Morgunblaðið - 18.01.1995, Page 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995
BLAÐ
Fyrirtæki
3 Swan Net á ír-
landi heimsótt
Aflabrögd
4 Aflayfirlit og
staðsetning
fiskiskipanna
Vidtal
5 Kevin McHugh
skipstjóri á Ver
onicu
Markadsmál
0 Stjórn fiskveiða í
Ástralíu tekin
miklu fastari tök-
um
ÝSAN SKOÐUÐ
Morgunblaðið/HG
HUN er sjaldan stór ýsan, sem þeir draga úr sjó írar og Skotar. Eirík-
ur Sigurðsson, skipstjóri á „smugutogaranum“ Hágangi komst að því
í síðustu viku, þegar hann var á ferð í írska sjávarplássinu Killybegs.
Hann var þar að kynna sér netagerðina Swan Net, en leit auðvitað við
á fiskmarkaðnum á staðnum. Að baki hans má grilla í Sigurbjörn
Guðmundsson frá Grindavík.
Síldarvinnslan hf. tekur
afurðalánin í Islandsbanka
STJÓRN Síldarvinnslunnar
Ákvörðun um breytingu «rfe“rSrííifaa4SfPti
var tekin í kjölfar útboðs g" f1sSí„tnumÆ
ákvörðun er tekin í kjölfar útboðs á afurðalánum. Síldarvinnslunni bárust tilboð
í þessi lánaviðskipti frá 5 aðilum, meðal annars eitt erlent fyrir milligöngu inn-
lends aðila. Síldarvinnslan hefur frá upphafi tekið afurðalán hjá Landsbanka
íslands, en árleg afurðalán fyrirtækisins nema 200 til 250 milljónum króna.
Onnur bankaviðskipti fyrirtækisins verða áfram við Landsbankann.
Finnbogi Jónsson, framkvæmda-
stjóri Síldarvinnslunnar, segir að af-
urðalánavextir séu snar þáttur í út-
gjöldum fyrirtækisins og því eðlilegt
að leitað sé tilboða í hagstæðustu kjör-
in. Miklvægt sé að lækka vextina og
það hefði tekizt með þessu útboði.
Hann vill hins vegar ekki tjá sig um
hver kjörin séu, segir það einkamál
fynrtækisins og bankans.
íslandsbanki er ekki með útibú í
Neskaupstað, en Landsbankinn hefur
verið þar með útibú um áraraðir. Hins
vegar var öll afgreiðsla afurðalána
Landsbankans á Austfjörðum flutt á
Eskifjörð á síðasta ári, að undanskild-
um Hornafirði, sem sækir þessa þjón-
ustu nú til Selfoss. Finnbogi segir að
það skipti litlu máli, þó íslandsbanki
sé ekki með útibú á staðnum. Það
breyti engu hvort skjöl vegna afurða-
lána séu send með símbréfi til Eski-
fjarðar eða Reykjavíkur.
Samkvæmt lauslegri áætlun nema
afurðalán sjávarútvegsins í heild allt
að 10 milljörðum króna að jafnaði. Er
þá miðað við heildarútflutningsverð-
mæti sjávarafurða um 86 milljarða
króna og að fyrirtækin séu að jafnaði
með um tveggja mánaða framleiðslu
í birgðum. Vextir eru mjög misháir
eftir því um hvaða erlenda mynt er
að ræða, en þeir eru á bilinu 6 til 9%.
Vextir af afurðalánum alls allt
að 900 milljónum króna
Utflutningsverðmæti tveggja mánaða
birgða gæti að meðaltali verið um 14
milljarðar króna og heimilt er að taka
lán sem svarar til 70% að verðmæti
birgða. Því gætu lánin að jafnaði num-
ið allt að 10 milljörðum og vextir af
þeim 600 til 900 milljónum króna.
Samkvæmt heimildum Versins eru
fleiri fyrirtæki að íhuga útboð á þess-
um lánaviðskiptum, sem Landbankinn
hefur að mestu annazt til þessa. Nú
er einnig heimilt að leita út fyrir land-
steinana eftir lánaviðskiptum af þessu
tagi.
