Morgunblaðið - 08.01.1995, Qupperneq 2
2 C SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
NÝR Suzuki Vitara V6 hefur fengið nokkrar útlitsbreytingar,
þ.á.m. nýja stuðara og krómgrill.
SUZUKI Vitara V6 er laglegfur
að innan en Iaus við allan
óþarfa íburð og ptjál.
VÉLIN er með tveimur ofaná-
liggjandi knastásum og skilar
136 hestöflum.
Ný Suzuki Vitara
til íslands í maí
NÝR Suzuki Vitara jeppi kemur á Evrópumarkað í vor með nýrri sex
strokka vél með fjórum yfirliggjandi knastásum og 24 ventlum. Bíllinn,
sem er fimm dyra og nefnist eftir því Suzuki Vitara 5-Door Wagon, verð-
ur frumsýndur á bílasýningunni í Brussel 11. janúar næstkomandi. Nýjum
Vitara er ætlað að vera merkisberi Suzuki á Evrópumarkaði en þar hafa
Suzuki jeppar verið mest seldu jeppar í Evrópu undanfarin þijú ár.
Vitara var í raun nýr kostur fyrir
bílakaupendur þegar hann kom fyrst
á markað þrennra dyra árið 1988,
þarna var kominn fjórhjóladrifinn,
lítill jeppi með aksturseiginleikum
fólksbílsins. Framleiðsla á fimm dyra
Wagon-útfærslu hófst svo 1991 og
um leið stækkaði markhópurinn og
bíllinn varð valkostur sem fjölskyldu-
bíll.
Suzuki ætlar sér með Vitara 5-
door Wagon að kynna nýtt afbrigði
jeppa en við hönnunina var lögð
áhersla á aflmikla vél og aksturseig-
inleika eins og í lúxusbílaflokki án
þess að hrófla mikið við stærð og
útliti bílsins. Hann vegur t.a.m. ekki
nema 1.300 kg. Bíllinn er með nýjum
fram- og afturstuðurum, nýju
krómgrilli og hliðarplötum. Þá er í
honum breytt mælaborð og sæti.
Bíliinn verður á stærri hjólbörðum
en áður og sporvíddin er meiri. Sami
drifbúnaður er í bílnum og áður.
Vélin úr áli
Vélin í nýja bflnum er tveggja lítra,
V6 með tveimur ofanáliggjandi
knastásum og skilar hún um 136
hestöflum við 6.500 snúninga á mín-
útu. Vélin er hljóðlát og óvenjulítil
af sex strokka vél að vera. Þyngd
hennar er með minnsta móti m.a.
með notkun áls. í eldsneytiskerfmu
er fjölinnsprautun (MPI) sem spraut-
ar inn í hvem strokk á loftinntaks-
stundu.
Úlfar Hinriksson hjá Suzuki bílum
hf. segir að bíllinn verði boðinn bæði
handskiptur og sjálfskiptur. Líknar-
belgur fyrir ökumann og farþega í
framsæti verður staðalbúnaður í báð-
um gerðunum og ABS hemlalæsivöm
staðalbúnaður í sjálfskiptum bíl en
valbúnaður í handskiptum. Von er á
sýningarbíl til landsins um mánaðar-
mótin febrúar-mars og sölubílum í
maí. Ekki er ljóst hvað bíllinn mun
kosta hérlendis en Úlfar segir að
Vitara með minni vélinni verði í boði
áfram.
Töluvert framboð verður af nýjum
litlum jeppum hér á landi á árinu.
Auk Suzuki þá býður P. Samúelsson
RAV4 og Hekla mun bjóða nýjan
kóreskan Kia Sportage. ■
AGOTUNUM
Minni, sparneytnari og
tæknilega betri bílar
STÓRU alþjóðlegu bílasýningarnar
eru ekki síður vettvangur fyrir
framtíðarfræðingana en áhuga-
menn um bíla á líðandi stundu. Stór
hluti hverrar sýningar er helgaður
framtíðarhugmyndum bílaframleið-
andanna og þeir taka mið af þeim
tilhneigingum sem fram koma í
stöðumati alls kyns markaðs- og
ráðgjafafyrirtækja sem starfa í
kringum bílaiðnaðinn. Ef marka
má bílasýningar síðustu missera eru
það einkum fimm þættir sem marka
helstu breytingarnar í bílafram-
leiðslu komandi ára og eru sumir
þeirra þegar komnir fram í bílum
sem nú eru komnir á markað. Hér
er átt við að einkabílar verða minni
án þess að það komi endilega að
ráði niður á farþegarýminu, þeir
menga minna og verða spameytn-
ari, tæknibúnaður þeirra eykst og
það verður skemmtilegra að aka
þeim.
