Morgunblaðið - 26.01.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1995 B 7
VIÐSKIPTI
Hagnaður
Chryslers
eykstí3,71
milljarð
dollara
Detroit. Reuter.
CHRYSLER-bílaverksmiðjumar
hafa skýrt frá hagnaði upp á 3.71
milljarð dollara 1994, hinum mesta
í 69 ára sögu fyrirtækisins, sem
er þriðji umsvifamesti bifreiða-
framleiðandi Bandaríkjanna.
Áður hafði hagnaður Chrysler
orðið mestur 1984 þegar hann nam
2.4 milljörum Bandaríkjadala. Árið
1993 var fyrirtækið rekið með 2.55
milljarða dollara tapi.
Fyrirtækið setti 23 mismunandi
sölumet 1994. Árangurinn er þakk-
aður góðri sölu á flutningabifreið-
um, jeppum og fjölnota bflum og
nokkrum nýjum, vinsælum fólksbíl-
um, nýjum Neon smábíl og Chrysl-
er Cirrus.
Bílarnir taka við af Plymouth
Sundance, Dodge Shadow og
Chrysler LeBaron, sem eru ekki
eins vinsælir. Þeir eru ekki seldir
með sérstökum greiðslukjörum og
tekjur Chryslers verða þeim mun
meiri við það.
Aukinn hagnaður hefur gert
Chrysler kleift að fjármagna lífeyr-
issjóð sinn í fyrsta skipti síðan
1957 ogtvöfalda ársfjórðungslegar
greiðslur arðs af hlutabréfum í 40
cent á bréf.
♦.
sími 687111
London. Reuter.
BREZKA fyrirtækið Cadbury
Schweppes hefur staðfest að það
eigi í viðræðum um kaup á banda-
ríska fyrirtækinu Dr Pepper/Se-
ven-Up og getur þar með orðið
stærsta gosdrykkjafyrirtæki
heims sem framleiðir aðra gos-
drykki en cola-drykki.
Cadbury segir líklegt að gefin
verði út hlutabréf að verðmæti 500
milljónir punda samkvæmt sam-
komulagi, sem sérfræðingar telja
að trúlega muni hljóða upp á einn
milljarð punda, um kaup á 74.7%
af hlutabréfum í Pepper, sem Cad-
bury á ekki nú þegar.
Ef samningar takast verða
þetta mestu umsvif Cadburys síð-
an fyrirtækið sameinaðist
Schweppes fyrir aldarfjórðungi.
Á höttum
eftir Seven-Up
Þar með mun einnig ljúka 10 ára
tilraunum til þess að hreppa Dr
Pepper í því skyni að auka sölu á
hinum volduga Bandaríkjamark-
aði.
Fara í þriðja sæti
Samkomulag við Pepper mundi
gera brezka fyrirtækið að þriðja
helzta gosdrykkjaframleiðanda
Bandaríkjanna. Hlutdeild þess
mundi aukast í 16% úr 5% á 49
milljarða dollara markaði, þar sem
mætt er tæplega helmingi eftir-
spurnar eftir gosdrykkjum í heim-
inum.
Cadbury yrði þó langt á eftir
Coca-Cola, sem hefur 41.1% hlut-
deild á markaðnum, og PepsiCo,
sem hefur 32.2%.
Álnotkun
mestíÞyzka-
landi
Dlisseldorf. Reuter.
GRÓSKA í byggingariðnaði Þýzka-
lands síðan það sameinaðist mun
halda áfram að örva álnotkun 1995
og 1996 samkvæmt yfirlýsingu frá
evrópska álsambandinu, EAA.
Notkun áls í byggingariðnaði í
Evrópu jókst í fyrra um 10% í 1.1
milljón tonna.
Mikið líf var í byggingarstarf-
semi í Austur-Þýzkalandi. Auknar
framkvæmdir þar vógu á móti því
að nokkuð dró úr byggingarfram-
kvæmdum annars staðar, bæði á
vegum hins opinbera og fyrirtækja.
Af 1.1 milljón tonna af áli, sem
notuð voru, var notkunin í Þýzka-
landi 210,000 tonn, á Ítalíu
270,000 tonn og á Spáni 112,000
tonn.
Um einn fimmti 20 milljarða
marka sölu á ári í Þýzkalandi fór
til byggingariðnaðar. Um 86%
eftirspurnarinnar stafaði af fram-
kvæmdum við opinberar byggingar
eða byggingar fyrirtækja, en 14%
af byggingu íbúðahúsa.
------».■». ♦-—
Swissair vill
kaupa Sabena
Briissel. Reuter.
SWISSAIR vill kaupa 49-49.9%
hlut í belgíska flugfélaginu Sabena
með það fyrir augum að eignast
meirihluta í því síðar að sögn belg-
íska samgönguráðuneytisins í gær.
:undir og ráðstefnur
löfum sali
em henta
>tefnur.
t-
vf
Nýttu þér forskot okkar í
> áiþjóðaviðskiptum
.
Frumkvæði okkar í alþjóðaviðskiptum, þekking, reynsla og traustir
samstarfsaðilar getur orðið fyrirtæki þínu verðmætur stuðningur
og skipt sköpum í samkeppni.
• Framvirk gjaldeyrisviðskipti í meira en 15 ár.
Framvirkir samningar og skiptasamningar bæði milli tveggja
erlendra mynta og með íslensku krónuna.
• Kröfukaup sem flýta greiðslum til útflytjenda.
Landsbankinn er aðili að Factors Chain International (FCI),
einn íslenskra fjármálastofnana. Þjónusta aðildarfélaga FCI
dregur verulega úr hættu á vanskilum útflutningskrafna.
• Ábyrgðir og innheimtur í öruggum höndum reynds starfsfólks.
• Alþjóðleg greiðslumiðlun á hraðan og öruggan hátt um allan heim.
• Erlend lán á bestu fáanlegum kjörum.
• Fagleg ráðgjöf í milliríkjaviðskiptum og gengismálum.
Engin önnur íslensk fjármálastofnun getur miðlað af jafn langri,
víðtækri og farsælli reynslu.
Alþjóðasvið, sími 560 6150
Við hlið þér í alþjóðaviðskiptum
Landsbanki
Jfl íslands
AA; Banki allra landsmanna