Fréttir Markaðir
SÍF hf. eykur
saltfisköluna
• SÖLUSAMBAND ís-
lenskra fiskframleiðenda hf.
flutti út 29.230 þúsund tonn
af saltfisk- og skreiðaraf-
urðum árið 1994 sem er 10%
meira magn en árið áður.
Utflutningsverðmætið nam
7,3 milljörðum króna en var
6,5 milljarðar árið 1993.
Verðmætisaukningin nam
því 12,3%. /2
írskt risaskip
á makrílveiðar
• STÆRSTA fiskiskip íra,
Veronica, er nú að hefja sína
fyrstu veiðiferð. Veronica
er 106 metra löng og 18
metra beir. Frystigeta er um
200 tonn á sólarhring. Skip-
ið er byggt í Noregi og kost-
ar um 2,5 milijarða króna.
Kevin McHugh, skipstjóri og
eigandi Veronicu, segist
þurfa að fiska að minnsta
kosti 25.000 tonn á ári að
verðmæti um milljarður
króna. Hann segir í samtali
við Verið, að til greina komi
að stunda veiðar í „Síldar-
smugunni“ eða fara á karfa
á Reykjaneshrygg. Framtíð-
in leiði í ljós hvort hefðbund-
in makrílmið dugi./5
Stöðva ólöglegar
veiðar Spánverja
• „ÞAÐ væri of djúpt tekið
í árinni að segja að ég sé
ánægður með samkomulag-
ið um Irska hólfið. Við náð-
um þó viðunandi niðurstöðu
við erfiðar aðstæður og ég
ætla mér að stöðva allar
ólöglegar veiðar Spánveija
með þeim meðulum, sem
samkomulagið heimilar
okkur. Við höfum aukið eft-
irlit og þyngt viðurlög við
fiskveiðibrotum og ég tel að
það dugi,“ segir Hugh Co-
veney, sjávarútvegsráð-
herra írlands í samtalið við
Verið./8
Hjónavígsla
umborðítogara
• FÓLKI, sem langar til að
gera hjónavígsluna eftir-
minnilegri og öðruvísi en
venja er til, býðst nú að láta
gefa sig saman um borð í
enskum togara og í fullum
herklæðum ef svo má segja,
í stakki og stígvélum og með
sjóhatt á höfði. Hjónavígsl-
urnar fara fram um borð í
togaranum Ross Tiger en
hann er fljótandi safn og
hluti af Sjóminjasafninu í
Grimsby./8
Fiskilýsið
fer til Norges
og Hollands
• TVÖlöndskerasigúr
hvað varðar kaup áfiskilýsi
(búklýsi) héðan frá íslandi.
Það eru Noregur og Hol-
land, sem samtals eru með
þrjá fjórðu hluta alls út-
flutnings á síðasta ári. Til
Noregs fóru tæplega 28.000
tonn og rúmlega 23.000 til
Hollands. Nánast engin
loðnu veiði og vinnsla var í
Noregi í fyrra og hefur þörf
þeirra fyrir lýsi þess vegna
aukizt. Önnur ástæða auk-
innar þarfar er mikill vöxtur
í fiskeldi. í Hollandi fer lýs-
ið mikið í smjörlíkisgerð og
fleira þvíumlíkt. Af öðrum
löndum má nefna Frakk-
land, Bretland, Danmörku
og Spán.
Útflutningur á lýsi frá Íslandi1994 Til- Magn í tonnum - Hlutf.
Noregs Hollands Frakklands Bretlands Oanmerkur Spánar Kanada Annarra ríkja 27.690-34,8%|
23.444 - 29,4%|
I 8.792-11,0% | 6.762 - 8,5% □], 3.747- 4,7% □] 3.622 - 4,6% ]] 2.680- 3,4% □ 2.862-3,6% fej tonn
Mest flutt
utan í marz
Útflutningur á lýsi
frá Íslandi1994
• ÚTFLUTNINGUR á lýs-
inu er eðlilega misjafn eftir
mánuðum í samræmi við
veiðina. Mest fór utan í
marz, enda mest veitt í febr-
úar og marz í fyrra. Þá fóru
tæplega 14.000 tonn eða
nærri fimmtungur allrar
framleiðslunnar utan. Einn-
ig fór mikið út í desember,
þrátt fyrir að veiðin væri
lítil í haust, en þokkalega
veiddist seinnipart sum-
ars./6