Morgunblaðið - 02.02.1995, Side 2
A.Tflt
2 C FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYIMDIR VIKUNNAR
Sjónvarpið
FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR
K| 99 n>i ►Eitur á
M. U.IIU (Dandelion
fíflana
Dead)
Bresk sjónvarpsmynd byggð á sönnum
atburðum sem áttu sér stað í sveita-
þorpi við landamæri Englands og
Wales árið 1921.
LAUGARDAGUR 3. FEBRUAR
M9i in^Eitur á
.£1.1 U (Dandelion
fíflana
Dead)
Bresk sjónvarpsmynd byggð á sönnum
atburðum sem áttu sér stað í sveita-
þorpi við landamæri Englands og
Wales árið 1921. (2:2)
VI QQ DD ►Kappar í kúlnahrið
nl. £0.UU (Pat Garrett and Billy
the Kid) Bandarísk bíómynd frá 1973
um fyrrum útlagann Pat Garrett, sem
gengið hefur í lið með lögreglunni, og
eltingarleik hans við hinn alræmda
Billy the Kid.
SUNNUDAGUR S. FEBRÚAR
Kl. 22.551
► Pétain Frönsk bíó-
mynd frá 1992 um
Pétain hershöfðingja og afskipti hans
af frönskum þjóðmálum.
FIMMTUDAGUR 9. FEBRUAR
VI 91 1 (I ►^i® ve9*nn (Ved vej-
1*1. 4 I • IU ‘ en) Dönsk bíómynd
byggð á sögu eftir Herman Bang um
ástir giftrar konu og aðkomumanns í
dönsku sveitaþorpi um aldamótin.
Stöð tvö
FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR
VI Q4 QC ►Glugginn á bakhlið-
nl. L I.Ow inni (Rear Window)
Myndin fjallar um fréttaljósmyndar-
ann LB Jeffries sem situr heima fót-
brotinn og njósnar svolítið um ná-
grannana sér til dægrastyttingar.
VI QQ QC ►Hetjur háloftanna
lll. £0.£u (IntotheSun) Spenn-
andi mynd um tvo gerólíka náunga
sem þola ekki hvor annan en verða
að snúa bökum saman á ögurstund.
Bönnuð börnum.
VI <\ DR ►Rándýrið II (Predat-
1*1. I.Uu or II) Rándýrið leikur
nú lausum hala í Los Angeles en Am-
old Schwarzenegger er fjarri góðu
gamni. Að þessu sinni er það Danny
Glover í hlutverki lögreglumanns sem
býður skrímslinu birginn. Stranglega
bönnuð bömum.
Stöð tvö
MQ CD ►Vafasöm viðskipti
• 4.ÖU (Dirty Work) Vinimir
Tom og Eddie stofna saman smáfyrir-
tæki eftir að þeir hætta í lögreglunni.
Þeir em gjörólíkir en á milli þeirra
virðist ríkja algjör trúnaður. Brátt
kemur þó í ijós að Eddie fer á bak
við Tom, flækist í vafasöm viðskipti
og kallar hefnd mafíunnar yfir þá.
LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR
VI Q1 «D ►Læknirinn (The
M. L I.4U Doctor) Jack MacKee
er snjall skurðlæknir sem á góða fjöl-
skyldu og nýtur alls þess sem lífið
hefur að bjóða. Það verður ekki fund-
ið að neinu í fari hans nema ef vera
skyldi að hann mætti hafa örlítið
meiri samúð með sjúklingum sínum.
Það á þó eftir að breytast þegar hann
fær sjálfur lífshættulegan sjúkdóm.
W9Q «D ►Bamfóstran (The
■ 40.4U Hand that Rocks the
Cradle) Peyton Flanders kemur vel
fyrir og virðist í fljótu bragði vera til
fýrirmyndar. Hún ræður sig sem hús-
hjálp hjá Claire og Michael Bartel og
verður strax trúnaðarvinur allra á
heimilinu. Öllum líkar vel við þessa
geðþekku og hjálpsömu konu. En
Solomon, sem hefur verið ráðinn til
að dytta að hinu og þessu á heimilinu,
skynjar að Peyton er ekki það gull
af manni sem allir telja hana vera.
Stranglega bönnuð börnum.
ICC ►( kúlnahríð (Rapid
•UU Fjre) Hasarmynd af
bestu gerð með Brandon Lee í aðal-
hlutverkinu. Hann fetar í fótspor föður
síns, karatekeppans Bruce Lee, og fer
hratt yfir í mögnuðum bardagaatrið-
um.
SUNIMUDAGUR 5. FEBRÚAR
VI Qfl CD ►Barnsránið (There
Al. 4U.ÖU Was a Little Boy)
Ahrifarík og áleitin mynd um hjónin
Julie og Greg Warner sem urðu fyrir
því hræðilega áfalli að kornungum
syni þeirra var rænt fyrir fímmtán
árum. Hjónin eru ennþá að kljást við
tilfinningalega kreppu vegna atburð-
arins og sektarkenndin skýtur upp
kollinum á ný þegar Julie verður
ófrísk.
