Morgunblaðið - 02.02.1995, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
■ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR
BLAD
KNATTSPYRNA
Guðni lék
með varaliði
Tottenham
Guðni Bergsson lék með varaliði Tottenham gegn
Norwich í gærkvöldi á Carrow Road, þar sem
Tottenham vann, 0:2, með mörkum Jason Dozzel
og John Hendry. Hann mun leika með varaliðinu
aftur um helgina. Að sögn enskra dagblaða í gær
er Guðni til reynslu á hjá Tottenham í tíu daga.
Garry Prancis, framkvæmdastjóri félagsins, hefur
áhuga á að skoða Guðna í þessum leikjum og sjá
hvort hann hafi not fyrir hann hjá félaginu.
Guðni lék 89 leiki með aðalliði Tottenham frá
1989 til 1994 en þá snéri hann heim og lék með
Val síðasta sumar.
Tómas Ingl Tómasson.
Tómas Ingi
til Sogndal
TÓMAS Ingi Tómasson, leikmað-
ur úr KR, hefur fengið boð um
að fara til Noregs í reynslu í tíu
daga hjá norska 2. deildarliðinu
Sogndal, sem féll úr 1. deild á síð-
asta tímabili. „Ég fer út áttunda
febrúar og verð í tíu daga og spila
þrjá æfingaleiki. Það er í raun
eina sem ég veit um þetta mál.
Maður tapar ekkert á því að skoða
þetta og það er aldrei að vita nema
að þetta geti orðið spennandi.
Annars er ég hjá góðu félagi og
þarf því ekkert að ana að neinu,“
sagði Tómas Ingi.
Norska deildarkeppnin hefst í
apríl og ef Tómasi Inga líst á að-
stæður mun hann fara til Noregs
aftur um næstu mánaðarmót til
að vera með í lokaundirbúningi
liðsins fyrir tímabilið.
Þingmenn
vilja Cantona
aftur í liðið
ÞRÍR þingmenn Verkamanna-
flokksins hafa lagt fram þings-
ályktunartillögu í breska þinginu,
þar sem þeir hvetja forráðamenn
Manchester United til að endur-
skoða þá ákvörðun að franski leik-
maðurinn Eric Cantona leiki ekki
meira í vetur. Þingmennirnir, sem
allir eru úr kjördæmum i grennd
við Old Trafford, leikvang United,
segja félagið hafa verið undir
áhrifum móðursýkislegar umfjöll-
unar Ijölmiðla er ákvörðunin var
tekin. Cantona réðst sem kunnugt
er á áhorfanda, meðan á leik Un-
ited og Crystal Palace stóð í síð-
ustu viku; stökk upp i áhorfenda-
stæðið og sparkaði í og barði
áhanganda Palace, sem hafði hróp-
að ókvæðisorð að Frakkanum, eft-
ir að honum var vikið að velli.
FRJALSIÞROTTIR
íslensk slúlka slær
í gegn í Svíþjóð
Vala Flosadóttir á óopinbert Norðurlandamet ístangarstökki, 3,63 metra
Mynd / Göran Hágerfjörd
Vala Flosadóttir hefur stokklð hærra í stangarstökki en nokkur
önnur kona á IMorðurlöndum. Þessl 16 ára gamla stúlka frá Bíldu-
dal hefur vaklð mikla athygll í Svíþjóð.
VALA Flosadóttir, 16 ára gömul frjálsíþróttakona sem býr í Sví-
þjóð, hefur vakið mikla athygli þar í landi vegna frammistöðu sinnar
í stangarstökki. Hún stökk 3,50 metra á móti í Malmö fyrir skömmu
og bætti það síðan í 3,63 metra á dögunum og hefur engin önnur
kona á IMorðurlöndum stokkið eins hátt svo vitað sé. Besti árangur
kvenna sem vitað er um í heiminum er 4,13 metrar.
Vala, sem er í menntaskólanámi í
Lundi, er ekki aðeins góð í
stangarstökki því hún hefur einnig
verið að bæta stúlknamet Þórdísar
Gísladóttur í hástökki innanhúss.
Vala hefur tvíbætt metið á síðustu
vikum; fyrst um einn sentímetra, 1,77
m, og síðan 1,78 metra. Hún er fjöl-
hæf frjálsíþróttakona og til marks um
það á hún stúlknamet í sjöþraut, þrí-
stökki og hástökki innanhúss og utan.
Vala bjó á Bíldudal áður en hún
flutti til Svíþjóðar fyrir tveimur árum
ásamt foreldrum sínum; Ragnhildi
Jónasdóttur og Plosa Magnússyni,
sem eru í framhaldsnámi í háskólan-
um í Lundi. Vala æfði frjálsíþróttir
á Bíldudal við frumstæðar aðstæður
en hóf æfíngar fyrir alvöru er hún
fluttist til Svíþjóðar. Hún byrjaði að
æfa með IFK Lundi, en fyrir ári síð-
an skipti hún yfír í MAI frá Malmö
þar sem hún æfír nú við bestu hugs-
anlegar aðstæður.
Þjálfari hennar er Pólverjinn Stan-
islaw Sczcyrba, sem hefur einnig séð
um þjálfun sænska meistarans í
stangarstökki karla. Sczcyrba fékk
Völu til að prófa stangarstökkið og
segir hana mikið efni og ef heldur
áfram sem horfir segir hann að hún
geti orðið á meðal tíu bestu stangar-
stökkvara heims strax á næsta ári
þegar stangarstökk kvenna verður
gert að alþjóðlegri keppnisgrein.
„Þjálfarinn ýtti mér út í stangar-
stökkið og ég held að það eigi ve!
við mig. A fyrsta mótinu stökk ég
2,50 metra en er nú komin í 3,63
metra. Þessi árangur minn hefur
vakið mikla athygli hér í Sviþjóð,
enda ekki margar stúlkur sem stunda
stangarstökk. Svíar vilja helst að ég
keppi fyrir þá, en ég er staðráðin í
að keppa fyrir ísland. Á síðasta
móti stökk ég jafn hátt og strákurinn
sem sigraði i piltaflokknum. Þetta
er búið að vera mjög gaman og hvet-
ur mig enn frekar til dáða. Eg æfi
einnig hástökk og aðrar greinar en
ég held að mögleikarnir séu mestir
í stangarstökkinu," sagði Vala.
OLYMPIUSAMHJALPIN
Ingi Valur varð að
hafna styrknum
Lyftingamaðurinn Ingi Valur Þorgeirsson úr UMSB sem Ólympíus-
amhjálp Alþjóða ólympíunefndarinnar hafði samþykkt sem styrk-
þega vegna svo nefnds Atlantaverkefnis, gat ekki þegið styrkinn vegna
meiðsla og hefur Ólympíunefnd íslands tilkynnt Samhjálpinni það.
Nái hann sér fljótlega er gert ráð fyrir að hann verði tekinn inn í
verkefnið og njóti þá aðstoðar Samhjálparinnar vegna undirbúnings
fyrir Ólympíuleikana í Atlanta síðsumars 1996.
Styrkurinn felur m.a. í sér ferðir í æfingabúðir erlendis, húsnæði,
fæði, æfingaaðstöðu í viðurkenndri æfingamiðstöð, þjálfun og ein-
hveija vasapeninga en Óí metur hvern styrk á milljón krónur á ári.
KEILA: SKEMMTILEGUR LOKASPRETTUR Á NM í ÖSKJUHLÍÐ / 04