐSLU? - SAMEIGINLEGUR BÍLL MITSUB-
ISHI OG VOLVO - STÆRRI SUZUKI VITARA MEÐ V6 VÉL
SUNNUDAGUR 8. JANUAR
1995
BLAÐ
Carina
Catchy
1599.000
® TOYOTA
Tákn um gœði
FIAT Punto, bíll ársins í
Evrópu, fæst hér í tveimur
útfærslum, tvennra
ogfernra dyra.
FIAT Punto var kjörinn bíll ársins
1995 í Evrópu af evrópskum bíla-
blaðamönnum. Alls greiddu 56 blaða-
menn frá 21 Evrópulandi atkvæði í
kjörinu og fékk Fiat Punto 370 stig
og vann kjörið með yfírburðum því
VW Polo sem hafnaði í öðru sæti
fékk 292 stig. í niðurstöðum kjörsins
var tekið tillit til nýjunga í hönnun
bíisins, þæginda, öryggisþátta,
spamaðar og umhverfismála. Einnig
var tekið tillit til aksturseiginleika,
veggrips og afls. Nú þegar hafa 680
þúsund Fiat Punto selst í Evrópu en
hann kom fyrst á markað í ársbyrjun
1994.
Valið var milli 19 tegunda í kjöri
evrópskra blaðamanna en aðeins
voru gefin stig fyrir þá bíla sem
höfnuðu í efstu sætunum. Fiat Punto
fékk 370 stig, VW Polo 292 stig, en
þessir bílar eru í sama stærðar-
flokki, Opel Omega hafnaði í þriðja
sæti með 272 stig, Audi A8 í fjórða
sæti með 235 stig og Renault Lag-
una í fimmta sæti með 231 stig.
Fiat Punto var hannaður af Giorgi-
etto Giugiaro og hönnunarmiðstöð
Fiat í Tórínó. Lögð var mikil áhersla
á árekstursöryggi bílsins og stenst
Fiat bæði lágmarkskröfur Evrópu-
bandalagsins og mun strangari kröf-
ur sem Fiat verksmiðjumar gera
sjálfar. Bíllinn er með krumpusvæði
og sérstyrkt öryggisbúr ökumanns
og farþega með styrktarbitum í gólfi.
Hátt hlutfall þess efnis sem notað
er til smíði bílsins er endumýtanlegt.
Bíllinn fæst hér á landi í tveimur
útfærslum, tvennra dyra 55 S sem
er 55 hestafla og fernra dyra 75 SX
sem er 75 hestafla. Bíllinn vekur
athygli fyrir skemmtilegt útlit. Fram-
endinn er mjósleginn og niðurbyggð-
ur, hurðir og rúður allstórar og stuð-
arar mjög voldugir. Punto er búinn
1100 rúmsentimetra, 55 hestafla vél
og 1242 rúmsentimetra og 75 hest-
afla vél en báðar eru þær fjögurra
strokka og með rafeindastýrðri
innsprautun. Vélamar em sérstak-
lega þýðgengar og hljóðlátar. Punto
er með fímm gíra handskiptingu sem
er lipur. Meðal staðalbúnaðar má
nefna rafhitaða afturrúðu, litað gler
og rafhitað ökumannssæti og úti-
speglar og í 75 SX eru samlæsingar
hnakkapúðar á aftursætum og tví-
skipt aftursæti einnig staðalbúnaður.
Punto er arftaki Uno sem þó verður
framleiddur áfram fyrst um sinn en
sá bíll var einnig kjörinn bíll ársins
á sínum tíma.
Þess má geta að ekkert púströr
er sjáanlegt undan bílnum frekar en
á VW Polo en Fiat reið á vaðið með
hönnunbragð af þessu tagi í Punto.
Fiat Punto 55 S kostar 945.000
krónur með skráningu en utan ryð-
vamarkostnaðar og 75 SX kostar
1.065.000 krónur. Ryðvörn kostar
aukalega 19.000 kr.
Volvobishi
MIKIL leynd hvílir enn yfir nýjum
bilum sem Volvo og Mitsubishi
hafa smiðað í sameiningu í Hol-
landi, svonefndum NedCar. Engar
ljósmyndir hafa verið birtar af
bílunum þótt annar þeirra verði
frumsýndur á bílasýningu í Amst-
erdam í næsta mánuði. Þessar
teikningarnar eru frá framleið-
endunúm. Blái bíllinn leysir af
hólmi 400-línuna í Evrópu og
sá rauði Mitsubishi Lancer,
einnig í Evrópu. Mitsubishi
verður frumsýndur í Amst-
erdam í næsta mánuði en
Volvo kemur einu ári seinna.
