Morgunblaðið - 08.01.1995, Page 3

Morgunblaðið - 08.01.1995, Page 3
2 C SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ NÝR Suzuki Vitara V6 hefur fengið nokkrar útlitsbreytingar, þ.á.m. nýja stuðara og krómgrill. SUZUKI Vitara V6 er laglegfur að innan en Iaus við allan óþarfa íburð og ptjál. VÉLIN er með tveimur ofaná- liggjandi knastásum og skilar 136 hestöflum. Ný Suzuki Vitara til íslands í maí NÝR Suzuki Vitara jeppi kemur á Evrópumarkað í vor með nýrri sex strokka vél með fjórum yfirliggjandi knastásum og 24 ventlum. Bíllinn, sem er fimm dyra og nefnist eftir því Suzuki Vitara 5-Door Wagon, verð- ur frumsýndur á bílasýningunni í Brussel 11. janúar næstkomandi. Nýjum Vitara er ætlað að vera merkisberi Suzuki á Evrópumarkaði en þar hafa Suzuki jeppar verið mest seldu jeppar í Evrópu undanfarin þijú ár. Vitara var í raun nýr kostur fyrir bílakaupendur þegar hann kom fyrst á markað þrennra dyra árið 1988, þarna var kominn fjórhjóladrifinn, lítill jeppi með aksturseiginleikum fólksbílsins. Framleiðsla á fimm dyra Wagon-útfærslu hófst svo 1991 og um leið stækkaði markhópurinn og bíllinn varð valkostur sem fjölskyldu- bíll. Suzuki ætlar sér með Vitara 5- door Wagon að kynna nýtt afbrigði jeppa en við hönnunina var lögð áhersla á aflmikla vél og aksturseig- inleika eins og í lúxusbílaflokki án þess að hrófla mikið við stærð og útliti bílsins. Hann vegur t.a.m. ekki nema 1.300 kg. Bíllinn er með nýjum fram- og afturstuðurum, nýju krómgrilli og hliðarplötum. Þá er í honum breytt mælaborð og sæti. Bíliinn verður á stærri hjólbörðum en áður og sporvíddin er meiri. Sami drifbúnaður er í bílnum og áður. Vélin úr áli Vélin í nýja bflnum er tveggja lítra, V6 með tveimur ofanáliggjandi knastásum og skilar hún um 136 hestöflum við 6.500 snúninga á mín- útu. Vélin er hljóðlát og óvenjulítil af sex strokka vél að vera. Þyngd hennar er með minnsta móti m.a. með notkun áls. í eldsneytiskerfmu er fjölinnsprautun (MPI) sem spraut- ar inn í hvem strokk á loftinntaks- stundu. Úlfar Hinriksson hjá Suzuki bílum hf. segir að bíllinn verði boðinn bæði handskiptur og sjálfskiptur. Líknar- belgur fyrir ökumann og farþega í framsæti verður staðalbúnaður í báð- um gerðunum og ABS hemlalæsivöm staðalbúnaður í sjálfskiptum bíl en valbúnaður í handskiptum. Von er á sýningarbíl til landsins um mánaðar- mótin febrúar-mars og sölubílum í maí. Ekki er ljóst hvað bíllinn mun kosta hérlendis en Úlfar segir að Vitara með minni vélinni verði í boði áfram. Töluvert framboð verður af nýjum litlum jeppum hér á landi á árinu. Auk Suzuki þá býður P. Samúelsson RAV4 og Hekla mun bjóða nýjan kóreskan Kia Sportage. ■ AGOTUNUM Minni, sparneytnari og tæknilega betri bílar STÓRU alþjóðlegu bílasýningarnar eru ekki síður vettvangur fyrir framtíðarfræðingana en áhuga- menn um bíla á líðandi stundu. Stór hluti hverrar sýningar er helgaður framtíðarhugmyndum bílaframleið- andanna og þeir taka mið af þeim tilhneigingum sem fram koma í stöðumati alls kyns markaðs- og ráðgjafafyrirtækja sem starfa í kringum bílaiðnaðinn. Ef marka má bílasýningar síðustu missera eru það einkum fimm þættir sem marka helstu breytingarnar í bílafram- leiðslu komandi ára og eru sumir þeirra þegar komnir fram í bílum sem nú eru komnir á markað. Hér