Kl. 23.10
►Alvara lífsins (Vital
Signs) Hér er sögð
saga nokkurra einstaklinga sem
stunda nám á þriðja- ári í læknaskóla.
Framundan er alvara lífsins þar sem
reynir á vináttuböndin í harðri sam-
keppni um fjármagn og frama.
MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR
|f| QQ <|D ►Skollaleikiir (Class IM. 40.IU Act) Gamanmynd um gáfnaljósið Duncan og gleðimanninn Blade sem sjá sér báðir hag í að láta sem ekkert hafí ískorist þegar náms- ferilsskrám þeirra er ruglað saman við upphaf skólaárs.
ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR
t Kl 99 9*1 ►^' 1 buskann III. 40.4U (Leaving Normal) Marianne Johnson er tvígift og nýlega fráskilin. Þegar hún er að yfírgefa smábæinn Normal í Wyoming rekst hún á gengilbeinuna Darly Peters sem er hálfrótlaus og framúrskarandi kald- hæðin. Eftir stutt kynni ákveða þær stöllur að halda saman til Alaska og freista gæfunnar þar.
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR
VI 99 1 C ►Leigumorðinginn Hl. 40. IU (Double Edge) Hörkuspennandi hasarmynd um alrík- islögreglukonuna Maggie sem einsetur sér að koma tálkvendinu Carmen á bak við lás og slá en sú síðarnefnda er skæður leigumorðingi.
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR
VI QQ nn ►Bak v'ð luktar dyr
nl. 44.UU (Behind Closed
Doors) Jean Donovan bíður bana þeg-
ar henni er hrint niður stiga á heimili
sínu en á meðan situr eiginmaður
hennar glæsilegt kvöldverðarboð úti í
bæ. Jean skilur eftir sig umtalsverðar
eignir sem renna til stjúpdóttur henn-
ar og ekkilsins. Fljótlega kemur á
daginn að þau hafa átt í sjóðheitu
ástarsambandi og lagt á ráðin um
morðið á Jean. En þessi ástríðuglæpur
á eftir að draga dilk á eftir sér og
ekki er fyllilega ljóst hver hefur svikið
hvem. Bönnuð börnum.
W9Q QD ►Tango og Cash
. 4U.UU Gamansöm og þræl-
spennandi kvikmynd um rannsóknar-
löggurnar Ray Tango og Gabe Cash.
Það, sem þeir eiga sameiginlegt, er
að telja sig bestu löggur sem völ er á
og helsti óvinur þeirra er eiturlyfjabar-
óninn Yves Perret sem er valdur að
því að þeir eru í fangelsi. Til að sleppa
lifandi frá fangelsisvistinni bijótast
þeir út til að hreinsa mannorð sitt og
það gengur á ýmsu.
BÍÓIN í BORGINNI
Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓBORGIN
Leort **
Ábuðamikil mynd úr furðuveröld Bess-
ons. Góð átakaatriði í bland við
ómerkilegan efnisþráð og persónu-
sköpun. Fríða og dýrið? Varla.
Viðtal við vampíruna ***
Neil Jordan hefur gert býsna góða
vampírumynd sem lítur alltaf frábær-
lega út og tekur með nýjum hætti á
gamalli ófreskju kvikmyndanna. Brad
Pitt stelur senunni.
Banvænn fallhraði *!4
Ekki beinlínis leiðinleg en afar ómerki-
leg formúlumynd sem dandalast á
mörkum gamans og alvöru. Mynd-
bandaafþreying.
Konungur Ijónanna ***
Pottþétt fjölskylduskemmtun frá Disn-
ey, prýdd óaðfínnanlegri íslenskri tal-
setningu.
BÍÓHÖLLIIM
Timecop ttnh
Tímaflakkarar á ferð með misjafnt í
huga. Útlitið er ágætt, spennan tals-
verð, afþreyingin góð, innihaldið lýrt.
Skársta mynd Van Damme þótt það
segi ekki mikið.
Leifturhraði ***'h
Æsispennandi frá upphafi til enda,
fyndin og ótrúlega vel gerð. Hasar-
mynd eins og þær gerast bestar.
„Junior“ *V2
Linnulausar tilraunir Scliwarzenegg-
ers til gamanleiks bera hér vonandi
endanlegt skipbrot. Mislukkuð eins-
brandara mynd og afleitlega leikin.
Konungur Ijónanna (sjá Bíóborgina)
Banvænn fallhraði (sjá Bíóborgina)
HÁSKÓLABIÓ
Skuggalendur ***V2
Gæðamynd byggð á einstöku sam-
bandi bresks skálds og fyrirlesara og
bandarísks rithöfundar um miðja öld-
ina. Það geislar af Anthony Hopkins
og Debru Winger í aðalhlutverkum.
Aukaleikarar ekkert síðri og leikstjór-
anum Attenborough tekst að segja
hádramatíska sögu án þess að steyta
nokkru sinni á óþarfa tilfinningasemi.
Priscilla drottning eyðimerkur-
innar ***
Undarleg og öðruvísi áströlsk mynd
sem kemur áhorfendum í gott skap.
