Morgunblaðið - 08.01.1995, Síða 4
4 C SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Kraftmikill Dodge Ram
með ýmsum þægindum
QS DODGE Ram pallbíll frá
S) Chrysler verksmiðjunum með
^ aldrifí, voldugri bensínvél og
S styrktri fjöðrun er með öflugri
jeppum sem fáanlegir eru á
S íslenskum bílamarkaði fyrir
j rétt tæjiar þijár milljónir
Vk króna. A því verði er hann
3E þó aðeins með þriggja
manna húsi en verðið
hækkar um nærri 200
þúsund ef hann
er tekinn með sex
manna húsi. Þessir
pallbílar frá Crysler
hafa notið mikilla
vinsælda og hér- _
lendis eru talsvert
margir í umferð
enda eru þetta
fjölhæfír bflar sem
nota má í ýmsum
tilgangi: Sumir eru
notaðir í fískflutn-
inga, aðrir til ferða-
laga og þá sett
svefnhús á pallinn og
enn aðrir eru notaðir
sem venjulegir jepp-
ar. Vissulega er
lengri gerðin af þess-
um bflum nokkuð
löng, eða hátt í sex metr-
ar en þrátt fyrir það er Ram merki-
lega lipur og þægilegur viðureign-
ar jafnvel í þéttbýlisumferðinni.
Við skoðum í dag Dodge Ram með
tíu strokka bensínvél.
Dodge Ram er eiginlega smækk-
uð mynd af vörubfl og er með nýju
lagi orðinn eins konar blanda af
nýrri og gamalli hönnun. Framend-
inn er breiður og voldugur og þar
leikur krómi slegin vatnskassahlífín
aðalhlutverkið og stuðarinn sömu-
leiðis. Aðalluktimar eru næstum
því of fínlegar miðað við þennan
volduga framenda. Vélarhlífín þek-
ur nær allan framhlutann en yst
taka brettin við og allt er þetta
með ávölu lagi og mjúku. Farþega-
húsið og pallurinn eru með hefð-
bundnu sniði og frekar slétt og
felld nema hvað bretti yfír aftur-
hjólum eru með ofurlítið kúptu lagi.
Tvískipting á lit gefur bflnum ágæt-
an heildarsvip og líflegra yfírbragð.
Bíllinn sem var prófaður var á
fremur litlum hjólbörðum og væri
mun verklegri í útlit ef settir væru
undir hann 35 þumlunga hjólbarð-
ar sem er mögulegt án nokkurra
breytinga. Ljóst er að þessi bfll er
mjög áhugaverður fyrir þá sem
kjósa öflugan ferðabíl sem þeir
geta aðlagað þörfum sínum eftir
því sem hugur þeirra girnist.
Ágætur aðbúnaður
Að innan vekur fyrst athygli
ágætur aðbúnaður í alla staði þótt
hér sé kannski fyrst og fremst
o
Morgunblaðið/Þorkell
DODGE Ram er voldugur og fjölhæfur aldrifsbíll.
hugsað um vinnubíl - en einmitt
þeir ættu kannski að vera vel bún-
ir þægindum fyrir þá sem þurfa
að sitja þar löngum stundum.
Mælaborðið ásamt miðstöðvarrof-
um og útvarpsstæði er allt á einu
stóru bretti sem þekur um helming
mælaborðshillunnar og framan eða
ofan við hana er allstórt og mikið
rými fram að rúðunni.
í þriggja manna húsinu eru
sætin stillanleg með hefðbundnum
stillingum nema miðjusætið og fer
einna síst um þann sem þar situr
vegna lítils fótarýmis. Hinir tveir
geta hins vegar haft það mjög
gott og þolað langar setur ef svo
ber undir nema hvað hliðarstuðn-
ingur þyrfti að vera betri í öku-
mannssætinu.
Stjórntæki eru með hefðbund-
inni staðsetningu, gírstöng við
stýri á þessum sjálfskipta bíl og
drifskipting á gólfí fyrir miðju. Til
þæginda er hraðafesting og eru
rofar hennar í stýrinu og á miðju
mælaborðinu má draga út hillu eða
sæti fyrir glös eða flösku. Allt er
þarna rúmgott og stefndu hönnuð-
ir og tæknimenn að því að ná sem
mestu olnbogarými fyrir þá sem
nota bílinn sem vinnubfl. Þannig
segir í upplýsingum frá framleið-
anda að fótstigin séu þannig úr
garði gerð að gert sé ráð fyrir að
menn séu hugsanlega í vinnukloss-
um við aksturinn.
Öflug vél
Vélin í Dodge Ram er trúlega
ein öflugasta sem undirritaður
hefur kynnst. Hún er 5,9 lítra, 10
strokka og 300 hestöfl. Hún á
ekki í neinun vandræðum með að
þeysa bflnum á fleygiferð úr kyrr-
stöðu og virðist alltaf geta bætt
við sig þegar ekið er á ferðahraða
á þjóðvegi - hún á alltaf nóg eftir
fyrir framúraksturinn. Hún er líka
merkilega hljóðlát. Þessi öfluga vél
er góð fyrir þennan burðarmikla
bíl en hann getur borið allt að
þremur tonnum. Burðargetan er
gefín upp 1.500 kg en það er allt
að þvi regla að menn tvöfalda
hana þegar mikið liggur við og
óhætt er að leggja það á þennan
volduga bfl. Hann hentar því t.d.
