Morgunblaðið - 27.01.1995, Síða 8
8 D FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
HVERNIG
VAR FLUGID?
Keflavík
Kanaiíeyjar
Keflavfk með
Flugleiðum
ÞAÐ VAR enginn við innritunar-
borðin i Leifsstöð þegar við komum
þangað, en þegar starfsfólk kom á
vettvang, fengum við skjóta og góða
afgreiðslu. Það sama gilti á efri
hæðinni. Reyndar man ég ekki til
annars en að hafa fengið lipra þjón-
ustu í Flugstöðinni (7-9-13).
Þetta var á föstudagsmorgni og
10 mínútna seinkun á brottför til
Kanaríeyja. Flugið suðureftir var
mjög þægilegt. Smáókyrrð í lofti
stutta stund varð eiginlega bara til
þess að undirstrika, hve tíðindalaust
loftið var að öðru leyti. Þetta er 5
tíma ferð og þá skiptir miklu að
manni líði þolanlega í flugvélinni.
Þessi Flugleiðavél var þægilegur
farkostur og þótt ég kynni vel við
hana þarna, kunni ég enn betur að
meta hana á heimleið, sem var, eins
og fram kemur síðar, flogin í leigu-
vél og þessi vél þá víðs fjærri!
Þjónustan um borð var notaleg
og snögg, en koníaksþurrð á miðri
leið kom eins og skrattinn úr sauð-
arleggnum. Vörusalan gekk fljótt
fyrir sig og virðist vöruval eftir
kynningarbæklingnum að dæma
vera býsna gott. Það sem var til ama
í þessari flugferð var maturinn, eða
aðalrétturinn, svo fyllstu sanngirni
sé gætt. Laxapaté og eplakaka voru
í góðu lagi, en hveitiklessa meðlóm-
atpurré ■ er ömurlegt viðurværi á
svona ferðalagi.
Tvær kvikmyndir voru sýndar á
leiðinni. Sú fyrri var Börn náttúr-
unnar. Þótt ég hefði séð hana áður,
var allt í lagi að hafa annað augað
á henni og mörg atriði var gaman
að sjá aftur. Hin kvikmyndin var
erlend og fór fyrir ofan garð og
neðan hjá mér.
Þetta flug fær háa einkunn í
mínum huga, flugvél og starfsfólk
eins og best verður á kosið, og við-
urgjömingur góður (það er eiginlega
bara þetta með hveitiklessuna!)
S p á n n
i»V*^«w**ltf***V _
Casablanca /'
'o
/ A
Kanarí- / v ^
eyjar á ^ . .
Punta de . m i s i r
Gando «0^
4^
Nú versnar í því!
Heimflug frá Kanaríeyjum viku
síðar varð með allt öðrum og verri
hætti. Löng biðröð við innritun, sem
tók klukkustund ogsvo var hálftíma
seinkun á fluginu.
Við vorum því farin að hlakka til
að komast um borð í þægilega flug-
vél og svífa heim. En sá draumur
fór fyrir lítið. Reyndar komumst við
heim. Sem fyrr var íslenzka flugfólk-
ið þægilegt og öraggt. Nú var meira
að segja kominn fískréttur í stað
hveitiklessunnar svo máltípin var
þolanlegur flugvélamatur. Okyrrð í
lofti var aðeins meiri en í fyrri ferð-
inni, en ekkert til að tala um.
Svona hefði þetta auðvitað átt
allt að vera. En haldið þið þá ekki,
að flugvélin sé allt önnur. Einhver
leiguflugvél, reyndar merkt Flug-
leiðum að framan. Sætin í þessari
vél vora nokkuð þreytt og óþægi-
legri en í íslenzku flugvélinni. Það
sem gerði þó útslagið var að engin
loftræsting var hjá farþegum. Mikil
molla myndaðist í vélinni og eftir
ákveðinn tíma varð þetta flug bara
þröngt og fúlt.
Verri einkunn skrifast eingöngu
á farkostinn og þegar um svona
langt flug er að ræða, skiptir hann
ákaflega miklu máli. Starfsfólkið
bjargaði því sem það gat. Kvik-
myndin Bíódagar bjargaði einhveiju
meðan hún var sýnd, þar sem ég
hafði ekki séð hana áður. En það
bjargaði engu að horfa á Böm nátt-
úrannar enn og aftur. ■
Freysteinn Jóhannsson
Algarve og Mallorka,
Kos eða Evrópoborgir
2J FERÐIR til Portúgal og Mall-
■% orka eru fyrirferðarmiklar í
■J sumarbæklingi Úrvals-Útsýn-
ar í ár enda hafa þessir staðir
Sum árabil verið mikið sóttir
af íslenskum ferðamönnum.
