Morgunblaðið - 02.02.1995, Side 5
aujA iHwurvjOM
MORGUNBLAÐIÐ
>( HAuMa'? .s auoAauTMMia 0 k
FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1995 C 5
LAUGARDAGUR 4/2
MYNDBÖND
Sæbjörn Valdimarsson
LÍFIÐ ER FURÐU-
LEGT FERÐALAG
DRAMA
IP5+ + +
Leikstjóri Jean-Jacques Beineix.
Handritshöfundar Jean-Jaques
Beineix og Jacques Forgeas.
Kvikmyndataka Jerome Chalou.
Aðalleikendur Yves Montand,
Olivier Martinez, Sekkou Sall,
Geraldine Pailhas. Frönsk.
Gaumont 1992. Skían 1994.115
mín. Ollum leyfð.
AÐALSÖGU-
HETJURNAR í
nýjustu mynd
franska leik-
stjórans forvitni-
lega, Jean-
Jacques Beineix,
eru tveir götu-
strákar í París-
arborg, Tony
(Olivier Marti-
nes), sem fæst einkum við þá iðju
að mála listilega myndir á auða
veggi, og Jockey, 12 ára þeldökkur
vinur hans og nágranni í gettóinu.
Báðir búa við aum kjör, einkum
Jojo litli, sem deilir kytrunni með
sídrukknum föður sínum. Tony
lendir í útistöðum við glæpagengi
og til að friðmælast lofar hann að
aka bíl þess, hlöðnum smástyttum,
á áfangastað í Grenoble. Áætlunin
breytist og dularfullur náungi, Lou-
is Marcel (Yves Montand), kemur
til skjalanna og fræðir þá um lífið
og tilveruna áður en yfir lýkur.
Seiðmögnuð mynd, einsog Bein-
eix er von og vísa. IP5 stendur
reyndar Betty Blue og Divu, bestu
myndum leikstjórans, nokkuð að
baki, en er engu að síður athyglis-
verð mynd og fyndin á sinn hátt.
Ungu leikararnir, Martinez og Sall,
komast vel frá síni, en Yves Mont-
and, í sínu síðasta hlutverki, stelur
senunni eina ferðina enn. Er að-
dáunarverður sem hinn dularfulli
þulur og ferðalangur og gefur sér-
stakri og býsna vel lukkaðri mynd
aukið gildi til muna. IP5 er mynd
sem hiklaust má mæla með við
vandaláta áhorfendur og alla þá
sem vilja sleppa frá síbylju meðal-
mennskunnar um stund.
MORÐIIMGI
SNÝR AFTUR
SPENNUMYND
Tvöfaldur grunur („Double
Suspicion“) ++V2
Leikstjóri Paul Ziller. Kvik-
myndatökusljóri Ðeter Wun-
storf. Aðalleikendur Gary Busey,
Kim Cattrall, Darlanne Fluegel,
Jeff Griggs. Bandarísk kapal-
mynd. Entertainment Securities
1994. SAM myndbönd 1994. 97
mín. Aldurstakmark 16 ára.
Lögreglumaður-
inn Meadows
(Gary Busey)
hætti störfum í
kjölfar blóðugs
uppgjörs sem
hann átti við
harðsoðinn
morðingja (Jeff
Griggs), kennd-
an við Lakeside.
Nú þjálfar hann lítið háskólalið
samhliða því sem hann reynir hvað
hann getur að ná sáttum við spúsu
sína (Kim Cattrall) á nýjan leik.
En Vatnsbakkadráparinn slekkur
aftur á rómantíkinni hjá Meadows
þar sem hann fer aftur á stjá og
nú verður einn af félögum lögreglu-
mannsins fyrir barðinu á kauða.
Mikið skelfingar ósköp er þetta
þreytulegur efnisþráður, allt höf-
um við séð þetta áður. En viti
menn, Paul Ziller leikstjóri er vand-
anum vaxinn og tekst að framreiða
prýðis skemmtimynd úr hroðanum.
Hann hefur áður gert þokkalegar
kapalmyndir, er greinilega á upp-
leið og kæmi ekki á óvart þó hann
fengi sín tækifæri á stóra tjaldinu
áður en langt um líður. Þá er Gary
Busey nokkuð seigur leikari sem
spjarar sig jafnan þokkalega í aðal-
hlutverkum minniháttar mynda (en
átti hápunktinn á ferlinum fyrir
einum 17 árum með afbragðstúlk-
un á poppgoðinu í The Buddy Holly
Story), enn frekar i aukahlutverk-
um alvörumynda. Hann er í góðu
formi hér, ber myndina ágætlega
uppi 0g fær nokkurn stuðning frá
Kim Cattrall, fallinni A-mynda
leikkonu ( Big Trouble in Little
China, Turk 182). Það er þó leik-
stjórinn sem er í stjörnuhlutverkinu
hér.