er átt við að einkabílar verða minni án þess að það komi endilega að ráði niður á farþegarýminu, þeir menga minna og verða spameytn- ari, tæknibúnaður þeirra eykst og það verður skemmtilegra að aka þeim. Segja má að mótsagnakennd krafa tímans um minni og mengun- arlausari bíla sem jafnframt eru þægilegri í notkun, með meiri ör- yggisbúnaði og betri aksturseigin- leikum, hafí valdið byltingu í hönn- un og framleiðslu. Nú spyija bíla- framleiðendur sig grundvallar- spurninga eins og hvernig bílar eigi yfírleitt að vera, hvernig eigi að OPEL Tigra, lítill sportbíll MERCEDES-BENZ A með byltingarkenndri hönnun kemur árið 1997. smíða minni, sterkari og liprari bíla. Flestir gefa sér þá forsendu að bíll- inn eigi að vera með rými fyrir fjóra fullorðna, megi helst ekki vera leng- ur en 9 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km hraða á klst og eyði innan við 7 lítrum á hveija 100 ekna km. Að öðru leyti þarf bíllinn að vera vel búinn út frá öryggissjónarmið- um, með tvo líknarbelgi, krumpu- svæði og hliðarárekstrarvörn og hann verður að framleiða og selja á viðráðanlegu verði. 1 .OOO kg bílar Sú skoðun verður nú útbreiddari að bílaiðnaðurinn muni mæta þess- um kröfum með nýjum alþjóðlegum staðli léttari, hagkvæmari en betur útbúnum bílum í 1.000 kg þyngdar- flokknum. Framleiðendur eins og Volvo, Mercedes-Benz og Opel í Evrópu, Chrysler í Bandaríkjunum og Mazda, Toyota og Honda í Jap- an senda nú þegar og á næstu árum slíka bílum frá sér í hrönnum á markaðinn.' Bob Austin, forstjóri markaðs- og upplýsingasviðs í Grand Cherokee Laredo 4x4, argerð 93 (ekinn 27 þús. mílur), Chevrolet Cavalier Z-24, árgerð '93 (ekinn 29 þús mílur), Toyota P/U 2W/D, árgerð '91 (ekinn 17 þús. mílur) og aðrar bifreiðar, er verða sýndar á Grensásvegi 9, þriðiudaginn 10. janúar 1995 kl. 12-15. Tilboðin verða opnuð a sama stað kl. 16. SALA VARNARLIÐSEIGNA TILBOÐ ÓSKAST Suður-Kóreumenn hyggja ó mikla markaðssókn HYUNDAIHCD-2 er sportbíll framtíðarinnar hjá stærsta bílaframleiðanda Suður-Kóreu. HLUTUR kóreskra bíla á evrópskum markaði eykst hröðum skrefum og þarlendir framleiðendur undirbúa nú gríðarlegt markaðsátak til að auka hlut sinn enn á þröngum bílamarkaði í Evrópu. Vígstaða kóreskra fyr- irtækja er góð, þeir bjóða einfalda bílalínu á mun lægra verði en helstu keppinautarnir frá Japan og hafa að vopni markaðsþekkingu sem þeir hafa aflað sér í Bandaríkjunum. Kóreskir framleiðendur ætla að koma sér fyrir á neðsta þrepi verðstigans, þar sem Japanar voru eitt sinn alls- ráðandi, en nú eru ekki aðrir bíla- framleiðendur á þeim markaði. Evr- ópskir bílaframleiðendur telja þó óiíklegt að Kóreumenn staldri lengi við á þeim markaði heldur færi sig upp verðstigann og undirbúa þeir nú gagnsókn sem gæti falið í sér kröfur um útflutningskvóta. Það er þó langur vegur frá því að kóreskir bílaframleiðendur ógni stöðu stærstu bílaframleiðenda í Evrópu. Samkvæmt spá markaðsfyr- irtækisins Economist Intelligence Unit í London fer sala á kóreskum bílum í Evrópu úr 116 þúsund bílum 1994 í 325 þúsund bíla árið 2000 og markaðshlutdeildin úr 1% í 2,5%. Aætlanir Kóreumanna hljóða hins vegar upp á 410 þúsund bíla árið 2000 sem 3% hlutdeild í 13,2 millj- óna bíla markaði sem spáð er það ár. í lægsta verðflokkinn Mest