Morgunblaðið - 12.01.1995, Page 1

Morgunblaðið - 12.01.1995, Page 1
u I BLAÐ ALLRA LANDSMANNA flbnagmtliIiiMfe 1995 JUDO FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR BLAD D KNATTSPYRNA Nantes óstöðvandi NANTES er með 10 stiga forskot á toppnum í frönsku deildinni eftir 3:0 sigur gegn meisturum PSG í París í gærkvöldi. Sem fyrr var spil Nantes augnayndi og eftir að miðjumaðurinn Daniel Bravo var rekinn af velli um miðjan fyrri hálfleik sáu heimamenn ekki til sólar. Bakvörðurinn Patrice Colleter fékk að sjá rauða spjaldið undir lokin en þá voru úrslitin ráðin og titilvonir PSG litlar sem engar. Þetta var fyrsta tap PSG á heimavelli í meira en ár en Nantes hefur leikið 23 leiki í röð án taps og nálgast franska met PSG frá því í fyrra sem er 27 leikir. Patrice Loko kom gestunum á bragðið eftir hratt spil upp hægri kantinn og síðan nýtti Japhet N’Dor- am sér mistök varnarmannsins Joses Cobos og bætti við tveimur mörkum eftir hlé. Eric Loussou- arn, þriðji markvörður Nantes, fór í markið skömmu eftir hlé þegar Dominique Casagrande meiddist en hann var vandanum vaxinn. Vemharð Þorleifsson fékk styrkfrá Ólympíusamhjálpinni Æfir í hálft ár á Spáni Vemharð Þorleifsson júdókappi úr KA á Akureyri hefur fengið styrk frá Ólympíusamhjálpinni til að stunda æfingar næsta hálfa árið í sérstökum æfingabúðum á Spáni. Vernharð heldur til Spánar í dag og mun vera við æfingar við Barcel- ona fram í ágúst. „Þetta er mjög ánægjulegt og virðist nokkuð spennandi. Öll að- staða þama virðist vera eins góð og kostur er enda em æfingabúðim- ar alveg nýjar og ætlaðar íþrótta- mönnum frá þriðja heiminum," sagði Vernharð í gær. Hann sagði að pláss væri fyrir 325 íþróttamenn í æfíngabúðunum og að þessu sinni yrðu þar eitthvað um 50 til 75 júdó- menn, en alls væm menn úr sjö íþróttagreinum i' búðunum að þessu HANDBOLTI Héðinn áfram í bikarnum Héðinn Gilsson og félagar í Dusseldorf sigruðu Gum- mersbach, lið Júlíusar Jónasson- ar 20:19 í átta iiða úrslitum bik- arkeppninnar í Þýskalandi í gærkvöldi og gerði Héðinn sig- urmark heimamanna er 12 sek- úndur vom eftir af leiknum. „Þetta gekk vonum framar. Ég ætlaði bara að spila í nokkr- ar mínútur til að sjá hvemig ég væri — kom svo inná eftir tíu mínútur og lék það sem eftir var í vöminni. Ég skaust fjómm sinnum í sóknina og gerði tvö mörk,“ sagði Héðinn en hann og Júlíus vom báðir að leika fyrstu leiki sína eftir meiðsli. „Júlíus átti mjög góðan leik og er mikilvægur fyrir liðið því það byggir mikið á honum. Ég veit ekki hvað hann gerði mörg mörk en við áttum í vandræðum með hann,“ sagði Héðinn. sinni. Þeir sem komast í þessar æfingabúðir þykja efnilegir og eru taldir eiga framtíðina fyrir sér á Ólympíuleikum. Vernharð fékk styrkinn frá Ólympíusamhjálpinni í gegnum al- þjóða júdósambandið en þannig kemst í mesta lagi einn frá hveiju landi að. Styrkurinn er fyrir flugfar- inu, uppihaldi, æfingagjöldum og einnig fær hann dagpeninga. „Nú verður maður bara að sýna framfar- ir því þá er hægt að sækja um fram- hald í aðra sex mánuði," sagði Vern- íiarð. Hann sagði einnig að trúlega væri ódýrara að gera sig út á hin svokölluðu A-mót frá Spáni en frá íslandi, enda eru mótin haldin vítt og breitt um Evrópu. „Það eru ein tíu A-mðt næstu þijá mánuðina og ég verð að fara á þau til að fá ein- hveija punkta fyrir Heimsmeistara- mótið og