ágætlega í fiskflutninga í vissum
tilvikum og með réttum aðbúnaði
fyrir matvælin enda nokkuð notað-
ur þannig eða í öðrum atvinnu-
rekstri sem þarf burðarmikinn bíl
án þess að vera heill vörubíll eða
flutningabíll.
Dodge Ram er með blaðfjöðrum
að aftan en gormum að framan
og er öll fjöðrun slaglöng (átta
þumlungar að framan og ellefu að
aftan) og fjaðrablöðin eru löng og
mikil. Fjöðrunin er samt nokkuð
stíf og fremur er bíllinn laus í rá-
sinni að aftan þegar ekið er án
hleðslu. Víst er þó að með hlassi
verður hann rásfastur og nokkuð
góður viðskiptis á malarbornum
þjóðvegi.
Umfangsmiklll
í akstri er Dodge Ram vissulega
stór og umfangsmikill og hefur
næstum því vörubílahreyfíngar.
Það tekur samt sem áður ekki
langa stund að ná áttum og læra
á umfang bílsins, hægra framhom-
ið og lengdina á pallinu og hann
er í raun furðanlega lipur og með-
færilegur þegar menn hafa aðeins
áttað sig á hónum. Vökvastýri og
hefðbundin sjálfskipting gera
aksturinn næsta auðveldan í þétt-
býlinu enda situr ökumaður hátt
sem gefur góða yfirsýn í þéttbýlis-
umferð.
Helst mætti fínna að ökumanns-
sætinu, þrátt fyrir ágætar stilling-
ar er hætt við að ökumaður skriki
í sætinum í beygjum þar sem hlið-
arstuðningur er ekki nægilega
góður. En vitanlega verður ekki á
allt kosið og ekki endalaust hægt
að sameina þægindi fólksbíla í
hvaða vinnubíl sem er.
Þrátt fyrir sæmilega ríkulegan
búnað sakna ég samlæsingar því
hún væri til mikilla þæginda fyrir
ökumann sem verður annað hvort
að opna utan frá fyrir farþega sín-
um eða teygja sig æði vel úr sæti
sínu til að opna innan frá! Þeir sem
nota Ram sem vinnubíl geta líka
Dodge Ram
í hnotskurn
Vél: 8 lítrar,
10strokkarog 300
hestöfl.
Aldrif, hátt og lágt eða
eingöngu afturdrif.
Vökvastýri - veltistýri.
Sjálfskipting.
Líknarbelgur.
Styrktarbitar í hurðum.
Lengd: 5,69 m. Breidd:
2,02 m. Hæð: 1,83 m.
Hjólhaf: 3,43 m.
Beygjuhringur:
12,37 m.
Þyngd: 2.500 kg.
Bensíneyðsla: 14 tit 25
lá 100 kmeftir
aðstæðum.
Hraðafesting.
Útvarp.
Staðgreiðsluverð
kr.: 2.990.000.
Umboð: Jöfur hf.,
í Kópavogi.
fengið hann búinn skrifstofuáhöld-
um, þ.e. í stað miðsætis má koma
þar fyrir tölvu, faxi, farsíma eða
öðrum búnaði sem vel má ímynda
sér að nútíma verkstjórinn eða
verktakinn gæti notfært sér við
verk sín út og suður á bíl sem
þessum.
Kostar undlr þremur
mllljónum
Eins og fyrr segir er verðið á
Ram rétt tæpar þrjár milljónir
króna, eða kr. 2.990.000 og 100
þúsund krónum lægra sé hann
tekinn með fímm gíra handsskipt-
ingu. Sé hann tekinn með sex
manna húsinu sem þá er um 50
cm lengra er verðið á handskipta
bílnum 3.070 þús. kr. Útgáfan
með tvöfalda húsinu verður fáan-
leg á næstu vikum, líklega um
miðjan febrúar. Sé bætt í bílinn
ýmsum fleiri þægindum eins og
rafstillanlegu ökumannssæti,
samlæsingu, vandaðra útvarpi og
fleiri hátölurum, hemlalæsivöm og
fleim hækkar verðið nokkuð eða
uppí kringum 3,3 milljónir króna.
Það er því ljóst að Ram á fullt
erindi á jeppamarkaðinn hérlendis
enda þótt hann sé í nokkurri yfír-
stærð ef svo má segja því þetta
er fyrst og fremst fjölhæfur, kraft-
mikifl og vel búinn bíll. ■
Jóhannes Tómasson
PALLURINN er nærri 2,50 m á lengd en heildarlengd Dodge Ram er 5,69 metrar.
AÐBÚNAÐUR er ágætur i farþegarýminu og Ram er búinn ýmsum þægindum
eins og hraðafestingu og öryggistækjum eins og liknarbelg.