Nokkrir nýir gististaðir bætast
við og hótel hafa fengið hærri
stjörnugjöf eftir breytingar og
umbætur. Þá bætast nýir
áfangastaðir við, s.s gríska
eyjan Kos, sumarhúsadvöl í
Danmörku, Marmaris S Tyrklandi
ofl. I sérferðabæklingi er fjallað um
ýmsar stakar ferðir og vikið nánar
að skemmtisiglingum og ýmsum
kostum sem era í boði. Verður stikl-
að á þessu hér á eftir.
Portúgal og Spánn
Flestir farþegar til Algai-ve í
Portúgal hafa búið í Albufeira og
þar í grennd. í ár er einnig annar
staður í boði, Falesia, sem er á
milli Vilamoura og Albufeira, en í
Vilamoura er stærsta skútuhöfnin
í Algarve. Einnig eru nokkrar sér-
ferðir um Portúgal og þá flogið til
Algarve en síðan ekið um landið
og farið alla leið upp til Portó í
norðurhlutanum.
Spánn
Mallorka hefur lengi verið vin-
sæll sumarleyfisstaður hjá íslend-
ingum og ýmsir gististaðir era í
boði og þar eru einnig nokkrir nýir
Snjódýpi á austurrískum skíðasvæðum
Staður 1 dal Áfjalli
Badgaste'n7 (sm)
Bad Hofgastein 50 180
Bad Kleinkirchheim 20 50
Flachau/Wagrain 60 150
Innsbruck /Igls 50 200
Kitzbuhel/Kirchberg 60 250
Lech/Zurs 105 230
Obertauern 65 140
Saalbach/Hinterglemm 120 170
Sölden/Höchsölden 30 95
StJohann/Obemdorf -80 170
Zell am See/Kaprun 60 100
staðir. Einnig eru ferðir til Barcel-
ona og síðan geta farþegar verið í
strandbænum Sitges í nokkra daga.
Barcelona er glaðværðarinnar borg
og margt að skoða þar.
Kos og Marmarls
Gríska eyjan Kos er mikið sótt
af ferðamönnum og sér þaðan til
Tyrklands. Meðal þess sem gestir
geta tekið sér fyrir hendur auk þess
að slappa af er 3 daga eyjasigling.
Marmaris á vesturströnd Tyrk-
lands er nýr staður og þykir falleg-
ur bær og ströndin ágæt. Ferðir
eru þaðan til Efesus og Istanbul.
Flug og bíll, sumarhús
Margir vilja vera á eigin vegum
í fríinu og þá er flug og bíll heppi-
Iegur kostur. Sumarhúsadvöl í Slag-
else í Danmörku er nýtt hjá ferða-
skrifstofunni.
Skemmtlslgllngar og
ferðir tll Arúba
Allmargt er um að velja í
skemmtisiglingum um Karíbahaf.
Dvöl býðst á Arúba sem er nýr
áfangastaður og hafa nokkrar grein-
ar um eyna birst hér í blaðinu. Ferð-
ir til Orlando era sem fyrr, siglingar
til Evrópu og á ferðaalmanaki eldri
borgara era ferðir til Mallorka, Port-
úgal, Skotlands um páska, Dan-
merkur og til Grænlands.
Borgarferðir
Ástæða er til að geta ferða til
Helsinki og þaðan yfir til St. Péturs-
borgar, rútuferðir um ýms Evrópu-
lönd s.s. Þýskaland og Austurríki,
vínuppskeruferð í september, til
Prag, Dresden og Berlínar og önnur
til Vínar, Prag og Búdapest.
Loks skal nefnd ferð um suður-
ríki Bandaríkjanna í september og
golfferð til Dubai og framlenging
ef vill á Maldiveseyjum í apríllok.
Hefur þá verið tæpt á ýmsu því
sem fram kemur í bæklingi. ■
j.k.
Vilti selflytja
Iðxnskernir í
Bandaríkjurum
ÞEIR sem hafa gaman af að aka
bíl geta tekið að sér að koma bílum
í Bandaríkjunum af einum stað á
annan fyrir eigendur sem hafa ekki
tíma til að aka langar vegalengdir.
Fyrirtæki eins og Auto Driveaway
Co., sem hefur 88 skrifstofur í
Bandaríkjunum og Kanada, sjá um
svona flutninga.
