Morgunblaðið - 13.01.1995, Side 6
6 D FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ORÐSTÍR flugfélagsins hefur leitt til að ferðamönnum til Dubai
hefur fjölgað. Ferðir út í eyðimörkina og vinjar þar hafa m.a.
orðið vinsælar.
Emirates græðir
EMIRATES, flugfé-
lag Dubai, hefur
kunngert að hagnað-
ur þess fl'árhagsárið
1993-94 hafí verið
24,4 millj. dollara
miðað við 2,9 milljón-
ir dollara árið á undan. Forstjóri
Emirates, Ahmad bin Saeed A1
Aktoum, kveðst búast við að næsta
ár verði a.m.k. ekki lakara, en því
lýkur 31. mars nk.
Forstjórinn segir að 23% fjölgun
farþega hafí orðið á þessum tíma
og vöruflutningar hafí orðið 26,9%
meiri. Þetta er í fyrsta skipti sem
Emirates birtir tölur um rekstur
síðan það var stofnað fyrir tíu árum.
Ahmad segir að aðeins eitt ár hafí
orðið tap, þ.e. annað árið og þá 6,5
milljón dollara. Öll hin hafí komið
út með hagnaði.
Emirates gat sér fljótlega mikið
og gott orð fyrir frábæra þjónustu
við farþega, öryggi og stundvísi og
hefur það hlotið margvíslega viður-
kenningu þeirra sem starfa í ferða:
þjónustu og þeirra sem ferðast. 1
fýrra var Emirates t.d. valið Flugfé-
lag ársins af lesendum breska
ferðablaðsins Executive Travel.
Gott orðspor hefur einnig orðið
til að vekja athygli á Dubai sem
ferðamannastað og hefur fjöldi
viðdvalarfarþega margfaldast og
mikil fjölgun orðið meðal almennra
farþega. ■
Upplýsingamiðstöð
Eystrasaltsríkia
EY STRAS ALTSRÍKIN þrjú, Eist-
land, Lettland og Litháen, hafa opnað
upplýsingaskrifstofu um ferðamál í
Helsinki. Verður verksvið hennar að
kynna löndin þijú og vinna að því að
fleiri ferðamenn sæki Eystrasalts-
löndin heim á næstu árum.
Forsvarsmenn skrifstofunnar segja
að hún eigi eftir föngum að fylgja-
málum eftir víðar en í Finnlandi. ■
Vofuskoðun hjá Byrons
DRAU GAKÖNNUNARFERÐ um
æskuheimili Byrons lávarðar,
Newstead Abbey, er hápunktur helg-
arferðar 4.og 5. febrúar, segir í
fréttabréfí breska ferðamálaráðsins.
Fyrst verður efnt til málþings í
Bestwood Lodge hóteli í Nottingham.
Síðan verða kynnt ýmis sönnunar-
gögn um tilvist framliðinna og at-
kvæðasemi þeirra á aðskiljanlegum
stöðum svo og lestrarefni um rann-
sóknir á yfírnáttúrulegum fyrirbær-
um. Leiðsögumaður í draugaskoðun-
arferðinni verða dr. David Cross sem
er dáleiðslusérfræðingur og Jenny
Bright miðill. Þetta kostar um 8
þúsund krónur. ■
Bfmæli Westminstei
MIKIL hátíðahöld verða í London í
ár til að halda upp á þúsund ára
afmæli Westminsterdómkirkjunnar.
Nefna má að efnt verður til alþjóð-
legrar tónlistarhátíðar og síðar á
árinu verður sett upp vegleg sýning
um sögu kirkjunnar. ■
Hversu
margir
eruum
hvern
lækni?
íbúar um lækni
Land 1993 1994
■ ' •" " ; ' v "» - • ■ x
Sviss 585 630
Kanada 446 501
Bandaríkin 420 420
Frakkland 333 350
Japan 610 610
Suður-Kórea 1070 1370
Macau 758 667
Tyrkland 1176 1260
Malasía 2410 2656
Saudi Arabía 700 660
Brazilía 847 684
íran 3140 3140
Mongólía 389 390
Kína 809 724
Ítalía 210 210
Pakistan 2000 2111
Indónesía 6786 11641
Nígería 5882 6650
Afganistan 7692 9091
Laos 4545 4380
Kambódía 16365 25000
Heimild: Asiaweek, 28. des. 1994.
FERÐALÖG
Með Ferdi í
fjaHasatari
MÉR VAR sagt að vera ferðbúin í
lobbýinu á La Cabana-hótelinu
klukkan 8.45 á laugardagsmorgni
þann 12. nóvember sl. því þangað
kæmi náungi að nafni Ferdi á sínum
fjallabíl og færi með mig um
óbyggðir Aruba-eyjunnar, sem
flfi Úrval-Útsýn býður nú sem
nýjan áfangastað fyrir íslend-
£WS >nga- Arubamaðurinn Ferdi,
öðru nafni Fernando Maduri,
lét mig ekki bíða lengi eftir sér
þrátt fyrir annasama daga, heldur
kom á tilsettum tíma og af stað
héldum við í „rykmettuðum" jeppan-
um hans. Hann fullvissaði mig um
að jeppinn stæði fyrir sínu. Hann
færi þær vegleysur, sem aðra
dreymdi ekki einu sinni um að kom-
ast, og það stóð eins og stafur á bók.
