Morgunblaðið - 11.01.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
KORFUKNATTLEIKUR
Booker og Bow
í eins leiks bann
FRANC Booker, leikmaður UMFG, og Jonathan
Bow, leikmaður Vals í úrvalsdeildinni, voru í gær
úrskurðaðir í eins leiks bann vegna brottvísunar
í leik liðanna á fimmtudaginn í síðustu viku.
Fulltrúar félaganna mættu fyrir aganefnd KKÍ
í gær og héldu uppi vömum fyrir þá, þar sem
mörfum fannst brot þeirra ekki þess eðlis að
beita ætti brottvísun, en allt kom fyrir ekki.
Aganefnd dæmdi þá í eins leiks bann sem tekur
gildi á hádegi á föstudaginn. Franc Booker miss-
ir af undanúrslitaleik Grindvíkinga og Kefivík-
inga á sunnudaginn en leikurinn fer fram í
Grindavík. Jonathan Bow missir hins vegar af
leik Hauka og Vals í Hafnarfirði fímmtudaginn
19. janúar.
KNATTSPYRNA
Örebro vill fá
Hlyn Birgisson
Sænska úrvalsdeildarfélagið
Örebro, en þeir Amór Guðjo-
hnesen og Hlynur Stefánsson leika
báðir með liðinu, hefur boðð Hlyni
Birgissyni frá Þór á Akureyri að
koma til Svíþjóðar og æfa með lið-
inu. „Forráðamenn liðsins höfðu
samband og vildu fá mig út til
æfinga. Liðið hefur verið að leita
að varnarmanni og hafði áhuga á
Guðna Bergssvni en buðu mér um
daginn að koma og ég reikna fast-
lega með að ég fari,“ sagði Hlynur
í samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi.
Hlynur er meiddur sem stendur
og getur því ekki farið alveg strax.
„Bg er ekki leikfær eins og stend-
ut', það eru tognuð liðbönd í hnéi
þannig að það hefur engan tilgang
að fara strax. Ég á eftir að heyra
frá forráðamönnum félagsins og ef
þeir sætta sig við að mér seinki
örlítið þá fer ég út um mánaðamót-
in,“ sagði Hlynur.
Hann sagðist vera að reyna að
ná sér góðum af meiðslununt og
það kæmi ekki til greina að fara
nema h_ann væri orðinn fullkomlega
heill. „Ég á von á að það sé stutt í
að ég verði góður og ég fer ekki
út nema hundrað prósent heill. En
ég er alveg tilbúinn í að fara og
leika með Örebro, það væri gaman
að hafa þtjá íslendinga í liðinu,"
sagði hann.
Órebro kom mjög á óvart í
sænsku úrvalsdeildinni á síðustu
leiktíð og varð liðið í öðru sæti.
Gudmundur til AIK
Guðmundur Benediktsson, landsliðsmaður úr Þór
á Akureyrim, fer til Svíþjóðar á mánudaginn
þar sem hann mun æfa í vikutíma með úrvalsdeildarl-
iði AIK í Stokkhólmi, en félagið bauð honum á dögun-
um að koma til sín til æfinga eins og skýrt hefur
verið frá. „Ég ætla að skjótast aðeins til Stokkhólms,
fer út á mánudaginn og æfí með liðinu út næstu viku,“
sagði Guðmundur í samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi.
Hann sagðist ekkert vita um framhald málsins,
félagið hefði boðið sér að koma að æfa og það væri
alveg sjálfsagt að nota tækifærið fyrst hann hefði
fengið boðið og fara og æfa, enda væru aðstæður á
Akureyri til æfinga þessa dagana ekki burðugar.
■■■ . J ■ !■’
■:■: ■ ■ ■ ■
|H!
Hlyni Birgissyni hefur verið boðið að koma og æfa með nafna
sínum Stefánssyni, Arnðri Guðjohnsen og félögum hjá Örebro.