HVAÐ ER MORÐ
Á MILLIVIIMA?
SPENNUMYND
DA UÐA ÞÖGN („Dead Silence“)
+Vi
Leikstjóri Peter O’Fallon.
Handrit J. Davids Miles, byggt á
sögu eftir Bobb Bibb og Lewis
Goldstein. Aðalleikendur Renee
Estevez, Lisanne Falk, Carrie
Mitchum. Bandarisk sjónvarps-
mynd. Fox Video 1994. SAM
myndbönd 1995.88 mín. Aldurs-
takmark 16 ára.
Þtjár stúlkur
(Renee Estevez,
Lisanne Falk,
Carrie Mitc-
hum), sem verið
hafa vinkonur
frá æskuárun-
um, eru að ljúka
háskólanámi.
Upprennandi
fréttamenn, lög-
fræðingar og bísnissmenn. En þá
fer í verra. Hnáturnar hyggjast
bregða sér útá lífið eina kvöldtund
í Palm Springs, en keyra niður flæk-
ingsgrey á leiðinni. Og ekki má
hætta ferlinum fyrir slíka smá-
muni. Svo þær ákveða að segja
ekkert af atvikunu. Lögreglan fer
vitaskuld að snuðra og fyrr en var-
ir komin á slóðina. Þá reynir á sam-
heldnina.
Hvorki fugl né fiskur. Ef stúlk-
urnar þrjár væru hlutfallslega jafn
góðar leikkonur og þær eru föngu-
legar ættu þær framtíðina fyrir sér
í betri myndum. En því er á hinn
veginn farið. Allar vangaveltur um
sekt og siðfræði afar léttvægar
fundnar og spennan í algjöru lág-
marki. Kápan hinsvegar gott dæmi
um verk hnuplara í útlitshönnun,
nafnið og stafagerðin „fengin að
láni“ frá Silence of the Lambs.
BÍÓMYIMDBÖIMD
Sæbjörn Valdimarsson
M Butterfly ++'/2
Óvenjuleg ástar-
saga (þar að auki
sönn) um sjald-
gæf ástamál
fransks sendi-
ráðsfulltrúa í
Peking á dögum
menningarbylt-
ingarinnar og
kínverskrar
prímadonnu,
sem reyndar var
hvorttveggja, spæjari rauðu varðl-
iðanna og karlmaður undir máln-
ingunni og millipilsunum. Þetta
samband endar með miklum ósköp-
um og er harmleikurinn magnaður
(kryddaður með söguþræði Mad-
ame Butterflý) og Jeremy Irons á
traustan leik enn eina ferðina. Held-
ur myndinni gangandi, en Lone er
allur hinn mélkisulegasti. Sjálfsagt
stendur í einhverjum að hægt sé
að sænga hjá kynbróður sínum (og
það af mikilli ástríðu) um árabil í
þeirri góðu trú að hann sé kven-
kyns. Það er önnur saga.
Robirt Demetriou matreiðslumaður
DEMETRIOU hefur látið letra heiti allra kvikmynda sem hann
hefur komið að á matarvagninn sinn.
Eldar bakvid tjöldin
MÉR fínnst betra að elda í köldu
veðri. Þegar það verður heitt
er ekki nokkur leið að koma matnum
ofan í mannskapinn. í miklum kuldum
vekur súpuskál ein sér gífurlega
lukku,“ segir Robin Demetriou mat-
ráðsmaður kvikmyndastjama og tök-
uliðs.
Demetriou hefur annast matseld
fýrir kvikmyndagerðarfólk í 25 ár og
haft áhrif á mittismál leikara í mynd-
um á borð við Batman, A Fish Called
Wanda, Patriot Games, Henry V og
White Hunter, Black Heart Meðal
þeirra sem hann hefur matreitt fyrir
eru Clint Eastwood, „sem borðar mik-
ið af kjúklingum og fískmeti" og Tom
Cruise, „sem drekkur mikið af gulrót-
ar- og vínbeijasafa og þarf sífellt að
vera að narta í pasta og baunarétti
eða fá sér súpuskál," segir Demetriou.