Ferdi rekur sitt eigið fyrirtæki,
sem hann kallar Corvalou Eco Tours,
og gerir út á túrisma, eins og svo
margir aðrir á ferðamannaeyjunni
Aruba, en hann kýs að hafa skoðun-
arferðimar sínar á persónulegum
nótum og segist aldrei taka fleiri en
sex í einu. Með því móti gefist hon-
um kostur á að uppfylla þarfir hvers
og eins og ekkert þyrfti endilega að
vera fyrirfram skipulagt. Hann fari
bara þangað sem hugur farþeganna
stæði til hveiju sinni.
Þegar við höfðum ekið smáspöl
frá hótelinu tilkynnti Ferdi mér að
samferðarmenn okkar þennan dag
yrðu öldruð hjón frá Englandi. Hann
héti Richard og hún Jean. Yndælis-
hjón, hann fyrrum prestur og hún
tónlistarkennari, ættu sex uppkomin
FERDI teygir sig eftir kakt-
usávexti.
börn, fímm syni og eina dóttur. Þau
sögðu mér að fjölskyldan væri mjög
tónelsk. Tveir af sonunum væru í
hljómsveit bresku konungsfjölskyld-
unnar og ferðuðust m.a. á drottning-
arsnekkjunni Brittania þegar Breta-
drottning heimsótti ísland. Þrátt
Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir
NATURAL Bridge er eitt mesta stolt Aruba-búa.
HVERNIG
VAR FLUGIÐ
Hugleiöingar um dýrt
eða ódýrt ílug
lö.
Biman
BANGLADESH AIRUNES
rour home in the air
BIMAN- heimili þitt í háloftunum. Svo hljóðar
hið vinalega slagorð Bangladesh Airlines
FYRSTA og almenna reglan á Iang-
ferðalögum útí heim er sú að alltaf
er dýrast að fljúga stysta spottann;
frá Islandi og á stað fyrir tengiflug.
Þetta er það sem Flugleiðir og örlög-
in hafa skammtað íslenskum ferða-
löngum á þessari öld. Þegar Flug-
leiðaþröskuldurinn hefur verið yfir-
unninn bjóðast margir kostir.
í London, Kaupmannahöfn, Amst-
erdam og jafnvel New York er fjöldi
ferðaskrifstofa sem kunna að íeita
uppi ódýr fargjöld lengra út í hinn
stóra heim. Gott er að kynna sér
raunvirði fargjalda með því að lesa
bresku sunnudagsblöðin t.d. Sunday
Times. Þess ber þó að geta að sjaldn-
ast er maður svo heppinn að fá
lægsta fargjaldið til fjarlægra deilda
jarðar, takmarkanir eru í gildi þar
eins og annars staðar — en góður
fyrirvari hjálpar.
Þaö borgar slg ekki alltaf að
kaupa ódýrasta fargjaldlð
Flestir sem ferðast á eigin vegum
vilja spara og komast sem ódýrast.
Jafn eðlilegt og sjálfsagt og það er
verður að geta annmarka. „Ódýrasta
flugið“ getur verið svo erfítt að það
borgi sig alls ekki að taka það. Þessu
kynntist ég á flugleiðinni Kat-
hmandu-London í fyrra. Royal Nep-
al Airlines flýgur einu sinni til tvisv-
ar í viku fyrir ögn meira en önnur
sem bjóða 5-10 þús. kr. ódýrara
fargjald með millilendingu. Önnur
sem eru ódýrari eru t.d. Aeroflot,
sem virðist gera hvað sem er til að
fá erlenda dollaraborgandi farþega,
en þeim kosti hafnaði ég vegna 2
daga dvalar í Moskvu sem ég hafði
ekki efni á.
Næst kom flugfélagið Biman,
flugfélag Bangladesh. Það flug var
tiltölulega ódýrt og leit ekki illa út
á pappímum 8 vikum fyrir brottför
frá Kathmandu.
Flogið var fyrst í
rúma klukkustund
til Dhaka, beðið þar
á hóteli í nokkra
tíma og síðan var
beint flug til Lon-
don
Þetta var hin
mesta píslarganga.
Flugið frá Kathmandu til Dhaka var
ánægjulegt. En þá tók við óendanleg
röð gegnum vegabréfseftirlit og toll,
langar biðraðir við fólksflutningabíla
sem aldrei ætluðu að komast á gisti-
stað og svo hrikaleg barátta við
starfsmenn hótelsins sem þurftu að
skrá hvern einasta farþega með
vegabréfsnúmeri og öllu til 6 tíma
dvalar. Hópurinn sem var úrillur og
þreyttur þegar hér var komið sögu
fékk sérlega illa útilátinn kvöldverð
fyrir 2-3 tíma svefn á kaldranalegum
herbergjum áður en ræst var út í
rútur á ný.
Á vellinum var örtröð til að koma
sér í gegn með allan farangur. Loks
þegar vélin komst á loft var tilkynnt
að hún væri á leið til Dubai í 5 klst.