Morgunblaðið - 27.01.1995, Page 8

Morgunblaðið - 27.01.1995, Page 8
8 D FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ FERÐALÖG HVERNIG VAR FLUGID? Keflavík Kanaiíeyjar Keflavfk með Flugleiðum ÞAÐ VAR enginn við innritunar- borðin i Leifsstöð þegar við komum þangað, en þegar starfsfólk kom á vettvang, fengum við skjóta og góða afgreiðslu. Það sama gilti á efri hæðinni. Reyndar man ég ekki til annars en að hafa fengið lipra þjón- ustu í Flugstöðinni (7-9-13). Þetta var á föstudagsmorgni og 10 mínútna seinkun á brottför til Kanaríeyja. Flugið suðureftir var mjög þægilegt. Smáókyrrð í lofti stutta stund varð eiginlega bara til þess að undirstrika, hve tíðindalaust loftið var að öðru leyti. Þetta er 5 tíma ferð og þá skiptir miklu að manni líði þolanlega í flugvélinni. Þessi Flugleiðavél var þægilegur farkostur og þótt ég kynni vel við hana þarna, kunni ég enn betur að meta hana á heimleið, sem var, eins og fram kemur síðar, flogin í leigu- vél og þessi vél þá víðs fjærri! Þjónustan um borð var notaleg og snögg, en koníaksþurrð á miðri leið kom eins og skrattinn úr sauð- arleggnum. Vörusalan gekk fljótt fyrir sig og virðist vöruval eftir kynningarbæklingnum að dæma vera býsna gott. Það sem var til ama í þessari flugferð var maturinn, eða aðalrétturinn, svo fyllstu sanngirni sé gætt. Laxapaté og eplakaka voru í góðu lagi, en hveitiklessa meðlóm- atpurré ■ er ömurlegt viðurværi á svona ferðalagi. Tvær kvikmyndir voru sýndar á leiðinni. Sú fyrri var Börn náttúr- unnar. Þótt ég hefði séð hana áður, var allt í lagi að hafa annað augað á henni og mörg atriði var gaman að sjá aftur. Hin kvikmyndin var erlend og fór fyrir ofan garð og neðan hjá mér. Þetta flug fær háa einkunn í mínum huga, flugvél og starfsfólk eins og best verður á kosið, og við- urgjömingur góður (það er eiginlega bara þetta með hveitiklessuna!) S p á n n i»V*^«w**ltf***V _ Casablanca /' 'o / A Kanarí- / v ^ eyjar á ^ . . Punta de . m i s i r Gando «0^ 4^ Nú versnar í því! Heimflug frá Kanaríeyjum viku síðar varð með allt öðrum og verri hætti. Löng biðröð við innritun, sem tók klukkustund ogsvo var hálftíma seinkun á fluginu. Við vorum því farin að hlakka til að komast um borð í þægilega flug- vél og svífa heim. En sá draumur fór fyrir lítið. Reyndar komumst við heim. Sem fyrr var íslenzka flugfólk- ið þægilegt og öraggt. Nú var meira að segja kominn fískréttur í stað hveitiklessunnar svo máltípin var þolanlegur flugvélamatur. Okyrrð í lofti var aðeins meiri en í fyrri ferð- inni, en ekkert til að tala um. Svona hefði þetta auðvitað átt allt að vera. En haldið þið þá ekki, að flugvélin sé allt önnur. Einhver leiguflugvél, reyndar merkt Flug- leiðum að framan. Sætin í þessari vél vora nokkuð þreytt og óþægi- legri en í íslenzku flugvélinni. Það sem gerði þó útslagið var að engin loftræsting var hjá farþegum. Mikil molla myndaðist í vélinni og eftir ákveðinn tíma varð þetta flug bara þröngt og fúlt. Verri einkunn skrifast eingöngu á farkostinn og þegar um svona langt flug er að ræða, skiptir hann ákaflega miklu máli. Starfsfólkið bjargaði því sem það gat. Kvik- myndin Bíódagar bjargaði einhveiju meðan hún var sýnd, þar sem ég hafði ekki séð hana áður. En það bjargaði engu að horfa á Böm nátt- úrannar enn og aftur. ■ Freysteinn Jóhannsson Algarve og Mallorka, Kos eða Evrópoborgir 2J FERÐIR til Portúgal og