Byrjaði smátt
Ifyrirtækið steig fyrstu skrefín í litl-
um sendiferðabíl sem áður gegndi því
hlutverki að vera fatalager á fjórum
hjólum í Pinewood kvikmyndaverinu
í London. I dag er Robin með níu
starfsmenn á launaskrá, þar af sex
kokka, og fjöldan allan af afleysinga-
fólki. Vinnudagurinn er langur, frá
hálffimm á morgnana til sjö á kvöldin
að jafnaði og stundum til tíu. Borinn
er fram morgunmatur, morgunkaffí,
hádegismatur, síðdegiskaffí og kvöld-
matur og eru matargestir allt frá 80
upp i 300 manns jafn margir og unnu
„Ég set hreinlætið ofar öllu,“
segir Demetriou.
við tökur á kvikmynd Stevens Spiel-
bergs Empire of The Sun.
„Matur er leikarans megin,“ segir
Demetriou en það er ekki algilt. Þeg-
ar verið var að taka fangabúðaatriðin
á Spáni í mynd Spielbergs snerist starf
matreiðslumeistarans upp í andhverfu
sína. „Sent var eftir næringarrfræð-
ingi frá London því leikaramir áttu
að eldast um nokkur ár í fangabúðun-
um á hálftíma í myndinni auk þess
að vera trúverðugir stríðsfangar. Það
hefði ekki dugað að troða í þá brauði
og sætindum og því fengu þeir ekkert
nema hrísgijón og ávexti. Mestur
tíminn fór í að fylgjast með því að
þeir væm ekki að svindla," segir hann.
UTVARP
Rós I 17.10. Krónika, þáttur úr sögu mannkyns. Umsjún: Þorgeir Kjortans-
lon og Þórunn Hjartardóttir. (Endurfluttur á mióvikudagskvöld kl. 21.00)
RÁS I
FM 92,4/93,5
6.45 Veðurfregnir
6.50 Bæn: Maria Ágústsdóttir
flytur. Snemma á laugardags-
morgni Þulur velur og kynnir
tónlist. 7.30 Veðurfregnir
8.07 Snemma á laugardags-
morgni heldur áfram.
9.03 Þingmál Umsjón: Atli Rúnar
Halldórsson og Valgerður Jó-
hannsdóttir.
9.25 Með morgunkaffinu - Létt
lög á laugardagsmorgni.
10.03 Mannréttindakafli stjórnar-
skrárinnar Erindi frá almennum
borgarafundi 1. desember sl. um
endurskoðun mannréttindakafla
stjórnarskrárinnar. Sfðari hluti.
Umsjón: Bergljót Baldursdóttir.
10.45 Veðurfregnir
11.00 1 vikulokin Umsjón: Logi
Bergmann Eiðsson.
12.00 Útvarpsdagbókin og dag-
skrá iaugardagsins
12.45 Veðurfregnir og auglýsingar
13.00 Fréttaauki á laugardegi
14.00 Hringiðan Menningarmál á
líðandi stund. Umsjón: Halldóra
Friðjónsdóttir.
16.05 Islenskt mál Umsjón: Guð-
rún Kvaran. (Endurflutt nk.
miðvikudagskvöld kl. 21.60)
16.15 íslensk sönglög Þorgeir J.
Andrésson, Þuríður G. Sigurðar-
dóttir og Svava Ingólfsdóttir
syngja ásamt Landsvirkjunar-
kórnum.
16.30 Veðurfregnir
16.35 Ný tónlistarhljóðrit Ríkisút-
varpsins Guðrún María Finn-
bogadóttir sópransöngkona
syngur með Sinfóníuhljómsveit
íslands undir stjórn Gunnsteins
Ólafssonar. Umsjón: Dr. Guð-
mundur Emilsson.
17.10 Krónika Þáttur úr sögu
mannkyns. Umsjón: Þorgeir
Kjartansson og Þórunn Hjartar-
dóttir. (Endurfluttur á miðviku-
dagskvöld kl. 21.00)
18.00 Tónlist Edita Gruberova,
Luciano Pavarotti, Carlo Berg-
onzi, Anna Tomowa Sintow,
Dietrich Fischer Dieskau, Gildis
Flossman og fleiri syngja atriði
úr óperum eftir Bellini, Weber,
Verdi og Bizet.
18A8 Dánarfregnir og auglýsingar
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Auglýsingar og veðurfregnir
19.35 Óperukvöld Utvarpsins
- Ödipus eftir Georges Enesco.
Með helstu hlutverk fara: José
van Dam, Gabriel Bacquier,
Marcel Vanaud, Nicolai Gedda,
Birgitte Fassbaender, Marjana
Lipovsek og Barbara Hendricks.
Fflharmóníuhljómsveitin í Monte
Carlo leikur; Lawrence Foster
stjórnar. Umsjón: Ingveldur G.