Ferðamenn sem vilja aka fyrir
Auto Driveaway þurfa að hafa öku-
skírteini og vegabréf í lagi, borga
um 300 dollara í tryggingu fyrir bíl-
inn og vera til í að aka um 600 km
á dag. Þá gæti þeim verið falið að
aka t.d. 40.000 dollara Chrysler með
leðursætum, tölvuútbúnaði, loftpoka
og snælduspilara frá Bolder, Col-
orado, tij Los Angeles, Kalifomíu.
Bílstjóramir þurfa sjálfir að borga
bensínið en þeir fá trygginguna end-
urgreidda ef þeir koma bílnum heilu
og höldnu á áfangastað. ■
FERDIR
1SS5E UM HELGINA
Fí
Sunnud.29.janúar kl. 10,30 verður
skíðaganga ekki langt frá Reykja-
vík. Komið til baka kl. 15,30. Geng-
ið verður því í rúma 3 tíma. Valið
gott svæði til skíðagöngunnar.
Kl.13-17 er gönguferð frá Bala
á Álftanesi að Bessastöð-
um.Gengið frá Garðahverfi, Bala,
um Garðaholt, meðfram Skógtjöm
áleiðis til Bessastaða.
Um Garðaholt hefur hraunflóðið
klofnað forðum í tvo arma og ann-
ar fallið í Hafnarfjörð en hinn
Skeijafjörð. Þar fyrir utan er land
óbrunnið á nesinu. Sunnan í Garða-
holti stendur hið foma prestssetur
og kirkjustaðurinn Garðar. Meðal
merkra presta í Görðum má nefna
Helga Hálfdanarson, síðar for-
stöðumann Prestaskólans. Sonur
hans var Jón Helgason biskup, sem
var einnig mikilvirkur rithöfundur
og hefur skrifað margt um sögu
Reykjavíkur. Hann var drátthagur
og eru Reykjavíkurmyndir hans
merkilegar heimildir.
UTIVIST
LAUGARD. 28.jan.kl. 10,30 verður’
gengin gömul gönguleið og selja-
leið frá Siglubergshálsi við
Festarfjall og nýjar gönguleiðir
að Bláa lóninu. Þetta er liður í hinn
nýju Kjörgöngu Útivistar. Þeir sem
velja lengsta áfanga hefja göngu
við Festarfjall en þeir sem taka
millivegalengdina byija við Þor-
kötlustaði en þeir sem kjósa þá
stystu byija við Hóp. Allir koma
um svipað leyti að Bláa lóninu.
Hægt er að koma kl. 11,15 að
Bláa Ióni.
Sunnud.29.jan.kll0,30 er dags-
ferð á gönguskíðum í nágrenni
borgarinnar og er nánar auglýst á
laugardag. Þorrablót að ÚITjóts-
vatni verður 28.-29.jan Gist verður
í vistlegum húsakynnum. Göngu-
ferð fyrir matinn og leggja allir
þorramat saman í púkk. Á sunnud.
verður heilsubótarganga áður en
lagt er af stað heimleiðis.
Þeim fækkar
fullt veri á
sem borga
C-farrými
í BLAÐINU Boarding segir frá því
að prósentutala þeirra sem ferðist á
viðskiptamannafarrými og greiði fullt
fargjald í flugi lækki stöðugt. Fyrir
áratug hafi 40% allra farþega á C-far-
rými greitt fullt verð fyrir en prósent-
an sé nú undir 30.
Þetta kemur fram í könnun sem
Gemini Consulting gerði og þar segir
að búist sé við því að prósentutalan
verði aðeins 20 prósent um aldamót-
in. Á flugi yfír Atlantshafíð ferðast
um 85% C-farrýmisfarþega á ýmiss
konar afsláttarmiðum. I niðurstöðun-
um sem era byggðar á upplýsingum
frá forystumönnum evrópskra flugfé-
laga er talað um þróun á öðrum svið-
um en í verðlagningu.
Hún muni verða sú að öll þjónusta
verði neytendavænni og flugfélögin
muni bjóða farþegum meira fyrir
peningana en þeir fái nú. Nefna
megi akstur til og frá flugvelli, alls
konar girnileg tilboð á söluvarningi
um borð og þau muni einnig ná til
almenns farrýmis.
í könnuninni sögðu 98% nefndra
forystumanna að þeir telji að flugfé-
lög muni í enn ríkara mæli sameinast
en nú. Um það bil helmingur spurðra
áleit að fimm Evrópuflugfélög mundu
hafa í sínum höndum 80% farmiða-
sölu árið 1998. Rannsóknin sýnir
einnig að áfram verði að hagræða,
fækka starfsliði og leggja allt kapp
á að draga úr kostnaði sem ekki skil-
ar arði, beinum eða óbeinum. ■