Morgunblaðið - 01.02.1995, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
!H0rguittl)lUi$>fö
■ MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR
BLAD
SUND
Eydís setli
íslandsmet
Eydís Konráðsdóttir setti íslandsmet í 50 metra
baksundi á fyrsta heimsbikarmóti ársins sem
hófst í Espoo í Finnlandi í gær. Hún synti á 30,83
sekúndum og varð í níunda sæti af 11 keppendum.
Sigurvegari í sundinu var þýska stúlkan Antje
Buschschulte, sem synti á 28,52 sekúndum.
Eydís keppti einnig í 200 m baksundi og synti
á 2.23,66 mín. og varði í 9. sæti af 10 keppend-
um. EÍín Sigurðardóttir synti 50 m skriðsund á
27,51 sek. og varð í 16. sæti af 18 þátttakendum.
Magnús Már Ólafsson hafnaði í 23. sæti af 26 í
100 metra skriðsundi, synti á 52,35 sek og Magn-
ús Konráðsson varð í 15. sæti af 17 í 200 metra
bringusundi, synti á 2.24,31 mín.
HNEFALEIKAR
Andrés ætl
araðreyna
fyrirsérí
Las Vegas
KRAFTAKAPPINN Andrés Guðmundsson æfir af kappi þessa
dagana og undirbýr sig undir nýja þrekraun á sviði krafta og
úthalds. Hann ætlar að prófa að keppa í stóru áhugamannamóti
í hnefaleikum í Las Vegas í Bandaríkjunum í lok febrúar. Umboðs-
fyrirtækið Ring Stars, sem er þekkt fyrirtæki í hnefaleikaheimin-
um hefur boðið honum að taka þátt f undankeppni fyrir óreynda
áhugamenn í íþróttinni. Komist hann í úrslit keppir hann að nýju
í lok maf og þá verða há peningaverðlaun í boði fyrir sigurveg-
ara mótsins, sem kallast Toughman Contest.
Bandaríkjamaðurinn John Black,
umboðsmaður Ring Stars
hreifst af kröftum Andrésar, þegar
hann kom hingað til lands í heimsókn
fyrir tveimur árum og vildi fá Andrés
til liðs við sig. Andrés afþakkaði, en
þekktist síðan boðið þegar John hafði
samband við hann að nýju í lok síð-
asta árs. Síðan hefur hann æft af
kappi fyrir hnefaleika. Til stóð að
hann færi að nokkrum mánuðum liðn-
um utan, en um helgina kom kall
þess eðlis að hann þyrfti að fara fyrr
en til stóð. „Vissulega hefði ég viljað
fá meiri undirbúningstíma, eins og
til stóð. En það er annaðhvort að
hrökkva eða stökkva. Ég hef bar-
dagaeðlið í mér og líst vel á að berja
á mönnum í hringnum, þó ég sé prúð-
ur að eðlisfari," sagði Andrés kank-
víslega við Morgunblaðið.
John hefur mikla trú á að náttúru-
legur styrkur og stærð Andrésar geti
fleytt honum langt, leggi hann hnefa-
leika fyrir sig. „Hnefaleikar eru mjög
ólíkir þeim íþróttum sem ég hef
stundað. Hinsvegar hjálpar það mik-
ið, hve ég hef mikinn sprengikraft.
Snerpa og úthald skiptir miklu máli.
Síðustu vikur hef ég létst um sjö kíló
og er mun léttari á mér, gæti líklega
stokkið og troðið í körfu í núverandi
ásigkomulagi," sagði Andrés.
Hann hefur síðustu vikumar notið
leiðsagnar Guðmundar Amarssonar,
sem á árum áður var þekktur hnefalei-
kakappi hérlendis og varð m.a. ís-
landsmeistari. Hann mun síðan fá
reynda þjálfara, þegar hann kemur
til Las vegas í vikunni. „Þetta er
spennandi tækifæri, hvað sem kemur
út úr því. Ég legg mig allan í þetta
og ef vel gengur, þá læt ég kraftamót-
in bíða. Ég kvíði því ekki að mæta
einhveijum í hringnum. Ég er stór og
mikill og höggþungur á hægri. Ég
nýt þess að hafa verið í blaki og kúlu-
varpi, hef styrk í höndunum. Mig vant-
ar enn betra úthald og á eftir að læra
margt varðandi tækni, en vonast samt
til að komast í úrslit í þessari frum-
raun í Las Vegas,“ sagði Andrés.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
KRAFTAKAPPINN Andrés Guðmundsson ætlar að reyna fyrir sér í hnefaleikum í Las Vegas.
Black hefur mikla trú á Andrési
„ÉG hef mikla trú á Andrési, þó
stuttur tími sé til stefnu. Hann er
góður efniviður og hefur náttúru-
legan styrk. Ef eðlisávísun og
ósjálfráð viðbrögð hans í hringnum
eru jafn góð og kraftur hans, þá
slær hann í gegn,“ sagði umboðs-
maðurinn John Black í samtali við
Morgunblaðið. Hann hefur gert
fjögurra ára samning við Andrés
Guðmundsson og vill stefna á at-
vinnumennsku í hnefaleikum.
Samningurinn er þó bundinn því
að Andrés getur hætt við, telji hann
íþróttina ekki eiga við sig í byijun.
„Vissulega tek ég áhættu með því
að leggja peninga og tíma í Andr-
és, en ég er viss um að hægt er að
þjálfa hann upp í góðan þungavigt-
armann. Ég hef verið þjálfari og
umboðsmaður í tuttugu og sex ár
og hef leitað fanga víða. Mér leist
strax vel á Andrés, þegar ég sá
hann keppa í kraftakeppni á Is-
landi. Hann hefur mikinn sprengi-
kraft, nokkuð sem er mikilvægt.
Það er samspil milli krafts og
höggþunga, sem skiptir öllu.“
„ Andrés mun fyrst keppa í móti,
þar sem óreyndir keppendur keppa
í þrisvar sinnum þrjár mínútur.
Það eru stuttir en mjög erfiðir
bardagar. Atvinnumenn berjast
fyrst í fjórum lotum í þijár mínút-
ur, en hámarkið í dag er tíu lotur,
þrjár mínútur hver lota. Hnefaleik-
ar reynir gífurlega á kraft og þol,
þú verður að geta barist áfram,
þó hugurinn segi þér að stoppa,
hendur og fætur séu búnir. Sigur-
vi(ji er það sem þarf, sama hvað
það kostar. Ég held að Andrés
hafi þennan vijja og góðan styrk
að auki. En hann þarfnast þjálfun-
ar,“ sagði John Black.
KEILA: NOÐURÐURLANDAMÓTIÐ HEFST í ÖSKJUHLÍÐ í DAG / C4