Mall- ■% orka eru fyrirferðarmiklar í ■J sumarbæklingi Úrvals-Útsýn- ar í ár enda hafa þessir staðir Sum árabil verið mikið sóttir af íslenskum ferðamönnum. Nokkrir nýir gististaðir bætast við og hótel hafa fengið hærri stjörnugjöf eftir breytingar og umbætur. Þá bætast nýir áfangastaðir við, s.s gríska eyjan Kos, sumarhúsadvöl í Danmörku, Marmaris S Tyrklandi ofl. I sérferðabæklingi er fjallað um ýmsar stakar ferðir og vikið nánar að skemmtisiglingum og ýmsum kostum sem era í boði. Verður stikl- að á þessu hér á eftir. Portúgal og Spánn Flestir farþegar til Algai-ve í Portúgal hafa búið í Albufeira og þar í grennd. í ár er einnig annar staður í boði, Falesia, sem er á milli Vilamoura og Albufeira, en í Vilamoura er stærsta skútuhöfnin í Algarve. Einnig eru nokkrar sér- ferðir um Portúgal og þá flogið til Algarve en síðan ekið um landið og farið alla leið upp til Portó í norðurhlutanum. Spánn Mallorka hefur lengi verið vin- sæll sumarleyfisstaður hjá íslend- ingum og ýmsir gististaðir era í boði og þar eru einnig nokkrir nýir Snjódýpi á austurrískum skíðasvæðum Staður 1 dal Áfjalli Badgaste'n7 (sm) Bad Hofgastein 50 180 Bad Kleinkirchheim 20 50 Flachau/Wagrain 60 150 Innsbruck /Igls 50 200 Kitzbuhel/Kirchberg 60 250 Lech/Zurs 105 230 Obertauern 65 140 Saalbach/Hinterglemm 120 170 Sölden/Höchsölden 30 95 StJohann/Obemdorf -80 170 Zell am See/Kaprun 60 100 staðir. Einnig eru ferðir til Barcel- ona og síðan geta farþegar verið í strandbænum Sitges í nokkra daga. Barcelona er glaðværðarinnar borg og margt að skoða þar. Kos og Marmarls Gríska eyjan Kos er mikið sótt af ferðamönnum og sér þaðan til Tyrklands. Meðal þess sem gestir geta tekið sér fyrir hendur auk þess að slappa af er 3 daga eyjasigling. Marmaris á vesturströnd Tyrk- lands er nýr staður og þykir falleg- ur bær og ströndin ágæt. Ferðir eru þaðan til Efesus og Istanbul. Flug og bíll, sumarhús Margir vilja vera á eigin vegum í fríinu og þá er flug og bíll heppi- Iegur kostur. Sumarhúsadvöl í Slag- else í Danmörku er nýtt hjá ferða- skrifstofunni. Skemmtlslgllngar og ferðir tll Arúba Allmargt er um að velja í skemmtisiglingum um Karíbahaf. Dvöl býðst á Arúba sem er nýr áfangastaður og hafa nokkrar grein- ar um eyna birst hér í blaðinu. Ferð- ir til Orlando era sem fyrr, siglingar til Evrópu og á ferðaalmanaki eldri borgara era ferðir til Mallorka, Port- úgal, Skotlands um páska, Dan- merkur og til Grænlands. Borgarferðir Ástæða er til að geta ferða til Helsinki og þaðan yfir til St. Péturs- borgar, rútuferðir um ýms Evrópu- lönd s.s. Þýskaland og Austurríki, vínuppskeruferð í september, til Prag, Dresden og Berlínar og önnur til Vínar, Prag og Búdapest. Loks skal nefnd ferð um suður- ríki Bandaríkjanna í september og golfferð til Dubai og framlenging ef vill á Maldiveseyjum í apríllok. Hefur þá verið tæpt á ýmsu því sem fram kemur í bæklingi. ■ j.k. Vilti selflytja Iðxnskernir í Bandaríkjurum ÞEIR sem hafa gaman af að aka bíl geta tekið að sér að koma bílum í Bandaríkjunum af einum stað á annan fyrir eigendur sem hafa ekki tíma til að aka langar vegalengdir. Fyrirtæki eins og Auto Driveaway Co., sem hefur 88 skrifstofur í Bandaríkjunum og Kanada, sjá um svona flutninga. Ferðamenn sem vilja aka fyrir Auto Driveaway þurfa að hafa öku- skírteini og vegabréf í lagi, borga um 300 dollara í tryggingu fyrir bíl- inn og