Morgunblaðið - 28.01.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
JWtrjgttttWtóiiÖ
■ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR
BLAÐ
Abdullah með
flesta landsleiki
MAJED Ahmed Mohammed Abdullah, sóknarmað-
ur Saudi Araba sem kallaður hefur verið Pele eyði-
merkurinnar, er landsleikjahæsti leikmaður í heimi,
en ekki markvörðurinn Peter Shilton eins og talið
hefur verið. Abdullah, sem er 35 ára gamall, hefur
leikið 147 landsleiki en Shilton lék 125 landsleiki
og var Ravelii markvörður Svía alveg við að ná
honum. Alþjóða knattspymusambandið staðfesti
þetta í gær, en ástæðan fyrir því að þetta varð
ekki ljóst fyrr en nýlega er að Abdullah hefur
verið skráður með mismunandi nöfnum, enda heit-
ir hann fjórum nöfnum og stundum voru þau ekki
notuð öll. Þegar hann var skráður hjá FIFA var
litið á nöfnin og talið að ekki væri um sama mann-
inn að ræða. Knattspymusamband Saudi Arabíu
gerði athugasemd við þetta og FIFA staðfesti í
gær að Abdullah hefur leikið 147 landsleiki.
KNATTSPYRN
Bikarmeistarar KR mæta til leiks í vor með tvo nýja framherja
Guðmund-
ureráleið
til KR-inga
GUÐMUNDUR Benediktsson, framherji úr Þór á Akureyri, eftir-
sóttasti knattspyrnumaður landsins, hefur gert upp hug sinn og
leikur með bikarmeisturum KR á næsta keppnistímabili sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins. Mörg lið voru á höttunum
eftir Guðmundi, nokkur íslensk 1. deildarlið svo og sænska 1.
deildarliðið AIK í Stokkhólmi.
Guðmundur, sem gerðist atvinnu-
maður í knattspyrnu aðeins
16 ára gamall, er hann gekk til liðs
við belgíska félagið Ekeren, snéri
heim á ný fyrir síðasta keppnistíma-
bii og lék með sínum gömlu félögum
í Þór á Akureyri í fyrra. Meiðsli
hijáðu hann mest allan tímann sem
hann var í Belgíu, og því ákvað
hann að koma heim á ný. Guðmund-
ur varð tvítugur á síðastliðnu hausti.
Eftir að Þór féll í 2. deild ákvað
Guðmundur að skipta um félag, og
segja má að slegist hafi verið um
hann síðan. Guðmundur hefur aðal-
lega verið orðaður við ÍA, KR og
Fram af íslenskum félögum, en tvö
önnur 1. deildarlið munu einnig hafa
falast eftir leikmanninum. Þá vildu
forráðamenn AIK í Stokkhólmi fá
hann til félagsins en hann mun neita
tilboði félagsins um helgina, skv.
heimildum Morgunblaðsins.
Guðmundur fékk í fyrra leyfi frá
Ekeren í Belgíu til að leika með Þór
í tvö ár, en heimildir Morgunblaðsins
herma að KR-ingar hafi þegar feng-
ið munnlegt leyfi frá Ekeren um að
Guðmundi sé heimilt að leika með
KR. Þegar Þórsarar fá skriflega yfir-
lýsingu þess efnis frá Ekeren verður
væntanlega gengið frá félagaskipt-
unum — og það gæti jafnvel orðið
um helgina.
Þá hefur verið endanlega gengið
frá því að serbneski framheijinn
Mihajlo Bibercic, sem leikið hefur
með ÍA síðustu þijú árin, og var
markakóngur 1. deildarinnar í sum-
ar, verður með KR næsta keppnis-
tímabil. Skagamenn hafa samþykkt
félagaskipti hans til KR.
GUÐMUNDUR Benedlktsson, eftlrsóttastl knattspyrnumaður
landslns. KR-lngar hreppa hnosslð, og framherjinn frá Akureyrl
klæðlst því hlnum röndótta búnlngl Vesturbæjarllðslns í sumar.
HANDKNATTLEIKUR
Stankovic
áförum
Jezdimir Stankovic, þjálfari Sel-
fyssinga í handknattleik er
hættur að þjálfa Selfossliðið. Að
sögn stjórnar handknattleiksdeild-
ar Selfoss komu upp árekstrar
vegna aukinna anna Stankovic við
þjálfun júgóslavneska landsliðsins.
Stjórnin telur það viss vonbrigði
að Stankovic skuli hætta því mikl-
ar væntingar voru gerðar til hans
um framtíðaruppbyggingu hand-
boltans á staðnum. Þórarinn Ing-
ólfsson aðstoðarþjálfari tekur við
Selfossliðinu af Stankovic.