verður flutt út til Evrópu af þremur stærstu bílaframleiðendum MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995 C 3 SAMVINNUVERKEFNI Mercedes-Benz og Swatch úraframleiðandans, Swatchmobile. Volvo í Bandaríkjunum, segirt.a.m. að augljóst sé að 1.000 kg þungir bílar með tveggja lítra vélum sem eyða innan við 7 lítra á hundraðið verði algengasti bíllinn í framtíð- Nokkrir þessara bíla eru þegar komnir á markað. Chrysler hefur framleitt Neon í rúmt eitt ár og býður hann á afar hagstæðu verði, eða um 10 þúsund bandaríkjadoll- ara, með ríkulegum búnaði, eins og t.a.m. tölvuinnspýtingu, diska- bremsum með ABS-hemlalæsivörn og tveimur líknarbelgjum auk þess sem farþegarýmið er svipað og í ýmsum lúxusbílum. Opel hefur sett á markað tveggja sæta sportbílinn Tigra. Afturhluti bílsins er að mestu úr glerþaki en þar undir er yfrið nóg farangursrými þótt bíllinn sé aðeins 3,9 metrar á lengd. Þá er hann með öryggisbúnaði eins og bílar í mun stærri flokki, eins og tvo líknarbelgi, hliðarárekstr- arvöm og beltast- gkkjara. Nú spyrja bílaframleiðendur sig grundvallarspurninga eins og hvernig bílar eigi yfirleitt að vera, hvernig eigi að smíða minni, sterk- ari og liprari bíla Sportbílar og jeppar Fleiri slíkir litlir bílar með sport- legum og jeppalegum eigindum eru að líta dagsins ljós. Mercedes-Benz kynnti SLK á Parísarsýningunni og ráðgert er að hann verði kominn á markað 1996. Hann verður dýr en Mercedes-Benz treystir á að frá- bærir aksturseiginleikar selji bílinn en hann verður með 200 hestafla ^él. í jeppadeildinni er nýkominn á markað Toyota RAV4 sem er í 1.000 kg þyngdarflokknum með 2 Iítra, 16 ventla vél og sítengdu al- drifi. Þessi litli sportjeppi er einnig með alls kyns aukabúnaði til að koma á auðveldan hátt fyrir skíð- um, brimbretti eða útileigubúnaði. Suzuki er með Vitara í svipuðm flokki og nú afbrigði af honum, X-90, sem á sumum mörkuðum er að verða tískubíll meðal yngri kaup- enda. Búast má við að fleiri slík afbrigði komi fram þar sem meng- unarvarnareglugerðir verða æ strangari. með hliðarloftpúða sem Volvo hefur fyrstur framleiðenda hannað, svo- nefnda SlPS-vörn. Mercedes-Benz frumkynnti lítinn einrýmisbíl í Frankfurt fyrir rúmu ári, sem er í laginu eins og íjölnotabíll. Helsta nýjungin við hann er að vél og drif- búnaður er hafður undir gólfi bílsins sem eykur mjög á öryggi farþega við árekstur að framan. Bíllinn verður m.a. í boði með díselvél sem verið er að hanna og vonast hönnuð- ir Mercedes-Benz til að ná eyðsl- unni niður í þijá lítra á hundraðið. SUZUKI X-90 tískubíll unga fólksins. CHRYSLER Neon, ódýr en ríkulega búinn. Örbílarnlr Ný kynslóð minni bíla er þegar á næsta leyti. Volvo kemur með einn á markað 1996 og verður hann nokkru þyngri en meðalbíllinn, eða 1.250 kg. Ráðgert er að hann verði með 2 lítra, 4 strokka vél sem bygg- ir á 2,9 lítra, sex strokka vél úr nýjum Volvo 960. Hann verður líka Þegar fram líða stundir teljast 1.000 kg bílarnir jafnvel stórir þeg- ar þá ber við litla borgarbíla eins og Renault Twingo og Fiat Cinqu- ento. Volkswagen hefur tekið ákvörðun um að fjöldafram- leiða arftaka Bjöllunnar vin- sælu, Concept I, 60 árum eftir að Ferdinand Porsche hannaði fyrsta Bjölluna. Einnig hefur vakið mikla athygli fyrirhugað sam- starf