Morgunblaðið - 22.01.1995, Síða 1
KIA SPORTAGE SMÁJEPPINNREYNSLUEKINN- FJÓRÐI
HVERSELDURBÍLL TOYOTA - SAMDRÁTTURíSÖLUÁ
SPORTBÍLUM- VERÐMUNURÁ JEEP CHEROKEE
Toyota Corolla
1.199.000
Corolla Hatchback, 3ja dyra.
Nú geturðu eignastToyota Corolla
- á verði frá 1.199.000 kr.
1 ® TOYOTA
< Tákn um gœöi
1995
SUNNUDAGUR 22. JANÚAR
BLAÐ
gerbreytts Escorts
STRATUS er væntanlegur til landsins um mánaðamótin mars- apríl.
Dodge Stratus val-
inn bíll ársins í
Bandaríkjunum
CHRYSLER hreppti í ár hin eftir-
sóttu verðlaun í Bandaríkjunum
„Bíll ársins 1995“. Bílagagnrýnend-
ur völdu Chrysler Cirrus sem einnig
er framleiddur sem Dodge Stratus
sem bíl ársins og eru það 49 bíla-
gagnrýnendur virtustu bílablaða og
tímarita í Bandaríkjunum sem
standa að þessu vali, s.s. Automo-
tive News, Motor Trend, Car and
Driver, Fortune, Road & Track,
Newsweek, USA Today og fleiri.
Cirrus/Stratus þótti skara fram
úr í útliti, eiastaklega góðu innan-
rými, öryggisþáttum og góðum en
sportlegum aksturseiginleikum.
Dodge Stratus verður fáanlegur hér
á landi og reiknar umboðsaðili
Chrysler á íslandi, Jöfur hf., með
fyrstu bílunum um mánaðamótin
mars-apríl næstkomandi. Hann
verður boðinn með 2 lítra, 16 ventla,
132 hestafla vél, beinskiptur og 2,4
lítra, V6, 164 hestafla vél. Verð á
Dodge Stratus liggur ekki endan-
Iega fyrir.
17% minni bíla-
sala fyrstu tvær
vikurnar í janúar
bilsms og gefa honum sin serkenm.
Ford boðar komu
FORD boðar byltingu á
nýjum Escort sem á að
koma á markað innan
þriggja ára. Bíllinn
gengur undir dulnefn-
inu CW170 og með hon-
um vonast stjómendur
Ford til að skapa verksmiðj-
unum á ný orð fyrir að vera
ráðandi í útlitshönnun bíla. Bíllinn
verður smíðaður sem þriggja og
fjögurra hurða hlaðbakur, fjögutra
hurða stallbakur og tveggja hurða
blæjubíll. Einnig verður hann boðinn
með mörgum vélargerðum. Greint
var frá þessu í breska bílablaðinu
Car.
Allar útfærslur bílsins koma á
markað 1998. Vélarstærðimar verða
allt frá 1,2 lítra, fjögurra strokka
vél til tveggja lítra V6 vél. Minnstu
vélamar kallast Zetec, 1,2 lítra, 16
ventla og 60 hestafla og 1,4 lítra,
75 hestafla. Zetec 1,6 lítra, 16 ventla
vélin er 90 hestöfl en 1,8 lítra 115
hestöfl og 2,0 lítra vélin 140 hest-
öfl. Þá verðurl boði 2,0 lítra V6 vél
frá Mazda, 24 ventla sem skilar 165
hestöflum og ný díselvélarlína sem
kallast Puma. Þær eru 2,2 lítra, 75
hestafla, 2,2 lítra túrbó sem skilar
90 hestöflum og 2,4 lítra túrbó sem
skilar 115 hestöflum.
upp á þakið og að framan er um
hreina útlitsbyltingu að ræða. Bíll-
inn heldur þó sporöskjulaga grillinu
‘en framlugtirnar sex liggja hátt
uppi á bílnum. Fyrir utan nýstárlegt
útlit og margar útfærslur verður
bíllinn með óvenjumiklu innanrými
þannig að höfuð- og fótarými verð-
ur vel fyrir ofan meðallag í þessum
stærðarflokki bíla.
CW170 verður heimsbíll eins og
allir aðrir bílar verksmiðjanna en
það þýðir í raun ekki annað en að
bíllinn verður
seldur og
framleiddur út um allan heim. í
Bandaríkjunum verður hann smíð-
aður og seldur undir merkjum Ford
og Mercury og samtals er gert ráð
.fyrir að framleiddir verði 900 þús-
und bílar á ári í Bandaríkjunum og
Evrópu. Mazda, sem er að einum
fjórða hluta í eigu Ford, hefur haf-
ið hönnun á sinni eigin útfærslu af
bílnum í hönnunarmiðstöð sinni í
Frankfurt og ráðgert er að um alda-
mótin leysi hún af hólmi 323 sem
nýlega kom á markað í breyttri
mynd. ■
Heimsbíll
CW170 verður með sín sérkenni,
eins og afturljós sem liggja lóðrétt
NÝR Ford Escort sem kemur á markað 1998 verður næstum
óþekkjanlegur frá fyrirrennaranum.
HÁTT í 17% samdráttur varð í
bflasölu fýrstu tvær vikurnar í
janúar miðað við sama tíma í
fyrra. Samkvæmt tölum frá Bíl-
greinasambandinu voru seldir
114 fólksbílar frá 1.-13. janúar
síðastliðinn en frá 1.-14. janúar
1994 voru seldir 138 bflar.
Útlit fyrir samdrátt í janúar
Samkvæmt þessu er útlit fyrir
að heildarsalan í mánuðinum
verði 250 bílar, að sögn Jónasar
Þórs Steinarssonar, fram-
kvæmdastjóra Bflgreinasam-
bandsins. I janúar í fyrra seldust
354 fólksbílar.
Bílasala fer yfirleitt hægt
af stað í byijun árs en þó var
annað uppi á teningnum í
janúar í fyrra en eins og fyrr
segir seldust þá 354 bílar.
Jónas Þór segir að þessum
sölutölum nú í byijun árs
beri að taka með fyrirvara, litl-
ar sveiflur geti breytt heildar-
myndinni svo um munar. í janúar
1994 var mikil aukning á sölu
fólksbfla miðað við sama mánuð
1993, eða 46%. Samt voru fleiri
bílar fluttir inn 1993 en 3994 en
á milli þessara ára fækkaði bílum
í landinu um 0,20%. ■