Stankovic sagði að það væri
skylda hans að bregðast við kalli
júgoslávneska landsliðsins. Hann
sagði að liðið hefði ekki leikið í
þijú ár og mikilvægt að ná góðum
árangri og vera í fremstu röð á
Evrópumeistararmótinu 1996 og
nota það sem stökkpall til að kom-
ast til Atlanta á Olympíuleikana
96. Júgoslavneska landsliðið náði
nýlega mjög góðum árangri á
móti á Spáni og vann þar Frakka,
Slóvena og Spánveija. Stankovic,
sem þá var í jólaleyfi, sagðist að-
eins hafa haft fimm daga sem
aðalþjálfari í undirbúning en hann
og menn hans væru staðráðnir i
að ná góðum árangri og þeir væru
vongóðir eftir árangurinn á Spáni.
„Þetta hefur verið góður tími
hér á Selfossi, ekki auðveldur en
ég hef haft gaman af þessu og á
vini hérna. Mér líkar vel við ís-
lenskan handbolta, leikmenn eru
sterkir og góðir. En það er líka
gott að fá inn nýjungar og kynn-
ast þeim. Ég óska Selfyssingum
alls hins besta í framtíðinni. Ég
tók það sem skyliiu mína að byggja
upp lið á Selfossi til framtíðar. Það
er þýðingarmikið fyrir Selfoss að
byggja upp eigin handboltaskóla
og fá fram nýja leikmenn. Ég vona
að þeir geti nýtt sér eitthvað að
því sem ég hef verið með,“ sagði
Stankovic og kvaðst vonast eftir
að geta verið í góðu sambandi við
Selfyssinga þó hann hyrfi á brott.
FIMLEIKAR
Rúmensk-
ur þjálfari
ákærður
fyrir morð
RÚMENSKI fimleikaþj álfarinn
Florin Gheorghe verður á þriðju-
daginn dreginn fyrir dómara í
heimalandi sínu ákærður fyrir að
hafa barið 11 ára fimleikastúlku,
Adriönu Giurcu, á æfíngu með þeim
afleiðingum að hún lést á sjúkra-
húsi skömmu síðar.
Florin er fyrrverandi þjálfari í
Dinamo íþróttaskólanum - fimleika-
skóla fyrir þá bestu í Rúmeníu og
er talið að hann hafi beitt nemend-
ur sína hörðu væri hann ekki
ánægður með ástundun þeirra og
frammistöðu. Krakkamir sem æfðu
með Adriönu segja að barsmíðar
hafi verið hluti af uppbyggingu fim-
leikastjarna og staðfesta þar með
þann orðróm um slæma meðferð á
ungum fimleikastjörnum Rúmeníu.
Þegar er komin fram vitnisburð-
ur um að Florin hafi misst stjórn á
sér við æfingar á jafnvægisslá í
nóvember 1993 og kastað Adriana
í gólfið og barið hana. Hún dó á
sjúkrahúsi af völdum barsmíðanna
nokkrum klukkustundum síðar.
Veijandi Florin, Sanda Dragu,
viðurkennir að hann hafi danglað í
stúlkuna en hafi alls ekki ætlað að
drepa hana. Sanda segir ennfremur
að þetta sé arfur frá Bellu Karoly,
fyrrum þjálfara Olympíustjörnunn-
ar Nadiu Comaneci, en hún hafi
byijað á að beita líkamlegum refs-
ingum á æfingum. Rúmenskir fim-
leikafréttaritarar andmæla þessu
og segja að þó Bella hafi verið
ströng sé millivegur á. En Octavian
Bellu, aðalþjálfar rúmenska ólym-
píuliðsins, segir að þrátt fyrir að
margt hafi breyst við fall kommún-
ismans, sé ofbeldi á fimleikaæfing-
um enn við líði. „Við höfum ekki
breytt neinu í stíl eða reglum,"
sagði Octavian.
Móðir Andriönnu segir að af
þessu megi draga lærdóm. „Dóttir
mín dó þegar þjálfari hennar hrein-
lega barði hana, sló höfði hennar í
jafnvægisslána. Þetta er glæpur,
ekki slys og refsingin ætti að vera
eins mikil og hægt er“.
Florin, hefur verið í haldi síðan
í febrúar 1994 og er ákærður fyrir
manndráp af gáleysi. Ef sekt hans
verður sönnuð á hann yfir höfði sér
10 ár fangelsi.
KNATTSPYRIMA: ERIC CANTONA SVIPTUR FYRIRLIÐABANDINU / D2