Keegan seldi Andy Cole frá Newcastle til Manchester United fyrir metupphæð
Ég ræð hér - ekki þið
Andy Cole var seldur í gær frá
Newcastle til Manchester Un-
ited og er nú dýrsti leikmaður-
inn í ensku knattspyrnunni.
Andy Cole var seldur frá New-
castle til Manchester United
fyrir metupphæð innan Bretlands í
gær. Kaupverðið var sex milljónir
punda (liðlega 700 millj. kr.) auk
þess sem Newcastle fékk Norður-
Irann Keith Gillespie sem metinn
er á milljón pund.
„Ég hefði ekki farið neitt ann-
að,“ sagði Englendingurinn Cole,
sem er 23 ára miðheiji og hefur
gert 68 mörk fyrir Newcastle síðan
hann kom til félagsins fyrir 22
mánuðum. Hann gerði samning við
United til fimm og hálfs árs og er
27. leikmaðurinn sem Alex Fergu-
son kaupir á þeim átta árum sem
hann hefur verið yfirþjálfari United,
en fyrir þá hefur hann greitt um
32 milljónir punda. „Það kom okkur
á óvart að fá ekki afsvar frá Kevin
Keegan þegar ég talaði við hann á
föstudag," sagði Ferguson. „Við
hófum viðræður vegna þess að
Kevin hafði mikinn áhuga á að fá
Keith Gillespie. Við urðum að hug-
leiða málið því hann er góður ungur
leikmaður en stundum verður að
fórna einhveiju fyrir annað. Hins
vegar hvarflaði aldrei að okkur að
við fengjum Andy en þegar verið
er að ræða um enska miðherja þá
fengum við þann besta.“
Cole hefur ekki skorað í síðustu
níu leikjum en hann sér fram á
bjartari tíð. „Þetta er frábært og
ég hlakka til að sjá hvað kemur
út úr þessu á næstu árum. Vissu-
lega kom þetta á óvart því ég átti
ekki von á að Newcastle léti mig
fara til ensks félags en þegar ég
vissi hug Fergusons ákvað ég að
slá til.“ United sækir Newcastle
heim í deildinni á sunnudag og var
samið um að Cole og Gillespie yrðu
ekki með í leiknum.
Keegan sagði að tilboðið hefði
verið of gott til að hafna því og
bætti við að Gillespie gæti átt
glæsta framtíð fyrir höndum.
„Hann er sennilega besti leikmaður-
inn sem ég hef séð á hans aldri
undanfarin þijú át'. Ég hef verið
að hugsa um að með framtíð félags-
ins í huga yrði ég að gera breyting-
ar og þetta var kærkomið tæki-
færi.“
Fregnunum um söluna var ekki
vel tekið hjá áköfum stuðnings-
mönnum Newcastle. „Þetta er áfall
fyrit' okkur öll,“ sagði David
Craggs, formaður stuðningsmanna-
félags Newcastle í London. „Við
höfum ekki enn meðtekið að Andy
Cole hefur þegar leikið síðasta leik
sinn fyrir félagið. Það sem við þurf-
um nú á að halda er verðugur eftir-
maður, einhver eins og Stan Colly-
more.“ Talið er að næsta skref
Keegans verði að bjóða aftur í Chris
Armstrong hjá Crystal Palace og
Les Ferdinand hjá QPR.
Um 30 stuðningsmenn hópuðust
unt Keegan fyrir utan völl New-
castle og heimtuðu skýringar á söl-
unni. Mikill hiti var í mönnum en
Keegan sagði að starfínu fylgdi að
taka erfíðar ákvarðanir og hann
vildi eyða peningum skynsamlega í
rétfa leikmenn. Sumir fordæmdu
söluna en Keegan sagði að stuðn-
ingsmennirnir ættu ekki að segja
sér fyrir verkum. „Ég ræð hér -
ekki þið.“
HANDKNATTLEIKUR: AÐEINS ÞRÍR LANDSLEIKIR KLÁRIR FRAM AÐ HM í MAÍ / C2