Það er ekki heiglum hent að vera
kyn- eða klæðskiptingur uppi á öræf-
um Ástralíu.
Ógnarfljótið **!4
Spennumynd í góðu meðallagi með
Meryl Streep í aðalhlutverki móður
sem berst fyrir lífi fjölskyldunnar. Hún
er reyndar það eina óvænta í venju-
legri formúiuafþreyingu.
Þrír litir: Rauður ***'h
Þríleik pólska leikstjórans Kieslowskis
lýkur með bestu myndinni þar sem
leikstjórinn fléttar saman örlögum
persónanna á snilldarlegan hátt.
Glæstir tímar ***
Sólargeisli í skammdeginu. Lostafull
og elskuleg spænsk Óskarsverðlauna-
mynd um ungan mann og fjórar syst-
ur þegar fijálslyndið ríkti í stuttan
tíma.
Lassi **
Átakalítil, falleg barnamynd um vin-
áttu manna og dýra.
Forrest Gump ***!4
Tom Hanks fer á kostum í frábærri
mynd um einfeldning sem ferðast um
sögu Bandaríkjanna síðustu þijá ára-
tugina og lendir í ýmsu. Ljúfsár,
skemmtileg, fyndin, gerð með ríkri
saknaðarkennd og einstaka sinnum
ber fýrir sönnum kvikmyndalegum
töfrum.
LAUGARÁSBÍÓ
Timecop **%
Tímaflakkarar á ferð með misjafnt í
huga. Útlitið er ágætt, spennan tals-
verð, afþreyingin góð, innihaldið rýrt.
Skársta mynd Van Damme þótt það
segi ekki mikið.
Skógarlíf **V2
Mógli bjargar málunum í áferðarfal-
legri kvikmynd hins sígilda ævintýris
Kiplings um frumskógardrenginn
ramma. Góð bama- og fjölskyldu-
mynd.
Gríman **!4
Skertimtileg og fjörug mynd í hasar-
blaðastíl um mannleysu sem verður
ofurmenni þegar hann finnur dular-
fulla grímu. Jim Carrey fer með titil-
hlutverkið og er ekkert að spara sig.
REGNBOGINN
PCU 0
Makalaus endaleysa úr bandaríska
háskólalifínu. Botninn á skemmtana-
iðnaðinum í Hollywood.
Hetjan hann pabbi **
Frönsk gamanmynd sem Hollywood
endurgerði í einum grænum. Lítt
merkilegur pappír en Gérard Depard-
ieu er góður í hlutverki áhyggufulls
föður, sem fer með táningsdóttur sína
á sólarströnd.
Stjörnuhliðið **Vi
Ágætis afþreying sem byggir á því
að guðirnir hafi í raun verið geimfar-
ar. Fyllir upp í sáran skort á útgeims-
myndum og er því kannski bitastæð-
ari en ella.
Bakkabræður í Paradís *!4
Þrír bræður ræna banka úti á Iands-
byggðinni og sjá svo eftir öllu saman.
Jólagamanmynd í ódýrari kantinum
með nokkrum góðum sprettum en
heildarmyndin er veik.
Reyfari ***!4
Frábær verðlaunamynd eftir Tarant-
ino um líf og örlög bófa í Los Angel-
es. Einkar safaríkt leikaralið fer á
kostum í vel mótuðum og skrifuðum
hlutverkum og hér endurfæðist John
Travolta. Tarantino er maður framtíð-
arinnar.
Lilli er týndur **
Brandaramynd um þrjá þjófa og raun-
irnar sem þeir lenda í þegar þeir ræna
níu mánaða milljónaerfingja. Virkar
eins og leikin teiknimynd.
SAGABÍÓ
Ógnarfljótið **!4
Spennumynd í góðu meðallagi með
Meryl Streep í aðalhlutverki móður
sem berst fyrir lífi fjölskyldunnar. Hún
er reyndar það eina óvænta í vénju-
legri formúluafþreyingu.
STJÖRNUBÍÓ
Frankenstein **
Egóið í Kenneth Branagh fær að njóta
sín til fulls en fátt annað í heldur
misheppnaðri Frankenstein-mynd.
Jafnvel kúrekastelpur verða ein-
mana *
Slæmt flassbakk frá hippaárunum.
Mistök frá upphafí til enda en leikhóp-
urinn er litskrúðugur.
Aðeins þú **
Rómantísk gamanmynd um stúlku
sem eltir draumaprinsinn til Ítalíu.
Lítt merkileg mynd sem byggir á
gömlum lummum ástarmyndanna.
„Threesome" **!4
Rómantísk gamanmynd úr bandaríska
háskólalífinu þar sem tveir strákar og
ein stelpa mynda skondinn þríhyrning.
Margt skemmtilegt og klúrt en mynd-
in ristir grunnt.
Bíódagar **!4
Friðriki Þór tekst frábærlega að end-
urskapa horfinn tíma sjöunda áratug-
arins í sveit og borg en myndin líður
fyrir stefnuleysi í síðasta hlutanum.
Góður leikur, sérstaklega þeirra í
sveitinni.