Morgunblaðið - 01.02.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 01.02.1995, Qupperneq 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG B PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRUAR 1995 BLAD Fleiri skip en nokkru sinni afskráð í fyrra EFNI mámim Viðtal 3 Sverrir Víglunds- son túnfiskveiði- maður í Ekvador Greinar 7 Garðar Björg- vinsson, Ingvi R. Einarsson, Svanur Jónsson FLEIRI skip og bátar voru máð af skipaskrá á síðasta ári en nokkru sinni fyrr í sögu skipa- skráningar á íslandi - 183 tals- ins. 97 þilfarsskip voru afskráð; Ureldingarstyrkir frá Þróunarsjóði ráða miklu samtals 5.464 brúttórúmlestir og 4.107 brúttótonn en fjórtán skipanna höfðu ekki síðarnefndu mælinguna. Að auki hurfu 86 bátar úr íslenska flotanum. Stein- dór Árnason hjá skipaskráningu Siglingamálastofnunar segir að helsta skýring- in sé sú að lög um Þróunarsjóð sjávarútvegsins hafi tekið gildi í fyrra og þar með heimild til að veita skipaeigendum úreldingarstyrk til að farga skipum sín- um ellegar selja þau úr landi. Að sögn Hinriks Greipssonar hjá Þró- unarsjóðnum samþykkti sjóðurinn í fyrra 304 umsóknir um úreldingarstyrk en hann nam 45% af vátryggingarverði viðkomandi skips eins og það var 1. janúar 1994. Hámarksstyrkur var þó 90 milljónir króna. Hinrik segir að þetta hafi einungis verið gert gegn því skil- yrði að skipin hyrfu varanlega úr ís- lenska flotanum; yrði annað hvort farg- að eða þau seld úr landi. Fyrsta úreld- ingin var samþykkt á fundi Þróun- arsjóðs í ágúst og náðu 90 skip að upp- fylla skilyrði sjóðsins fyrir áramót. Komu alls 811 milijónir króna í hlut eigenda þeirra. Að sögn Hinriks eru nokkrar annir hjá sjóðnum þessa dagana og styrkir borgaðir út daglega. Það sem af er þessu ári hafa tíu bátar til viðbótar bæst í hópinn. Frestur til 31. mars Hann segir að þeir aðilar sem hlotið hafa úreldingarstyrk hafi frest til 31. mars 1995 til að ljúka verkinu; farga skipum sínum eða selja þau úr landi. Takist það ekki verði þeir að sækja um að nýju en þá lækkar styrkurinn; miðast við 40% af vátryggingarverði skipanna eins og það var 1. janúar 1995. Hinrik segir að mat skipanna lækki jafnan milli ára og því lækki styrkurinn mun meira en sem nemur prósentutölunni. Styrkhöfum sé því akkur í því að ljúka verkinu fyrir 31. mars. Hann vekur þó athygli á, að hámarksstyrkurinn hækki í 93 milljónir á sama tíma. VESTMANNAEY MEÐ BURA • V estmannaeyj um - Vestmanney VE landaði í Eyjum í vikunni eftir 25 daga túr og var aflaverðmætið um 23 milljón- ir. Mestur hluti aflans var karfi og að sögn Sigurbjörns Árnason- ar, stýrimanns, voru þeir mest á grunnunum suður af landinu en skutust austur til að tonna sig aðeins I þorski, eins og hann orð- aði það. Vestmannaey var með um fimm tonn af búra en lítið hefur veiðst af honum í vetur. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Sigurbjörn sagði að þeir hefðu tekið tvö höl á búraslóð og feng- ið þessi fimm tonn i þeim. Hann sagði að þeir kíktu oft á búraslóð- ina en lítið hefði fengist af hon- um síðan í fyrravetur þar til nú. Fréttir Gengur vel í Namibíu • REKSTUR Seaflower Whitefish Corp.í Luderitz gekk vel á síðasta ári og skilaði hann hagnaði, en Islenzkar sjávarafurðir eru eigendur þess ásamt eignar- haldsfélagi í eigu stjórn- valda. Horfur eru á því að kvóti fyrirtækisins á lýsingi getiu aukizt verulega og næsta haust er stefnt að því að hefja sölu á flökum til Bandaríkjanna í töluverð- um mæli./6 Þýzkt tímarit fjallar um SH • í NÝJU hefti Fisch Magazin, sem er þýskt tíma- rit helgað umfjöllun um fiskiðnað og fiskviðskipti, er fjögurra síðna umfjöllun um dótturfyrirtæki SH. í greininni er lýst starfinu hjá SH í Hamborg en eink- um nýjustu vörum fyrir- tækisins, „Portion Control Fish“, sem eru stærðar- flokkaðir flakabitar fyrir veitingahús og mötu- neyti./5 Gífurlegn af fiski hent • SKÝRSLA hollenzkra fiskifræðinga bendir til þess að gífurlegu magni af fiski sé hent í sjóinn við kolaveið- ar hollenzkra bómutogara. í skýrslunni kemur fram að fyrir hvert eitt kíló af koma fari 8 til 10 kíló af fiski í sjóinn aftur og 4 til 6 kíló af botndýrum. Árið 1992 lönduðu þessi togarar 18.601 tonni af kola úr Norðursjónum og var því 186.000 tonnum af fiski hent í sjóinn aftur auk nærri 100.000 tonna af bontdýr- um./6 Færeyingar og Norðmenn semja • FÆREYINGAR og Norð- menn hafa náð samkomulagi um gagnkvæmar veiðiheim- ildir innan lögsögu beggja ríkjanna á þessu ári. Litlar breytingar eru á fyrra sam- komulagi, en þorskkvóti Færeyinga innan lögsögu Norðmanna verður þó auk- inn um 100 tonn. Þeir mega því veiða um 3.200 tonn af þorski í Barentshafi. Norð- menn fá mest uppsjárvarfisk í sinn hlut, svo sem kol- munna og makril./8 Markaðir Mikil aukning á söluSHtil Japan • MIKLAR breytingar urðu á vægi markaðssvæða SH á síðasta ári, mælt í verðmæt- um. Helzta skýringin á því er annars vegar 22% sam- dráttur í framleiðslu á þorski, en veiðin minnkaði um 30% i heildina. Á sama tíma varð mikil aukning á framleiðslu rækju, karfa og loðnuafurða. Salan til Japan tæplega tvöfaldaðist, enda þar mest um síðarnefndu afurðirnar þijár að ræða. Bandaríkin eru mikilvæg- asti markaðurinnfyrir þorskafurðir. Þangað fóru 50% magnsins, en það skil- aði 60% af verðmætunum. Utflutningur SH Jan.-des. 1993 og 1994 Til: Verðmæti, miiij. kr. Coldwater Bandar. Mest aukning í loðnu og rækju Utflutningur SH Jan.-des. 1993 og 1994 Til: Magn, í tonnum IFPC Tókýó Annarra _ aðiia j- 2.000 • AÐ MAGNI til fór mest af afurðum SH til Japan og var þar um nærri tvöföldun að ræða. Skýringin á því er mikil aukning á framleiðslu loðnuafurða, rækju og karfa. Einnig varð aukning á sölu skrifstofu SH í Þýzkalandi, sem meðal annars byggist á rækju, síld og karfa, em smásölupakkningar hafa verið ört vaxandi þáttur í sölu skrifstofunnar þar. Sala jókst einnig lítilega í Bret- landi og má rekja þá aukn- ingu til vaxandi rækjuveiði og vinnslu, en Bretland er stór markaður fyrir rækju.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.