Segja má að mótsagnakennd
krafa tímans um minni og mengun-
arlausari bíla sem jafnframt eru
þægilegri í notkun, með meiri ör-
yggisbúnaði og betri aksturseigin-
leikum, hafí valdið byltingu í hönn-
un og framleiðslu. Nú spyija bíla-
framleiðendur sig grundvallar-
spurninga eins og hvernig bílar eigi
yfírleitt að vera, hvernig eigi að
OPEL Tigra,
lítill sportbíll
MERCEDES-BENZ A með byltingarkenndri hönnun kemur árið 1997.
smíða minni, sterkari og liprari bíla.
Flestir gefa sér þá forsendu að bíll-
inn eigi að vera með rými fyrir fjóra
fullorðna, megi helst ekki vera leng-
ur en 9 sekúndur úr kyrrstöðu í 100
km hraða á klst og eyði innan við
7 lítrum á hveija 100 ekna km.
Að öðru leyti þarf bíllinn að vera
vel búinn út frá öryggissjónarmið-
um, með tvo líknarbelgi, krumpu-
svæði og hliðarárekstrarvörn og
hann verður að framleiða og selja
á viðráðanlegu verði.
1 .OOO kg bílar
Sú skoðun verður nú útbreiddari
að bílaiðnaðurinn muni mæta þess-
um kröfum með nýjum alþjóðlegum
staðli léttari, hagkvæmari en betur
útbúnum bílum í 1.000 kg þyngdar-
flokknum. Framleiðendur eins og
Volvo, Mercedes-Benz og Opel í
Evrópu, Chrysler í Bandaríkjunum
og Mazda, Toyota og Honda í Jap-
an senda nú þegar og á næstu árum
slíka bílum frá sér í hrönnum á
markaðinn.' Bob Austin, forstjóri
markaðs- og upplýsingasviðs
í Grand Cherokee Laredo 4x4, argerð 93 (ekinn 27 þús.
mílur), Chevrolet Cavalier Z-24, árgerð '93 (ekinn 29 þús
mílur), Toyota P/U 2W/D, árgerð '91 (ekinn 17 þús.
mílur) og aðrar bifreiðar, er verða sýndar á Grensásvegi
9, þriðiudaginn 10. janúar 1995 kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð a sama stað kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
TILBOÐ
ÓSKAST
Suður-Kóreumenn hyggja
ó mikla markaðssókn
HYUNDAIHCD-2 er sportbíll framtíðarinnar
hjá stærsta bílaframleiðanda Suður-Kóreu.
HLUTUR kóreskra bíla á evrópskum
markaði eykst hröðum skrefum og
þarlendir framleiðendur undirbúa nú
gríðarlegt markaðsátak til að auka
hlut sinn enn á þröngum bílamarkaði
í Evrópu. Vígstaða kóreskra fyr-
irtækja er góð, þeir bjóða einfalda
bílalínu á mun lægra verði en helstu
keppinautarnir frá Japan og hafa að
vopni markaðsþekkingu sem þeir
hafa aflað sér í Bandaríkjunum.
Kóreskir framleiðendur ætla að koma
sér fyrir á neðsta þrepi verðstigans,
þar sem Japanar voru eitt sinn alls-
ráðandi, en nú eru ekki aðrir bíla-
framleiðendur á þeim markaði. Evr-
ópskir bílaframleiðendur telja þó
óiíklegt að Kóreumenn staldri lengi
við á þeim markaði heldur færi sig
upp verðstigann og undirbúa þeir nú
gagnsókn sem gæti falið í sér kröfur
um útflutningskvóta.
Það er þó langur vegur frá því að
kóreskir bílaframleiðendur ógni
stöðu stærstu bílaframleiðenda í
Evrópu. Samkvæmt spá markaðsfyr-
irtækisins Economist Intelligence
Unit í London fer sala á kóreskum
bílum í Evrópu úr 116 þúsund bílum
1994 í 325 þúsund bíla árið 2000
og markaðshlutdeildin úr 1% í 2,5%.
Aætlanir Kóreumanna hljóða hins
vegar upp á 410 þúsund bíla árið
2000 sem 3% hlutdeild í 13,2 millj-
óna bíla markaði sem spáð er það ár.
