Morgunblaðið - 21.01.1995, Side 1

Morgunblaðið - 21.01.1995, Side 1
 BLAÐ ALLRA LANDSMAIMNA fHmgtutlifafeto 1995 LAUGARDAGUR21. JANÚAR BLAD D HANDKNATTLEIKUR Leikir við Austur- ríki og Kúveit ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik leikur tvo leiki við Austurríki og einn við Kúveit hér á landi 28. - 30. apríl og verða það síðustu lands- leikir liðsins fyrir heimsmeistarakeppnina sem hefst 7. maí. Þorbergur Aðalsteinsson, lands- liðsþjálfari, sagði að landsliðið þyrfti að fátvo leiki til viðbótar. „Við gerum okkur vonir rnn að Egyptar komi hingað, en þeir hafa enn ekki svarað okkur. Ef þeir koma ekki erum við að spái í að reyna að fá tvo leiki við Dani fyrir mótið þar 24. - 26. april. Júgóslavneska landsliðið kemur ekki. Það var of dýrt að fá það hingað, en það hefði kostað HSI lun eina og hálfa mil\jón,“ sagði þjálfarinn. HANDKNATTLEIKUR i t Viggó Sigurðsson í herbúð- ir heimsmeistara Rússa Fékk boð frá landsliðsþjálfaranum Maksimov til að fýlgjast með lokaundirbúningi lyrir HM ' ' VIGGÓ Sigurðsson, þjálfari Stjörnunnar, verður í herbúðum heimsmeistara Rússa fyrir heimsmeistarakeppnina á ís- landi. Rússar hafa boðið Viggó, honum að kostnaðarlausu, að vera með landslið þeirra í loka- undirbúningi liðsins fyrir HM á íslandi, þegar þeir verða í æf- ingabúðum íÞýskalandi, leika þar landsleiki og leiki gegn þýskum félagsliðum. Það er mikill heiður fyrir mig að fá þetta boð og kynnast vinnu- brögðum þjálfarans Maksimov, sem er fremsti handknattleiksþjálfari heims og þjálfari hins geysilega öfluga liðs Rússa. Ég fæ tækifæri til að fylgjast með því besta og það er ekki ónýtt að fá tækifæri til að fylgjast með lokaundirbúningi Rússa, þegar þeir leyna engu, sagði Viggó, sem heldur til móts við rússneska liðið í Sviss 20. apríl, en Rússar taka þar þátt í fjögurra liða móti ásamt Svisslendingum, Spánverjum og fyóðverjum. Frá Sviss fer Viggó með liðinu í æfingabúðir í Þýskalandi, þar sem það mun æfa þrisvar á dag. Rússar koma síðan til íslands 2. maí og verða í æfingabúðum hér fram að fyrsta leik sínum. Ástæðan fyrir þessu boði Rússa er sú að Maksimov er mjög ánægður með hvað Dimitri Filippov, leikmaður Stjömunnar, er í góðri æfingu undir stjóm Viggós. Filippov var marka- hæsti leikmaður liðsins á keppnisferð þess í Þýskalandi á dögunum — skor- aði t.d. ellefu mörk utan af velli í leik gegn Bad Schwartau. f boðsbréfi sem Viggó fékk frá Rússum, segir að Maksimov hafi verið mjög ánægður með hvað Filippov væri í góðri æfíngu — að hann væri fyrsti leikmaðurinn sem hefur yfirgefið Rússland til að leika með liðum í Evrópu, sem hafí tekið framförum frá því að hann fór frá Rússlandi. „Fyrir það vill Maksimov þakka þér fyrir og hann bíður spennt- ur eftir að hitta þig,“ segir í bréfínu til Viggós. „Þetta er stórkostlegt tækifæri fyrir mig til að öðlast meiri reynslu og þekkingu sem þjálfari. Það er ekki hægt að hugsa sér betri skóla, en að fá að fylgjast með vinnubrögð- um Maksimovs," sagði Viggó. Viggó Slgurðsson hefur fengið frábært tækifærl til að bæta við þekklngu sína sem þjálfarl. Evrópumót heyrnarlausra á íslandi EVRÓPUMEISTARAMÓT heyrnarlausra í handknattleik fer fram hér á landi 10.-16. apríl. Fimm þjóðir taka þátt í mótinu; ísland, Þýskaland, Sví- þjóð, Danmörk og Ítalía. Dregið var um töfluröð þátttökuþjóða í íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær að viðstöddum tveimur fulltrúm frá evrópska hand- knattleikssambandi heyrnar- lausra, EDSO. Islendingar mæta Dönum í fyrsta leik mótsins 10. apríl og verður leikið í Víkinni. Þetta er í sjötta sinn sem Evr- ópumótið er haldið og í þriðja sinn sem ísland tekur þátt. Is- lenska liðið tók fyrst þátt í mót,- inu 1987 og hafnaði þá í neðsta sæti og vann ekki leik í mótinu. Á síðasta Evrópumóti, í Þýska- landi 1991, náði liðið góðum árangri og hafnaði í öðru sæti á eftir Þjóðveijum sem hafa unnið tvö síðustu mót. í 9« Morgunblaðið/Kristinn var dregið um töfiuröð þátttökuþjóða á EM heyrnar- lausra sem fram fer hér ó landi í apríl. Dóttir Trausta Jónsson- ar, markvarðar íslenska landsliðsins, fékk það hlutverk að draga. ítalinn Marlo Torcollnl, sem á sætl I tækninefnd EDSO, fylgdist með að allt færl eftir settum reglum. KNATTSPYRNA: EKKIFARARSNIÐ A GRAHAM FRÁ ARSENAL / D4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.