vera til í að aka um 600 km á dag. Þá gæti þeim verið falið að aka t.d. 40.000 dollara Chrysler með leðursætum, tölvuútbúnaði, loftpoka og snælduspilara frá Bolder, Col- orado, tij Los Angeles, Kalifomíu. Bílstjóramir þurfa sjálfir að borga bensínið en þeir fá trygginguna end- urgreidda ef þeir koma bílnum heilu og höldnu á áfangastað. ■ FERDIR 1SS5E UM HELGINA Fí Sunnud.29.janúar kl. 10,30 verður skíðaganga ekki langt frá Reykja- vík. Komið til baka kl. 15,30. Geng- ið verður því í rúma 3 tíma. Valið gott svæði til skíðagöngunnar. Kl.13-17 er gönguferð frá Bala á Álftanesi að Bessastöð- um.Gengið frá Garðahverfi, Bala, um Garðaholt, meðfram Skógtjöm áleiðis til Bessastaða. Um Garðaholt hefur hraunflóðið klofnað forðum í tvo arma og ann- ar fallið í Hafnarfjörð en hinn Skeijafjörð. Þar fyrir utan er land óbrunnið á nesinu. Sunnan í Garða- holti stendur hið foma prestssetur og kirkjustaðurinn Garðar. Meðal merkra presta í Görðum má nefna Helga Hálfdanarson, síðar for- stöðumann Prestaskólans. Sonur hans var Jón Helgason biskup, sem var einnig mikilvirkur rithöfundur og hefur skrifað margt um sögu Reykjavíkur. Hann var drátthagur og eru Reykjavíkurmyndir hans merkilegar heimildir. UTIVIST LAUGARD. 28.jan.kl. 10,30 verður’ gengin gömul gönguleið og selja- leið frá Siglubergshálsi við Festarfjall og nýjar gönguleiðir að Bláa lóninu. Þetta er liður í hinn nýju Kjörgöngu Útivistar. Þeir sem velja lengsta áfanga hefja göngu við Festarfjall en þeir sem taka millivegalengdina byija við Þor- kötlustaði en þeir sem kjósa þá stystu byija við Hóp. Allir koma um svipað leyti að Bláa lóninu. Hægt er að koma kl. 11,15 að Bláa Ióni. Sunnud.29.jan.kll0,30 er dags- ferð á gönguskíðum í nágrenni borgarinnar og er nánar auglýst á laugardag. Þorrablót að ÚITjóts- vatni verður 28.-29.jan Gist verður í vistlegum húsakynnum. Göngu- ferð fyrir matinn og leggja allir þorramat saman í púkk. Á sunnud. verður heilsubótarganga áður en lagt er af stað heimleiðis. Þeim fækkar fullt veri á sem borga C-farrými í BLAÐINU Boarding segir frá því að prósentutala þeirra sem ferðist á viðskiptamannafarrými og greiði fullt fargjald í flugi lækki stöðugt. Fyrir áratug hafi 40% allra farþega á C-far- rými greitt fullt verð fyrir en prósent- an sé nú undir 30. Þetta kemur fram í könnun sem Gemini Consulting gerði og þar segir að búist sé við því að prósentutalan verði aðeins 20 prósent um aldamót- in. Á flugi yfír Atlantshafíð ferðast um 85% C-farrýmisfarþega á ýmiss konar afsláttarmiðum. I niðurstöðun- um sem era byggðar á upplýsingum frá forystumönnum evrópskra flugfé- laga er talað um þróun á öðrum svið- um en í verðlagningu. Hún muni verða sú að öll þjónusta verði neytendavænni og flugfélögin muni bjóða farþegum meira fyrir peningana en þeir fái nú. Nefna megi akstur til og frá flugvelli, alls konar girnileg tilboð á söluvarningi um borð og þau muni einnig ná til almenns farrýmis. í könnuninni sögðu 98% nefndra forystumanna að þeir telji að flugfé- lög muni í enn ríkara mæli sameinast en nú. Um það bil helmingur spurðra áleit að fimm Evrópuflugfélög mundu hafa í sínum höndum 80% farmiða- sölu árið 1998. Rannsóknin sýnir einnig að áfram verði að hagræða, fækka starfsliði og leggja allt kapp á að draga úr kostnaði sem ekki skil- ar arði, beinum eða óbeinum. ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.