í lægsta verðflokkinn
Mest verður flutt út til Evrópu af
þremur stærstu bílaframleiðendum
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995 C 3
SAMVINNUVERKEFNI Mercedes-Benz og Swatch úraframleiðandans, Swatchmobile.
Volvo í Bandaríkjunum, segirt.a.m.
að augljóst sé að 1.000 kg þungir
bílar með tveggja lítra vélum sem
eyða innan við 7 lítra á hundraðið
verði algengasti bíllinn í framtíð-
Nokkrir þessara bíla eru þegar
komnir á markað. Chrysler hefur
framleitt Neon í rúmt eitt ár og
býður hann á afar hagstæðu verði,
eða um 10 þúsund bandaríkjadoll-
ara, með ríkulegum búnaði, eins og
t.a.m. tölvuinnspýtingu, diska-
bremsum með ABS-hemlalæsivörn
og tveimur líknarbelgjum auk þess
sem farþegarýmið er svipað og í
ýmsum lúxusbílum. Opel hefur sett
á markað tveggja sæta sportbílinn
Tigra. Afturhluti bílsins er að mestu
úr glerþaki en þar undir er yfrið
nóg farangursrými þótt bíllinn sé
aðeins 3,9 metrar á lengd. Þá er
hann með öryggisbúnaði eins og
bílar í mun stærri flokki, eins og
tvo líknarbelgi, hliðarárekstr-
arvöm og beltast-
gkkjara.
Nú spyrja bílaframleiðendur
sig grundvallarspurninga
eins og hvernig bílar eigi
yfirleitt að vera, hvernig
eigi að smíða minni, sterk-
ari og liprari bíla
Sportbílar og jeppar
Fleiri slíkir litlir bílar með sport-
legum og jeppalegum eigindum eru
að líta dagsins ljós. Mercedes-Benz
kynnti SLK á Parísarsýningunni og
ráðgert er að hann verði kominn á
markað 1996. Hann verður dýr en
Mercedes-Benz treystir á að frá-
bærir aksturseiginleikar selji bílinn
en hann verður með 200 hestafla
^él. í jeppadeildinni er nýkominn á
markað Toyota RAV4 sem er í
1.000 kg þyngdarflokknum með 2
Iítra, 16 ventla vél og sítengdu al-
drifi. Þessi litli sportjeppi er einnig
með alls kyns aukabúnaði til að
koma á auðveldan hátt fyrir skíð-
um, brimbretti eða útileigubúnaði.
Suzuki er með Vitara í svipuðm
flokki og nú afbrigði af honum,
X-90, sem á sumum mörkuðum er
að verða tískubíll meðal yngri kaup-
enda. Búast má við að fleiri slík
afbrigði komi fram þar sem meng-
unarvarnareglugerðir verða æ
strangari.
með hliðarloftpúða sem Volvo hefur
fyrstur framleiðenda hannað, svo-
nefnda SlPS-vörn. Mercedes-Benz
frumkynnti lítinn einrýmisbíl í
Frankfurt fyrir rúmu ári, sem er í
laginu eins og íjölnotabíll. Helsta
nýjungin við hann er að vél og drif-
búnaður er hafður undir gólfi bílsins
sem eykur mjög á öryggi farþega
við árekstur að framan. Bíllinn
verður m.a. í boði með díselvél sem
verið er að hanna og vonast hönnuð-
ir Mercedes-Benz til að ná eyðsl-
unni niður í þijá lítra á hundraðið.
SUZUKI X-90 tískubíll unga fólksins.
CHRYSLER Neon, ódýr en ríkulega búinn.
Örbílarnlr
Ný kynslóð minni bíla er þegar
á næsta leyti. Volvo kemur með
einn á markað 1996 og verður hann
nokkru þyngri en meðalbíllinn, eða
1.250 kg. Ráðgert er að hann verði
með 2 lítra, 4 strokka vél sem bygg-
ir á 2,9 lítra, sex strokka vél úr
nýjum Volvo 960. Hann verður líka
Þegar fram líða stundir teljast
1.000 kg bílarnir jafnvel stórir þeg-
ar þá ber við litla borgarbíla eins
og Renault Twingo og Fiat Cinqu-
ento. Volkswagen hefur tekið
ákvörðun um að fjöldafram-
leiða arftaka Bjöllunnar vin-
sælu, Concept I, 60 árum
eftir að Ferdinand Porsche
hannaði fyrsta Bjölluna.
