Morgunblaðið - 26.01.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA
LANDSMAIMNA
I
HANDKNATTLEIKUR
varði
28 skot
fHtargttiilfatoifc
■ Jöfn loka»flng/D3
Guðríður með
slitin liðbönd
KVENNALIÐ Fram varð fyrir áfalli
í gær þegar lykilmaður liðsins,
Guðríður Guðjónsdóttir, sleit lið-
bönd í vinstri hendi í leik gegn
Stjömunni. Ekki var hægt að at-
huga hve slæm meiðslin eru því
höndin bólgnaði upp. Guðríður gæti
orðið frá í nokkrar vikur en annan
laugardag mætast liðin á ný í bikar-
úrslitunum.
1995 m FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR
BLAÐ
Bjarni Frostason, landsliðsmark-
vörður úr Haukum, var í miklu
stuði í liði sínu gegn KR í leik lið-
anna í 1. deild karla í Hafnarfirði í
gærkvöldi. Haukar sigruðu 31:15
og geta þakkað Bjama stórsigurinn
öðmm fremur því hann varði 28
skot, 14 í hvoram hálfleik, og þar
af tvö vítaköst. Hann sagðist aldrei
áður hafa varið svona mörg skot í
einum leik; „alla vega ekki skjal-
fest.“
„Ég fann mig vel í markinu enda
var vörnin mjög góð fyrir framan
mig. Ég hugsaði um að halda mér
vel vakandi í markinu því KR-ingar
era ekki með mikla skotmenn. Við
voru með leikinn í höndum okkar
eftir hlé og því kom smá kæraleysi
í leik okkar á tímabili í seinni hálf-
leik. Nú stefnum við að því að
tryggja okkur sæti í úrslitakeppn-
inni,“ sagði Bjarni.
Bannað
að kíkja!
VALUR og KA, sem mætast í
bikarúrslitum 4. febrúar, gerðu
jafntefli 18:18 í 1. deildinni í
handknattleik í sögulegum leik í
gærkvöldi. Valsmenn gerðu að-
eins fjögur mörk í síðari hálfleik
gegn gríðarlega sterkri vörn KA
og að baki henni var Sigmar
Þröstur Óskarsson í markinu. Á
myndinni hér að ofan er Alfreð
Gislason, leikmaður og þjálfari
KA, kominn í gegnum vörn Vals
en Frosti Guðlaugsson bregð'ur á
það ráð að grípa fyrir augun á
honum og Júlíus Gunnarsson
reynir að hjálpa félaga sínum.
Eric Cantona missti stjórn á skapi sínu í gær-
kvöldi og réðst á áhorfanda eftir að hafa
verið vikið af velli í leik Manchester United gegn
Crystal Palace í London. Áhorfandinn sagði eitt-
hvað sem Frakkanum var ekki að skapi og áður
en nokkur vissi af stökk fyrirliði franska landsliðs-
ins að áhorfandanum og sparkaði í hann að hætti
kungfu-manna. Nokkur högg féliu áður en lög-
regla og vailarstarfslið náðu að draga miðherja
ensku meistaranna í burtu en danski landsliðs-
markvörðurinn Peter Schmeichel leiddi samherja
sinn í burtu.
Cantona fékk að sjá rauða spjaldið fyrir að
sparka í varnarmanninn Richard Shaw á 48. mín-
útu. Hann var ósáttur við dóminn og giósur fyrr-
nefnds áhorfanda fylltu mælinn. En framkoma
Frakkans, sem var kjörinn leikmaður ársins af
leikmönnum í fyrra — fyrstur erlendra leikmanna
— getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir framtíð
hans sem knattspymumanns og ekki bætir úr skák
að hann hefur fimm sinnum verið rekinn af velli
sem leikmaður Manchester United.
Lögreglan yfirheyrði vitni á staðnum og f yfirlýs-
ingu hennar seint í gærkvöldi kom fram að áhorf-
andi hefði kært árás leikmanns United. Haft var
eftir lögreglufulltrúa að tugir vitna hefðu gefið sig
fram og yrði tekin af þeim skýrsla á næstu dögum.
Kllnsmann rotaðist
Jiirgen Klinsmann, þýski landsliðsmaðurinn hjá
Tottenham, rotaðist og missti meðvitund um
stund eftir samstuð við Mark Bosnich, mark-
vörð Aston Villa á 20 .mín .á Villa Park í gær.
HANDKNATTLEIKUR
GOG bauð Jóhanni
Inga þjátfarastarf
lan Lund, formaður danska liðsins
GOG frá Óðinsvéum, sem sló FH
út úr Evrópukeppni bikarmeistara í
gærkvöldi, hafði samband við Jóhann
Inga Gunnarsson, fyrrum þjálfara
Hauka, KR, Essen, Kiel og landsliðsins,
nú í vikunni og bauð honum að taka við
þjálfun GOG fyrir næsta keppnistímabil.
Þjálfari félagsins undanfarin ár, Bent
Nygaard, fyrrum þjálfari Fram, er að
hætta. „Það er greinilegt að forráðamenn Gunnarsson sagði Jóhann Ingi.
Jóhann Inai
GOG vilja fá nýtt blóð í herbúðir sínar
— og það fá Islandi," sagði Jóhann Ingi,
sem hafnaði boði danska liðsins. „Það
er mikill heiður fyrir mig að fá tilboð
frá einu besta félagsliði Dana, en ég
varð að hafna því — það er erfitt að
fara að rífa fjölskylduna upp, þegar við
höfum komið okkur fyrir eftir dvöl í
Þýskalandi. Þá er ekki auðvelt fyrir mig
að fara að hlaupa frá fyrirtækinu, “
KNATTSPYRNA
Cantona
réðstá
áhorfanda
Bjarni
HANDBOLTI: STJARIMAN SIGRAÐIFRAM ÍTOPPSLAG KVENNADEILDARINNAR / D4