Morgunblaðið - 17.01.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 17.01.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA B 1995 ÞRIDJUDAGUR 17.JANUAR BLAÐ Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Fimleikar, jassballet, dans og þolfimi IRMA Gunnarsdóttir í æfingu sinni á ísiandsmeistaramótinu í þolfimi, en hún hafnaði i öðru sæti í kvennaflokki. Irma stundaði fimlelka á yngri árum hjá Gerplu, hefur undanfarin ár stundað jassballett og dans, var meðal ann- ars fastur dansari hjá íslenska jassballettflokknum. ■ Umsögn um íslandsmótið / B2,B4,B5,B6 Kristinn varð fjórði og fékk 20 stig KRISTINN Björnsson, skíðamaður frá Ólafs- firði, varð í fjórða sæti í svigi á móti í Austur- ríki á laugardaginn og hlaut fyrir 20 FIS stig, og er þetta besti árangur hans í svigi til þessa. Vilhelm Þorsteinsson frá Akureyri og Arnór Gunnarsson frá Isafirði kepptu einnig í mótinu og urðu í 14. og 15. sæti og fengu báðir 40 stig fyrir þann árangur og bættu punktastöðu sína. Svigmótið var sterkt, 11 FIS stig, og sagði Kristinn að þrír sterkir skíðamenn frá Slóveníu hefðu orðið í efstu sætum. „Ég var fjórði eftir fyrri ferðina og hélt því í þeirri síðari. Þetta er besti árangur minn í svigi til þessa, ég átti áður 25 punkta í einu móti fyrir tveimur árum. Ég er mjög ánægður með þennan árangur og Vilhelm og Arnór voru einnig að bæta sig þann- ig að þetta er góður dagur fyrir íslenska skíða- menn,“ sagði Kristinn. I gær kepptu þeir félagar í stórsvigi og varð Vilhelm í 15. sæti og náði ekki að bæta punkta- stöðu sína. Kristinn keyrði út úr brautinni í fyrri ferðinni. „Við fáum annað tækifæri í stórsvigi á sama stað á morgun [í dag] og ætlum að standa okkur betur þá,“ sagði Kristinn í samtali við Morgunblaðið í gær. Nenad hættur hjá Selfyssingum NENAD Radosavljevic, sem lék með Selfyssing- um í fyrstu deildinni í handknattleik, fékk ekki vegabréf sitt endurnýjað í Serbíu þegar hann var þar í jólafrii og mun því ekki leika meira með liði Selfoss í vetur. Nenad sendi símbréf fyrir viku þar sem hann segist ekki hafa fengið vegabréf sitt endurnýjað þar sem hann verði að vera viðbúinn því að vera kallaður til herþjón- ustu. Landi Nenads, þjálfarinn Jexdimir Stankovic, átti hins vegar ekki í neinum erfið- leikum með að komast úr landi og er mættur til leiks hjá Selfyssingum. Gunnlaugur Sveinsson, formaður handknatt- leiksdeildar Selfoss, sagði í samtali við Morgun- blaðið að vissulega væri þetta áfall fyrir liðið. Hann sagði að ekki dygði að leggja árar í bát, Einar Gunnar Sigurðsson væri byrjaður að æfa og vonandi væri liðið búið að fá sinn skerf í meiðslum og öðru slíku í vetur. „Við höfum verið með níu menn í meiðslum í vetur og ég held að það sé alveg nóg og vona að við sleppum það sem eftir er,“ sagði Gunnlaugur og bætti því við að Einar Gunnar yrði trúlega með í næsta leik, sem verður gegn KA. Júgóslavar koma JÚGÓSLAVAR hafa orðið við ósk Handknatt- leikssambands Islands — koma hiugað til lands í april og leika þijá landsleiki. Landsliðshópur þeirra verður þá samankominn í Júgóslavíu — heldur þaðan til Búlgaríu og flugleiðina til Vín- ar. HSÍ mun greiða ferðakostnað Júgóslava frá Vín til íslands og til baka. Enn er beðið eftir svari frá Egyptum um þrjá landsleiki hér á landi í apríl. LYFJAMISNOTKUN Austurríski hiauparinn Andreas Berger segir að frjálsíþróttir séu blekking Nánast allir á lyfium Þorbergur njósnar í Portúgal ÞORBERGUR Aðalsteins- son, landsliðsþjálfari i hand- knattleik, var í Braga til að fylgjast með Evrópuleik Hauka og Braga. Þar frétti hann af því að landslið Suð- ur-Kóreu verði á ferðinni í Portúgal í mars — leikur æfingalandsleiki gegn Port- úgölum. Þorbergur er ákveðinn að fara þá til Port- úgal til að fylgjast með landsliði Suður-Kóreu, sem leikur gegn íslenska liðinu á HM. Kanadíski spretthlauparinn Ben Johnson hefur tekið áskorun Austurríkismannsins Andreas Ber- gers um að þeir mætist á hlaupa- brautinni f Vöcklabruck nálægt Linz innan skamms, en þeir eru báðir í banni vegna lyfjamisnotkunar. „Eg vil skipuleggja þessa keppni til að koma þeim skilaboðum til allra að fijálsíþróttir eru blekking. Ég hef verið í frjálsum í þrettán ár, þekki innviðina og veit um hvað ég er að tala. Nær enginn fijálsíþróttamaður í heimsklassa lifir án lyfja og vanda- málið er ekki aðeins á meðal þeirra bestu,“ sagði Austurríkismaðurinn sem er 34 ára. „Allir, mótshaldarar og sambönd vilja að við hlaupum hratt og miklir peningar eru í boði. En það er vonlaust að hlaupa undir 10 sekúndum án hjálpar." Fijálsíþróttasamband Austurríkis hefur hótað að koma í veg fyrir að keppnin verði en Berger sagðist hafa mikinn stuðning á bak við sig, meðal annars frá borgarstjóranum. „Ég vil hlaupa og Ben vill hlaupa." Besti árangur Bergers í 100 metra hlaupi er 10,15 1988 og hann fór á sama tíma þremur vikum áður en' hann féll á lyfjaprófi í júlí 1993. John- son fékk tímann 9,79 á Ólympíuleik- unum í Seoul 1988 en hann féll þá á lyfjaprófi og tíminn var dæmdur ógildur. Alec Gardiner, formaður Fijáls- íþróttasambands Kanada, sagði að Johnson væri fijálst að gefa það sem hann vildi sem óbreyttur borgari og gaf lítið fyrir ummæli Bergers. „Þetta er eins og tveir krakkar á skólalóð og það má líkja þessu við það ef George Foreman færi aftur í hringinn ásamt einhveijum öðrum gamlingja." Um meinta lyfjaneyslu fijálsíþrótta- manna sagði hann: „Fólk einblínir ekki á heimsmet því minningarnar eru miklu meiri en tímarnir. Ég held að við höfum komið því til skila að við viljum að íþróttamennirnir hugsi um að bæta sig.“ HANDKIMATTLEIKUR: SVARTUR LAUGARDAGUR í HAFIUARFIRÐI / B4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.