Einnig hefur vakið mikla
athygli fyrirhugað sam-
starf Mercedes-Benz og sviss-
aeska úraframleiðandans Swatch
að smíði örbíls. Markmiðið með
samstarfinu er að hefja framleiðslu
á róttækum borgarbíl árið 1997.
Bíllinn verður tveggja dyra og að-
eins 2,5 metrar á Iengd og yfírbygg-
ingin verður úr endurvinnanlegu
plasti. Vélin verður 1.000 rúmsenti-
metrar, eða eins og stór mótorhjóla-
vél. ■
Markaðshlutdeild
kóreskra bíla
í Evrópu Bandaríkin
Bandaríkin
Kórea
Onnur
ríki
1993
Hlutdeild í
innflutningi á
nýjum bifreiðum
til Vestur-Evrópu....
Saab með jeppa
ó teikniborðinu
Kóreu, Hyundai Motors, sem var eini
bílaframleiðandinn í Kóreu með bíla
á Evrópumarkaði allt frá '88 fram
til ’94, Kia Motors og Daewoo Mot-
or. Ssangyong Motor, sem framleiðir
létta pallbíla og jeppa, mun leika
minna hlutverk en þess má geta að
fyrirtæki hér á landi hefur verið í
viðræðum við Ssangyong um að taka
við umboði þess. Hyundai seldi
85.882 bíla í Evrópu á síðasta ári.
Sérfræðingar telja líklegt að
Kóreumenn Ieggi áherslu á að ná
fótfestu á evrópskum markaði í því
tómarúmi sem er í lægsta verð-'
flokknum og þegár þeir hafi komið
sér þar fyrir hefji þeir innreið á dýr-
ari verðflokkana. Framleiðsla Kóreu-
manna er lík þeirri japönsku fyrir
nokkrum árum, þ.e. ódýr og fjöl-
breytileg. Japanir hafí hins vegar
horfið af markaðnum með ódýrustu
bílana þegar þeir fengu aukinn
tækniútbúnað og með hækkandi
gengi jensins.
Kóreumenn eiga eftir að leysa
stórt vandamál áður en þeir fara að
láta að sér kveða að ráði í Evrópu,
en það er umboðsnet. Sérfræðingar
segja að það muni taka þá að minnsta
kosti tíu ár að koma upp umboðsneti
í Evrópu og það muni hamla sölunni
á meðan. Daewoo hefur tekið ákvörð-
un um að veita sem svarar 24,6
milljörðum króna til að koma upp
versluiium og eigin þjónustustöðvum
í Bretlandi.
Gæðamálin
Gæðamál hamla einnig vexti kór-
esks bílaútflutnings til Evrópu að
mati sérfræðinga. Þrátt fyrir miklar
framfarir á þessu sviði benda menn
á að evrópskir bílakaupendur eru
þeir gagnrýnustu í heimi. Lök gæða-
ímynd Hyundai í Bandaríkjunum á
síðari hluta níunda áratugarins leiddi
til söluhruns. 1988 seldust í Banda-
ríkjunum 264 þúsund Hyundai bílar
en í fyrra aðeins 108 þúsund bílar.
Þar varð Hyundai í næst neðsta sæti
í árlegri gæðakönnun J.D. Power. I
samskonar könnun sem J.D. Power
gerði í Evrópu lenti Hyundai í 12.
sæti af 27. ■
BLENÐINGUR sportjeppa og fjöl-
notabils er líklegur til að verða
fyrir valinu sem þriðja fram-
leiðslulína Saab-verksmiðjanna í
Svíþjóð. Sögur herma að hug-
myndin að þessum fjórlijóladrifna
jeppa njóti meiri hylli í bækistöðv-
um Saab en ný kynslóð af litlum
Saab 96 og stórum fólksbíl sem
eru á teikniborðinu.
Jeppinn er sagður verða óvenju-
lega léttur og ágætlega straum-
línulagaður. Hönnuðir eru sagðir
hafa lagt ofuráherslu á gott veg-
grip bilsins jafnt á vegum sem í
ófærum. Líklegt þykir að Saab
hanni eigin vélar verði bíllinn sett-
ur í framleiðslu en jafn líklegt er
að drifbúnaðurinn verði fenginn
annars staðar frá, hugsanlega frá
Steyr-Daimler-Puch, fyrirtæki
sem átti samstarf við Saab um
jeppa sem aldrei komst á fram-
leiðslustig og átti að byggjast á
900 bílnum. Einnig er hugsanlegt
að leitað verði til fjölskyldufyrir-
tækjanna innan General Motors,
Isuzu eða Chevi-olet. ■