Evrópumótið og síðar Ólympíuleikana. Þetta eru einu mótin þar sem maður getur aflað sér nauðsynlegra punkta,“ sagði Vernharð. Annar júdókappi, Halldór Haf- steinsson, er nýfarinn til Kanada þar sem hann mun æfa í mánuð, en júdósambandið hefur verið að reyna að koma honum líka inn hjá Ólympíusamhjálpinni og vonast menn þar á bæ til þess að það takist. ÞOLFIMI Morgunblaðið/Ami öæberg Vernharð Þorleifsson verður vlð æfingar á Spáni næstu mánuði. Móti umboðsmanns IAF frestað fram í mars FRJALSAR Islandsmótið í þolfími fer fram í Háskólabíói nk. laugardalskvöld og verður það í fyrsta sinn haldið undir merkjum Fimleikasambands íslands en keppt verður eftir nýjum reglum Alþjóða fimleikasambands- ins. Keppnin hefur farið fram á vegum umboðsmanns Alþjóða þol- fimisambandsins, IAF, árlega síðan 1992 og ætlaði hann að halda sitt mót annað kvöld en fáar þátttöku- tilkynningar bárust og hefur því móti, svo nefndu Suzuki-móti, verið frestað fram í mars. Metþátttaka er á íslandsmótinu að þessu sinni en keppt verður í einstaklingskeppni karla og kvenna, parakeppni, tvenndar- keppni og hópakeppni auk þess sem keppt verður í flokki unglinga í fyrsta sinn. Alþjóða fimleikasambandið og IAF hafa ákveðið að vinna saman í framtíðinni og er stefnt að því að reglurnar verði sameiginlegar eftir tvö ár. Fyrsta heimsmeistaramótið á þeirra vegum verður í París í haust og öðlast íslandsmeistari þar þátttökurétt sem og á Evrópumót- inu eftir nokkrar vikur þar sem Magnús Scheving, íþróttamaður ársins 1994, stefnir á að veija Evr- ópumeistaratitilinn. Okeke aftur fallinn ályfja- prófi Norski spretthlauparinn Aham Okeke, sem var meinuð þátt- taka í Evrópumeistaramótinu í fijálsíþróttum í fyrra eftir að hafa fallið á lyfjaprófi sem tekið var á stigamóti skömmu áður, féll aftur á slíku prófi í desember. Norska fijálsíþróttasambandið tilkynnti þetta í gær. Norska íþróttasambandið hreins- aði Okeke vegna lyfjamálsins frá því á stigamótinu í Stokkhólmi fyr- ir EM — taldi hann ekki hafa neytt óleyfilegra lyfja viljandi. En hlaup- arinn var svo fýrirvaralaust tekinn í lyfjapróf 5. desember síðastliðinn, í Texas í Bandaríkjunum þar sem hann stundar nám og niðurstaðan var sú sama og í fyrrasumar. „Það er enginn vafi á því að hér er um að ræða jákvæða niðurstöðu úr lyfjaprófi," sagði Lars Martin Kaup- ang, forseti Norska fijálsíþrótta- sambandsins. Kaupang sagði að mikið magn af hormóninu testósterón hefði mælst að þessu sinni og ætti hlaup- arinn fjögurra ára bann ýfir höfði sér en niðurstöður úr seinna sýninu eiga að liggja fyrir á morgun. Al- þjóða fijálsíþróttasambandið gagn- rýndi Norðmenn fýrir að hafa hreinsað Okeke, sem segist vera saklaus, að sögn Kaupangs. Okeke flutti frá Nígeríu til Nor- ■egs 1982 og fékk norskan ríkis- borgararétt sex árum síðar. Þegar hann var 16 ára hljóp hann 100 metrana á 10,4 sekúndum. Fyrir tveimur árum fór hann í nám til Texas og bætti sig, fékk tímann 10,33, en hljóp best á 10,19 í fyrra. Þegar hann féil fyrst sagðist hann hafa tekið inn meðal sem hann hefði fengið frá sjúkraþjálfara sín- um vegna meiðsla en tilkynnti Fijálsíþróttasambandi Noregs ekki frá því eins og hann hefði átt að gera. Þá trúðu Norðmenn honum en nú er annað upp á teningnum. KÖRFUKIUATTLEIKUR: 257 STIG ÞEGAR ÞÓRSARAR SIGRUÐU SKAGAMENN / D4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.