Ólafsdóttir Orð kvöldsins flutt
að óperu lokinni: Haukur Ingi
Jónasson flytur.
22.35 Islenskar smásögur: Væng-
maður eftir Gyrði Eliasson. Sím-
on Jón Jóhannsson les. (Áður á
dagskrá sl. föstudag)
23.15 Dustað af dansskónum
0.10 RúRek. djass Frá tónleikum
á RúRek djasshátíð 1994:
Kvartett Archie Shepps leikur.
Umsjón: Vernharður Linnet.
(Áður á dagskrá ! gær)
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns
Fréttlr á RÁS 1 og RÓ5 2 Itl. 7, 8,
9, 10, 12.20, 16, 19, 22 og 24.
RÁS 2
FM 90,1/99,9
8.05 Endurtekið barnaefni Rásar
1. 9.03 Laugardagslíf. Umsjón:
Hrafnhildur Halldórsdóttir. 12.45
Helgarútgáfan. Umsjón: Lísa Páls.
16.05 Heimsendir. Margrét Kristin
Blöndal og Sigurjón Kjartansson.
17.00 Með grátt í vöngum. Gestur
Einar Jónasson. 19.30 Veðurfrétt-
ir. 19.32 Vinsældalisti götunnar.
Umsjón: Ólafur Páll Gunnarsson.
20.30 Úr hljóðstofu BBC. Umsjón:
Andrea Jónsdóttir. 22.10 Nætur-
vakt Rásar 2. Umsjón: Guðni Már
Henningsson.
NÆTURÚTVARPIÐ
1.30 Veðurfregnir. Næturvakt rás-
ar 2. 2.00Fréttir. 2.05 Rokkþáttur
Andreu Jónsdóttur. 3.00 Næturlög.
4.30 Veðurfréttir. 4.40 Næturlög
halda áfram. 5.00 Fréttir. 5.05
Stund með hljómlistarmönnum.
6.00 Fréttir, veður færð og flug-
samgöngur. 6.03 Ég man þá tíð.
Hermann Ragnar Stefánsson.
(Veðurfregnir kl. 6.45 og 7.30).
Morguntónar.
ADALSTÖDIN
90,9 / 103,2
9.00 Sigvaldi Búi. 13.00 Á mjúku
nótunum með Völu Matt. 16.00
Jenný Jóhannsdótir. 19.00 Magnús
Þórsson. 21.00 Næturvakt Aðal-
stöðvarinnar.
BYLGJAN
FM 98,9
7.00 Morguntónar. 9.00 Morgunút-
varp með Eiríki Jónssyni og Sig-
urði L. Hall. 12.10 Ljómandi laug-
ardagur. Halldór Backman og Sig-
urður Hlöðversson. 16.00 íslenski
listinn. Umsjón: Jón Axel Ólafsson.
19.00 Gullmolar. 20.00 Laugar-
dagskvöld á Bylgjunni. Umsjón:
Halldór Backman. 23.00 Hafþór
Freyr Sigmundsson. 3.00 Nætur-
vaktin.
Fréitir kl. 10, 12, 15, 17 og 19.30.
BYLGJAN, ÍSAFIRDl
FM 97,9
9.00 Samtengt Bylgjunni FM 98,9.
20.00 Tveir tæpir. Víðir Arnarson
og Rúnar Rafnsson. 23.00 Gunnar
Atli með næturvakt. Síminn í hljóð-
stofu 93-5211. 2.00 Samtengt
Bylgjunni FM 98.9.
BROSIÐ
FM 96,7
10.00 Ellert Grétarsson. 13.00
Léttur laugardagur. 17.00 Helgar-
tónar. 23.00 Næturvaktin. 3.00
Næturtónlist.
FM 957
FM 95,7
9.00 Helga Sigrún. 11.00 Sport-
pakkinn. Hafþór Sveinjónsson og
Jóhann Jóhannsson. 13.00 Sigvaldi
Kaldalóns og Haraldur Daði. 16.00
Axel Axelsson. 19.00 FM957
kynndir upp fyrir kvöldið. 23.00 Á
Iffinu.
TOP-BYLGJAN
FM 100,9
7.00 Sjá dagskrá Bylgjunnar FM
98,9. 10.00 Svæðisútvarp TOP-
Bylgjan. 11.00 Samtengt Bylgj-
unni FM 98,9.
X-ID
FM 97,7
10.00 Örvar Geir og Þórður Örn.
12.00 Ragnar Blöndal. 14.00 X-
Dómfnóslistinn. 17.00Þossi. 19.00
Party Zone. 22.00 Nætur-
vakt.03.00 Næturdagskrá.