Morgunblaðið - 18.01.1995, Side 1

Morgunblaðið - 18.01.1995, Side 1
1 BRANPARARj | ÞRAUTIR~j Heimilisfang: MYIMDASÖGUR MOGGANS Morgunblaðinu Kringlunni 1 103 Reykjavík PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSIIMS MIÐVIKUDAGUR 18. JANUAR 1995 Algjört sullumall! Kæra Morgunblað; Ég heiti Hrafnhildur Jó- hannesdóttir, kölluð Habbý. Við á myndinni erum núna 12 ára, en vorum 10 ára þegar hún var tekin. Ég er lengst til vinstri á myndinni, í miðjunni er Nanna Björg og íris Þöll lengst til hægri. Hrafnhildur á heima í Greni- byggð 28, 270 Mosfellsbæ. Þú segir ekki, Hrafnhildur, í hvaða leik eruð þið vinkonurnar á myndinni, og á hvaða árstíma er myndin tekin? — Eruð þið kannski svona kátar og glaðar af því að hlákan er komin — frostið og snjórinn er að fara? Gettu nú! 1. Þvottur gerir það óhreinna. Það er hreinna ef það hefur ekki verið í þvotti. - Hvað er það? 2. Þegar þú notar það, kastarðu því. Þegar þú hætt- ir að nota það, tekurðu það til þín aftur. - Hvað er það? 3. Það fer yfir hafíð, en ekki á 'skipi. Það kyssir hvert annað, en fínnur það ekki. Það giftist hvert öðru, en býr ekki saman. Það deyr, en er þó eftir sem áður lif- andi. - Hvað er það? Lausn í næsta blaði. Skrípapabbi 1 göngutúr með börnin Þessi skrípakarlamynd er um teiknar þessa frábæru mynd. horfa? - Skyldi strákurinn vera pabbann sem er úti að Það er engu líkara en hárið að vaða í rigningarpolli, og það ganga með börnin sín, “ segir á skrípapabbanum sé grasi gró- er eins og rigni eingöngu á Margrét Vilhjálmsdóttir, 11 ára, inn völlur uppi í skýjunum! - Á hann. - Hvað fínnst ykkur, Háhæð 8, 210 Garðabæ, sem hvað skyldi pabbinn vera að krakkar? LITA- OG SOGU SAMKEPPNIN Froskakóngurinn Einu sinni var konungsfroskur. ■■ Hann sat í hásæti sínu, þegar gíraffínn, ráðgjafi hans, kom og sagði við hann: „Það er kominn nýr api í landið og vill fá að tala við þig.“ Froskakóngurinn sagði: „Vísaðu honum inn!“ Apinn kom inn og froska- kóngurinn sagði við hann: „Hvað vilt þú mér, herra api?“ Apinn svaraði: „Kalla þú mig bara ALLA, yðar hátign. Ég ætl- aði bara að spyrja þig, hvort að ég megi verða aðalráðgjafi þinn?“ Þá svaraði froskakonungurinn: „Allir sem vilja verða aðalráð- gjafar hjá mér, verða að leysa þrjár þrautir. Fyrsta þrautin er að veiða heimsins stærstu flugu handa mér að éta. Önnur þrautin er að temja tryllt ljón og sú þriðja er að baka heimsins stærsta köku- hús.“ Þá sagði apinn: „Ég gjöri þess- ar þrautir þtjár.“ Konungurinn kallaði á ráðgjafa sinn til að fylgja apanum út. Apinn fór út í Flugumýri og veiddi stærstu fluguna sem hann sá. Svo fór hann út í skóg til að frnna tryllt ljón. Svo hófst hann handa við að finna það sem þurfti í kökuhúsið. Hann bakaði risa- stórt kökuhús og skreytti það mjög fallega. Síðan fór hann til froskakóngsins og sagði: „Ég hef leyst allar þrautimar þrjár. Nú fæ ég að verða aðalráð- gjafí þinn eins og þú lofaðir." Þá varð konungsfroskurinn vandræðalegur í framan og sagði: „En ég á ráðgjafa." Þá sagði apinn: „Þú lofaðirþví.“ Konungurinn kallaði aftur á gír- affann, aðalráðgjafa sinn og sagði: „Er í lagi að þú verðir þjónn?“ Þá gíraffinn sagði: „Eins og yður þóknast.” Apinn varð aðalráðgjafi froska- konungsins og svo lifðu þeir allir hamingjusamir alla ævi. Katrín Björgvinsdóttir skrifar þessa góðu sögu. Katrín á heima á Kópavogsbraut 49, 200 Kópa- vogi. Að teikna skrípakarl Þegar við horfum á frábæru skrípakarlateikninguna hennar Margrétar, er ekki úr vegi, að fleiri krakkar spreyti sig á að teikna skrípakarla. — Finnst ykkur það ekki góð hugmynd, krakkar?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.