Mercedes-Benz og sviss- aeska úraframleiðandans Swatch að smíði örbíls. Markmiðið með samstarfinu er að hefja framleiðslu á róttækum borgarbíl árið 1997. Bíllinn verður tveggja dyra og að- eins 2,5 metrar á Iengd og yfírbygg- ingin verður úr endurvinnanlegu plasti. Vélin verður 1.000 rúmsenti- metrar, eða eins og stór mótorhjóla- vél. ■ Markaðshlutdeild kóreskra bíla í Evrópu Bandaríkin Bandaríkin Kórea Onnur ríki 1993 Hlutdeild í innflutningi á nýjum bifreiðum til Vestur-Evrópu.... Saab með jeppa ó teikniborðinu Kóreu, Hyundai Motors, sem var eini bílaframleiðandinn í Kóreu með bíla á Evrópumarkaði allt frá '88 fram til ’94, Kia Motors og Daewoo Mot- or. Ssangyong Motor, sem framleiðir létta pallbíla og jeppa, mun leika minna hlutverk en þess má geta að fyrirtæki hér á landi hefur verið í viðræðum við Ssangyong um að taka við umboði þess. Hyundai seldi 85.882 bíla í Evrópu á síðasta ári. Sérfræðingar telja líklegt að Kóreumenn Ieggi áherslu á að ná fótfestu á evrópskum markaði í því tómarúmi sem er í lægsta verð-' flokknum og þegár þeir hafi komið sér þar fyrir hefji þeir innreið á dýr- ari verðflokkana. Framleiðsla Kóreu- manna er lík þeirri japönsku fyrir nokkrum árum, þ.e. ódýr og fjöl- breytileg. Japanir hafí hins vegar horfið af markaðnum með ódýrustu bílana þegar þeir fengu aukinn tækniútbúnað og með hækkandi gengi jensins. Kóreumenn eiga eftir að leysa stórt vandamál áður en þeir fara að láta að sér kveða að ráði í Evrópu, en það er umboðsnet. Sérfræðingar segja að það muni taka þá að minnsta kosti tíu ár að koma upp umboðsneti í Evrópu og það muni hamla sölunni á meðan. Daewoo hefur tekið ákvörð- un um að veita sem svarar 24,6 milljörðum króna til að koma upp versluiium og eigin þjónustustöðvum í Bretlandi. Gæðamálin Gæðamál hamla einnig vexti kór- esks bílaútflutnings til Evrópu að mati sérfræðinga. Þrátt fyrir miklar framfarir á þessu sviði benda menn á að evrópskir bílakaupendur eru þeir gagnrýnustu í heimi. Lök gæða- ímynd Hyundai í Bandaríkjunum á síðari hluta níunda áratugarins leiddi til söluhruns. 1988 seldust í Banda- ríkjunum 264 þúsund Hyundai bílar en í fyrra aðeins 108 þúsund bílar. Þar varð Hyundai í næst neðsta sæti í árlegri gæðakönnun J.D. Power. I samskonar könnun sem J.D. Power gerði í Evrópu lenti Hyundai í 12. sæti af 27. ■ BLENÐINGUR sportjeppa og fjöl- notabils er líklegur til að verða fyrir valinu sem þriðja fram- leiðslulína Saab-verksmiðjanna í Svíþjóð. Sögur herma að hug- myndin að þessum fjórlijóladrifna jeppa njóti meiri hylli í bækistöðv- um Saab en ný kynslóð af litlum Saab 96 og stórum fólksbíl sem eru á teikniborðinu. Jeppinn er sagður verða óvenju- lega léttur og ágætlega straum- línulagaður. Hönnuðir eru sagðir hafa lagt ofuráherslu á gott veg- grip bilsins jafnt á vegum sem í ófærum. Líklegt þykir að Saab hanni eigin vélar verði bíllinn sett- ur í framleiðslu en jafn líklegt er að drifbúnaðurinn verði fenginn annars staðar frá, hugsanlega frá Steyr-Daimler-Puch, fyrirtæki sem átti samstarf við Saab um jeppa sem aldrei komst á fram- leiðslustig og átti að byggjast á 900 bílnum. Einnig er hugsanlegt að leitað verði til fjölskyldufyrir- tækjanna innan General Motors, Isuzu eða Chevi-olet. ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.