Bifreidaskodun íslands með nýja þjónustu
Seljandi fari með bíl í ástands-
skoðun á notuðum bílum
BIFREIÐASKOÐUN íslands tók
upp um síðustu áramót nýja gerð
skoðunar fyrir bíla, svonefnda
ástandsskoðun. Óskar Eyjólfsson
fjármálastjóri Bifreiðaskoðunar seg-
ir að hugmyndin sé að seljendur bíla
láti skoða þá fyrir sölu og greiði
kostnað af því. Vonast hann til að
það verði með tímanum ófrávíkjan-
leg regla við sölu á notuðum bílum
að þeir haft farið í ástandsskoðun.
Bifreiðaskoðun mun taka upp sér-
staka skoðunarbraut í þessu skyni.
Jafnframt verður biðtími eftir aðal-
skoðun styttur verulega m.a. með
því að lengja opnunartímann.
Bifreiðaskoðun hefur kynnt
ástandsskoðun fyrir starfandi bíla-
sölum og hafa undirtektirnar verið
góðar, að sögn Óskars. Stefnt er að
því að anna tveimur bílum á klukk-
stund og 16 bílum á dag með fullri
nýtingu. „Við reynum að stilla þessu
þannig upp að seljandi bíls láti skoða
hann áður en salan fer fram og
kaupandinn sé þar með tryggður
fyrir hlutlausri skoðun á bílnum,"
segir Óskar.
Allt að 180 atriði skoðuð
Hann segir að einnig fáist með
þessu ferilskrá bílsins, fjöldi fyrri
Morgunblaðið/Emilía
GUNNAR Sigfússon skoðunarmaður þjá Bifreiðaskoðun íslands kann-
ar suðustig bremsuvökva en í bakgrunni er vélargreinir Bifreiðaskoð-
unar, eitt fullkomnasta tæki sinnar tegundar á landinu. Á minni mynd-
inni mælir Gunnar lakkþykkt bílsins með tæki sem mælir frá lakki
inn að stáli með nákvæmninni einn þúsundasta úr millimetra.
eigenda, hverjir hafi átt bílinn, þ.e.
fyrirtæki eða einstaklingar, hvort
skráningu hafi verið breytt t.a.m.
úr bílaleigubíl eða leigubíl í einka-
bíl. Einnig kemur fram hvort veð
hvíli á bílnum þá stundina sem skoð-
unin fer fram.
Um er að ræða þrjár gerðir skoð-
unar. í fyrsta lagi ástandsskoðun sem
tekur til allra atriða auk aðalskoðun-
ar og kostar hún 5.000 krónur. í
öðru lagi ástandskoðun sem tekur til
allra atriða en án aðalskoðunar og
kostar hún 3.700 krónur. í þriðja
lagi er ástandsskoðun á vél og kostar
hún 2.500 krónur. Settur verður
miði í framglugga þess bíls sem
hefur fengið ástandsskoðun
og henni fylgir einnig ítarleg
skoðunarskýrsla. Þar eru
tekin fyrir 180 atriði og
merkt við þau þar sem
athugasemdir eru gerð-
ar. I þessu skyni hefur
Bifreiðaskoðun komið
sér upp handbók um
hvernig framkvæma
eigi skoðunina og með
því vill fyrirtækið fyrirbyggja að bílar
fái mismunandi skoðun eftir starfs-
mönnum. Skoðunin er afar yfirgrips-
mikil. Farið er yfir skynbúnað, þ.e.
Ijós, þurrkur og spegla, vélina þar
sem kveikjutími er mældur með
stillitölvu, útblástur mældur og leitað
eftir olíuleka og torkennilegum vélar-
hljóðum. Einnig er skoðaður stýris-
búnaður og upphengjur, yfirbygging,
burðarvirki, aflrás, tengibúnaður,
hemlabúnaður og hjólabúnaður.
Skráð verður niður kílómetrastaða
bílsins og skoðanaferill bílsins fylgir
með en þar eru tilgreindar allar dag-
setningar skyldubundinna skoðana
a.m.k. 3 ár aftur í tímann, hvar bíll-
inn var skoðaður og niðurstaða skoð-
unarinnar.
„Fyrir kaupandann sýnir þessi
skoðun ástand bílsins. Við teljum
að það verði krafa markaðarins að
svona skoðun verði framkvæmd af
seljandanum," segir Óskar.
Bifreiðaskoðun stefnir að því að
bjóða ástandsskoðun með stuttum
fyrirvara, þ.e. á sama degi og tímap-
öntun berst.
Bíll ársins í Evrópu
Fiat Punto