Morgunblaðið - 14.01.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 14.01.1995, Síða 1
I BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1995 ■ LAUGARDACUR 14. JANÚAR BLAÐ ISHOKKI Leikmenn NHL samþykktu til- boð eigenda LEIKMENN NHL-deildarinnar í íshokkí samþykktu í gær lokatilboð eigenda félaganna. Þar með er ljóst að keppni hefst í næstu viku en hefðu leikmennirnir feilt tilboðið hefði ekkert orðið af keppni í vetur. 26 lið eru í deildinni og hófust þegar æfmgar en fyrstu leikirnir verða á föstudag. Hins vegar átti deildin upphaflega að hefjast 1. október sl. og hefur deildin aldrei legið eins lengi niðri. í staðinn fyrir 84 umferðir verða þær 48 fyrir úrslitakeppnina sem verður með hefðbundnum hætti. Um 700 leikmenn eru samningsbundnir félögum í deildinni og var mikill meiri hluti samþykkur tilboð- inu en nákvæmar tölur lágu ekki fyrir í gærkvöldi. SKÍÐI rr: ,ií ri' Kristinn Björnsson skaut heimsþekktum skíðamönnum ref fyrirrass í Austurríki Sigraði á sterku risasvigsmóti KRISTINN Björnsson frá Ólafsfirði sigraði ígær á opna hol- lenska meistaramótinu í risasvigi, sem fram fór t Flachau í Aust- urríki og telst stigamót alþjóða skíðasambandsins — FlS-mót. Kristinn var með 43 punkta í risasvigi fyrir mótið. Hann fær lík- lega 15 punkta fyrir sigurinn, þannig að Ijóst er að mótið er sterkt. Einn besti skíðamaður Svía í dag, Fredrik Nyberg, varð í öðru sæti á mótinu og landi hans, Tobias Hellman, varð þriðji, en þeir eru báðir í heimsbikarliði Svía. Kristinn var í sjöunda himni er Morgunblaðið náði sambandi við hann. „Þetta er lang besti árangur sem ég hef náð — maður er varla búinn að átta sig á þessu ennþá,“ sagði hann. Kristinn var annar í rásröðinni, og beið því í markinu eftir að keppinautarnir spreyttu sig hver af öðrum. „Þetta var spennandi og úrslitin kom þeim öllum á óvart, hvað þá mér.“ Nokk- uð snjóaði meðan keppnin fór fram, en Kristinn sagði brautina hafa KNATTSPYRNA Cruyff Weah Weah knattspymu- maður Afríku GEORGE Weah, Líberíumaðurinn hjá París SG í Frakklandi, var kos- inn knattspymumaður Afríku 1994, í árlegri kosningu franska blaðsins France Football. Hann hlaut 148 stig en næstur kom Emmanuel Amunike, Nígeríu, með 133 stig en hann leikur með Sporting Lissabon í Portúgal. Cryuff umkyrrt SAMNINGUR Johans Cryuffs, hol- lenska þjálfarans hjá Barcelona, sem átti að renna út vorið 1996, hefur verið framlengdur um eitt ár. Það er því ljóst að hann starfar að minnsta kosti hjá spænsku meistur- unum til vors 1997. verið góða. „Ég fór snemma niður og fékk því mjög góða braut. Gat gert það sem ég vildi, keyrði djarft og allt gekk upp. Ég gerði engin mistök — það hlaut að koma að því að allt smylli saman hjá mér.“ Tími Kristins var 1 mínúta, 16,39 sekúndur, Nyberg fór á 1.16,57 og Hellmann fór á 1.16,70 mín. Þess má geta að Nyberg þessi er í fyrsta ráshópi í heimsbikarkeppninni í risasvigi, og því einn af 15 bestu mönnum heims í þeirri grein. Hann BIKARMEISTARAR FH íhand- knattleik taka á móti danska liðinu GOG í átta liða úrslitum Evrópukeppni bikarhafa í Kaplakrika kl. 16.30 í dag. Hafnfírðingarnir hafa fullan hug á að minnast 30 ára tímabils í Evrópukeppni með eftirminnileg- um hætti og leggja allt í sölurnar til að komast í undanúrslit. Til að eiga raunhæfa möguleika telja þeir sig þurfa að sigra með fjögurra til sex marka mun í dag, að sögn fyrir- liðans Guðjóns Árnasonar. FH-ing- ar hafa leikið 72 leiki í Evrópu- keppni til þessa og ekki tapað á heimavelli síðan gegn Krasnodar tímabilið 1988 til 1989. hefur tvívegis sigrað á heimsbikar- móti, í bæði skiptin í stórsvigi, þrisvar orðið í þriðja sæti og tvisvar fjórði, alltaf í sömu grein. Þess má og geta að hann varð áttundi í stór- svigi á Ólympíuleikunum í Albert- ville 1992. Nyberg kom til íslands sl. vor og keppti á tveimur alþjóð- legum stórsvigsmótum á Akureyri. Svíinn sigraði í bæði skiptin, en Kristinn Björnsson varð þá annar á fyrra 'mótinu en féll úr keppni í því síðara. Allir íslensku keppendurnir bættu punktastöðu sína á mótinu í gær. Vilhelm Þorsteinsson varð í 18. sæti á 1.18,48 mín., Arnór Gunnarsson 25. á 1.19,33, Gunn- laugur Magnússon 33. á 1.20,61 og Haukur Arnórsson 38. á 1.21,15 mín. Sterkt lið Lið GOG hefur leikið mjög vel að undanförnu, sigraði nýlega dönsku meistarana í Kolding mjög örugglega og er í efsta sæti deildar- innar ytra. Hér er því greinilega á ferðinni verðugur andstæðingur fyrir íslensku bikarmeistarana. Bestu menn liðsins eru landsliðs- mennirnir Nikolaj Jakobson og Claus Jacob Jensen, sem léku báðir vel gegn Islandi í landsleikjum fyr- ir skömmu. Þjálfari GOG er Bent Nygaard, sem starfði hér á landi í nokkur ár á síðasta áratug, sem þjálfari Fram og ÍR- HANDKNATTLEIKUR FH treystir á heimavöHinn gegn Dönunum Það besta til þessa KRISTINN Björnsson náðl besta árangrl sínum til þessa með sigrl opna hollenska meistaramótinu í risasvigi í Austurríkl í gær. ÞJONUSTUGJOLD ALLT AÐ 760 ÞUSUND KR. HJA HANDKNATTLEIKSDEILDUM / D2 +

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.