Morgunblaðið - 11.01.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.01.1995, Blaðsíða 1
BRAMPARARj ÞRAUTIR \ Heimilisfang: MYNDASÖGUR MOGGANS Morgunblaðinu Kringlunni 1 103 Reykjavík PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS_________MIÐVIKUDAGUR 11. JANUAR 1995 Lita- og sögumyndakeppnin Kjörísaland Hjarta, sól, hús og hóll UjÚN er skemmtilega litrík ® * myndin sem Birna Erl- ingsdóttir, 5 ára, sendir. Við sjáum gult hjartalagað ský á myndinni, hús með strompi, sem minnir á ís með súkkulaði- hjúp, sólin er glettin og rekur tunguna út úr sér, en við vitum ekki alveg hvað fjórði hlutur- inn á myndinni er. Sjáum við kannski inn í grænan álfahól, þar sem rauðar súlur með gylltum hurðarhúnum prýða innganginn? Sögur og litaðar teikningar streyma inn í lita- og sögu- myndakeppnina, sem lýkur 11. EINU sinni voru þrír ísar. Einn hét Gulur, annar hét Græni, þriðji Vani. Þeir bjuggu á landi sem heitir Isaland. Einn dag í júní fóru þeir saman í ferðalag til lands sem heitir Kjörland. Þar hittu þeir þrjár Hlunkastelpur. Þau janúar. Úrslitin verða því birt 18. janúar, eða í næsta blaði. Hér kemur ein saga um íspinnana: ákváðu öll að gifta sig. Nú búa þau öll saman í sátt og samlyndi í landi, sem þau ákváðu að skíra Kjörísaland. Anna Lilja Gísladóttir 7 ára Drápuhlíð 45, Reykjavík. Asni í eyðimörk UJÁLPIÐ litla asnanum, sem villtist út í eyðimörkina, til að ■ ® finna leiðina að ánni. Hvers vegna bílveiki? IJVERS vegna þjást sumir krakkar af bílveiki? SVAR: Augun flytja heilanum þau boð, að þú sitjir kyrr. En frá sérstökum hlutum eyrans berast f\~. heilanum boð um að allt sé á hreyfingu. Líffærin 4 y o vita ekki sitt ijúkandi ráð og þér fer að líða illa. Pollýanna og „þríburarnir“ l^æru Myndasögur Moggans! Við teiknuðum myndir til að senda ykkur, en okkur finnst mjög gaman að teikna. Svo sendum við ljósmynd sem mamma tók, þegar við vorum að þykjast vera þríburar. Á mynd- inni eru: Lilja Osk Diðriksdóttir, Ástráður ísak Lárusson, Sirrý Margrét Lárusdóttir og hund- urinn Pollýanna. Sirrý Margrét og Ástráður eru systkin og eiga hundinn Pollýönnu. Þau eru öll bestu vin- ir. Uppáhaldsfrænka þeirra er Lilja Ósk, sem býr í Noregi, en heimsækir þau annað slagið. Okkur finnst ofsalega gaman að blaðinu ykkar. Sirrý Margrét og Ástráður ísak, Dofrabergi 7, Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.